Þjóðviljinn - 02.09.1976, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 02.09.1976, Blaðsíða 16
DWÐVIUINN Borgarstjórinn í Reykjavík tók blaðamenn með sér í árlega skoð- unarferð um borgina í gær til þess að sýna þeim, að hvaða verkefnum unnið er þessa stundina og að hvaða verkefnum unnið verður á næstunni. Fyrsti viðkomustaður á þessari ferð var i húsnæði fyrstu heilsugæslustöðvar i Reykjavik. Er hún að Hraunbæ 102,jarðhæð. Húsnæðið er um 600 fermetrar og á að þjóna allskyns likam- legum og andlegum krankleika Hvaö er nú þetta? Jú, þetta er barnaskóli f höfuöborginni, Olduselsskóli f Breiðholti II, svonefndu Selja- hverfi. (Ljósm. —eik) Heilsugæslustöð í Arbæ að komast í gagnið Fimmtudagur 2. september 1976 6-7000 manna byggðar i Arbæ og þeirra, sem búsetu hafa nyrst og austast i borgarlandinu. Hús- næðið var keypt fyrir 25 milj- ónir, en kostnaður viö það á þvi stigi sem það er nú er orðinn 46 miljónir. Er þá eftir um það bil mánaðarvinna við innréttingar og frágang húsnæðis, innrétt- ingakaup og annað „smávægi- legt”, og er reiknað með að heildarkostnaður verði kominn i um 70 miljónir þegar stöðin tekur til starfa. En hvenær tekur hún til starfa? Formaður heilbrigðismála- ráös borgarinnar Páll Gislason sagði undirrituðum, að ekkert ætti að vera til fyrirstöðu hús- næðisins vegna að hefja starf>- Sundkennsla i Breiðholti verður í fyrsta sinn i vetur semi eftir mánaðar tima, en öðru máli gegnir með manna- ráðningar þvi karpað er um greiðslu til væntanlegs starfs- fólks, hversu mikið rikissjóður á að greiða og hversu mikið borgarsjóður. Sundlaugapistill I Breiðholti I hefur verið komið fyrir plastlaug undir berum himni. Er þessi laug orðin nokkuð fræg i borgarsög- unni, þvi upphaflega átti hún að setjast niður við Fellaskóla i Breiðholti III. En nú er hún sum- sé komin i jörðina við Breiðholtsskóla. Við hana eru bráðabirgða búningsklefar, inn- réttaðir úr vinnuskúrum, og fer þvi sundkennsla fram þar i vetur, og verður það i fyrsta sinn, sem sund er kennt þar efra. Kostnaöur við þetta mann- virki er 10 miljónir króna. Laugin veröur til frambúðar þar sem hún er komin, en i framtiöinni veröur byggð ný álma út frá skólanum, og á hún að liggja yfir laugina þar sem hún er nú, og verða i þeirri álmu hinir endanlegu búningsklefar fyrir skólafólk i sundi. Við Fjölbrautaskólann i Breiðholti III er verið að byggja sundlaug. Er það litið mann- virki enn, en er aðeins hluti mikils iþróttamannvirkis, sem i framtiöinni ris i tengslum við Fjölbrautaskólann. Þessi laug verður þá kennslulaug fyrir skólana i Breiöholti III, en i tengslum við hana veröa gufu- böö. Þá verða I heildarmann- virkinu útisundlaug með heita- vatnspottum, ætluð almenningi, og griðarstórt iþróttahús, sem bæöi verður hægt að nota sem kennsluhúsnæði og keppnishús- næði fyrir inniiþróttir ýmsar. Þess er vænst að hægt veröi aö hefja kennslu i þessari laug fyrir áramótin, jafnvel strax i október, ef lukkan veröur borgaryfirvöldum hliðholl. Kosningabrautin Vegur sá, sem tengja á Breið- holt III við Miklubraut, er enn ekki fullgerður og enn óskirður. Þess er vænst aö hann verði tekinn i notkun i haust. Vegna nafnleysis hans væri ekki úr vegi aö skira hann Kosninga- braut, þvi margir kjósendur trúðu þvi við siöustu borgar- stjórnarkosningar enda að þeim haldiö, aö vegur þessi yrði til- búinn til notkunar fyrir tveimur árum. Það mun verða nýlunda við þann veg, að hann verður hit- aður upp þar sem hann er bratt- astur, og er ætlunin með þvi að koma i veg fyrir hálku i Höfða- brekku. ölduselsskóli ölduselsskóli I Breiðholti II mun vera eini skólinn á öllu landinu, sem er I bráðabirgða- húsnæði, þviliku, aö hægt er að flytja það til án nokkurs kostn- aðar fyrirvaralitiö. Starfar skóli. þessi I færanlegum kennslu- stofum, samtengdum. Grunnur hins endanlega skóla er þó risinn og búið að steypa plötuna yfir hann. Er ætlunin að taka i notkun þar 16 kennslu- stofur á næsta ári. Marglita byltingin Lok ferðar voru þau, aö blaöamenn skoðuðu Grasagarö borgarinnar i Laugardal og gróðurhúsarækt, sem þar fer fram. Þar eru ræktuð tré og skrautblóm margs konar, ætluð til þess að setja niður viðsvegar um borgina sem litaprýði innan um „allt flæmi grænu bylting- arinnar” margfrægu. -úþ SKOÐUNARFERÐ UM B0RGINA 134 þúsund leikhúsgestir á s.l. starfsári „Héldum að aldrei tækist að bæta gamla metið” — segir Sveinn Einarsson leikhússtjóri Þjóðleikhússins A sfðastliðnu starfsári Þjóð- leikhússins voru samtals haldnar 394 sýningar og leikhússgestir voru hvorki meira né minna en 134 þúsund talsins og raunar 90 þar til viöbótar. — Þetta er nýtt og glæsilegt aðsóknarmet hjá okkur, sagði Sveinn Einarsson á blm.-fundi i gær. — Gamla metið var um 120 þúsund manns og það var nokkuö sem við áttum aldrei von á að okkur tækist aö jafna, hvaö þá að bæta um betur. Sveinn sagöi að drjúgan þátt i þessum ágæta árangri ættu sýn- ingaferöalög leikhússmanna um landsbyggðina. — Okkur var afar vel tekið, sagði Sveinn. — Aö- sóknin var i hámarki og það ýtir svo sannarlega undir okkur að halda áfram á sömu braut. Greinilegt er að starf utan leik- hússins á mikinn rétt á sér. t fyrra höfðum við a.m.k. átta fasta starfsmenn að meira eða minna leyti „utan dyra” I þannig verkefnum,og ekki er vafi á þvi að reynt verður aö gera jafnvel enn betur I ár. „Litla sviöiö” I Þjóðleikhúss- kjallaranum hefur nú verið notaö I rúmlega tvö starfsár og gefið góða raun. Einnig það á drjúgan þátt I aðsóknaraukningunni, og sagði þjóðleikhússstjóriað I vetur yrðu flutt þar a.m.k. sex eða sjö leikhússverk af margvislegum stærðargráöum. Atta sýningar hafa hins vegar þegar verið ákveðnar á „stóra- sviðinu” i vetur, auk þess sem tekin verða upp einhver gömul verk frá fyrra ári. Leikárið hefst að þessu sinni með frumsýningu á islenska leikritinu „Sólarferð” eftir Guðmund Steinsson og fjallar það um lif nokkurra is- lendinga I sólarlöndum. Vafa- laust forvitnilegt leikrit a-tarna! 1 dagskránni I vetur eru siðan leikrit eftir Shakespeare, Georg Búchner, Davið Stefánsson (Gullna hliðið sem veröur jóla- leikrit og stjórnað af Sveini Einarssyni) og fleiri. Iráöi er einnig að efna til söng- leikja og ballettsýningar á borð við Coppeliu á siðasta leikári. Gengið hefur verið frá ráðningu nýs b'allettmeistara en ekki vildi Þjóðleikhússtjóri að sinni upp- lýsa nafn hans. —gsp Helga Jónsdóttir, Þórhallur Sigurðsson , Stefán Baldursson, Sigmundur örn Arngrfmsson og Þórunn Sigurðardóttir á æfingu i leikhúsinu i gær. Sjónvarpið með starfsmann i Kaupmannahöfn i vetur „Aukin frétta- og dagskrár- samskipti yið Norðuflöndin Sonja Diego verður vœntanlega ytra fyrstu mánuðina Rikisútvarpið hefur i ráði að hafa sjónvarpsstarfsmann að staðaldri i Kaupmannahöfn i vet- ur til þess að efla frétta- og dag- skrársamskipti sjónvarpsins við Norðurlöndin. Andrés Björnsson, útvarpsstjóri, staðfesti I samtali i gær, að nú væri búið að greiöa úr flestum erfiðleikum sem staðiö hefðu I vegi fyrir þvi, aö útvarps- mennhrintu þessu gamla áhuga- máii sinu i framkvæmd. Emil Björnsson, dagskrárstjóri frétta- og fraÆsludeildar sjónvarps, upp- lýsti i gær, að hann hefði farið þess á leit við Sonju Diegó, frétta- mann, að hún færi til starfa i Kaupmannahöfn 1. október. Komi þessi tiiraun að eins miklu gagni og sjónvarps- og útvarpsmenn halda, er ætlunin að frétta- og dagskrármenn sjónvarpsins skiptist á um að gegna störfum ytra og dveljast þar nokkra mánuði i senn. Einnig er i at- hugun að hve mikiu leyti sjónvarpsmaðurinn i Höfn getur þjónað hljóðvarpinu. „Hlutverk þessa dagskrár- manns okkar i Kaupmannahöfn er tviþætt: 1 fyrsta lagi að auka fréttasambandið og I öðru lagi að skoða og velja dagskrárefni. Hann fær aðstööu i danska sjónvarpinu til þess að ganga frá, klippa og tala inn á norræna fréttapistla. Ekki sist getur hann komið fréttunum glóðvolgum i hendurnar á flugmönnum Flug- leiða og þá komast þær til okkar samdægurs tilbúnar á pönnuna ef Framhald á bls. 14.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.