Þjóðviljinn - 12.09.1976, Qupperneq 5
Sunnudagur 12. september 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
íranskir stúdentar rændu leyniskjölum:
Af leyniþjónustu eins
hinna nýju stórvelda
Hlekkur i
nýju kerfi
Það hefur komiö fram hvað
eftir annað á undanförnum árum,
að Bandarikin ráða ekki i sama
mæli og áður við það verkefni að
tryggja auðhringum si'num
óbreytt pólitiskt ástand og þar
með hefta vinstriþróun á hinum
þýðingarmikla leikvangi þeirra i
þriðja heiminum. Þau þurfa á
aðstoð að halda. Þá hefur i
auknum mæli komið fram sú við-
leitni bandariskra ráðamanna að
skapa nýtt kerfi pólitisks og
hernaðarlegs samstarfs sem
byggi mjög á hinum „nýju stór-
veldum” þriðja heimsins— Iran,
Brasiliu, Saudi-Arabiu og nokkr-
um rikjum öðrum.
Það mætti mörg dæmi rekja af
þvi, hve stórt hlutverk íran er
ætlað i þessu kerfi — fáir aðilar
hafa notiö jafn umburðarlyndrar
kurteisi og jafnvel hrifningar hjá
stórnmálamönnum bandariskum
að ógleymdum fjölmiðlum og
íranskeisari, þegar hann hefur
verið að mála i fögrum litum
mynd af þvi sem hann kallar
„hvita byltingu”. En þar er átt
við það, að nokkru af hinum
firnalega oliugróða Irans er varið
til skólahalds og ýmislegra
félagslegra umbóta — i þeirri von
að landslýður hafi hægt um sig að
öðru leyti. Fremur sjaldgæft er,
að þeir sömu fjölmiðlar veki
athygli á ógeðslegum stjórnar-
háttum þessa keisara sem enn i
dag kallar sig konung konunga.
En i fáum löndum er lögregu-
veldið hatrammara, handtökur á
raunverulegum eða hugsanlegum
andófsmönnum tiðari, meðferð á
þeim grimmdarlegr'i, en einmitt i
riki hans.
Pyntingamethafar
Um þessar mundir fara ekki
lakari sögur af neinni leynilög-
reglu en af Savak.sem er helsta
stoð hins alvalda keisara Irans.
Savak hefur á að skipa um
tuttugu þúsund manna liði og 180
þúsund launuðum spæjurum að
auki — hefur þessi her allur
komið á bak við lás og slá a.mlc.
25.000 pólitiskum föngum,
kannski 100 þúsund, en einhvers-
staðar þarna á milli fara tilgátur
alþjóðlegra samtaka. Margir
hafa verið teknir af lifi eða verið
„skotnir á flótta”. Pyntingareru f
klefum Savat iðkaðar af meiri
grimmd en i nokkrum öðrum
þeirra60 landa þar sem Amnesty
International telur
pyntingar iðkaðar nú.
Savak hefur allar hinar verstu
aðferðir á dagskrá : allt frá þvi að
neglur eru slitnar af mönnum til
þess að þeir eru neyddir til að éta
steikt hold, sem skorið er af
þeirra eigin kroppi. Margar frá-
sagnir af d jöfulskap þessum er að
finna i nýútkomnu safni fang-
elsisljóða eftir Reza Baraheni,
sem er eitt af fremstu skáldum
Irans og áður enskuprófessor i
Theran. ( God’s Shadow, Indiana
University Press). Baraheni var
handtekinn af Savak fyrir skrif
sin um meðferð á minnihluta-
hópum i tran og pyntaður í 102
daga, þar til starfsbræðrum hans
erlendum tókst að fá hann úr
haldi og úr landi.
Innbrotið
i Genf
Leyniþjónustan Savak hefur sig
og mjög í frammi utan landa-
mæra trans. Hún reynir að n jósna
um alla þá sem teljast andstæð-
ingar Iransstjórnar, jafnt Iranska
útlaga, breska þingmenn, póli-
tlskar hreyfingar i Vestur-Þýska-
landi, Austurríki, Danmörku,
Sviss.
Merkar upplýsingar um þessi
umsvif Savak hafa komið fram
við innbrot þ-ettán iranskra
stúdenta i ræðismannsskrifstofu
trans i Genf. Þeir náðu í um 2800
leyndarskjöl og lykil að ýmsum
dulnefnum að auki, og komustaö
þvi, að þeirhefðu gert strandhögg
isjálfum aðalbækistöðvum Savak
i Evrópu. trönsk stjórnvöld
Ræðismannsskrifstofa trans i Genf
höfðu með sér 2800 skjöl — og lykil
ætluðu fyrst að stefna stúdent-
unum fýrir rétt i Sviss fyrir
þjófnað, en það var einmitt það
sem stúdentarnir vildu: mála-
ferlin gætu gefið þeim prýðilegt
tækifæri til að auglýsa hina ljós-
fælnu starfsemi leynilögreglu
keisarans. Enda skildu þeir i
Theran fljótt að þeir höfðu
hlaupið á sig og drógu þjófnaðar-
ákæruna til baka. Stúdentarnir
heimta hinsvegar að málaferlin
verði látin fram fara. Ihaidsöfl i
Sviss vilja að sinu leyti gera sitt
til að þagga þetta mál niður, þvi
eins og eitt hægri blað-
ið segir, þá gæti það leitt til
diplómatiskrar spennu og siðan
til þess að svissnesk fyrirtæki
fengju ekki þær pantanir frá tran
sem þau sækjast eftir.
Vinátta
lögreglumanna
Skjölin sem stúdentarnir tóku
herfangi sýna reyndar mörg
dæmi um einkar vinsamlegt sam-
starf Savak bæði við bisnessmenn
og svo lögregluyfirvöld I ýmsum
löndum. Meðal þeirra er að finna
eftir heimsókn stúdentanna sem
að þeim.
nokkuð svo spaugilegar skýrslur
um viðræður við lögreglu i Genf
um það, hvað keisarinn eigi að
gefa þeim svissnesku lögreglu-
mönnum sem gæta hans meðan
hann heimsækir landið. Og aðrar
skýrslur,miður spaugilegar, sem
segja m.a. frá þvi, að svissnesk
yfirvöld hafi verið „einkar
hrifin” af lista þeim yfir „grun-
samlegar persónur” sem Savak
hafði afhent svissnesku lög-
reglunni.
Það kemur einnig fram, að
diplómatar Savak hafa gefið
$
Mahdawi (til hægri) var yfir-
maður Savak i Genf. Þegar hann
var rekinn heim óttuðust sviss-
nesk hægriblöð, að pantanir frá
tran yrðu skomar niður.
þýskum lögregluyfirvöldum
skýrslur yfir iranska stúdenta,
sem tekið hafa þátt I ýmislegum
mótmælaaðgerðum i Evrópu,
sem beinst hafa að keisaranum,
ekki sist mótmælum sem tengjast
við opinberar heimsóknir
keisarans. Það er á grundvelli
sliks samstarfs, sem þýsk lög-
regla meinar t.d. i árslok 1974
fjörutiu „spilltum” Irönskum
stúdentum að fara inn i Þýska-
land eöa hefur mál gegn
irönskum stúdentum og þýskum
vinum þeirra, sem höfðu hleypt
upp fundi hjá keisarahollum
stúdentum i Kiel.
Sum skjalanna lýsa þvi, að full-
trúar Svak eru taldir sjálfsagðir i
irönskum sendiráðum og ræðis-
mannsskrifstofum, og koma bein
fyrirmæli til sendiráðanna um
það, hvernig beri að koma
irönum, búsettum eða nemandi
erlendis, i samband við þessa
fulltrúa. Keisarinn sjálfur hefur,
skv. einu skjali, bein afskipti af
þvi, hvaða iranskir borgarar fái
endurnýjaða reisupassa sina og
hverjir ekki, og er þeim sendi-
ráðsstarfsmönnum hótað öllu illu
sem láti sér verða á yfirsjónir i
þeim e&ium.
Savak hefur og ýmisleg afskipti
af bisness: i einuskjali kemur við
sögu enskur maður, mr. Low aö
nafni, sem fær greiddar tm»
miljónir þýskra marka fyrir — að
þvi er virðist — að stofna ekki i
hættu skrýtnum kaupum Irans-
stjórnar á 2000 skriðdrekum sem
framleiddir voru fyrir Nato.
Skilið þvi til
mr. Wilsons
Eitt leyndarskjalið greinir frá
þvi, að transstjórn hafi með
Keisarinn fylgist vei með
afrekum Savak. En fáir trúa
honum þegar hann segir „við
þurfum ekki pyntíngar lengur,
við grfpum til sálrænna aöferða
eins og háþróuð riki”....
virkum hætti sýnt áhuga á þvi aö
Venstre, flokkur Hartlings i
Danmörku, færi sem best út úr
kosningunum I fyrra. Þar
segirberum orðum, að flokkurinn
sé skuldbundinn stjórn hans
keisaralegu hátignar fyrir þau
lán sem hann hafi samið um viö
hana meðan Hartling var við
völd.
Eitt skjalanna f jallar einnig um
fyrirmæli Savaks um að fylgst
verði náið með tveim þing-
mönnum Verkamannaflokksins
breska, Stan Newens og William
Wilson, og hugsanlegum
tenglsum þeirra við iranska and-
ófsmenn. Newens hefði oftar en
ekki gagnrýnt á þingi starfsemi
erlendra leyniþjónustuerindreka
i Bretlandi og Wilson hafði fylgst
með málaferlum i Teheran gegn
sjö andstæðingum keisarans
(sem siðar voru „skotnir á
flótta”) 1 fyrirmælunum er lagt
á ráð um hvernig njósnað skuli
um þingmennina — m.a. skuli
spiónarnir gæta sin á þvi að vera
langtimum saman sýnilegir
fyrir utan ibúðir þingmannanna.
Nýlegt atvik varpar skýru ljósi
á persónulegan áhuga keisarans
á þvilikum umsvifum Savak. t
móttöku fyrir breska Verka-
mannaflokksþingmenn, sem
gistu Teheran, spurði keisarinn
gestina, hvort nokkur þeirra
þekkti mr. Wilson. Einn þing-
manna gaf sig fram og sagði
keisarinn þá: „Segið mr. Wilson,
að ef hann i framtiðinni aðeins
skiptir sér af þvi sem honum
kemur við, þá muni ég, að þvi er
hann varðar, gera slikt hið
sama”.
ABtóksaman (heimildir: Spiegel
og DN)
ljós á perunni ?
Ef ekki, þá höfum viö
mikið úrval af Ijósaperum dyrabjöllur og raftæki.
í flestum stæröum og
styrkleika.
"Rafvörur” hefur úrval
efnis til raflagna, einnig
Rafvirkjar á staönum.
rafvörur
Laugarnesvegur 52 Sími 86411