Þjóðviljinn - 18.09.1976, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 18.09.1976, Blaðsíða 7
Laugardagur 18. september 1976. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Mao les veggblöð i Peking; þessi veggblöð höfðu mikil áhrif i menningarbyltingunni, sem Mao hratt sjálfur af stað. til norðvesturhluta landsins hefst i október. 1935 — A þinginu i Tsunji verður Mao forseti stjórnmála- nefndar flokksins og heldur þeirri stöðu til dauðadags. Fyrsti herinn, sem hann stjórnar, kemur til Jenan i Sjensi i norðvesturhluta Kina um haustið og lýkur þá göngunni miklu, sem tók eitt ár. 1937— Kuomintang og kom- múnistaflokkurinn koma sér saman um sameiginlega baráttu gegn japönum. Kin- versk-japanska striðið hefst I júli. 1941— Kúomintang-flokk- urinn hefur að nýju árásir gegn her kommúnista. Mao skipuleggur áróðursherferð til að „leiðrétta stefnu flokksins”. 1945— Eftir miklar viðræður milli kommúnistaflokksins, Kuomintang og bandariskra yfirvalda i Kina, fer Mao til Sjongking til að ræða þar við Sjang Kai-sjek um vanda- mál friðar og sameiningar landsins. Samningur er gerður 10. október, en ill- deilur hefjast fljótlega aö nýju. Eftir skammlift vopnahlé i janúar 1946 hefst borgarastriðið i júli. 1949— Kinverski þjóðfrelsis- herinn tekur Peking á sitt vald i janúar, og fer siðan yfir Jangtse-fljót i mai. Her þjóðernissinna er alls staðar á undanhaldi, og Mao lýsir yfir stofnun kinverska alþýðulýðveldisins 1. október á Torgi hins himn- eska friðar i Peking. Hann verður forseti alþýðu- stjórnarinnar, og fer siðan til Moskvu i desember, þar sem hann skrifar undir vináttusamning 14. febrúar 1950. 1951— Mao stjórnar ýmsum áróðursherferðum: baráttu gegn spillingaröflum i stjórn- kerfinu, siðbót mennta- manna, og hann varar við gagnbyltingaröflum. 1954— Hann er kosinn forseti lýðveldisins. 1955 Hann mælir með þvi að stofnun samyrkjubúa til sveita verði hraðað. 1956 —Valdhafar Kina gefa það i skyn i blöðunum að þeir séu ekki fyllilega sammála gagnrýni sovéskra kom- múnista á Stalin. 1 lögum flokksins er ekki lengur vitnað til hugsunar Maos. 1957— t greininni ,,Um rétta lausn andstæðna meðal alþýðunnar” leggur Mao áherslu á það að stéttabar- áttan haldi áfram, en jafn- framt að nauðsynlegt sé að meirihlutanum sé tryggt grundvallarfrelsi. 1958— A þingi kinverska komm- únistaflokksins boðar Liu Sjao-sji „framfaraskrefiö mikla”. Um sumarið mælir Mao meö þvi að samvinnu- búin veröi felld saman og Myndir af Mao formanni prýða allar borgir i Kina. stofnaðar kommúnur. Kin- verjar efla sjálfstæði sitt gagnvart Sovétrikjunum. t desember tilkynnir Mao að hann muni ekki gefa kost á sér sem forseti lýðveldisins. 1960— Vinslit sovétmanna og kinverja, sem þó eru ekki gerð opinber. Fulltrúar kommúnistaflokka Kina og Sovétrikjanna deila harð- lega á ráðstefnu kom- múnistaflokka heims i Moskvu I nóvember. 1962— A tiunda fundi miðstjórnar flokksins i september hvetur Mao til þess að stéttabar- áttunni verði haldið áfram og gagnrýni haldið uppi gegn endurskoðunarstefnu. 1963— t júni ræðst stjórn kin- verska kommúnista- flokksins beint á sovéska kommmúnistaflokkinn i plaggi þvi, sem kailað hefur verið „Bréf i 25 atriðum”. Þar segir að miðstöðvar heimsbyltingarinnar séu i löndum þriðja heimsins, sem ofurseld eru kúgun heimsvaldastefnunnar. A sama tima hefst fyrir at- beina Maos áróðurshreyfing um sósialiskt uppeldi i sveit- um landsins. 1964— Nýrri hreyfingu er hleypt af stokkunum og nefnist hún „að læra hjá þjóðfrelsis- hernum”. Þar er lögð áhersla á nauðsyn þess að læra kenninguna og einkum hugsun Maos. t mai gefur herinn út fyrsta safnið af orðskviðum Maos oddvita. Mao hvetur til þess aö alin sé upp kynslóö manna til að taka við af byltingar- mönnunum gömlu. 1965— t janúar samþykkir miðstjórn flokksins „fyrir- mæli i 23 greinum”, sem for- setinn hefur samið að nokkru leyti sjálfur. Þar er gagnrýndur sá stuðningur sem gagnbyltingaröfi fá innan kinverska kom- múnistaflokksins. 1966— t mai lætur Mao fordæma borgarstjórann i Peking og ýmsa aðra ráðamenn flokksins fyrir skyssur á sviði menningarmála, og gagnrýnir „einstaklinga af sama sauðahúsi og Krúséff” innan kommúnistaflokksins. A fundi miðstjórnar flokks- ins I ágúst eru viðhorf hans ríkjandi, og samþykkir miðstjórnin ályktun i sextán atriðum um menningarbylt- inguna. 1968— Miöstjórnin ákveður I október að reka Liu Sjá-sji forseta lýðveldisins úr flokknum. 1969— A niunda þingi kinverska kommúnistaflokksins er Mao Tse-tung endurkosinn forseti. I nýju flokks- lögunum stendur að bæði hugsun Maos og Marx — Leninisminn eigi að vera flokksmönnum leiðsögn i starfi þeirra. 14. april sam- þykkir þingið stjórnmála- ályktun, sem Lin Piao ber fram. I þeirri ályktun er Lin kallaður „nánasti baráttu- félagi forsetans” og er hann útnefndursem arftaki Maos. 1970— A fjöldafundi á Torgi hins himneska friðar 20. mai, sem haldinn er i viðurvist Sihanuks prins, hvetur Mao þjóðir heims til að sameinast I baráttunni gegn „amerisku árásarmönn- unum og leiguþýjum þeirra”. 13. nóvember fara Mao og Lin Piao i franska sendiráðið i Peking til að heiðra minningu de Gaulle, sem þá er nýlátinn. 1971— Hinum árlega fjöldafundi 1. október á Torgi hins himn- eska friðar er aflýst. Mao kemur hvergi opinberlega fram, en orðrómur um að heilsa hans sé biluð er borinn til baka opinberlega. — Október: Orðrómur kemst á kreik um alvarlega stjórn- málakreppu i Peking. Að sögn bandarisku leyniþjón- ustunnar er Lin Piao alvar- lega sjúkur og mannaskipti i æðstu embættum hersins i vændum. Blöð i Hong-kong segja frá þvi að 13. septemb- er hafi flugvél með Lin Piao og fleiri farist i Mongóliu. — Nóvember: 1 „Rauða fánanum”, fræðiriti flokksins, birtist árás á „glæpsamleg samsæri” innan flokksins. Erlendir sendimenn telja engan vafa á þvi lengur, að Lin Piao sé horfinn af sjónarsviðinu. 1972— 11. janúar: Við jarðarför Sjen I. utanrikisráðherra, veita menn þvi eftirtekt, að niu félagar úr stjórnmála- nefnd flokksins, sem ekki hafa komið fram opin- berlega siðan um haustið, eru fjarverandi. — 21. febrúar: Mao tekur á móti Nixon forseta Banda- rikjanna. — Júlf: Það er opinberlega staðfest að Lin Piao hafi látið lifið. — 27. september: Mao tekur á móti Tanaka, forsætis- ráðherra Japans. Um leið er opinberlega tilkynnt að hernaaðarástandi milli Kina og Japans sé lokið. 1973— 24.-28. ágúst: A tiunda þingi kinverska kom- múnistaflokksins er „and- flokks hópur” „svikarans” Lin Piaos gagnrýndur mjög harðlega. Ýmsir flokks- leiötogar, sem ekki hafa sést siðan menningarbyltingin hófst, koma nú aftur fram opinberlega. — 12. september: Mao tekur á móti Pompidou Frakk- landsforseta. Um haustiö hefst siöan her- ferðin mikla „pi Lin pi Kong”, sem beinist að þvi að gagnrýna I sameiningu Lin Piao og Konfúsius. Svo virðistsem Maostandi á bak við umræður um sósialiskt uppeldi fólks. 1974 —Þann fyrsta nóvember til- kynnir blað kommúnista i Hong Kong að Liu Sjá-sji sé dáinn. 1975— 17. janúar: þingið kemur saman til fundar og er Teng Sja-ping nefndur varaforseti flokksins. — 2. desember: Mao tekur á móti Ford Bandarikjafor- seta. 1976— 8. janúar: andlát Sjú Enlæs, forsætisráðherra. Mao stýrirútfararnefndinni. — 8. febrúar: Hua Kuo-feng er útnefndur varaforsætis- ráðherra til bráðabirgða. Nokkrum dögum siðar segja blöðin frá þvi að Mao stýri sjálfur baráttunni gegn endurskoðunarsinnum. — 23. febrúar: Maó tekur á móti Nixon fyrrverandi for- seta, sem er i einkaheim- sókn i Kina I boði kinverja. — April: þann fimmta kemur til óeiröa á Torgi hins himneska friðar, og tveimur dögum siðar er Teng Sjá- ping er vikið úr emb., en Hua Kuo-feng er nefndur for- sætisráöherra. Skýrt er frá þvi að þessi mannaskipti hafi verið gerð samkvæmt uppástungu Maos. — 12. mai: Mao tekur á móti Lee Kuan-ye, forsætis- ráðherra Singapour. — 27. mai: Mao ræðir við Ali Bhutto, forsætisráðherra Pakistans. — 15. júni: Tilkynnt er i Peking að samkvæmt á- kvöröun miöstjórnar flokks- ins muni Mao ekki framar taka á móti ..erlendum gestum”, — 29. júli: Miðstjórn kom- múnistaflokksins sendir þeim sem hafa orðið fyrir tjóni vegna jarðskjálftans mikla i Tang-sjan samúðar- kveðjur Maos, sem er sagöur hafa orðið mjög sleginn af fréttunum um tjónið. — 3. september: Orðrómur um að Maó sé fluttur frá Peking er borinn til baka, og segir fréttastofan Nýja Kina að hann dveljist stöðugt i höfuðborginni. (Cr ,,le Monde”) Söguleg staða Mao Tse-tungs I tilkynningu kinverskra stjorn- valda um andlát Mao Tse-tung segir (I lauslegri þýðingu): Mao Tse-tung formaður var stofnandi og vitur leiðtogi Kommúnistaflokks Kina, kin- verska þjóðlausnarhersins og Al- þýðulýöveldis Kina. Mao for- maður hafði forystu fyrir flokki okkar, sem átt hefur i langvinnri, brýnni og margþættri baráttu vegna leiðarmörkunar henti- stefnumanna til hægri og „vin- stri” og sem yfirunnið hefur hentistefnu, sem á eftir fylgdu Che Tu-hsiu, Chu Chiu-pai, Li Li- san, Lo Chang-lung, Wang Ming, Chang Kuo-tao, Kao Kang-jao, Shu-shih og Peng Teh-mai, og aftur i miklu alþýðlegu menn- ingarbyltingunni hafði flokkur okkar sigur yfir gagnbyltingar- og endurskoðunar-sjónarmiðum Liu Shao-chi, Lin Piao og Teng Hsiao-ping, svo að hann gat statt og stöðugt eflst og styrkst i stéttabaráttu og baráttu milli hinna tveggja leiðarmarkana. Undir forystu Mao formanns hefur Kommúnistaflokkur Kina á örðugri leið þróast upp i mik- inn, glæstan og markvissan marxiskan-leniniskan flokk, sem nú hefur forystu fyrir Alþýðulýð- veldi Kina. 1 samræmi við alhæf sannindi marxismans-lenin- ismans og fyrir beitingu þeirra á hlutkennda athafnahætti kin- versku byltingarinnar markaði Mao formaður að skapandi hætti meginleið og meginstefnu nýju lýðræðislegu byltingarinnar, stofnaði kinverska þjóðlausnar- herinn og benti á, að valdataka fyrir vopnastyrk i Kina gæti ein- ungis orðið að þeim hætti aö koma upp bækistöðvum i sveitum og að láta sveitirnar umlykja borgirnar og að taka að lokum borgirnar, en ekki að annarri leið. Hann hafði forystu fyrir flokki okkar, her okkar og alþýðu lands okkar um að steypa afturhalds- stjórnarháttum heimsvalda- stefnu, lénsskipuiags og skrif- finnsku-kapitalisma og um að vinna sigur i nýju lýðræðislegu byltingunni og um að stofnsetja Alþýðulýðveldi Kina. Sigur byltingar kinversku al- þýðunnar undir forystu Maó for- manns breytti stöðunni i austur- löndum og i heiminum og ruddi nýja braut frelsun kúgaðra þjóða og kúgaðrar alþýðu. A timabili sósialisku byltingar- innar dró Mao formaður saman jákvæða sem neikvæða reynslu hinnar alþjóðlegu kommúnisku hreyfingar, skilgreindi skarplega afstæður stétta i sósialisku þjóð- félagi, og i fyrsta sinn i þróunar- sögu marxismans benti hann ótvirætt á, að enn eru til staöar stéttir og stéttarbarátta, eftir að miklu leyti hefur fram farið sósialisk umbreyting eignahalds á framleiðslutækjunum og dró þá visindalegu ályktun, að borgarar séu mitt i kommúnistaflokknum. og setti fram hina miklu kenningu um viðvarandi byltingu og markaði meginleiöina fyrir ger- vallt hið sögulega skeið sósialimsans. J.J.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.