Þjóðviljinn - 12.09.1976, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 12.09.1976, Qupperneq 7
Sunnudagur 12. september 1976. ÞJÓÐVILJINN — SIDA 7 Jón Múli Árnason skrifar: ísabella Me-he hinir trúðarnir MacTame Isabelle Miehe kom i sýningarför til Islands fyrir hálfri öld.Hún hélt apa- og slönguleiki I Bárunni fyrir fullu húsi trekk i trekk meö sjónhverfingum og ó- skiljanlegum töfrabrögöum, sem enginn botnaöi neitt i, enda voru þau i ætt viö hiö yfirnáttúrlega. Madame varö á skömmum tima ástsælasti listamaöur á meöal vor, dáö og virt i hvivetna, enda komin af hátignarlegu fjölleika- fólki, ljónatemjurum, linudönsur- um og sirkusdrottningum. Aö loknum sigrum i höfuöborg- inni lagöi Madame land undir fót,' fyllti samkomuhús og skemmti- staöi hvarvetna á feröum sinum, og áhorfendur'stóöu á öndinni yfir list hennar. Barnaskólakrökkum á Austurlandi eru ógleymanlegar þær stundir er allt i einu birtist hvit mús i fléttunum á stúlkunni á fremsta bekk, hvarf siöan án þess aö hönd Madame kæmi þar nærri, en tisti svo andartaki slöar á snoöklipptum kollinum á strákn- um i næsta sæti, en eiturslöngur hlykkjuöu sig um Madame á meöan og apakettir allt um kring og toguöu i skottiö hver á öörum eins og Einbjörn og Tvibjörn og þeir bræöur. Madame brosti á dönsku og gaf öllum brjóssykur. Svo fór hún aftur til Reykjavik- ur oggtofnaöi alvörusirkus. Fyrst flutti hún til landsins afrisk sebradýr sem fældust log prión- uöu meö æöisgengu hneggi I port- inu á bak viö Hótel tsland þegar bifreiöar landsmanna áttu leiö hjá meö giraskrölti og piptu fyrir horn. Og Madame hélt áfram aö temja villidýrin dag eftir dag og var talin hugrökkust kona hér á landi. í frægri bók segir á einum staö: ,, i Reykjavik rignir af himnum ofan”— og þar kom aö þau orö sönnuöust. Breyttist þá allt yfir- bragö og svipur sebradýranna á samri stund, — fallegu hvitu og svörtu rendurnar á feldinum, sem minntu á gömlu KR-búningana, runnu út I eitt. Og hann hélt áfram aö rigna af himnum ofan án uppstyttu, og aö lokum stóöu eftir allsnaktir islenskir jálkar, rauöir, brúnir og skjóttir, sem Madame Isabelle Miehe haföi fengiö leigöa hjá bónda einum fyrir innan bæ. Allt svindliö komst upp, — Madame stóö af- hjúpuö frammi fyrir landslýö, sem nefndi hana uppfrá þvi lsa- bellu Me-he. Hún hrökklaöist úr landi og hefur ekki til hennar spurst siöan. En lengi er hægt aö plata sveitamanninn, og þrátt fyrir meinleg örlög ísabellu Me-he héldu töframenn og sjón- hverfingameistarar áfram aö þyrpast til okkar,—og viö héldum áfram aö gapa af undrun. Þó varö allt sæmilegt fólk á Islandi jafn- vel enn meira hissa þegar fréttist utan úr heimi af töfrabrögöum æöstu manna i viröulegustu em- bættum, komnum af jafnvel enn tignari ættum en Isabella Me-he, — aö maöur nú ekki tali um stjórnmálaskúma i austi og vestri sem hafa þegiö mútur af Mr. Lockheed og kó. Þaö félag þykir einna finast i forystulandi lýöræö- is og frelsis og hefur lagt megin- áherslu á vopnasmlöi, — aö vernda megi okkur öll frá hinu illa. Og sjónhverfingum er haldiö áfram, og viö höldum áfram aö góna ámeistarana. Rikisútvarpiö segir daglega frá ótrúlegri snilld Nóbélsverölaunahafans Kiss- ingers, galdrameistarans viö samningaboröin sem nú þeytist milli negrahöföingja Afrlku aö fá þá góða, — enda þótt upplýst sé fyrir löngu aö hann sé blóðugur upp aö öxlum eftir sýningarnar i Chile, og gæinn sem reddaði hon- um um Friöarverölaun Nóbels, Nixon Bandarikjaforseti, alstrip- aður svindlari úti Kaliforniu. Slika menn nefna Kanar small- time crooks og þykja heldur leiöinlegir þar i sveit. Sem betur fer eru iika til hinir allra spaugilegustu skemmti- kraftar á þessu sviöi. Um þá fjall- ar fjöldi embættismanna og opin- berra starfsmanna á Islandi ár og siö, og gefur út skýrslur og annála um afrek þeirra á hverju sumri. Einstaka almúgamenn veröa æstir og reiöir I nokkra daga, en flest okkar undrumst æ meir yfir- náttúrleg töfrabrögö samborgar- anna, — tekjulausra þurfamanna sem láta tugmilljóna villur meö tvöföldum bilskúrum og þreföldu gleri risa yfir sig og sina allt i kringum okkur, án þess aö nokk- ur peningur sé fyrir hendi, og æöa framhjá okkur — og yfir okkur — á nýjustu Bensum og Lincolnum, þegar þeir nauðlenda hér á landi á eilifum feröalögum slnum um heiminn. Og viö höldum áfram aö gapa og enginn botnar neitt i neinu, þvi aö þetta eru sjálfstæöir atvinnurekendur meö fyrirtæki sin á kafi i botnlausu skuldafeni. En nú finnst opinberum embættismönnum lika loksins timi til kominn aö fara aö snúa viö blaöinu. Frá þvi var sagt á dögunum aö yfirmenn fátæks Riksifyrirtækis hér i höfuöborg- inni heföu látiö stofnunina sem þeir stjórna gefa sér i heiöurskyni nverjum sitt sjónvarpstækiö. Og ekki voru þau i svart - hvitu eins og sebradýrin i Hótel tslands- portinu foröum, — heldur I öllum regnbogans litum, völundarsmiö gjörö af meistara höndum, aö þau megi veröa heimilum þessara embættismanna til sem mestrar prýöi og sóma. Þetta er auðvitaö helviti sniöugt, — en mætti maöur þá heldur biöja um tsabellu Me- he og hennar slengi. JMA. Og HEIMASTJÓRNAR- FUNDUR Svartgljáandi bens stansar á breiðstræti framan við steinhöll lögregluþjónar með kylfur dinglandi við beltið halda aftur af fréttamönnum sem ryðjast fram tilbúnir að skjóta auðmjúkur bílstjórinn opnar buktandi afturdyrnar svartklæddur sköllóttur skegglaus skjalatöskuþræll stígur út skælir fram brosgrettu fyrir súmlinsuaugun gengur svo sperrtur að mósaíkskreyttum þrepum þar stendur tvífari hans þeir fallast í faðma leiðast svo inn i ráðstefnusalinn við langborðið bíða tugir af öðrum svartklæddum sköllóttum skjalatöskuþrælum fundur er settur i alheimsráðinu. HÁSKÓLINN OKKAR Eins og verksmiðja ku hann vera Háskólinn okkar eins og verksmiðja i Árósum kannski er hann líka i raun og veru bara verksmiðja sem spýr út framleiðslunni tillitslaust sjálfvirkt skrímsli þó get ég ekki að því gert að þegar ég á leið þar um stéttir langar mig einlægt til að tina Nordalíurnar sem vaxa í skjólinu undir austurveggnum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.