Þjóðviljinn - 15.08.1976, Side 3
Sunnudagur 15. ágúst 1976 ÞJÓÐVIUINN — SÍÐA 3
Lögreglumenn nokkurra
Evrópulanda hafa að undanförnu
eflt mjög samstarf sitt um bar-
áttu við skæða þjófahópa, sem
gerast æ frekari til listaverka og
listmuna i söfniim og kirkjum.
bjófnuðum fer sifjölgandi siðustu
6-8 árin og verðmæti þýfisins,
sem oft er mjög erfitt að meta,
nemur tugum miljaröa króna.
Það gerist æ oftar að prestar sjá
fyrir sór auðn og tóm þar sem áð-
fram kröfur um sem svarar tæp-
um 600 miljónum króna. Borgar-
stjórnin i Úrbino visaði þessum
kröfum á bug, enda gat hún ekki
annað — sjálf skuldug upp fyrir
haus. En lögreglan italska tók
það að sér að semja við þjófana,
og reyndust þeir þá ekki sérlega
lifsreyndir. Þeir gengu t.d. i þá
gildru að taka við ferðatösku,
sem sýndist troðfull af peningum
— en i reynd voru ekta seðlar að-
Spjaldskrá þýsku lögreglunnar yfir stolin listaverk.
ur hékk altaristafla þegar þeir
ganga til tiða, eða að safnverðir
sakna smámynda frá fimmtándu
öld eða rókókkókommóðu á dag-
legri yfirferð sinni.
Mörg eru dæmin.
Nýlegdæmi: Innbrotsþjófar frá
Mönchen heimsóttu þrjár nætur i
röð villu greifa eins I Wittelsbaeh
og höfðu með sér þaðan 140 mál-
verk frá 16. og 17. öld. Húsráðandi
varð ekki var við þjófnaðinn fyrr
en hann fór niður i málverk'a-
kjallara sinn til að leita að einum
af tuttugu heimilisköttum sin-
um.
Þrir grimubúnir byssumenn
bundu og kefluðu þrjá næturverði
i páfahöllinni i Avignon, þar sem
mikil sýning á verkum Picassos
stóð yfir —- höfðu þeir siðan með
sér 119 af siðari verkum meistar-
ans.
A sl. fimm árum hefur i Bæjara
landi einu verið stolið úr kirkjum
665 mariumyndum, 554 Krist-
myndum, 1217 bilætum helgra
manna, 1046 englum, 2171 mál-
verki og 1584 ljósastikum.
Viðvaningar og fagmenn.
Og það gengur mjög erfiðlega
að koma upp um þjófana. 1 Vest-
ur-Þýskalandi tekst aðeins að
upplýsa um 20% af þjófnuðum
þessum. Helst tekst að hafa upp á
þjófum og þýfi, ef um áhugamenn
er áð ræða, sem ekki hafa mikla
reynslu i faginu, eða ef stolið er
svo frægum verkum, að næstum
þvi ógjörningur er að selja þau.
Náungi einn tékkneskrar ættar
tók sig til á dimmri vetrarnóttu,
reisti stiga upp að glugga á lista-
safni borgarinnar Tours, braust
þar inn og hafði með sér mynd
eftir sjálfan Rembrandt og aðra
eftir Goya. Þessar myndir hafði
hann með sér til Þýskalands, þar
sem vinkona hans þýsk reyndi að
selja þau. Það tókst að selja Goya
(fyrir aðeins 5000 mörk), en
þegar skötuhjúin gerðu alvöru úr
þvi að reyna að selja „Flóttann til
Egyptalands” eftir Rembrandt,
þá gat ekki liðið á löngu þar tií
handjárn trufluðu frekari athafn-
ir þeirra.
I febrúar i fyrra hurfu úr her-
togahöllinni i itölsku borginni
Urbino þrjú ómetanleg málverk
— tvö eftir Piero della Francesca
og eitt eftir Rafael. Þau eru nú
aftur komin á sinn stað, eftir árs
fjarveru.
Þeir sem brutust inn i Urbino
voru ekki þeir græningjar aö þeir
reyndu að selja einhverjum þau
djásn sem þeir höfðu stolið. Þeir
reyndu aðra aðferð mjög vel
þekkta: kröfðust „lausnargjalds”
fyrir listaverkin. Þegar á næsta
degi eftir innbortið lögðu þeir
eins I efstu lögum þess pappirs
sem i töskuna var troðið. Mál-
verkin fundust með þessu bragði i
hóteli i Lacoarno i Sviss, en þjóf-
arnir sluppu reyndar.
Undirheimar og yfirstétt
Oftast eru þjófarnir hins vegar
mjög reyndir i skipulagðri glæpa-
starfsemi og láta ekki blekkjast
auðveldlega. Þeir hafa útsmogna
mafiuþjálf. að baki og kunna vel
þa Iist að semja fyrir milligöngu
sæmilega „heíðvírðra” borgara,
gjarna lögfræðinga, og skilmálar
fyrir afhendingu og móttöku
lausnargjalds eru einatt ævin-
týralega flóknir. Samningar geta
dregist árum saman og á meðan
biða listaverkin i einhverri
kjaliaraholu og hrakar auðvitað
stórlega vegna afleitrar geymslu.
Þegar slikir samningar eru gerð-
ir (og lögregla neyðist til að loka
augunum fyrir þeim, enda þótt
þeir séu að sjálfsögðu refsiverðir
i sjálfum sér), þá þykir hæfa að
greitt sé fyrir endurheimtingu
þýfsins 10% af markaðsverði.
Sérhæfing.
I raun er einna erfiðast að hafa
upp á verkum ekki sérlega
þekktra listamanna eða list-
munum ýmiss konar. Til eru
þjófahópar sem sérhæfa sig i slik-
um hlutum og hafa komið sér upp
hugvitssamlegu njósnakerfi tíl aö
komast að þvi hvar feitan gölt sé
að flá. í Hamborg komst t.d. árið
1972 upp um hóp, sem naut góðs af
þekkingu og smekk veitinga-
manns eins, sem tók að sér veisl-
ur i rikum heimilum; hann gat að
sjálfsögðu gefið góðar upplýs-
ingar um það, hvar hægt væri að
finna gamalt postulin, sjaldgæft
silfur, helgimyndir o.s.frv. I
rannsókn þess máls komst lög-
regla á snoðir um margt fróðlegt,
sem lýtur að sambandi þjófa við
kaupendur — sem að sjálfsögðu
eru auðugir menn sem vilja efla
álit heimilis sins með gömlum
gripum. A slikum stundum tekst
kærleiksrik sambúð milli undir-
heima og yfirstéttar.
öryggisráðstafanir gegn lista-
verkaþjófum eru viðast hvar
mjög ófullkomnar. Viða er fé til
safna mjög skorið við nögl, og-
menn þykjastekkihafa efni á við-
vörunarkerfi sem gerði t.d. lög-
reglustöðvum viðvart þegar eitt-
hvað gruggugt er að gerast.
Einna varnarlausastir eru einka-
safnarar, sem oft eiga ekki einu
sinni ljósmynd af þvi verki sem
stolið hefur verið frá þeim.
Og þjófnuðum heldur áfram að
fjölga, og lögreglumenn endur-
bæta skrár sinar yfir stolin lista-
verk og komið er á fót sérstakri
listalögreglu i hverju landi á fæt-
ur öðru. En enn heldur þróunin
áfram i sömu átt og fyrr.
ítalskir lögreglumenn hafa fundið merkilegt þýfi.
Páfahöllin I Avignon: 119 Picassomyndir hurfu..
HÚSGAGNAVERSLUN (g) REYKJAVÍKUR HF.
Fjölbreytt húsgagnaúrval ú tveimur hœðum
hlemmur
Rviv
J1'
Alltaf eitthvað nýtt — Veljið vönduð
húsgögn — Verðið mjög hagstœtt
Húsgagnaverslun
Reykjavíkur hf.
Brautarholti 2Símar 11940 — 12691
Mikið annríki hjá
listaverkaþj öfum