Þjóðviljinn - 02.09.1976, Síða 3
Fimmtudagur 2. september 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Nató-herstöðvar á Möltu
lagðar niður 1979
Mintoff vingast við Alsir og Libiu
KÓREA:
Dregur úr
spennunni
Heldur viröist nii draga úr
spennunni á mörkum Norður-
og Suður-Kóreu, en þar
skapaðist sem kunnugt er
mikið hættuástand er til átaka
kom milli bandariskra og
norðurkóreanskra hermanna
með þeim afleiðingum að tveir
bandariskir liösforingjar létu
lifið.
ALSÍRBORG 31/8 — Malta hefur
lýst þvl yfir að hún muni lýsa yfir
hlutleysi jafnskjótt og erlendar
herstöðvar á eynni hafa verið
lagðar niður, og muni þá nokkur
grannrfki ábyrgjast hiutleysi
maltverja. Er þetta tekið fram i
yfirlýsingu, sem þeir Dom
Mintoff, forsætisráðherra Möltu,
og Houari Boumedienne, forseti
Alsir, gáfu út sameigmlega i lok
opinberrar heimsóknar Mintoffs
til Alsirborgar. Bretland hefur
herstöðvar á Möltu á vegum Nató
og borgar Möltu 14 miljónir sterl-
ingspunda álega fyrir þá aðstöðu.
Bretar hafa á eynni meðal annars
sérþjálfaðar sveitir úr land-
gönguliði hers sins og flugvélar,
sem notaðar eru til þess að fylgj-
ast með sovéskum herskipum á
Miðjarðarhafi.
Bretland hefur lýst þvi yfir að
það muni verða á brott með her
sinn af Möltu árið 1979. Malt-
verjar hafa veriö mjög efnahags-
lega háðir herstöðinni og er svo
að _heyra á yfirlýsingu þeirra
Mintoffs og Boumediennes aö
Malta muni reyna að bæta upp
þann tekjumissi, sem hún verður
fyrir við brottför breska hersins,
með efnahagslegri samvinnu við
önnur Miðjarðarhafsriki, einkum
Alsir og Libiu, sem bæði eru oliu-
auðug. Þessi riki sem bæði eru
utan hernaðarbandalaga, munu
einnig taka að sér að ábyrgjast
hlutleysi Möltu. Frá Alsirborg er
Mintoff farinn i opinbera heim-
sókn til Libiu.
Mikilvægi herstöðvanna á
Möltu fyrir Nató á Miðjarðarhafi
hefur stundum verið likt við
mikilvægi bandarisku herstöðv-
arinnar á Islandi fyrir bandalagið
á Norður-Atlantshafi.
Kanadiskir selavinir hyggja ó róttækar aðgerðir:
Sérþjálfaðir hópar
gegn selveiðurum
BJÖRGVIN 1/9 NTB — For-
maður kanadiskra samtaka,
sem berjast fyrir friðun sela,
lýsti þvf yfir i dag að samtökin
myndu gripa til meiriháttar að-
gerða til þess að bjarga selnum
frá selveiðimönnum, þegar sel-
veiðivertiöin á isnum við Ný-
fundnaland hefst i mars n.k.
Hafa samtökin, sem nefnast
Greenpeace (Grænn friður), i
hyggju að senda á vettvang sér-
þjálfaöa hópa til að þvælast fyr-
ir selföngurunum. Formaður-
inn, Paul Watson, skýrði frá
þessu i Björgvin, en þar situr
hann alþjóðlega ráðstefnu um
stærri sjávardýr á vegum Sam-
einuðu þjóðanna.
Greenpeace-samtökin byrj-
uðu virkar. mótmælaaðgerðir
gegn seladrápinu við Nýfundna-
land þegar á siöustu vertið, en
Watson segir þær aðgerðir hafa
verið minniháttar og nánast
táknrænar, þótt að visu hafi tek-
ist að bjarga fáeinum
hundruðum selja. Watson segir
ennfremur að samtökin hafi I
sumar reynt að spilla hval-
veiðum sovétmanna á Kyrra-
hafi með nokkuð góðum
árangri, og vonir standi til aö
aðgerðirnar gegn selföngurun-
um við Nýfundnaland, sem
flestir eru norskir og kanadfck-
ir, muni ekki takast miður. Ekki
vildi Watson gefa nánari upp-
lýsingar um fyrirhugaðar
verndaraögerðir,.af ótta við aö
kanadisk yfirvöld reyndu þá að
setja fótinn fyrir sdverndarana
með lagasetningum. „Við kær-
um okkur ekkert um aö fram-
kvæma ólöglegar aðgerðir, en
samt sem áður neyöumst við
trúlega til að brjóta lögin,”
sagði Watson.
Greenpeace-samtökin berjast
fyrst og fremst fyrir þvi að
forða selastofninum frá út-
rýmingu, fremur en gegn sjálf-
um veiðiaðferðunum, sem sam-
tökin telja þó ómannúðlegar.
Samtökin telja bráðnauösynlegt
að friða selinn algerlega i fimm
ár aðminnsta kosö, og helst i tiu
ár. Norskir og kanadískir vis-
indamenn kváðu ósammála um
stærð selastofnsins við Ný-
fundnaland. Þeir norsku telja
hann meiri en hinir kanadisku,
sem álita að aðeins um 700.000
selir séu nú eftir, á móti 6
miljónum i lok siðari heims-
styrjaldar, en á striðsárunum
mun hafa orðið hlé á selveiðun-
um.
Fullyrðing bandarisks ráðamanns:
Stórfelld framleiðsla
Sovétríkianna á
MIR V-elaf laugum
LOS ANGELES 31/8 Reuter —
Framkvæmdastjóri stofnunar
þeirrar á vegum Bandarikjanna,
er hefur meðhöndum eftirlit með
vopnum og afvopnunarmál, held-
ur þvi fram að Sovétrikin séu i
óða önn að koma sér upp meðal-
langdrægum eldflaugum, er borið
geti kjarnorkuvopn. Fram-
kvæmdastjórinn, Fred Ikie, segir
Sovétrikin vera aö koma fram
með nýja eldflaug, SS-20, með
margföldum kjarnaoddi. Flaug
þessari er skotið af færanlegum
skotpalli og hún dregur að sögn
um 5000 knómetra. Eldflaugar
þessar gætu þvi auðveldlega náð
til skotmarka hvar sem væri i
Vestur-Evrópu.
Meðallangdrægar eldflaugar
flokkast ekki sem strategisk
kjarnorkuvopn og má þvi fram-
leiða þær að vild án þess að brjóta
samning Bandarikjanna og
Sovétrikjanna um takmörkun á
strategiskum kjarnorkuvopnum.
— Ikleámælti sovétmönnum fyrir
framleiðsluna á eldflaugum þess-
um og kvað þá ekki þurfa að ótt-
ast neitt það frá Nató eða Asiu-
rikjum, er réttlætti þennan vig-
búnáö.
Hafréttarráðs tefnan:
ÞRÓUNARLÖND OG
IÐNRÍKIDEILA
SAMEINUÐU ÞJÓÐUN 1/9
Reuter — Fimmta hafréttarráö-
stefna Sameinuðu þjóðanna sem
nú stendur yfir I New York,
virðist komin i strand vegna
deilna milli þróunarlanda
annarsvegar og vestrænna iðn-
rikja hinsvegar um yfirráðin yfir
hafsbotninum. Vilja þróunarlönd-
in að sérstök alþjóðleg stofnun
hafi öll ráð yfir hafsbotninum og
nýtingu á auðlindum þar, en iðn-
rikin vilja að einstök riki og stór-
fyrirtæki hafi jafnan rétt á við
þe ssa stofnun. Bandarikin beita
sér harðast fýrir siðarnefnda
sjónarmiðinuog hafa lýst þvi yfir
að þau muni halda áfram nýtingu
á hafsbotnsauölindum einhliða ef
samkomulag um þetta náðist ekki
fljótlega.
Kissinger utanrikisráðherra
Bandarikjanna er staddur i New
York út af þessu máli og telja
fréttaskýrendur að hann muni
bjóöa fjármagn til alþjóðlegrar
nýtingar á hafsbotnsauölindum,
gegn þvi að stórfyrirtæki, banda-
riskogönnur, fái einnig umboð til
að nýta þær auölindir.
Mótbyr hjá
kaþólikkum
Carter — er hann að missa for-
skotið?
NEW YORK 1/9 Reuter — Jimmy
Cartcr, frambjóðandi demókrata
I forsetakosningunum I nóvember
n.k. hefur undanfarið verið i
Washington og New York þeirra
erinda að afla sér stuðnings
ýmissa trúarlegra og þjóðernis-
legra hópa, svo og verkalýössam-
takanna.
Árangurinn þykir hafa orðiö
nokkuð misjafn, þannig er talið
að Carter kunni að hafa fælt frá
sér kaþólska kjósendur með þvi
að neita að stuðla að þvi að banni
viö fóstureyðingum verði bætt inn
i stjórnarskrá Bandarikjanna.
Sex kaþólskir biskupar, sem
Framhald á bis. 14.
Nú er það skóla-
fatnaðuriim á bömin
HANN er i Heklupeysu sem kostar kr. 1.880 og i
Heklubuxum, sem kosta kr. 2.350. Stígvélin eru úr
leöri og kosta kr. 4.100,
HÚN er í innfluttum fatnaði, rúllukragapeysan
kostar kr. 1.410, mussan kr. 1.890, buxurnar kr.
2.650 og stígvélin kr. 7.950.
Þetta er aðeins sýnishorn af fjölbreyttum
fatnaði sem nú fæst á börn og unglinga.
Munið að 10% afsláttarkortin gilda
til 8. september.
DOMUS Laugavegi 91