Þjóðviljinn - 12.09.1976, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 12. septeinber 1976.
Xtil hnífs
og skeidar
Umsjón: Þórunn Sigurðardóttir
Það getur verið forvitnilegt að
glugga i innflutningsskýrslur
Skattstofunnar, þar sem fært er
inn hversu mikið flutt er til
landsins af hinum ýmsu vöru-
tegundum. Við ætluðum reynd-
ar að grafast fyrir um hversu
mikið væri flutt inn af tisku-
varningi eins og t.d.
gallabuxum, en manni sýnist að
verslun með gallabuxur og ann-
an denimfatnað hljóti að vera
býsna gróðavænleg, þvi bara
við Laugarveginn skipta þær
verslanir sem selja gallabuxur
tugum.
En reyndar er af inn
flutningsskýrslum þessum
ekki hægt að sjá i fljótu bragði
hversu mikið var flutt inn af
gallabuxum, þar sem þær skipt-
ast yfirleitt i kven-og karlbuxur
og tilheyra þvi sinar hvorum
tollflokknum, auk þess sem
ýmsar aðrar vörur tilheyra
einnig þeim flokki. Gallabuxur
(eða annar fatnaður), sem
hvorki telst vera eingöngu fyrir
karlmenn eða drengi né fyrir
kvenfólk eða telpur er settur i
flokk með kvenfatnaðinum.
Þannig er ekki ósennilegt að
hluti af gallabuxum tilheyri
kvenflokknum, þvi mikið af
gallabuxum eru ætlaðar á bæði
kynin jafnt.
Á fyrri helmingi þessa árs
(jan. — júli) voru i ár fluttar inn
utanyfirflikur á karlmenn og
drengi fyrir 97.963.000,- en i
fyrra fyrir 72.693.000. Þetta
verð er FOB - verð, þ.e. án
flutningsgjalda og tryggingar
og að sjálfsögðu án tolla, sem nú
eru 25% miðað við EFTA-
löndin, en ella 45%.
Fyrir kvenfólk, telpur og
smábörn var hins vegar flutt ínn
af hliðstæðum fatnaði (þ.e. ekki
nærföteða t.d. peysur) i ár fyrir
265.128.000.- en i fyrra á sama
tima fyrir 156.582.000,- og má
sjá að hér er um töluverða
aukningu að ræða, hvort sem
gallabuxurnar eiga nú veruleg-
an þátt i þvi eða ekki.
Hins vegar hefur innflutning-
ur af manchettuskyrtum heldur
minnkað á þessum sama tima.
1 fyrra var hann (i stykkjatali)
50.956 stk. en i ár 50.496
stk. .Langmest er flutt inn af
skyrtum frá Hong Kong, eða i ár
19.747 stk.en i fyrra 12.442 stk.
Tollar eru þeir sömu og á fyrr-
nefndu vörunum, og er merki-
legt að innflutningur frá Hong
Kong skuli aukast um leið og
tollar á vörur frá EFTA- löndun-
um lækka, en þeir gerðu það um
s.l. áramót. Á vörur frá Hong
Kong þarf þvi að greiða 45%
toll.
En ekki minnkar sokka-
buxnasalan. 1 ár er búið að
flytja til landsins rúmlega 200
þúsund sokkabuxur, eða lang-
leiðina eitt stykki á hvert
mannsbarn. A timabilinu janú-
ar til júli i ár var talan 202.641
stk., en á sama tima i fyrra
181.070 stykki. Tollar eru þeir
sömu og á fyrrgreindum vörum,
45% og 25%, en langmest er flutt
inn af sokkabuxum frá Þýska-
landi, Bretlandi og Sviþjóð.
Sokkabuxur á börn eru með i
þessum tölum.
Það er reyndar vert að geta
þess, að við islendingar vorum
komnir vel á veg með að fram-
leiða sjálfir sokkabuxur fyrir
landsmenn, en þær sjást nú æ
sjaldnar, hvort sem framleiðsla
þeirra er hætt eða ekki. Að
minnsta kosti fer orðið ákaflega
litið fyrir þeim i verslunum, og
samkvæmt þessum tölum vex
innflutningur á sokkabuxum
jafnt og þétt Er það sannarlega
miður, bæði vegna þess að við
eyðum dýrmætum gjaldeyri i að
kaupa erlendar sokkabuxur til
landsins og ekki siður vegna
þess að þessar islensku buxur
voru (samkvæmt minni reynslu
amk.) þrælsterkar. Reyndar
eru sokkabuxur úr gerviefnum
ekki æskilegasti klæðnaðurinn
fyrir islenskt kvenfólk i Islensku
roki, þvi ekki geta þær talist
hlýjar, þótt þær séu skömminni
skárri en nælonsokkarnir og
beru lærin, sem einu sinni voru i
tisku og kostuðu marga konuna
heilsuna (móðurlifsbólgur og
blöðrubólga orsakast mjög oft
af lélegum nærfatnaði og er tal-
ið að ef gamla föðurlandið væri
almennt viðurkennt myndi það
draga mjög úr þessum
sjúkdómum). Mér hefur oft
dottið i hug, að það væri vitur-
legt fyrir okkur islendinga að
framleiða meira af fatnaði sem
hæfa vel i okkar veðráttu. Hvers
vegna ekki að framleiða sokka-
buxur úr þunnri ull, etv. bland-
aðri sterkum gerviefnum til að
auka á endinguna? Þá gætum
við slegið margar flugur i einu
höggi, sparað okkur gjaldeyri,
aflað okkur gjaldeyris með þvi
að selja þessa vöru til útlanda
(Norðurlandabúar amk. myndu
áreiðanlega kaupa hana, þvi
þar er nú mikið rætt um gagns-
leysi gerviefna, einkum i nær
fatnaði ofl.), og siðast en ekki
sist, fengið góðan fatnað sem
hæfir islenskri veðráttu.
Borgar sig að sóla?
• jH
■JJf-KÍÉJSS,
Ódýrar
hillur
E. bendir okkur á mjög
skemmtilegar og ódýrar hillur,
sem Gamla kompaniið fram-
leiðir, en þær eru seldar hjá
Skúlason & Jónsson i Siðumúla
33, en eftir mánaðamótin flytur
fyrirtækið i Bildshöfða 18. Þess-
ar hillur bjóða upp á ýmsa
möguleika i samsetningu en
verðið er 680 krónur fyrir hillu
30 x 80 cm., 390 krónur fyrir hillu
30 x 40 og 330 krónur fyrir hillu
30 x 30, en tvær seinni hillurnar
eru einnig uppistöður. Járnin
með nöglum, sem notuð eru til
að festa hillurnar saman, kosta
75 krónur stykkið. Við sjáum að
þá má gera sér úr þessu ágætis
hillu fyrir aðeins nokkur þúsund
krónur. úr þessu má t.d. gera
bókah illur, hillu fyrir sima með
sæti, bekk og hillur i barnaher-
bergi, hillur i geymslur og
margt fleira. Hillurnar eru i
brúnleitum lit, en flestir lakka
þær, mála eða bæsa.
E. S. hringdi og vildi koma á
framfæri þakklæti fyrir hug-
myndirnar um nýtingu gamalla
fata i barnaföt. Sjálf sagðist hún
hafa töluverða reynslu af að búa
til ýmsar smáflikur úr gömlu og
sagðist hafa sparað þannig
drjúgan skilding, fyrir utan
gleðina sem fylgdi verkinu. Hún
hefur m.a. gert vettlinga og
sokkabuxur úr gömlum peysum,
einnig hefur hún gert húfur úr
gömlum lopapeysum og jafnvel
heil teppi úr peysum og öðrum
ullarflikum sem klipptar hafa
verið i sundur. Við þökkum E.S.
fyrir góð ráð.
Hvaö kosta skóviðgerðir í dýrtíðinni?
Skófatnaöur hefur hækkað
geysilega á siðustu árum. Nú
fær maður varla góða leðurskó
fyrir minna en 5.000.- og leður-
stigvélin kosta ekki undir 10,000
Einmitt vegna þess að skófatn
aöur er orðinn svo dýr reyna
margir að láta hann endast
sem lengst og láta þá frekar
gera nokkrum sinnum við
skóna. En það kostar lika skild-
inginn. 1. júll s.i. gaf Lands-
samband skósmiða út nýja
verðskrá og á henni sjáum við
að það kostar 2.000.- krónur að
láta sóla og hæla skó
(karlmanna) en 1910.- sama
viðgerð á kvenskóm. Nýir hæl-
ar á kvenskó geta kostað allt að
2645,- drónur, og að yfirdekkja
hæla á karlmannaskóm (8-10
cm) getur kostað allt að kr.
2530.
Hér eru nokkur dæmi úr verð-
skránni:
Karlmannaskór, tréskór:
Sólning og hæla, leður .............. 2.000.00 kr.
sólning, leður...........................1.400.00 kr.
sólning og hæla nylon................ 1.800.00 kr.
sólning nylon........................ 1.200.00 kr.
hælp!. interstyle......................... 815.00 kr.
hælpl. m.l st. sneiðing.............. 1.050.00kr.
botnsóla undir hæl, m. slitpl........ 2.790.00 kr.
lita skó............................. 1.240.00 kr.
festa sóla............................. 830.00 kr.
botnsóla m.svampPorep................ 2.300.00kr.
sóla og hæla barnatré skó 22-35 (nr.).. 1.245.00 kr.
Kvenskór, tréskór:
sóla og hæla leður .................. 1.910.00 kr.
sóla leður........................... 1.290.00 kr.
sóla og hæla nylon.................... 1.760.00 kr.
sóla nylon............................ 1.160.00 kr.
minnstu tástykki........................ 750.00 kr.
lita hnéhá stigvél.................... 2.820.00 kr.
festa sóla.................................. 755.00 kr.
botnsóla m. svamp eða Porep...........,2.210.00 kr.
lækka sóla og hæla ................... 2.490.00 kr.
lækka botnsóla........................ 2.810,00 kr.
minnsta viðgerð............................. 320.00 kr.
minnsta bót................................. 400.00 kr.
I.stksmella................................. 400.00 kr.
vikka legg á háum stigvélum ............. 990.00 kr.
Allar viðgerðir hér á verðskránni eru reiknaðar
sem algjört lágmarksverö.