Þjóðviljinn - 26.06.1976, Blaðsíða 11
Laugardagur 26. júní 1976 ÞJÓÐVILJIN'N’ — SÍÐA II
Þjóðarhagur 1976
Þj óðhagsstofnunar
VIÐSKIPTAKJÖR 1914-1976.
VÍSITÖLUR. 1914=100.
Þióðarframleiösla bioöartekiur or þioöarutRiöld 19/4 -xy/b.
Milljónir króna1^ Breytingar frá fyrra ári, %
Bráöab. 1974 Spá 1975- Magn2) Verö
1974 1975 1974 1975
Einkaneyzla 90.630 119.360 7,0 -11,0 43,0 48
Samneyzla 14.430 19.300 5,0 2,0 49,3 31
Fjármunamyndun 45.150 64.040 10,8 -8,0 42,5 54
Atvinnuvegir 20.800 26.210 16,2 -21,1 58,3 60
Opinberar fram- kvæmdir 14.150 24.470 22,9 15,9 49,0 49
íbúftarhús 10.200 13.360 -13,4 -7,6 52,0 40
Birgóabreytingar 2.578 3.900
Þjóöarútgjöld samtals 152.788 206.600 10,4 -8,9 42,8 48,5
l3tf lutningur vöru og þjónustu 48.080 72.190 -0,7 2,5 29,5 46,5
Innflutningur vöru og þjónustu 63.610 93.570 13,2 -11,2 40,4 65', 5
Vióskiptajöfnuóur -15.530 -21.380
Verg þjóóarfram- leiÖsla 137.258 185.220 3,3 -3,9 41,0 40,5
Viöskiptakjaraáhrif1 ^ -2,5 -4,1
Vergar þjóóartekjur 0,8 -8,0
1) Verölag hvors árs.
2) Magnbreytingar 1974 verölagi 1969, magnbreyting 1975 á verölagi 1974.
3) Hlutfall af bióöarframleiÓslu fvrra árs.
Þjóöarframleiösla þjóöartekjur og þjóöarútgiöld 1975 -1976. ■
Milljónir króna^ á verÖlagi hvcrs árs Breytingar frá fyrra ári , %
Spá 1976 Magn Verö
1975 1975 19761) 1975 1976
Einkaneyzla 119.360 149.700 -11,0 -2,0 48 28
Samneyzla 19.300 24.150 2,0 0,0 31 25
Fjánrunamyndun 64.040 73.250 -8,2 -8,1 54 24,5
Atvinnuvegir 26.210 29.330 -21,1 -10,1 60 24,5
Opinberar framkvamriir 24.470 28.540 15,9 -6,2 49 24,5
íbúöarhús 13.360 15.380 -7,6 -7,9 42 25
Birgöabreytingar 3.900 -
ÞjóöaiMtgjöld saimtals 206.600 247.100 -8,9 -5,6 48,5 26,7
Útflutningur vöru og þjónustu 72.190 94.500 2,5 4,3 46,5 25,5
Innflutningur vöru og þjónustu 93.570 106.900 -11,2 -4,7 65,5 19,8
ViÖskiptaj öf nuöur -21.380 -12.400
Verg þjóöarframleiösla 185.2^0 234.700 -3,9 -2,2 40,5 29,5
Viöskiptakjaraáhrif 2) -4,1 +1,8
Vergar þjóöartekjur -8,0 -0,4
1) Hér er nii&a&~'vib haara tilvik sjávarafla, þ.e. 1,4% minnkun útflutningsframleifislu
sjávarafurða. Miftað við lægra tilvik afla, þ.e. 4,^2% minnkun sjávarafurðaframleiðslu,
hefÖi þessi breyting vantanlega einnig í för með sér nokkurn samdrátt þjóöanítgjalda
og innflutnings og rreetti þá buast viÖ eftirfarandi niöurstööum þjóöarframleiöslu
og þjóöartekna.
Verg þj&arframleiösla -3,0
ViÖskiptakjaraáhrif +1,8
Vergar þjóöartekjur -1,2
2) Hlutfall af þjóöarframleiöslu fyrra árs.
Þjóöhagsstofnun hefur sent frá
sér yfirlit um ástand og horfur i
efnahagsmálum á miöju árinu
1976. Hér á siöunni verBur spá
stofnunarinnar rakin án þess aB
afstaöa sé tekin til þeirra upplýs-
inga sem þar koma fram — til
fróöleiks fyrir lesendur blaösins.
Útflutningsframleiðslan
Heildaraflinn fyrstu fjóra mán-
uöi ársins var rúmlega 522 þús-
und tonn samanboriö viB 647 þús-
und tonn á sama tima I fyrra. Hér
munar mest um loönuna en hún
er 119 þúsund tonnum minni i ár
en i fyrra. Botnfiskaflinn var 7
þúsund tonnum minni en i fyrra,
einkum vegna rýrari þorskafla,
sem var 6 þúsund tonnum minni
enifyrra. Annar afli var meiri en
I fyrra einkum rækja. Verömæti
sjávarafla á föstu verBlagi er 5
1/2% minni en i fyrra, um 3%
minni ef loöna er frá talin.
ÞjóBhagsstofnun spáir 290-320
þúsund tonna þorskafla á þessu
ári samanboriB viB 370-380 þúsund
tonn siöastliöin 3 ár.
MiöaöviB þessar tölur þaö sem
þekkt er fyrstu fjóra mánuBina og
þaö sem ætla má aB veitt veröi á
hinum 8 — byggir þjóöhagsstofn-
un spá sina um útflutning sjávar-
afuröa i ár. Segir aö heildarfram-
leiösla sjávarafuröa á árinu 1976
muni minnka um 1-1 1/2% frá
fyrra ári jafnvel þótt þorskafli
veröi svipaöur á siöari hluta árs
og I fyrra. Sé hins vegar reiknaö
meö 20-25 þúsund tonna minni
þorskafla islendinga á siöari
hluta þessa árs eru horfur á 4-5%
samdrætti.
Verölag útfluttra sjávarafuröa
hefur farið hækkandi að undan-
förnu og var i mailok 34-35%
hærra i islenskum krónum en að
meðaltali 1975. í dollurum reikn-
aö nemur hækkunin 18-19%. Má
ætla aö verölag ársins 1976 reikn-
aö i erlendri mynt veröi um
13-14% hærra en i fyrra, en 29%
hærra i islenskum krónum, og er
þá miöaö viö, aö rikjandi verölag
haldist i aöalatriðum út áriö.
Verölag á áli hefur fariö hækk-
andi og er taliö aö meöalverö á
pundiö i ár veröi 40 bandarisk
sent samanborið viö 35 sent i
fyrra. Álframleiöslan veröur
nokkru meiri i ár en i fyrra.
Gróska er i öörum iönaðarút-
flutningi og búist er viö 10-11%
aukningu iðnaðarútflutnings I
heild, þótt ekki séu horfur á aukn-
ingu klsilgúrútflutnings. tJtflutn-
ingur landbúnaðarafurða veröur
væntanlega svipaöur og i fyrra.
Þegar dregnar eru saman spár
og áætlanir um útflutningsfram-
leiösluna i heild veröur niöurstaö-
an sú, aö hún muni veröa óbreytt
aömestueöa aukastlitiö eitt miö-
aö viö hærri aflamörk en hins
vegar minnka um 1-2% i lægra
dæminu. Vöruútflutningurinn er
talinn aukast um 2-5% i ár. Verð-
lag útflutningsafuröa batnar um
28-29% i islenskum krónum en
13-14% í erlendri mynt.
Tekjur og verðlag
Kafbnn um tekjur og verölag i
spá Þjóöhagsstofnunar er orörétt
á þessa leið:
„1 ársbyrjun 1976 voru kaup-
taxtar allra launþega um 10%
hærri en aö meöaltali 1976 og var
staðan svipuö hjá flestnm starfs-
stéttum. Á sama tima var al-
mennt neysluvöruverð um 13%
hærra en ársmeöaltal 1975, og
haföi kaupmáttur kauptaxta þvi
rýrnaö um 3% frá meöaltali fyrra
árs.
í kjarasamningum ilokfebrúar
var samiö um almenna 6% launa-
hækkun 1. mars, 1. júli og 1. októ-
ber á þessu ári og siðan 5% 1.
febrúará næsta ári, auk þess sem
samiö var um sérstakar lág-
launahækkanir og ýmsar sér-
hækkanir einstakra félaga. Þess-
ir samningar hafa siðan oröiö
fyrirmynd annarra kjarasamn-
inga I landinu aö undanförnu. Aö
mati Kjararannsóknárnefndar
hækkuöu kauptaxtar verkafólks
um 9,5-10% I fyrsta áfanga samn-
inganna og lægstu taxtar hækk-
uöu nokkru meira. Hjá iönaöar-
mönnum og verslunar- og skrif-
stofufólki nam hækkunin um
7,5%. 1 kjarasamningum eru á-
kvæöi um sérstaka verötryggingu
launa, þannig aö farai visitala
framfærslukostnaöar yfir ákveö-
in mörk — rauöu strikin svo-
nefndu — 1. júni og 1. október i ár
og 1. febrúar á næsta ári, skuli
laun hækka hlutfallslega sem
nemur umframhækkuninni. Þó
skal ekki taka tillit til hækkunar á
launaliö búvöruverösgrundvall-
ar eða hækkunar áfengis- og
tóbaksverðs, oger þ^ö óbreytt frá
samningum á undanförnum ár-
um. Hinn 1. júni sl. fór visitalan
2,7% fram úr fyrsta „rauða strik-
inu”, og llkur benda nú til, að
visitalan 1. október nk. veröi
heldur yfir næsta „rauöa strik-
inu”, e.t.v. svo nemi 1%, einkum
vegna hækkunar vörugjalds i
maf. Þvi má telja, aö kauptaxtar
muni hækka um nálægt 28% frá
upphafi til loka ársins og veröi aö
meðaltali 25-26% hærri I ár en i
fyrra. Eru þetta mjög svipaöar
breytingar og uröu á árinu 1975.
Ætla má, að atvinnutekjur á
mann aukist heldur minna en
hækkun kauptaxta gefur tilefni
til, þar sem likur benda til nokk-
urrar vinnutimastyttingar frá
fyrra ári, þótt ekki veröi hún
veruleg. Verkfall i febrúar skerti
tekjur launþega nokkuö. Ýmis
sérákvæöi kjarasamninga, sem
leitt gætu til tekjuaukningar án
þess aö þaö sé fyllilega metiö I
tölum i kauptaxtabreytingum hér
aö ofan, kynnu þó aö vega á móti
þessu. Aörar tekjur, svo sem
bætur almannatrygginga, eigna-
tekjur o.fl., hækka sennilega um
28-30% á árinu eöa nokkrúmeira
en atvinnutekjur, en þar sem
beinir skattar munu hækka um
rúmlega 30% i ár má ætla. aö ráö-
stöfunartekjur heimilanna aukist
um 26% i peningum.
Siöustu spár um veröbreyting-
ar á árinu benda til þess, aö visi-
tala framfærslukostnaöar hækki
um nálægt 28% frá upphafi til
loka ársins eða svipað og kaup-
taxtar. Sambærilegar verðlag-
hækkanir voru 37% áriö 1975 og
53% áriö 1974. Hins vegar veröur
framfærsluvisitalan liklega nær
30% hærri aö meöaltali i ár en á
sl. ári, en gera má ráö fyrir, aö
verölag einkaneyslunnar hækki
heldur minna eöa e.t.v. um 28%
aö meöaltali á árinu.
Samkvæmt þeim tekju- og
verðlagsspám, sem hér hafa ver-
ið raktar, viröist kaupmáttur
kauptaxta allra launþega munu
veröa um 3% minni I ár eni fyrra
og þvi svipaöur aö meöaltali á ár-
inu og i byrjun ársins, en um 1-1
1/2% hærri hjá verkafólki. Kaup-
máttur ráöstöfunartekna heimil-
anna, m.v. visitölu vöru og þjón-
ustu, er talinn veröa um 3% lak-
ari I ár en á sl. ári, en miöaö viö
verölag einkaneyslu yröi rýrnun-
in heldur minni. Hér hefur þá
verið tekiö tillit til breytinar
beinna skatta og bóta almanna-
trygginga.”
spá
Þjóðarútgjöld
Þjóöarútgjöld — þ.e. neysla og
fjármunamyndun eru talin veröa
tæplega 4% minni á árinu 1976 en
á siöastliðnu ári, og eru þá
birgöa- og bústofnsbreytingar
frátaldar. Að birgöabreytingum
meðtöldum næmi samdráttur
þjóöarútgjaldanna 5,5%, þar sem
birgðir jukust óvenjumikiö i
fyrra. Minnkun útgjaldanna staf-
ar af samdrætti i f jármunamynd-
un, en á sl. ári vó samdráttur
einkaneyslunnar langþyngst.
Einkaneysla er talin muni
dragast saman um 2% frá árinu
1975 vegna rýrnunar kaupmáttar
ráöstöfunartekna. Samneysla er
talin munu standa nokkurn veg-
inn I stað frá fyrra ári.
Nú er búist viö 8% samdrætti i
fjármunamyndun i ár. Fjár-
munamyndun atvinnuveganna er
talin dragast saman 10% og mun-
ar þar mest um minnkandi fjár-
festingu i fiskveiöum, en reyndar
er búist við samdrætti i flestum
greinum. Enn rikir óvissa um
framkvæmdir við málmblendi-
verksrhiöjuna, en gert er ráð fyrir
i spánni aö framkvæmdum verði
haldiö áfram aðnokkru. Innflutn-
ingur skipa og flugvéla verður
likiega um 43% minni en í fyrra
og um 60% minni en 1974. Opin-
berar framkvæmdir veröa senni-
lega 6% minni en i fyrra, nær ein-
göngu vegna minni umsvifa við
samgöngumannvirki og bygg-
ingar hins opinbera, en raforku-
og hitaveituframkvæmdir breyt-
ast óverulega. Nokkuð dró úr
ibúöarhúsabyggingum I fyrra og
er gert ráö fyrir áframhaldandi
samdrætti i ár eða um 8%.
Utanr íkisv iðskipti
Almennur vöruinnflutningur er
talinn veröa 6-7% minni i ár en i
fyrra. Innflutningurinn fyrstu
fjóra mánuöi arsins varð þó 10%
minni en á sama tima i fyrra að
magni til. Heildarvöruinnflutn-
ingurinn — aö meötöldum fjár-
festingarvörum — verður liklega
7-8% minni en i fyrra.
Viöskiptakjörin gagnvart út-
löndum voru á fyrsta fjórðungi
þessa árs um 3 1/2% betri en að
meðaltali 1975, og er það mun
meiri bati en óhætt þótti að áætla
á sl. hausti. Hér veldur mestu
verðhækkun á útfluttum sjávar-
afurðum, en verð á annarri út-
flutningsvöru hefur einnig hækk-
að nokkuð. Þannig var verðlag
rúmlega 5% hærra á fyrsta fjórð-
ungi ársins 1976 en á sama tima i
fyrra og um 7% hærra en meðal-
tal ársins 1975. Eru nú horfur á að
útflutningsverðlag hækki að
meðaltali i ár um 13-14% i er-
lendri mynt sem áður segir. Al-
mennt er talið að verð á innflutn-
ingi hækki um 7% að meðaltali
frá meöalverðinu i fyrra reiknað i
erlendri mynt eða um 20% i krón-
um. Samkvæmt þessu ættu við-
skiptakjörin að batna um 7% á
árinu 1976.
Gengi islensku krónunnar hefur
farið lækkandi þaö sem af er ár-
inu. Sl. ár var verð erlendra
gjaldmiðla 56,5% hærra i krónum
en árið á undan og réði þar mestu
20% hækkun við gengislækkunina
i febrúar 1975. Siöan hefur gengið
farið heldur lækkandi.
Gjaldeyrisstaðan er nú neikvæð
um 5.640 milj. kr. i lok april sl.
Greiöslubyröi erlendra skulda
hefur aukist verulega að undan-
förnu, enda hafa erlendar lántök-
ur veriö meiri undanfarin tvö ár
en á árunum 1971-1973, auk þess
sem vextir hafa hækkað og láns-
timi yfirleitt styst á alþjóðlegum
lánamarkaði. Arin 1968 og 1969
var greiðslubyröin afar þung og
var um 16,7% af útflutningstekj-
um siðara ársins. Greiðslubyrðin
var 11% að meðaltali árin 1970-
1974.1 fyrra jókst greiðslubyrðin i
14,8% og stefnir á 18-19% á þessu
ári og gæti enn aukist á næstu ár-
um jafnvel þótt útflutningstekj-
urnar ykjust.
Framhald á bls. 14.