Þjóðviljinn - 02.09.1976, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 2. september 1976
Fimmtudagur 2. september 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Hluti af nýju höfninni sem gerð var uppi á þurru landi. Nýja bræöslan sést fjær.
Bæjarverkfræöingurinn stendur hér áhyggjufullur vegna vatnsskorts á nýja vatnstank- Þórarinn Magnússon bæjarverkfræöingur ásamt eiginkonu sinni Sigriöi Austmann hjúkrunarkonu og Höllu dóttur þeirra.
inum. Snyrtimennskan situr i fyrirrúmi. Tyrft hefur veriö yfir tankinn.
Hringferð um Neskaupstað
með bœjarverkfrœðingi
I fyrrasumar var i fyrsta sinn
ráöinn bæjarverkfræöingur til
Neskaupstaðar. Hann heitir Þór-
arinn Magnússon og er ættaöur
frá ósi i Hrófbergshreppi i
Stranda sýsiu. Þórarinn lauk
verkfræðiprófi frá háskólanum i
Lundi fyrir fáeinum árum, var
um hriö deildarverkfræöingur yf-
ir hreinsunardeild Reykjavikur-
borgar þangaö til hann var ráöinn
austur á Noröfjörö. Þegar blaöa-
maöur Þjóöviijans var eystra
fyrir helgina fékk hann Þórarin
til aö aka með sér um bæinn og
sýna sér helstu (ramkvæmdir.
Snyrtimennska i
öndvegi
Þaö sem einkum vekur athygli
blaðamannsins er hversu Þórar-
inn lætur sér annt um snyrti-
mennsku i bænum. Óhætt er aö
segja aö Neskaupstaöur sé meö
þrifnustu bæjum landsins. Þar
kemur margt til, blómleg garö-
menning stendur þará föstum og
gömlum grunni, ráöamenn flestir
berjast hart fyrir náttúruvernd
og snyrtimennsku og Noröfjöröur
er ákaflega gróinn og fagur frá
náttúrunnar hendi. Ég held að
sveitarstjórnarmenn viös vegar
um land ættu aö gera sér ferö
þangaö austur og etv. mundu þá
augu þeirra opnast fyrir sóöaskap
sem alltof víöa setur mark sitt á-
umhverfiö, ekki sist I sjávarþorp-
um. Sá maður sem á seinni árum
hefur gengið fram fyrir skjöldu i
fegrunar- og umhverfismálum
austfirðinga er Hjörleifur Gutt-
ormsson sem býr á Neskaupstaö.
En þaö er kapituli út af fyrir sig
sem ekki veröur ræddur hér.
Vatn fyrir
bœjarbúa
er stórvandamál
Fyrst leiöir Þórarinn mig i
sannleika um vatnsveitumál
noröfiröinga en þar eiga þeir viö
vandasamt verkefni aö glima.
Allt vatn bæjarbúa er yfirborðs-
vatn sem safnaö er saman úr
mörgum smálækjum sem renna
niður hlíðina, allt frá vitanum
fyrir utan kaupstaöinn og inn
Wíöina. Miklar sveiflur eru á
vatnsmagninu. í frostum á vet-
urna og þurrkum á sumrin veröa
þessir lækir ákaflega litlir. I sum-
ar er ástandiö óven juslæmt vegna
langvarandi hita. Þetta eru ein-
hverjir mestu þurrkar i manna-
minnum, segir Þórarinn. Þar
bætist svo viö að snjór var litill í
vetur. Þórarinn bendir mér á
fjöllin i kring. Hvergi er skafl.
Þetta hefur ekki þekkst lengi.
Nýlega er búiö aö taka i notkun
600 tonna vatnstank og er svo til
hver einasta spræna úr fjallinu
tekin i hann og miölunartjörn
austar. En i þessum þurrkum
duga ekki þessar úrbætur til. Sem
framtlðarlausn hefur veriö rætt
um aö taka vatn úr lindum i
Fannadal en viö mælingu á vatns-
magni þar um daginn kom i ljós
aö vatnið þar var helmingi minna
heldur en minnst hefur msdst áö-
ur. Hugsanlegt er Uka aÖ koma
upp hreinsunarstöö við ána.
Nú er búiö aö loka fyrir vatns-
sölu til skipa og einnig hefur
sundlauginni veriö lokaö og
þvottaplönum fyrir bila.
Sildarvinnslan i Neskaupstaö
hefur sérstaka vatnsveitu en i
þessum þurrkum þrýtur þaö lika
og þá veröur bæjarfélagiö aö
hlaupa undir bagga meö henni þvi
aö ekki mega atvinnutækin stööv-
ast. Þetta þýöir aö efri hluti bæj-
arins hefur oröiö vatnslaus hluta
úr degi i mestu þurrkunum i sum-
ar. Þórarinn býr efst i bænum og
hans hús verður fyrst vatnslaust
og þaö þykir norðfiröingum gott
af þvi aö hann ber ábygð á vatns-
kerfinu.
Þórarinn bendir mér upp i
Drangaskarö. Þangað sendi ég
Hér ræöir Þórarinn viö Má Sveinsson bæjarverkstjóra
Settar hafa veriö graseyjar I malbikiö til mikillar prýöi. Ef vel er aö gáö sést hversu
malbikið er mjúkt i hitanum. Snyrtimennska af hálfu bæjaryfirvalda er fordæmi fyrir
bæjarbúa,og strax má sjá þess merki aö fólk er aö mála og hreinsa til.
vinnuflokk um daginn og lét hann
hlaða garð upp I skaröið. Þá
hlógu norðfirðingar. Skarbið er
i 700 m hæð og snarbratt. Þetta
var gert til þess að kindur kæm-
ust ekki frá Mjóafirði inn i bæjar-
landið. Það er garöeigendum að
sjálfsögðu illa viö. Nýlega hefur
bæjarlandið veriö girt vandlega
og þar sem fjallið er nær ófært
nema um þetta skarö gripum viö
til þessa ráös. Það tók ekki nema
nokkra tima að hlaða I skarðið.
Núer bara aö vita hvort sauðféð
finnur sér aöra leiö.
Malbikað fyrir
40-50 miljónir
Meginframkvæmdir Neskaup-
staðar i sumar er malbikun. Mal-
bikaöir voru 25-30 þús fermetrar
og munu þessar framkvæmdir
kosta milli 40og50miljónir. Þetta
er mikið fé fyrír svo iitið bæjarfé-
lag. Viö erum nýbyrjaöir meö
gatnagerðargjöld, segir Þórar-
inn, en meginhluti þessara fram-
kvæmda er fjármagnaður meö
innlendum og erlendum lánum.
Áðalgata bæjarins, rúmir 2 km
var malbikuð og ennfremur ýmis
b&aplön, umhverfis Sildarvinnsl-
unnar og vel upp i allar götur út
frá aðalgötunni. Ég lét gera gras-
geira á ýmsum stööum i malbikið
og þótti þaö flestum fásinna til aö
byrja með en nú sjá menn hversu
þeir prýða.
Umhverfið tekur
stakkaskiptum
Eins og áöur sagöi leggur Þór-
arinn höfuðáherslu á fagurt um-
hverfi. Bæði hafnarstjórnin og
kaupfélagsstjórnin eru nú aö fjar-
lægja drasl af sinum lendum og
gera aö sléttum grasflötum eða
plöntum það sem áöur var alls
kyns gamalt og nýtt drasl. Við-
lagasjóður erlika aðfegra svæðið
sem snjóflóðið féll á.
SDdarvinnslan hefur gjörbreytt
um svip við að umhverfi hennar
hefur verið ýmist malbikaö eða
tyrft og húsið allt málað en eins
og kunnugt er er Sildarvinnsian
stærsta atvinnutæki bæjarbúa.
Nýstárleg höfn
Næst er ekið inn aö nýju höfn-
inni. Gerö hennar er nýjung hér á
landi þar sem hún var gerð á
þurru þeas. hún var grafin niður i
landiö og siðan var sjó hleypt á i
febrúar eða mars sl. Sandurinn
sem kom upp úr höfninni var not-
aður i' uppfyllingu og þar stendur
nú nýreist bræösluverksmiðja,
sem er mikið mannvirki.
Þarna innfrá er nýrisiö hús yfir
bifreiðaþjónustuna, en snjóflóö-
in eyðilögðu húsakynni hennar.
Þar er lika Málmsmiöjan Gigja
með húsbyggingu.
Nýtt hverfi ris
Ysti bænum er nýtt hverfi, svo-
kallað Bakkahverfi. Þar er bær-
inn að reisa blokk með 12 leigu-
ibúöum. Þarna eru lika risin 8
einbýlishús og flutt inn I nokkur
þeirra. t Bakkahverfi standa enn-
fremur 8 viölagasjóöshús. Þórar-
inn fræbir mig á þvi að I sumar
hafi veriö úthlutaö 20-30 lóöum og
sébygging hafin á sumum þeirra.
Leikvellir, dag-
heimili, barnaskóli,
sjúkrahús
A leiöinni til baka inn i bæinn
bendir Þórarinn á leikvöll og seg-
ir að 6-7 slikir séu i bænum auk
hins fullkomna dagheimilis sem á
sérvartsinn fika i sambærilegum
stað við Neskaupstaðog þó stærri
séu.
Barnaskólinn var gerður upp i
fyrra og bætt viö viðbótarálmu.
Hann var orðinn ljótur en er nú
sem nýr.
Ein helsta framkvæmdin i bæn-
um er nýtt sjúkrahús sem nú er
orðið fokhelt. Framkvæmdir
ganga þó hægt vegna ónógs fjár-
magns en mikili kostnaður er
fólginn I þvi að útbúa og innrétta
sjúkrahúsið.
Greiðsluerfiöleikar bæjarins
eru miklir nú, segir bæjarverk-
fræöingurinn og telur aö tekjur
hans hafi innheimst óvenjuilla i
ár.
Félagshyggja og
framkvœmdahugur
Aö lokinni þessari hringferö I 25
stiga hita er blaöamaöur sann-
færður aö Neskaupstaður sé eitt-
hvert snotrasta og framsæknasta
pláss landsins. Þar virðist fara
saman mikill framkvæmdahug-
ur, auga fyrir þvi að hafa um-
hverfið fagurt og félagshyggja i
atvinnurekstri og opinberri þjón-
ustu. Tveir strætisvagnar ganga
um bæinn og sækja fólk til vinnu
en öll atvinnútækin eru innst i
þessum langa kaupsaö. Þórarinn
álitur að feröir þessara vagna
spari bæjarfélaginu miljónir
vegna viðhalds gatna. Meö þessu
möti helst einkabilaumferð i lág-
marki.
Þannig er margttil fyrirmynd-
ar i þessum bæ þó aö smátt sé
sumt. Margt fleira bar fyrir augu
og á góma og gefst tækifæri til
þessaðsegja frá sumuþvi i næstu
Þjóðviljum.
-----•---------;--------------->
Texti og myndir: GFr.
■
ggjl 1
Nýtt hverfi yst i Neskaupstaö, Bakkahverfi
Nýja sjúkrahúsiö er oröiö fokhelt.
Búiö er aö malbika handboltavöll.