Þjóðviljinn - 25.06.1976, Side 7
Föstudagur 25. júnl 1976 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 7
„Páll Vilhjálmsson”
Athugasemd Gísla Rúnars Jónssonar
Af marggefnu tilefni vegna
fjarveru „Páls Vilhjálmssonar” i
„Stundinni okkar” og vegna
blaðaviötals, fjölda lesendabréfa,
afskræmdra ljósmynda svo og
annarra skrifa sem birst hafa i
blööum i sambandi viö hannán
minnar hlutdeildar, vil ég gera
athugasemd, sem ég flokka niöur
i 9 stutt atriði.
Mun ég i meginatriöum styöj-
ast viö grein Jóns Þórarinssonar
dagskrárstjóra, er hann sendi
dagblöðunum þ. 14. júni sl., ai
vikja til oröum svo og bæta inn i
eftir þvi sem mér þykir komast
nær raunveruleikanum. Rétt er
þviað hafagrein J.Þ. viö hendina
til samanburöar.
1) Skömmu fyrir siöustu áramót
þegar Guörún Helgadóttir tók aö
sér að semja þann texta sem
Páll átti aö flytja, tók ég undirrit-
aöur viö stjórn brúöunnar og
flutningi textans. Var mér fengið
þetta verkefnii hendur meö rúm-
lega eins dags fyrirvara, vegna
þess aö fráfarandi stjórnandi
brúöunnar hæföi hætt störfum
nokkuð skyndilega vegna ágrein-
ings hans og J.Þ. um launa-
greiðslur.
2) „Akvaö” J.Þ. tiltekna greiöslu
til okkar G.H. fyrir hvern þátt,
sömu upphæö til beggja.
Gekk ég aö skilmálum sem
okkur voru settir, þó ekki „um-
tölulaust” eins og segir i grein
J.Þ., vegna þess aö samkvæmt
þeim var greiösla fyrir hverja
„stund” með Páli, litlu sem engu
hærri en greiðsla sem ég fékk hjá
sjónvarpinu fyrir flutnir.g
skemmtiefnis svipaös eölis (svip-
uö tlmalengd og tilhögun) fyrir
rúmum 3 árum og þótti mjög litið
þá.
J.Þ. sá hinsvegar ekki ástæöu
til aö bjóöa öllu betri skilmála nú
3 árum seinna, þar sem aðild min
að „stundinni” væri einungis
stjórnun brúöunnar og flutningur
textans en ég kæmi aö ööru leiti
ekki fram sjálfur.
3) Eftir u.þ.b. mánuö þegar sýnt
var aö þessi samvinna gafst vel
og Páll haföi náö vinsældum, fór
ég aö hugleiöa launahækkun.
M.A. vegna þess sem áöur segir
og ennfremur vegna þess aö ég
var farinn aö verja töluveröum
tima I aö semja kynningar fyrir
Pál og haföi raunar gert frá upp-
hafi, og var það J.Þ. svo og öðrum
aöstandendum fyllilega ljóst.
(Þaö gerði ég aö vlsu óumbeðiö,
en af áhuga á verkefninu og með
hagsmuni Páls I huga). Þó veigr-
aði ég mér lengi vel viö því aö
minnast á launahækkun viö J.Þ.,
minnugur fyrri viöskipta okkar á
þeim grundvelli nokkrum misser-
um áöur. Aöur en ég geröi nokkuð
imálinuskallá verkfall oguppúr
þvi voru gerðir nýir kjarasamn-
ingar sem höföu i för meö sér al-
mennar launahækkanir. Fékk ég
svo hækkun nokkru seinna. Aö
vlsuþurfti ég aöfalasteftir henni.
Hún kom ekki sjálfkrafa eins og
J.Þ. gefur berlega i skyn. Þess
skalþó getið að hann brást vel viö
umleitan minni. Fékk þaö svo á
mig aö ég steingleymdi aö til-
greina þá upphæö sem ég haföi I
huga. Enda kom á daginn aö
launin hækkuöu mjög litiö frá þvi
sem verið hafði.
-------4) „Af sjónvarpsins hálfu
var svo litið á að um bindandi
samkomulag væri aö ræöa á meö-
an Stundin okkar var á dagskrá i
vor”. Ég ltt hinsvegar ekkisvo á
aö um bindandi samkomulag hafi
veriö aö ræöa, þar sem aldrei
voru geröir neinir bindandi
samningar, hvorki skriflega né
munnlega.
5) Þegar eftir var aö senda út 2
„stundir” meö Páli á þessu vori
og taka upp aðrar 2 sem voru
jafnframt þær siöustu, kom ég aö
máli viö J.Þ. og „óskaöi” eftir
hækkun á þóknun minni. Rök-
studdi ég þann málflutning aöal-
lega meö þvi aö hækkun sú er ég
fékk á sinum tima, væri langt fyr-
ir neðan þaö sem mér bæri. Auk
þess itrekaöi ég hlutdeild mina i
textanum sem J.Þ. var vel kunn-
ugt um og haföi i rauninni viöur-
kennt sem gilda ástæöu fyrir
launahækkun siöast þegar viö átt-
um tal saman. Ennfremur vissi
hann þaö sem meira var, aö mér
var ekki einungis heimilt aö
„víkja til oröum i handriti eftir
þvi sem mér þætti fara betur i
munni”einsog segir i grein hans,
heldur aö strika út og bæta inn I
að vild. Þrátt fyrir ágæt handrit
G.H. sá ég ástæöu til að bæta við
þau og breyta þeim eftir þvi sem
mér þótti betur hæfa persónu-
leika Páls, auk þess sem viö
Sigri'öur M. Guömundsd.
„improviseruöum” eða spunnum
af munni fram, þó nokkurn hluta
þess efnis er viö létum frá okkur
fara I upptöku.
J.Þ. kvaöst alls ekki geta upp-
fyllt neinar „óskir” um launa-
hækkun. Bætti hann þvi viö aö ef
ég ekki sætti mig viö þau laun er
ég nú hefði, þá væri ég ekki
ómissandi frekar en aörir og gæti
þess vegna hætt! Þannig lyktaði
þvi.
6) Viöeigandi er aö minna á aö
Páll er ekki fyrsti og eini vinsæli
sjónvarpsleikarinn sem ekki er
talinn ómissandi um leiö og gripa
þarf til pyngjunnar. Hver man
ekki Glám og Skrám, Halla og
Ladda og fl. og fl.
7) Upptökum á samtölum Páls og
S.M.G. hefur verið hagaö þannig
aö tekið hefur veriö upp á 1 degi„
efni i 3 barnatima.
Til undirbúnings taldi ég mig
þurfa aö fara yfir textann tvisvar
til þrisvar sinnum einum til
tveimur dögum fyrir upptöku,
fyrir utan allan tlma sem fer, eins
og áöur segir, I aö semja og lag-
færa handritin. Þaö er þvi aug-
ljóslega rangt metiö, aö i þetta
„fari 2 dagar sem ég fái greidda
fyrirþóknun,er nemur tfmakaupi
dagskrármanna i Sjónvarpinu
fyrirrúmlega 44 vinnustundir eöa
meira en fjóröungi mánaöar-
launa”, eins og segir orörétt i
grein J.Þ.
Þetta dæmi gefur alranga
mynd þar sem dagskrármönnum
sjónvarpsins og öörum sttkum
annarsvegar og svo leikurum og
skemmtikröftum hinsvegar eru
greidd laun sem byggjast á gjör-
óllkum lögmálum.
Ég lýsi þvi undrun minni á þvi
aö nokkur sá maöur sem kunnug-
ur er þeirri starfsemi, er fram fer
i stofnunum eins og sjónvarpi, út-
varpi, leikhúsi og þ.h., skuli gera
svo óraunhæfan samanburö sem
þennan.
8) „Þaö skal og tekiö fram aö
G.H. hefur engar kröfur gert i
þessu sambandi”, segir J.Þ.
Gisli Rúnar Jónsson
Sjálf sagöi hún i viötali viö Dag-
blaöiö á dögunum, þaö koma til
vegna þess aö hún skipi svo háan
launaflokk hjá rikinu, aö þaö
skipti hana ekki máli hvort hún
fær þessum krónum meira eöa
minna fyrir að semja um strák-
inn, „enda hefur samvinnan viö
hana verið hin ánægjulegasta aö
öllu leiti”, segir J.Þ. ennfremur.
9) „Vonir standa til, að Páli komi
hress og kátur úr sveitinni meö
haustinu”. Svona hljóöar niöur-
lag greinar J.Þ. sem ég hef að
mestu stuöst viö og gert minar at-
hugasemdir viö,samkvæmt bestu
vitund. Ég lit svo á aö fáir hafi
nægilega sterkan persónuleika til
aö standa af sér fárviöri eins og
þaö sem geisaö hefur i kring um
dúkkustrákinn Pál og er þó
greinilega ætlast til þess af hon-
um. Ég er hræddur um aö hann
axli ekki þær byrðar sem hann
yröi aö taka sér á heröar i haust
ef til kæmi. Ég vil Páli uppá-
haldsvini minum vel og held aö
þaö sé honum fýrir bestu, aö hann
flengist i sveitinni, hvernig sem
máliö er skoöaö.
20. júni 1976
GIs li Rúna r Jónsson.
Frá höfninni á Suöureyri.
Gisli Guðmundsson Suðureyri:
Dauður sjór hjá linubátum
Otlit er nú fyrir að hinni hátt-
virtu rikisstjórn — sem sagt
ráðamönnum þjóöarinnar —
hafi nú tekistmeö aðstoö bredca
heimsveldisins, sbr. Oslóar-
samninginn, o.fl. aö þurrausa
vestfirsk linubátamiö, a.m.k.
fyrir utan 30 sjómilur. Auðvitað
meö timanum verkar sú þurrk-
un smátt og smátt á hin grynnri
miðlika þar sem fiskur fær ekki
að ganga þar upp óhindraður.
Skv. þeim fréttum sem ég hef
aflað mér i dag mun nú vera
sem næst dauður sjór hjá linu-
bátum hér á Vestfjarðamiðum
a.m.k. hér að noröanveröu á
Vestfjörðum og á Ströndum, út
af Straumnesi, Kögri og Hom-
bjargi.
1 nótt kom m.s. Kristján Guð-
mundsson meö 60 kassa af fiski
eftirtveggja daga veiðiferð, ca.
3,5-4 tonn á 400 lóðir en meö
Sigurvon komu i dag lika eftir
svipaöan tima um 40 kassar,
þ.e. 2,5-2,8tonn á 4001óöir. Þetta
má teija algera þurrkun.
Nú á hin háttvirta mislukkaöa
islenska rikisstjórn aöeins eftir
að senda bretum og raunar
v-þjóðverjum flka þakkarávarp
fyrir hin velunnu eyðileggingar-
störf á islenskum fiskimiðum.
Tæplega munu vestfirskir sjó-
mennog lika allir islenskir sjó-
menn skrifa undir það ávarp.
Suðureyri viö
Súgandafjörö
23. júni.
„Shieldliead” — Skjaldhamrar
Enska uppfœrslan sýnd þrisvar i Iðnó
Leikflokkur sá, sem sýndi
leikrit Jónasar Arnasonar
Skjaldhamra. („Shieldhead*’) á
leiklistarhátið i Dundalk á lr-
landi I siöasta mánuöi, mun
sýna leikritiö þrisvar (i enskri
þýöingu Alans Boucher) i Iðnó
i næstu viku, þriöjudag 29. júni,
miövikudag 30. júni og fimmtu-
dag 1. júli. Sýningarnar hefjast
samkvæmt venju i Iðnó kl. 8.30.
Aögöngumiðasala hefst á morg-
un, föstudag, i miöasölunni i
Iönó kl. 2, — pantanir i sima
16620.
Svo sem kunnugt er vakti sýn-
ing þessi geysilega hrifningu i
Dundalk og siöan hafa margir
falast eftir verkinu, — m.a. hef-
ur borist boö um aö leikflokkur
þessi sýni verkið á hinni miklu
leiklistarhátiö i Dublin i haust.
Þessi enska uppfærsla á verk-
inu er i nokkrum atriöum frá-
brugðin þeirri islensku, en
breytingarnar — yfirleitt smá-
vægilegar — miða að þvi aö
gera verkiö aðgengilegra fyrir
útlenda áhorfendur.
F J ORÐUN GSMOT
hestamanna á Rangárbökkum við Hellu
dagana 25.-27. júní 1976:
Ódýr fjölskylduskemmtun
Fjölbreytt sýning á kynbótahrossum
Gæðingakeppni fyrir börn og fuliorðna
Æsispennandi kappreiðar
Dansleikir:
PARADÍS
i Hvoli, föstudags- og laugardagskvöld
ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON
i Hellubiói, laugardagskvöld.
Framkvæmdanefndin.