Þjóðviljinn - 18.09.1976, Side 1
UOÐVIUINN
Laugardagur 18. september 1976. — 41. árg. — 208. tbl.
Sjómenn snúast til varnar
Nýr myndlistar
gagnrýnandi
Ölafur Kvaran skrifaði sinn fyrsta mynd-
listarþátt i Þjóðviljann sl. sunnudag um sýn-
ingu FIM. Nú er Ölafur kominn til leiks i
laugardagsblaðinu i dag, þó að eftirleiðis
verði þátturinn á sunnudögum. Ólafur Kvar-
an mun skrifa um myndlist fyrir Þjóðviljann
á næstu mánuðum. Hann starfar annars við
Listasafn tslands og kennir listasögu við MH.
Fundi
Hafréttan
ráðstefnu
lokið
Þriðja fundi hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna
lauk i New York i gær. End-
anlegar niðurstöður náðust
ekki, en næsti fundur verður
haldinn eftir 6-8 mánuði. Þau
atriði, sem mestu máli
skipta fyrir okkur islendinga
standa áfram óbreytt að
loknurn þessum fundi i þeim
drögum aö hafréttarsátt-
mála, sem fy'irliggja
Hagsmunir okkar islend-
inga eru þeir, að ákvæðunum
um auðlindalögsögu og fisk-
veiðimál i fyrirliggjandi
drögum verði sem minnst
raskað, en segja má, að
staöa þeirra mála á hafrétt-
srráðstefnunni sé slik, að
reglan um óskoruö yfirráð
strandrikja innan 200 milna
auðlindalögsögu verði alls-
ráðandi I reynd, a.m.k. við
Norður-Atlantshaf, á næstu
mánuðum.
Sjá leiöara
Nýju kartöflurnar:
100 kr.
hvert kíló
Akveðið hefur verið verö á
islensku kartöflunum I
haust. Tekur þaö gildi frá og
með mánudeginum. Veröur
verðið til neytenda sem hér
segir: ,
1. flokkur 499,00 kr. 5 kg.
pokinn
2. flokkur 409,00 kr. 5 kiióin.
- Sjá síðu 3
ALÞINGI
Verðhœkkun á kjöti á
mánudag. Hœkkun til
bóndans er aðeins
8en neytandinn
verður að borga 15-20%
hœkkun _________
OGILDI
ÞRÆLA-
LÖGIN
Hafin er undirskriftasöfnun meðal
sjómanna og annarra til að
fylgja fram þeirri kröfu
Hópur sjómanna víðs
vegar að af landinu hefur
nú tekið frumkvæðið/ og
hafist handa um söfnun
undirskrifta undir áskorun
á Alþingi um að ógilda
bráðabirgðalögin# sem rik-
isstjórnin setti i síðustu
viku um launakjör sjó-
manna.
Undirskriftum verður i fyrsta
lagi safnað meðal sjómanna
sjálfra, undir kröfuna til Alþingis
um afnám þessara þrælalaga.
Þá verður jafnframt safnað
meöal vinnandi man .a i landi
undirskriftum undir stuðningsyf-
irlýsingu við málstað sjómanna.
I frétt frá þeim hópi sjómanna,
sem fyrir aðgerðunum stendur
segir:
Frjáls samningsréttur
„Vegna setningar bráöabirgða-
laganna 6. sept. síöastliðinn,
varðandi vinnudeilu sjómanna og
útgerðarmanna, hefur hópur
manna víðs vegar af landinu
hrundið af stað undirskriftasöfn-
un, þar sem sjómenn skora á Al-
þingi að ógilda lögin.
Samhliða undirskriftalistum
sjómanna eru listar fyrir þá sem
vilja styðja baráttu sjómanna og
mótmæla þeirri óvirðingu sem
samningsrétti alls vinnandi fólks
er sýnd með bráðabirgöalögun-
um.
Það sem gerir lög þessi for-
kastanleg, er að engin gild ástæða
ér fyrir setningu þeirra, og að þau
gilda aftur fyrir sig frá 16. febr.
siðastliðinn allt til 15. mai næsta
ár, eða i rúma 15 mánuði, þar af 7
mánuöi sem þegar eru liðnir.
Einnig felst i lögunum greinileg
hlutdrægni öörum aðilanum i vil.
Það ber að vekja sérstaka at-
hygli á þvi að sjómenn hafa unnið
með lausa samninga frá 16. febr. i
vetur. Er vafasamt að nokkur
önnur stétt hafi sýnt sinum vinnu-
veitendum slíka biðlund sem sjó-
menn hafa gert, enda eru þeir sér
meðvitandi um nauðsyn starfs
sins fyrir þjóðina.
Væri þeim betur komin virðing
og þakklæti fyrir þá þjóðarholl-
ustu sem fellst i að vinna án
kjarasamninga mánuðum sam-
Framhald á bls. 14.
HUN ÞRJOSKAÐIST
LENGI VIÐ ÞESSI!
Þessi slðasta rolla sem dregin var I dilk I Skeiðarétt I gær
þrjóskaðist lengi við og i orðsins fyllstu merkingu var hún
DREGIN i dilkinn sinn. Fleiri myndir úr réttunum eru á
bls. 11.
Ávisanasvindlararnir segja:
Bankamir leyfðu
ávísanahringinn
Enn hafa ekki allir verið yfir-
heyrðir vegna ávisanasvikamáls-
ins, sem þar koma við sögu, en
þeir sem yfirheyrðir hafa verið
segja aUir, að þeir hafi haft leyfi
frá bönkunum fyrir yfirdrætti á
ávisanareikningi sinum, flestir
skrifiegt leyfi, aðrir munniegt.
Þeir viðurkenna einnig, að hafa
oft farið fram úr þessari yfir-
dráttarheimild tfma og tíma og
að bankarnir hafi ekkertgert I þvi
máli, annað en innheimta hjá
þeim refsivexti og hafi þar með
leyft f verki að ávisanahringurinn
starfaði.
Þetta ásamt ýmsu fleiru kom
fram á blaöamannafundi með
Hrafni Bragasyni umboðsdómara
i ávísanamálinu i gær. Hrafn
sagði aðbúið væri aðyfirheyra 14
Allir þeir sem
yfirheyrðir hafa
verið segjast
hafa haft yfir-
dráttarheimild
menn og ljóst væri að þarna er
um kunningja og vinahóp að
ræða, sem hefur mjög náið sam-
band. Þó eru ein eða tvær undan-
tekningar, þar sem utan að kom-
andi mennfengu lán hjá einhverj-
um úr hópnum og flækjast þar
með inni málið.
Hrafn sagði ennfremur að þaö
hafi komið fram við yfir-
heyrslurnar yfir þessum mönn-
um, að þeir eru búnir að sam-
ræma framburð sinn og þeir stór-
tækustuerubúnir aöhafa samráð
við lögfræöing, sem hefur sagt
þeim hverju þeir ættu að svara og
hverju ekki.
Allir þessir menn, sem búið er
að yfirheyra reka eða ráku ein-
hverskonar viðskipti, en Hrafn
vildi ekki tilgreina nánar hvers-
konar viðskipti mennir nir ráku.en
sagði aö með þeim aðferðum,
sem þeir notuöu i ávisana-
keðjunni hafi þeir komist yfir fé
til að bjarga sér á um stundar-
sakir.
Sem dæmi nefndi Hrafn, aö
Framhald á bls. 14.