Þjóðviljinn - 18.09.1976, Blaðsíða 13
Laugardagur 18. september 1976. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13
hringformsins verður hiö eigin-
lega athafnasvið eða kraftsvið
myndanna. t þessu kraftsviði
bregður hún á margvislegt form-
rænt samspil, gjarnan á rýmis-
skapandi bláum grunni. Hér
skiptast á samfellur mjúkra
bylgjuforma, tóðrétt form, eða
formin vaxa mjúklega inn aö
sameiginlegri miðju. Myndir
hennar eru annars mjög svo tvi-
skiptar formrænt, annars vegar
hin kraftmikla miðja og hins veg-
ar umlykjandi heill flötur og þvi
er ekki aö neita að oft skortir á að
liturinn fái hljóm og heild.
Verk Karls Kvaran á siðustu
einkasýningu hans i Norræna-
húsinu 1974 einkenndust öðru
fremur af kraftmikilli samtvinn-
un brotinna bogforma, sem ófust
sundur og saman yfir allan
myndflötinn. 1 verkinu „Tónar”,
sem hér er má sjá framhald af
þessari formgerð, þar sem engin
ákveðin miðja eða öxull er til
staðarheldur einkennist verkið af
mjúkum hrynjanda brotinna bog-
forma yfir allan flötinn án upp-
hafs eða endis. í nýjustu verkum
hans hér hefur þessi formgerð
vikið til hliðar en þess f stað hefur
hvert einstakt form breitt úr sér,
innbyrðis árekstrum er haldið i
skefjum og liturinn hefur fengið
aukna stærð. Þessi aukna áhersla
á litinn felur i sér að linan ber
uppi ákveðið og mikilvægt lita-
gildi og hann er siður áhersluauki
kraftmikillar teikningar. Þetta
má glöggt sjá i verki hans „Svört
h'na”, sem er eitt athyglisverð-
asta verk hans hér, þar sem heilir
fletir vaxa út yfir allan mynd-
flötinn. Þessi mynd hefur einnig
til að bera mikla áherslu á mynd-
flötinn þar eð viðleitni höfundar
er að stilla þeim saman i hnitmið-
aða heild, en forðast er að skapa
flókið eða rúmt myndrými.
I sumum verkum Jóhannesar
Jóhannessonar má sjá andstæð-
una við þessa afstöðu milli rúms
og flatar. I verkinu „Dans skugg-
anna” t.d. vefur hann þétt saman
vel aðgreind form, og með mark-
vissum yfirskurði og rýmisgildi
litanna, skaparhann flókið form-
rænt völundarhús. Annars skipt-
ast verk hans nokkuð i tvö horn,
eru annars vegar verk sem eru
hneppt i agaða gómetriska grind
og hins vegar verk þar sem hann
hefur losað nokkuð um og lifræn
form taka yfirhöndina er gjarna
liggja á mörkum þess að um-
breytast i þekkjanleg form úr
náttúrunni. 1 verkum eins og
„Eyrarbakkastemma”, fram-
kallar hann formræna spennu
milli geómetriskar ögunar og
klasa af lifrænum formum, sem
hann hneppir i samræmda
litaheild, og liturinn er stilltur af i
ólikum blæbrigðum. Hér bregður
fyrir fuglum ogöðrum formum úr
náttúrunni, sem þó verður aldrei
ákveðið myndefni, sem hægt er
að staðfæra heldur samþjöppuð
minning um náttúruupplifun, þar
sem lífræn form, fuglsform, og
brot af birtu eru ofin saman i
hnitmiðaða heild.
Tilfinriingarik
vinnubrögð
Kristján Daviðsson hefúr ávallt
verið hinn kraftmikli expression-
isti i islenskri abstraktlist og eru
vinnubrögð hans um flest ólik
þeim sem einkenna verk þeirra
listamanna sem getiðhefur verið
um hér að framan. I stað sléttra
og velaðgreindra forma félaga
hansþá einkennistformgerð hans
af hrárri pensilskrift, Er hún i
senn kraftmikil og ofsafengin,
eins og i verkinu „Vot lending”,
þar sem tjáningarmáti hans nýt-
ur sin á áhrifamikinn hátt. t ann-
an stað eru hér verk þar sem
greina má grannar figúrur eða
uppröðun andlitssvipa i hvatlegri
pensilskriftinni og samlifi dökkra
og glóandi lita, þar sem næmt
litaskyn og vandaö handbragð
höfundar nýtur sin vel. Verk
Kristjáns eru tvimælalaust þau
sterkustu sem komið hafa frá
hans hendi um langt árabil.
Kapituli Valtýs
Verk Valtýs Péturssonar hér á
sýningunni hafa mikla sérstöðu
bæði hvaö snertir hugmyndaleg-
an grundvöll og listræn gæði. Val-
týr gengur ávaUt út frá ákveðnu
myndefni sem er þá gjarnan upp-
stillingar, blóm i vasa eða lands-
lag, en Valtýr viðraði fyrst verk i
þessa veru i sýningarsalnum
Loftinu á sl. vetri.
Hér á sýningunni reynir hann
aö færa myndefni sin i þá form-
gerð, sem hann hefur ástundað i
abstraktverkum sinum á undan-
förnum árum. Einkennist hún af
heilum, snögglega dregnum lita-
flekkjum. En útkoman verður
aldrei sú að honum takist að sam-
eina það besta úr fyrri verkum
sinum og hin nýju myndefni. Lit-
urinn erður aldrei lifandi eða
virkur heldur einungis skrautlegt
punt, án merkingar eða hlut-
verks. Stilsögulega eru verk hans
hvimleið útþynning á ýmsum
þekktum expressionistum á fyrri
hluta þessarar aldar.
Unnið i tré
Sigurjón Ólafsson sýnir verk
unnin i tré einungis. Hér eru verk,
þar sem hann lætur hið uppruna-
lega efniog form njóta sin I rikum
mæii eins og I myndinni ,,Dýr-
lingur”, þar sem hann gæðir
verkið frumstæðum kynngikrafti
með smá ígripi. Myndir sem
höfða til listar frumstæðra þjóða
eru siður en svo nokkur nýlunda i
list Sigurjóns, þar eö það var hon-
um m.a. mjög hugleikið efni á
fimmta áratugnum.
í annan stað eru hér verk sem
eru meira unnin.þar fellir hann
saman rétthyrndar furuplötur og
umbreytir massa þeirra með
margvislegum útskurði. t þessa
veru má nefna verkið „Hring-
ekja”, sem fær sinýjan svip, eftir
þvi sem áhorfandinn velur sér
nýtt sjónarhorn, og er i heild sinni
magnað og kraftmikið verk.
Gildi sýningarinnar
Gildi slikrar samsýningar sem
Septem er margvislegt. Með
þessu sýningarformi gefst al-
menningi kostur á aö skoöa verk
listamanna mun tiöar en ella þar
eð of t liða fjögur til fimm ár milli
einkasýninga einstakra lista-
manna. Við þetta bætist, ef sam-
sýningaraf þessu tagi hafa nokk-
uð fastan hugmyndagrundvöll
eins og Septem, þá er fróðlegt og
ánægjulegt að geta dregið saman
verk á einn stað til yfirlits og
samanburðar. Slikt yfirlit er tvi-
mælalaust hægt að fá nú i Nor-
ræna húsinu, þar eð meðal sýn-
enda eru tvimælalaust nokkrir af
sterkustu fulltrúum abstraktlist-
arinnar hér á landi.
Pólski
utanríkis-
ráðherrann
í heimsókn
Utanríkisráðherra Pól-
landS/ Stefan Olszowski,
kemur í opinbera heim-
sókn til (slands á mánu-
daginn og dvelst hér til
miðvikudags.
Olszowski er 45 ára gamall og
hefur gegnt embætti utanrikis-
ráðherra siðan 1971, og kom inn i
Sejm, pólska þingið, árið 1969.
Hann hefur átt sæti i fram-
kvæmdastjórn pólska kommún-
istaflokksins frá 1970, og átti,
áöur sæti i miöstjórn frá 64 og var
ritari hennar á árunum 68-70. Að-
ur gegndi hann trúnaðarstörfum
fyrir stúdentasamtök Póllands og
var yfirmaöur upplýsingaskrif-
stofu flokksins.
Olszowski lagði stund á pólsku i
háskóla og lauk prófi i þeirri
grein i háskólanum i Lodz. Hann
heldur blaðamannafund á Hótel
Sögu á miðvikudaginn.
b PÖSTSENDUM
TROLOFUNARHRINGA
^3Iol)<inncs TLnfsson
lí.<uin,iurQi 30
J&nm 10 209
______________________
7.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.), 9.00
og 10.00. Morgunbæn kl.
7.55. Morgunstund barn-
anna kl. 8.45: Sigurður
Gunnarsson heldur áfram
sögu sinni „Frændi segir
frá” (16). óskalög sjúklinga
kl. 10.25: Kristin Svein-
björnsdóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 (Jt og suður. Ásta R.
Jóhannesdóttir og Hjalti
Jón Sveinsson sjá um sið-
degisþátt með blönduöu
efni. (16.00 Fréttir. 16.15
Veðurfregnir).
17.30 Söngvar i léttum dúr.
17.30 Ferðaþættir eftir Bjarna
Sæmundsson fiskifræðing.
Óskar Ingimarsson les úr
bókinni „Um láð og lög”
(6).
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Noregsspjall. Ingólfur
Margeirsson fjallar um
visnasöngvarann Lillebjörn
Nilsen.
20.10 óperutónlist: Þættir úr
„La Traviata” eftir VerdL
Victoria de los Angeles,
Santa Chissare, Carlo de
Monte o.fl. syngja með kór
og hljómsveit Rómaróper-
unnar; Tullio Serafin stj.
20.45 Vetur I vændum. Bessi
Jóhannsdóttirstjórnar þætti
með viðtölum við menn um
félagsstörf i tómstundum.
21.25 Létt tónlist frá Nýja-Sjá-
landLFrank Gibson-sextett-
inn leikur djasslög.
21.45 „Gestir”, smásaga eftir
Valdisi óskarsdóttur. Gisli
Halldórsson leikari les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög,
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
18.00 tþróttir Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
Hlé
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Maöur til taks Breskur
gamanmyndaflokkur.
Geymt, en ekki gleymtÞýð-
andi Stefán Jökulsson.
21.00 Skemmtiþáttur Paul Si-
mons Söngvarinn og laga-
smiðurinn Paul Simon
syngur mörg vinsælustu lög
sin, bæði gömul og ný, og
enn fremur tekur hann lagið
með félaga sinum, Art Gar-
funkel. Þýðandi Jón Skapta-
son.
21.50 Eins konar ást(A Kind of
Loving) Bresk biómynd frá
árinu 1962. Leikstjóri John
Schlesinger. Aöalhlutverk
Alan Bates og June Ritchie.
Vic Brown er teiknari hjá
stóru fyrirtæki. Hann verð-
ur ástfanginn af Ingrid, sem
starfar á sama staö. Vic
langar að feröast og breyta
til, en þegar Ingrid verður
þunguð, giftast þau og hefja
búskap heima hjá móður
hennar. Þýðandi Jón O. Ed-
wald.
23.40 Dagskrárlok
/ Ht' /,io ‘j
ORMARNIR
r
Iðnnemasamband Islands:
Sporna ber við einrœðishneigðinni
Formannafundur aðildarfélaga
Iönnemasambands tslands, sem
haldinn var 11/9 1976 á Selfossi
ályktaöi eftirfarandi:
Fundurinn mótmælir harðlega
þeirri sviviröu, sem rikisstjórnin
sýndi sjómönnum með laga-
setningu um kjör þeirra, þar sem
sjómenn eru sviptir þeim grund-
vallarrétti að semja um kjör sin.
Formannafundurinn fordæmir
það mikla gerræöi sem felst i nýja
vinnulagafrumvarpinu, sem hin
tveggja ára rikisstjórn Islands
hefur áætlað aö leggja fram þeg-
ar þing kemur næst saman. Nái
þetta frumvarp fram aö ganga,
felur það i sér stórlegan niður-
skurö á samnings- og verkfalls-
rétti vinnandi verkalýðs i kjara-
deilum.
Enn fremur lýsir fundurinn
furðu sinni á forystu ASl og
verkalýðsfélögunum aö mótmæla
ekki þessari stórvægilegu kjara-
skerðingu, sem rikisstjórnin
ætlar að koma á með þessu móti.
Fundurinn skorar á ASI að gera
nú gangskör i þvi að spyrna gegn
frumvarpinu, sem minnir óneit-
anlega á vinnubrögð i einræöis-
rikjum.
Fundurinn telur, að i frumvarpi
þessu og bráðabirgðalögunum á
sjómenn, komi best i ljós hugur
stjórnvalda til hins vinnandi
manns.