Þjóðviljinn - 16.09.1976, Síða 11
Fimmtudagur 16. september 1976. ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 11
Teitur Þóröarson reynir hjólhestaspyrnu aö marki Trabzonspor undir lok fyrri hálfleiks, en þá náöu skagamenn töluveröri pressu.
Myn<
Evrópukeppni meistaraliða á Laugardalsvelli í gær:
Áhugalausir akur-
nesingar fengu skell
gegn liði tyrkjanna
Tvisvar sinnum komu markstangirnar tyrkjum til bjargar, en þeir
tryggðu sér sigur er úthaldið hjá skagamönnum þvarr gjörsamlega
Akurnesingar sýndu ekki glæsileg tilþrif þegar
þeir mættu tyrknesku meisturunum Trabzonspor i
gærkvöldi á Laugardalsvelli. Leikurinn var nær
allan timann hundleiðinlegur á að horfa, stemning-
in hjá hinum sárafáu áhorfendum i lágmarki og
áhugaleysið hjá leikmönnum 1A var algjört að þvi
er virtist. Það litla sem framan af sást af þokkaleg-
um tilburðum kom frá tyrkjunum, sem léku siðan af
skynsemi i siðari hálfleik og tryggðu sér 3-1 sigur á
siðustu minútum leiksins. Þá var úthaldið með öllu
búið hjá skagamönnum og þegar áhugaleysið bætt-
ist þar á ofan var vart við miklu að búast,og þvi fór
sem fór. Vonir akurnesinga um að komast áfram i
2. umferð eru þar með úr sögunni, i meira lagi er
óliklegt að liðinu takist betur upp i siðari leik lið-
anna sem fer fram i borginni Trabzon 29. septem-
ber.
Trúlega hefur leikur hjá ís-
lensku félagsliöi I Evrópukeppni
aldrei komist á eins lágt plan og i
gærkvöldi. Fyrir þaö fyrsta hafa
áhorfendur varla veriö fleiri en
eitt þúsund talsins e.t.v. þó 1500 ef
vandlega er talið, og stemning á
pöllunum var fyrir bragöiö ná-
kvæmlega ekki nein. Leikurinn i
heild sinni var eftir þvi. Aö visu
komu ljósir kaflar innan um,
einkum um miðbik siðari hálf-
leiks, en aö ööru leyti sáu tyrkirn-
ir um aö gera allt þaö sem
skemmtilegt sást af knattspyrnu-
tilþrifum I þessum leik.
Þeir skoruöu fyrsta markiö sitt
á 35. minútu. Langbesti maöur
liösins, Ali Kemal Denizci braust
upp hægra megin og sendi gull-
fallegan bolta til Necmi Perikli
sem skallaöi i markiö af stuttu
færi án þess aö Einar Guöleifsson
kæmi neinum vörnum viö.
A 10. min. eftir hlé jafnaði svo
1A. N-irski dómarinn P. Mulhall.
dæmdi réttilega skref á tyrk-
neska markvörðinn inni viö
markteig tyrkjanna, sem rööuöu
sér upp á marklinuna til varnar.
Eftir mikiö þras og þref tók Jón
Alfreösson óbeina auka-
spyrnuna, sendi örstuttan bolta til
Arna Sveinssonar sem skoraöi af
mikilli nákvæmni meö föstum
jaröarbolta i bláhorniö nær.
Drengurinn sá vissi greinilega
hvaö hann ætlaöi sér aö gera og
ráðageröin heppnaöist fullkom-
lega.
Viö markiö færöist lif i leikinn.
Akurnesingar hertu á sér I sókn-
inni, en aö sama skapi sofnuöu
þeir gjörsamlega i vörninni og
misstu eldfljóta framherja tyrkj-
anna oft inn fyrir. A 16. og 17. min
eftir hlé komst markaskorarinn
Perikli t.d. tvivegis einn innfyrir
en I annað skiptiö fór boltinn
framhjá og I hitti beint á Einar
markvörö.
Þá var komiö aö markstöngun-
um i þessum leik! Fyrst var þaö
Arni Sveinsson sem átti þrumu-
skot i markstöngina nær á 20.
min. er hann fékk boltann út I
vinstra vitateigshorniö. Boltinn
hrökk af stönginni til Péturs
Péturssonar sem var i dauöafæri
en skaut yfir.
Pétur átti svo fimmtán minút-
um síöar sjálfur stangarskot.
Arni Sveinsson sendi langan bolta
fram vinstri kantinn, Pétur hent-
ist á eftir og skaut föstu skoti af
löngu færi sem small i mark-
stönginni utanveröri rétt fyrir
neöan þverslá. Þaöan hrökk bolt-
inn aftur fyrir endamörk og
tyrkirnir gátu andað léttar.
En markstangir aökomumanna
voru ekki þær einu sem komu til
bjargar i gærkvöldi. Aöeins
tveimur minútum eftir stangar-
skot Péturs slapp Ali Kemal einn
inn fyrir og skaut úr sannkölluöu
dauöafæri i markstöngina fjær.
Tyrkirnir voru þá farnir aö sækja
af kappi og þeir uppskáru siöan
mark á 40. min. siðari hálfleiks.
Enn var þaö Ali Kemal Denizci
sem þar var á ferö. Tyrkirnir léku
varnarmenn IA sundur og saman
og skemmtileg sóknarlota þeirra
endaöi meö hörkuskoti miöherj-
ans sem rataöi beina leiö I
markiö.
Og sigurinn var svo innsiglaöur
tveimur minútum siðar...... og
auövitað var þaö Ali Kemal sem
það geröi. Hann fékk stungubolta
inn fyrir varnarmenn ÍA, hljóp þá
léttilega af sér og skoraði af
miklu öryggi framhjá Einari
Guöleifssyni. 3-1 og þrjár minútur
til leiksloka. Skagamenn voru þar
með dæmdir úr leik I Evrópu-
keppninni aö sinni.og þaö verður
aö segjast eins og er,aö þeir áttu
annaö ekki skiliö.
Nær allir leikmenn liösins léku
undir getu og sumir þannig aö
maöur skildi vart hvaö þeir voru
eiginlega aö gera inni á vellinum.
Greinilega er eitthvaö alvarlega
mikiö aö i herbúöum IA um þess-
ar mundir. Þjáifarinn fær tveggja
vikna fri fyrir erfiöa leiki i bikar-
og evrópukeppni, leikmenn eru
vita úthaldslausir og áhugalausir
þar i ofanálag.
Tyrknesku atvinnumennirnir
léku af svipaöri getu og búist var
viö, og hún dugöi þeim auöveld-
lega til vinnings gegn akur-
nesingum aö þessu sinni. —gsp
Sagt
eftir
leikinn
Þjálfari IA:
Strákarnir
voru alveg
frábærir
— Strákarnir okkar voru al
veg frábærir mestan hluta
siöari hálfleiks og léku þá
skmandi vel, sagöi Ferguson
þjálfari 1A aö leik loknum.—
Þeir keyröu þá alveg á fullu og
þaö kostaöi þaö lika aö leik-
menn „sprungu” undir lokin
og þá fengum viö á okkur tvö
mörk. Fyrri hálfleikurinn var
hins vegar óneitanlega ekki
mjög góöur. Tyrkirnir fengu
aö leika sér alltof mikiö óá-
reittir.
Auövitaö er ég ekki ánægöur
meö úrslitin. Tyrkneska liöiö
hefur skoraö samtals 13 mörk
I siöustu 30 leikjum sinum og
svo koma þeir til lslands og
skora þrjú mörk i einum leik.
Þaö er engin afsökun fyrir
okkur aö þeir séu atvinnu-
menn; tapiö var alltof stórt.
— Undirbýrö þú liöiö fyrir
seinni leikinn?
— Það hef ég ekki hugmynd
um ennþá. Hins vegar verður
seinni ieikurinn vafalaust
mjög erfiöur,en fyrstþeir geta
komið hingaö og skoraö þris-
var sinnum vil ég alls ekki úti-
loka þann möguleika aö akur-
nesingarnir geti leikið sama
leikinn. Þaö býr margt gott I
þessum strákum,og þaö hefur
veriö ákaflega ánægjulegt aö
vinna með þeim i sumar.
Jón Gunnlaugs:
Það vant-
aði allt
púst og
áhuga
— Ég veit eiginlega ekki
hvað á aö segja um þessa
hörmung, sagöi Jón Gunn-
Iaugs.,on fyrirliði ÍA. — Þaö
vantaði bara allt i liðiö, bæöi
úthald og áhuga og þess vegna
var ekki nema von aö illa færi.
Hjá tyrkjunum voru þrir eða
fjórir menn sem virkilega
voru góöir, en liðiö hefúr ekki
yfir aö búa nærri nægilega
miklum styrk til þess aö hægt
sé aö tapa fyrir þvi meö
tveggja marka mun.
Mér finnst liðiö sem viö lék-
um gegn i fyrra, Omonia frá
Kýpur, margfalt betra heldur
en þetta. Þaö segir kannski
sina sögu um ástandið hjá liö-
inu aö viö sigruöum Omonia
4-0 á Laugardalsvellinum sl.
haust, mætum núna lakara liði
ogtöpum 1-3. Þetta var alveg
hrikalegt.
— Nei, mér líst ekkert á
seinni leikinn. Þaö þarf eitt-
hvaö meira en litiö aö gerast
ef viö eigum aö ná stigi eöa
stigum úr þeirri viöureign.
Þaö olli mér llka von-
brigðum i kvöld hve áhorf-
endur voru fáir. Gegn Omonia
fengum við held ég um sjö
þúsund manns, en núna hins
vegar ekki nema þessar sára-
fáu hræöur sem eölilega gátu
ekki skapaö neina stemningu.
Þetta var allt ósköp dapurt.