Þjóðviljinn - 16.09.1976, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 16.09.1976, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. september 1976. Skrifið eða hringið. Sími: 17500 Leiga eða ekki leiga? Skipverji af Brúarfossi hafði samband við blaðið og fann að því, að ekki fengjust myndir frá Fræðslumyndasafni rík- isins nema fyrir gjald. Hinsvegar stæði mönnum til boða að fá ókeypis myndir lánaðar hjá er- lendum sendiráðum og nefndi í því sambandi bæði hið danska og rússn-. eska. Taldi skipverjinn ó- eðlilegt að Fræðslu- myndasafnið veitti mönnum ekki sömu fyrir- greiðslu að þessu leyti og erlend sendiráð. Vegna þessara umkvartana skipverjans haföi blaöiö tal af forstööumanni Fræöslumynda- safnsins, Benedikt Gröndal, og fékk hjá honum eftirfarandi upplýsingar um starfsemi safnsins. Benedikt Gröndal kvaö þaö rétt, aö ekki fengju aörir aöilar ókeypis afnot af myndum frá Fræöslumyndasafninu en skól- ar og sjúkrahús. Leigugjald eft- ir myndirnar væri annars nokk- uö misjafnt og færi þaö eftir þvi, hversu langar þær væru og hvort þær væru I lit eöa svart- hvitar. Leigutiminn væri og misjafn. Hér á Reykjavikur- svæöinu væri reiknaö meö þriggja daga leigutima, en hins- vegar talsvert lengri úti á landsbyggðinni þvi þaö tæki sinn tima aö koma þeim þangaö og til baka. Mjög mikiö væri um þaö, sagöi Benedikt Gröndal, aö myndir væru fengnar hjá safn- inu en sjómenn heföu þó ekki notfært sér þaö mikiö. Öhætt væri að fullyröa, aö útlán væru hátt á fimmta þúsund á ári og áhorfendafjöldi um 600 þús., ef allt væri saman taliö. Eftispurn eftir einstökum myndum er eölilega mjög mis- jöfn, en langmest er beöiö um islenskar myndir. Benedikt taldi, aö um 1600 myndir væru til i safninu og stöðugt bættust nýjar við. Hinsvegar gengju aörar úr sér. 1 fyrra heföi t.d. veriö fleygt 400 gömlum mynd- um. Voru þær ýmist slitnar orönar, úreltar eöa hvort- tveggja. 1 reynd væri þaö svo, aö allir gætu fengiö myndir hjá safninu. Aö vísu væri svo ákveö- ið, að ekki mætti lána þær pólitiskum félögum, en auövelt væri náttúrlega aö fara I kring- um það. Benedikt kvaö safniö einnig eiga nokkrar sýningarvélar, sem það lánaði hér í nágrenniö en ógerlegt væri hinsvegar aö lána þær lengra tilþví þær væru viökvæmar I flutningi, enda væru sýningarvélar til i skólum og félagsheimilum viösvegar um land. Um þaö má sjálfsagt deila, sagði Benedikt, hvort safnið á aö láta öllum i té myndir leigu- laust. Margar myndanna væru dýrar, rekstur safnsins kostaöi nokkuö og þvi heföi að þessu ekki verið talið annaö fært en að taka nokkurt gjald fyrir útlán á myndunum. —mhg Hvað er því til fyrirstöðu? — Hver annast mjólkursölu þar sem minnst er arðvonin? Bóndi skrifar: Ég sá i blöðunum, að Húsmæðrafélag Rvik- ur er að láta frá sér heyra. Það er nú búið að skipa framkvæmda- nefnd og skorar hún á neytendur, að mót- mæla óeðlilegum hækkunum á nauð- synjavörum. Segir nefndin að slik mót- mæli séu „best fram- kvæmd á þann hátt, að draga úr neyslu ýmissa þeirra vörutegunda, sem þegar eru orðnar óeðlilega dýrar”, segir þar. Sjálfsagt má lengi um þaö deila hvaöa vörur eru óeölilega dýrar og hverjar ekki og heföi nefndin, sem eflaust hefur kynnt sér þaö, gjarnan mátt gefa um þaö einhverjar ábend- ingar. Þá lýsirnefndin „þeirri skoö- un sinni, aö ekkert sé þvi til fyr- irstöðu að Mjólkursamsalan geti áfram starfrækt mjólkur- verslanir, þar sem þess gerist enn þörf”. Nú hafa kaupmenn óskaö eftir þvi, aö fá aö versla meö mjólk og fengiö þá ósk uppfyllta. Spurningin er hvort sú ósk er fram komin af umhyggju fyrir neytendum eöa þeim sjálfum. Ef neytendur eru bornir fyrir brjósti hvaö er þá því til fyrir- stööu að kaupmenn sjái um mjólkursölu einnig i þeim borgarhverfum þar sem arös- vonin er minni? fjörtíu nœtur Grös og blóm skrælnað, tré bar- ist við dauðann. óaflátanlega hefur jörðin skorpnað. Og tröll- efldir borar nista hold jarðar- innar djúpt, djúpt inn til innstu æöa i berglögum. Djöfulefldar dælur þvinga vatni upp úr jarðgrunninum. Fyrst tugi metra, svo hundruð metra. Og jörðin verður eins og sá likami, sem blætt hefur út. Það tekur ár á ár ofan þó að aft- ur yrði eðlileg úrkoma, aö fylla tómin, sem orðin eru i grunn- vatnsgeymum þurrkalandanna. En afleiöingar veðráttunnar eru endanlega þær sömu: upp- skerubrestur, búpeningsfellir. Endanlegar afleiðingar af sökkvandi óþurrkum og brenn- andi þurrkum verða á þann hátt þær sömu: Hallæri, fóðurskort- ur, afurðatjón, niðurskurður á búpeningi, siðan mjólkurskort- ur, kornskortur og loks fram af þvi kjötskortur. Það litið, sem til veröur, hækkar i verði. Þessi hundadagamessa er allt annað en falleg. Verst af öllu er að hún er þvi miður sönn. Hér skal ekkert ætlað á um það hvort sagan um syndafallið er bókstaflega að endurtakast. Hinu ætti enginn að reyna vilj- andi að gleyma, aö forsjónin hefur aldrei látiö að sér hæöa. Nú hefur slegið I baksegl hjá þeim, sem hafa skrifað og talað um framleiðslu, kaup og sölu landbúnaðarvara, vors daglega brauös, eins og þeir bæöi ættu heiminn og réðu honum lika. Þeir fóru flatt á þvi. 27/8-1976, Játvaröur. Umsjón: Magnús H. Gíslason Tilfellið er aö sögnin i ritning- unni um þaö þegar flóðgáttir himinsins opnuðust og þar rigndi I fjörutiu daga og fjörutiu nætur er aö öllum likindum sönn. Nú er sko ekki þvi að heilsa aö hann gangi úr gúlpnum yfir i þveran og geri þurrk. Veðráttan er likust þvi sem hún sé blýföst i niðurgröfnu hjólfari, sem hún nær sér með engu móti upp úr. Varla bifast nema milli suð-suð-vesturs og vest-suövesturs. Og þaö rignir, það rignir. Það rignir i eykta- og dægralotum, það rignir með skúrum, löngum skúrum og súld á milli. Heyið rignir niöur I jörð- ina, saman við jörðina. Sumsstaðar vellur vatniö upp úr jörðinni og annarsstaðar taka lækirnir jöröina meö sér og árnar taka heyið með sér og fara meö allt saman út á sjó. Og ef þetta heldur áfram þá þvær rigningin skepnurnar saman við jöröina og svo þvær kannski rigningin fólkið saman viö moldina og sfðan saman viö sjó- inn. Og ef þetta heldur áfram? Ef ekki fær aö siga úr jöröinni og vatniö aö skiljast frá landinu, ef ekki kemur þurrviöriskafli, þá verður einhverstaðar litiö hey til fyrir einhverja kúna á kom- andi vetri. Þvi er nú verr. En svona er þaö. Kannski tekst aö bindast samtökum um aö halda opinni einhverri mjólkurbúö I Reykja- vik og grennd, sem kauphákall- ar vildu gjarnan gleypa. En hvað verður til af mjólk? Þaö getur oröiö þrautin þyngri aö framleiöa hana. Ekki er seinna vænna að opna augun fyrir þvi. A Islandi, vestanveröu, hefur vatnið streymt úr loftinu i fjöru- tiu daga og fjörutiu nætur og túnin eru tjarnir og túnin eru svað. Þungu vélarnar komast óviða um. Þær verða ekki aö notum nema á stöku stað. Og nú sést hvað þær hafa gert. Þær hafa þjappað jarðveginum saman. Þær hafa eyðilagt vatnsleiðni jarövegsins. Vatnið stendur i hjólförunum. Það sigur ekki burt nema á óratima. Þess- vegna eru mörg túnin ekki það þurrlendi, sem fólk hélt að þau væru og þau þurfa aö vera. Og ekki sér fyrir endann á afleið- ingunum. Þaö eitt er vist: Óþurrkar eru orðnir ennþá aðgangsharðari en áður þekkt- ist og orsaka stórum viðtækara hallæri. Veðráttan er eins og föst i niðurgröfnum hjólförum, sem hún nær sér ekki upp úr með nokkru lifandi móti. Þessir hundadagar, sem nú eru að enda, hafa verið skelfilegur timi. Suöur um Bretland og austur og suöur um Evrópu er hermt aö hafi rikt andhverfa veðrátt- unnar á vestanverðu Islandi. Reyndar veröur hver og einn aö ráða hvort hann trúir þeim eng- lendingum, sem segja, að i 250 ár hafi ekki komið annar eins þurrkur. Hugsanlegt er, aö ekki hafi verið votari hundadagar hér i 250 ár. En hvaö sem þvi líður: I Evrópu hefur vatniö lagt leiöina upp i loftiö, hefur gufaö upp dag eftir dag, viku eftir viku, mán- uð eftir mánuð, meira en fjöru- tiu daga, meira en fjörutíu næt- ur. Lækirnir hafa þornaö, árnar hafa þornað, tjarnirnar hafa þornaö, vötnin hafa þornað.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.