Þjóðviljinn - 18.09.1976, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 18.09.1976, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 18. september 1976. FERILL MAOS 26. desember 1893: Mao Tse-Tung fæöist i þorpinu Shashan I Hunan héraöi. 1907— Fjölskylda Maos giftir hann stúlku, sem er fjórum árum eldri en hann sjálfur, en hann viöurkennir aldrei aö þetta hjónaband sé gilt. 1909— Skólaganga Maos hefst. 1911 Hann fær inngöngu i gagn- fræöaskóla i Sjangsja, og er þar i tvö ár, en sækir siöan tima I kennaraskóla. 1915 —Mao veröur ritari skóla- félagsins. 1917— Ritgerö hans um leikfimi birtist I timaritinu ,,Ný æska”. 1918— Mao lýkur prófi úr kenn- araskólanum I Sjangsjæ og fer til Peking. Þar veröur hann aöstoðarmaöur i háskólabókasafninu, sem marxistinn Li Ta-sjá veitir forstööu. Hann hittir þar einnig Sjen Tu-hsiu og Sjang Kuo-tá, sem siöar uröu forystumenn kommúnista- flokksins. Leshópur um marxisma er stofnaöur i háskólanum. 1919— Mao snýr aftur til Sjang- sja og stofnar þar yfir sumarmánuöina „Timarit Hsiang-fljótsins”, sem á aö breiða út hugmyndir „4. mai-hreyfingarinnar”. 1920— Hann stofnar komm- únistahóp I Hunan-héraöi. Smáhópar sósialista eru stofnaðir viöa I stórborgum Kina. 1921 Mao tekur þátt I stofnun kin- verska kommúnistaflokks- ins i Sjanghai. 1 október er hann siöan tilnefndur yfir- maður flokksdeildarinnar I Hunan. 1922— Asamt Liu Sjá-sji veitir hann forystu verkfalli námumanna I Anjuan, og veröur yfirmaöur verklýös- sambands héraösins. Ariö eftir er hann kosinn I miðstjórn kommúnista- flokksins. 1924— Fjölmargir félagar úr kommúnistaflokknum ganga I kinverska „þjóöar- flokkinn” Kuomintang, og Mao veröur varamaöur I miöstjórn hans. 1925 -1 mai byrjar Mao aö skipu- leggja bændahreyfingu I Hunan. Hann á á hættu aö vera tekinn fastur og fer þá til Kanton og starfar á þeirri skrifstofu Kuomintang, sem fjallar um málefni bænda. 1927— Þaö slitnar upp úr milli Kuomintang og komm- ’ únistaflokksins. 1 mars tekur Mao þátt i fundi fram- kvæmdanefndar Kuomin- Sjú Enlæ, Mao og Sjú Te i Yenan eftir gönguna miklu, þar sem kin- verskir kommúnistar stofnuöu fyrsta visinn aö alþýöulýöveldi. Allir þessir þrir leiötogar Kina hafa andast á þessu ári. tang, en I april snýr Sjang Kai-sjek viö blaöinu og byrjar stórfelldar ofsóknir á hendur kommúnistum. Mikill fjöldi þeirra er drep- inn. I ágúst er gerö uppreisn i Nansjang og rauöi herinn veröur til. Mao er hand- tekinn I september, en honum tekst aö komast undan. I október setur hann niöur bækistöð sina I Sjing- kanshan-héraöi. 1 nóvember er hann rekinn úr stjórn- málanefnd kommúnista- flokksins fyrir „hernaöar- lega tækifærisstefnu”. En skömmu siðar siást Sjú-Te, Lin Piao og Peng Te-huai i liö meö honum ásamt fylgis- mönnum sinum. Mao veröur stjórnmálaforingi alls hópsins en Sju-Te verður herforinginn. 1930-1931— Sjang Kai-sjek gerir þrjár tilraunir til aö umkringja kommún- istana og eyöa þeim. t nóvember 1931 er lýst yfir stofnun sovétlýöveldis I Juichin I fjallahéruðum I Kiangsi I suöurhluta Kina, og veröur Mao forseti þess. 1932— Kinverska lýöveldiö segir japönum striö á hendur, en Kuomintang-flokkurinn semur skömmu siöar um vopnahlé viö þá. Sjang Kai- sjek gerir fjóröu tilraunina til aö umkringja kommún- ista, og siöan I október 1933, fimmtu tilraunina, sem reynist þeim langhættu- legust. 1934— „Langa gangan frá Kiangsi gegnum allt Kina Höfundur núttma Kína 1 dag lýkur i Kina þeirri niu daga þjóðarsorg, sem ákveðin var samkvæmt þarlendum venjum eftir andlát „stýri- mannsins mikla”, og eftir sorgargöngu við Hliö hins himn- eska friöar er hann nú sennilega til moldar borinn i kyrrþey ein- hvers staöar i viöáttu Miörikis- ins að viöstöddum nánustu ættingjum og samstarfsmönn- um einum — þótt ekkert hafi enn veriö tilkynnt um jaröarför- ina. Sá sem þessar linur ritar átti þess kost fyrir mörgum árum að kynnast aldraðri kinverskri konu af mrndarinaættum, sem flust haföi frá Kina löngu fyrir valdatöku kommúnista og liföi á þvi að kenna kinversku i há- skóla. Þótt hún talaði litið um það, vissu menn að hún hafði farið nokkrum sinnum til heimalands sins á undanförnum árum og hafði gott samband við ættingja sina þar. Yfir leitt var starf hennar fólgið i þvi að út- skýra grundvallaratriði i kin- verskum framburði og mál- fræði, en einu sinni féllst hún þó á það, samkvæmt beiðni nem- enda sinna, að segja álit sitt á þróuninni i Kina nútimans. Hún lýsti þvi þegar yfir að hún væri ekki kommunisti, enda hefði hún ekki stéttarlegar for- sendur þess, — en hins vegar sagðist hún ekki hika við að telja sig maoista. Án Maos, sagði hún, væri ekkert Kina lengur til: um langan aldur haföi Kina verið að grotna niður í stéttakúgun, fátækt og stirðn- uðum menningarformum, og landsmenn höfðu ekkert minn- sta bolmagn til að veita and- spyrnu gegn erlendri ásælni, en undirstjórn hans var Kina aftur orðið sameinað og sterkt riki, sem öll heimsveldi urðu að taka fullt tillit til — og lif manna hafði breyst svo mjög að þvi myndu fæstir trúa. Reyndar er það lika svo að löng ævi Mao Tse-tungs spannar allar þær miklu breytingar sem orðið hafa i Kina: hann fæddist i hinu forna keisaraveldi, þar sem umheimurinn hafði enn haft lítil sem engin áhrif, og upplifði þaö i barnæsku hvernig sá risi á leirfótum, sem hið forn- lega Kinaveldi var, tók aö riöa til falls: þegar hann var tveggja ára hófst styrjöld milli kinverja og japana, þar sem kraftleysi kinverja kom fyrst i ljós fyrir alvöru( 1895), fimm árum siðar varð „boxara-uppreisnin” og i kjölfar hennar skiptu Evrópu- veldin landinu á milli sin I „á- hrifasvæöi”. Þegar Mao var nitján ára fagnaöi hann stofnun lýðveldis i landinu undir forystu Sun Jat-sens, sem gaf mönnum fyrstu vonirnar um endurreisn Miðrikisins — þótt þaö lýöveldi yrði aö þola taumlausa fyrir- litningu og Iitilsvirðingu vestur- veldanna. Þrjátiu og fjögurra ára gamall hóf hann baráttu sina gegn einræöisstjórn Sjang Kai-séks, sem brotist hafði til valda i kuomintang-flokknum eftir lát Sun Jat-sens. Fimmtiu og sex ára að aldri er hann loks forseti alþýöulýðveldisins Kina, afturhaldsstjórn Sjang Kai-séks er flúin til Taivan, og arörán er- lendra heimsvaldasinna loks á enda. Reyndar voru flestir menn á vesturlöndum þó sam- mála á þessum tima um aö telja Mao kommúnískan einræðis- herra og blóðhund og handbendi Moskvu. En svo hverful er rás sögunnar að þegar „stýrimað- urinn mikli” er allur, tuttugu og sjö árum siöar, eru allir sam- mála um það i austri og vestri — að undanteknum valdhöfunum i Moskvu — að hann hafi verið einn af mikilhæfustu stjórn- málamönnum aldarinnar, „sið- asti risinn” eöa viti sem lýsti hugsun heimsins” og hann hafi sveigt söguna inn á nýjar braut- ir. Allur þessi samhljómur er býsna grunsamlegur, en meðan við hlýðum á alla helstu borgaralega stjórnmálamenn heims kyrja i kór, hvern með sinu nefi, lokaorðin úr söngnum um „stýrimanninn mikla”: Mao Ze-dong si-xiang shi bu luo de tai-yang („Hugsun Mao Tse-tungs er sú sól sem aldrei hnigur til viöar”) er ekki úr vegi aö hugleiða þaö hvernig viöhorfin kynnu aö hafa veriö ef Mao forseta heföi mis- heppnast þaö ætlunarverk,sem honum tókst aö leiöa svo glæsi- lega til lykta. Þvi eins og gamla kinverska konan, sem vitnað var til áöan , gerði sér fulla grein fyrir, er rás sögunnar full af földum gildrum, og ótal þætt- ir hefðu getað leitt til þess aö saga ættlands hennar hefði sveigst inn á aðrar brautir en varð. Ef Mao Tse-tung heföi oröið undir i þeim mikla hildarleik, sem háður var um völdin i Mið- rikinu, og Sjang Kai-sék eða einhver af hans nótum hefði Mao formaöur sest i valdastól i Peking heföi landiö vitanlega oröiö sjálfstætt lýöveldi aö nafninu til.Þvi aö sá timi var löngu liðinn þegar Evrópuveldin geröu lönd I öör- um heimsálfum aö „verndar- svæöum” og limuöu þau kann- ske sundur i „áhrifasvæði”. Hins vegar hefði veriö talin brýn nauösyn fyrir „efna- hagslega viðreisn” i landinu — þar sem þaö lá i rústum eftir borgarastyrjöld og styrjöldina við Japani —• og geröir hefðu verið samningar viö vestræn riki um „efnahagshjálp”, „tækniaöstoð” hjálp við iðnvæö- ingu og „hagkvæm við- skipti” . Siöan heföu vestrænir auöhringar flykkst inn i landið til að uppfylla þessa samninga, en stjórnin heföi haldiö uppi lög- um og reglu meö her sinum til að auðvelda þeim þaö, og jafn- framt hefði hún reynt að hlúa aö „innlendri menningu”, þ.e.a.s. stirðnuöustu formum kon- fúsianismans. Samkvæmt þeirri reynslu sem alls staöar hefur fengist af slikri þróun, heföu auöhringirn- ir siöan flutt út ómældan gróöa sem sjálfsagt heföi gert yfirstétt vesturlanda fært aö lifa I enn meiri vellystingum, og kannske hefðu þeir lika skapað nýja yfir- stétt meö vestrænu hugarfari i Kina — landinu sjálfu til einskis ágóða. Hins vegar hefði kin- verskur almenningur haidið áfram að lifa við sult og seyru, hann hefði verið ofurseldur ár- vissum hungursneyðum og drepsóttum, kúgaður bæði af nýrri yfirstétt og gamalgrónum lénsherrum og hnepptur I klafa stirðnaðs ný-konfúsíanisma. Um Kina heföi þá verið fremur hljótt i vestrænum fjölmiölum: morgunblöðin hefðu þó kannske drepið á hinar miklu „efnahags- framfarir” landsins og birt með þvi myndir af nýrikri yfirstétt, en þó heföi veriö fjölyrt meir um hina fornu og dýrmætu menn- ingu, sem stuölaöi aö svo miklum aga. Eitt hefði þó vafalaust rofið þessa þögn: tilraunir kinverkr- ar alþýðu til að brjóta af sér þennan klafa með uppreisnum og skæruhernaði. En vestrænir fjölmiðlar heföu veriö algerlega einróma um að fordæma þær i einu og öllu: uppreisnar- mennirnir væru handbendi Moskvu, sem miöuðu aö þvi aö eyðileggja „efnahagsframfar- irnar”, afnema „lýðræöið” og hneppa landið i heljarklær Moskvuvaldsins. Viö hverja breytingu er oröiö hefði á æðstu stjórn landsins, hefðu fjöl- miölarnir skeggrætt um hæfni ráðamannanna til að berja nið- ur óspektir kommunista. En sagan fór á annan veg, og á þessum timamótum ber að fagna þvi heils hugar, hver svo sem dómur seinni tima manna, sem hafa allar heimildir i hönd- umum og geta vegið þær og metiö, kann að veröa um hiö gif- urlega ævistarf Mao Tse-tungs. Á ævikvöldi sinu sagði Mao einu sinni við aldavin sinn Edg- ar Snow: „Þegar öllu er á botn- inn hvolft, hvað hef ég eiginlega verið? Flækingur sem fer hjá i skjóli götóttrar sólhlifar ” Þeir sem þekkja til hefðbundinnar kinverskrar málaralistar kann- ast við myndina: þannig er mál- aður spekingurinn, sem gengur i fátæklegum klæðum upp á mó'ti i fjalllendi. Enþráttfyrir skáldskap og heimspeki Maos er það kannske meira freistandi að bera hann saman við aöra persónu úr flókinni sögu Kina- veldis: keisarann Qin she Huang-di á þriðju öld fyrir Krist, sem skóp það Kina sem leiö undir lok I byltingunni áriö 1911 — hið hefðbundna kin- verska keisaraveldi. I þeim samanburði má þó ekki gleyma þvi, að það sem var fúiö og feyskið i byrjun þessarar aldar var byltingarkennt 2100 árum áður. Qin she Huang-di samein- aöi Kinaveldi úr ótal smárikjum og batt enda á þrotlausar styrj- aldir þeirra — á sama hátt og Mao sigraðist á herforingjum, sem börðust um völdin og frið- aði Kina. Keisarinn forni end- urskipulagði ailt landið og kom ástjórn menntaðra manná, sém þurftu að sanna hæfni sina með góðum árangri i þungum próf- um. Sú skipun hélst, þangaö til Mao endurskipulagöi stjórn landsins á allt öðrum grund- velli. Keisarinn forni geröi sina menningarbyltingu og endur- bætti letur landsins með þvi aö einfalda hið forna letur,,zhuan- shu”. Siðan var engin breyting gerð á letrinu fyrr en Mao tók upp alveg á sama hátt „ein- faldari táknin”. Hinn forni keisari lét byggja fyrsta hlutann af Kinamúrnum mikla, og þótt hann brygðist stundum var eng- in vörn betri þangaö til Mao iagði grundvöllinn að hernaöar- mætti Kina nú. Verk Qin she Huang-di hefur fengið misjafna dóma i sögunni, þótt enginn dragi i efa að hann hafi veriö eitt af mestu mikil- mennum kinverskrar sögu — en starf hans varð grundvöllur eins mesta blómaskeiðs landsins, Han-timabilsins. Það er ævi- starf Maos að hafa leyst aftur úr læðingi þann sköpunarmátt, sem var að grotna niður i feysknu lénskipulagi hins ör- vasa keisaradæmis. E.M.J.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.