Þjóðviljinn - 18.09.1976, Blaðsíða 16
Lög um sömu laun
fyrir sömu vinnu eru
dauður bókstafur
DJOÐVIUINN
Laugardagur 18. september 1976.
Ekkert
sjónvarp
um
helgina?
Engar útsendingar á sjón-
varpsefni áttu sér stað i gær-
kvöldi og á fimmtudag og föstu-
dag unnu sjönvarpsstarfsmenn
nánast ekki neitt og ákaflega
hægt, það sem þeir þó unnu. Á-
stæðan fyrir er óánægja þeirra
með launamál og afskiptaleysi
fjármálaráðuneytisins af óskum
þeirra i þá veru að fá úr bætt.
Launamálanefnd sjónvarpsins
hélt blaðamannafund i gær þar
sem nefndarmenn herðu grein
fyrir þvi hvernig komið væri
innan stofnunarinnar.
Telja nefndarmenn að kröfur
þær, sem þeir hafi lagt fram nemi
á að giska 10-15% kauphækkun,
en 50% af starfsfólkinu hefur
fengið úrskurð um að það fái ca.
4% hækkun, þeas. hækkun um
einn launaflokk,greitt frá fyrsta
júli, en kemur til útborgunar 1.
október.
Bentu nefndarmenn á, að staða
þeirra i launastiga hjá rikinu væri
mun lakari en samsvarandi
starfsmanna á Norðurlöndum, og
þá algjörlega án samanburðar
við launakjör kollega sinna, en
þeir hafa margföld laun á við
islenska.
Fram kom á fundinum, að þrátt
fyrir vinnustöðvun á fimmtudag
og föstudag hafði enginn haft
samband við sjónvarpsfólk frá
iaunadeild fjármála-
ráðuneytisins, enda töldu
sjónvarpsmenn að ráðuneytis-
menn væru ekki i stakk búnir til
þess að gera samninga vegna
manneklu og að samningagerð
ynnu fáir menn og hefðu þann
Framhald á bls. 14.
Ráðinn
útbreiðslu-
stjóri
Þjóðviljans
Finnur Torfi Hjörleifsson
Finnur Torfi Hjörleifsson
hefur verið ráðinn út-
breiðslustjóri Þjóðviljans.
Siðastliðinn vetur stýrði
hann útbreiðslustarfi blaös-
ins erskipulega var unnið aö
þvi að afla blaðinu fleiri
áskrifenda.
Verksvið Finns Torfa sem
útbreiöslustjóra er að hafa
yfirumsjón með allri dreif-
ingu blaðsins og sölu þess og
ennfremur að vinna aö auk-
inni útbreiðslu þess. Hefst nú
á næstu dögum ný lota 1 söfn-
un áskrifenda sem verður
auglýst og tilkynnt sérstak-
lega.
Þjóöviljinn væntir mikils
af störfum Finns Torfa og
býður hann velkominn til
starfa.
t gær féll dómur Bæjarþings
Reykjavikur I fyrsta málinu af
sjö sem konur, fyrrverandi þing-
ritarar höfða gegn fjármálaráð-
herra og Alþingi vegna þess að
þær fengulægri laun en karlmað-
ur á sama vinnustað sem vann að
mestu sömu störf. Dómurinn féll I
máli Ragnhildar Smith. Dómur-
inn var á þá lund að meirihluti
dómara, þeir Már Péturs-
son og Hákon Guðmundsson
son meðdómari, sýknuðu stefndu
á þeirri forsendu að ekki hafi ver-
ið sýnt ótvirætt fram á að karl-
maðurinn hafi unnið „jafnverð-
mæt og að öðru leyti sambærileg
störf”. Hinn meðdómarinn, Adda
Bára Sigfúsdóttir, greiddi sérat-
kvæði á þá lund aðstefndu greiði
65.283 kr. auk 7% ársvaxta.
í greinargerð öddu Báru segir
að beitt hafi verið þeirri alkunnu
aðferð að nota mismunandi
stöðuheiti til þess að mismuna
starfsfólki i launum, án þess að
um mun á störfum sé að ræða.
Allt þetta mál er hið furðuleg-
asta en þaö fjallar um deildar-
stjórann yfir þingritun, sem er
mágur skrifstofustjóra Alþingis
og son hans sem er umræddur
þingritari, sem að visu hefur
starfsheitið fulltrúi. Gunnlaugur
Þórðarson, sem var sækjandi i
málinu, lét svo ummælt eftir
dóminn i gær, að hann sýndi það
eitt að lögin um sömu laun fyrir
sömu vinnu væri dauður bókstaf-
Ólafur R. Einarsson, fulltrúi
Alþýðubandalagsins f útvarps-
ráði, skýrði Þjóðviljanum frá þvi
i gær að i ráðinu hefði verið
fjallað um kjarabaráttu starfs-
manna útvarpsins að undanförnu.
Sagði ólafur að útvarpsstjóri og
framkvæmdastjóri sjónvarps
hefðu gert grein fyrir málinu al-
mennt, en málið kæmi þó ekki til
kasta útvarpsráðs fyrr en aðgerðir
starfsfólksins hefðu f för með sér
truflun á útsendingum dagskrár.
1 máli forráðamanna rflcisút-
varpsins kom fram að þeir eiga
óhægt um vik að beita sér 1 mál-
inu þar sem öll launamál fara nú
um launadeild fjármálaráðu-
neytisins. Það væri þvi ekki við
annan að ræða um þessi mál en
ráðuneytið og jafnvel mennta-
Bœjarþing
Reykjavikur
sýknar Alþingi
°g fjármála-
ráðherra
i prðfmáli
ur og það væri merkilegt að
Alþingi sem setti þessi lög sku®
sjálft verða til að brjóta þau.
Hann sagði ennfremur aö orö
skrifstofustjóra Alþingis, sem
aldrei hefði látið sjá sig í húsa-
kynnum þingritunarinnar, hefðu
frekar verið tekin trúanleg en
vitnisburður7 umræddra kvenna,
formanns starfsmannafélags
Alþingis og tveggja annarra
starfsmanna. Þá hefði hann kraf-
ist að dómarar hefðu farið sjálfir
á staðinn til að kynna sér starfs-
aðstæður og störf, en sú krafa
hefði verið hunsuð. Fyrrnefndir
feðgar voru alltaf veikir þegar
átti að kalla þá fyrir dóminn og
báru þeir því aldrei vitni.
Ragnhildur Smith lét svo um-
mælt i gær að eitt væri þó gott við
þetta mál. Laun þingritara
(kvenkyns) hefðu hækkað úr 13. i
Einnig vegna
stöðnunar i
stofnuninni og
ráðleysis
meirihluta
átvarpsráðs
málaráðherra og fjármálaráð-
herra.
Ólafur kvaðst hafa rætt þessi
mál almennt á útvarpsráðs-
fundinum. Hann sagði þar, að
17. launaflokk siðan þetta mál
kom til sögunnar og starfsaðstæð-
ur hefðu stórbatnað. Td. væru nú
komin vinnuljós yfir ritvélar, fót-
stig osfrv. Nú væri ekki lengur
setiö á brotnum eldhússtólum og
fleiri en eitt strokleður væru nú i
notkun.
í raun má segja, ef dómurinn
hefði fallið öðru visi, að þá hefði
allt launakerfið verið skekið að
grunni þvi að mismunun eftir
starfsheitum þó að sama vinna sé
unnin er algengarii en margan
grunar.
Málinu var visaö til hæstarétt-
ar.
Lúðvik Ingvarsson hefur nú
skilað lögfræðilegri álitsgerð um
það hvort útvarpsráði er heimilt
að framselja einhverjum aðila
leyfi til reksturs útvarps hér á
landi. Hefur lögfræðingurinn þeg-
ar komist að þeirri niðurstöðu að
skv. útvarpslögum og fjarskipta-
lögum sé framsal þessara rétt-
inda ekki heimilt' útvarpsráði.
Útvarpsráð fjallaði um álits-
hann teldi að deila þessi snerist
ekki eingöngu um kjaramál,held-
ur ætti flótti starfsfólks frá Rlkis-
útvarpinu og aðgeröir starfs-
fólksins rætur sinar að rekja til
vonleysis meðal starfsmanna um
að nokkur breyting verði gerð á
rekstri stofnunarinnar og starfs-
háttum á næstunni. Stofnunin
berst i bökkum fjárhagslega, að
sögn embættismannanna, og þeir
leggja sig fram um að halda i
horfinu, en ekkert er gert til að
reyna að rifa þennan rikisfjöl-
miðil upp úr öldudalnum. Þess
vegna hjakkar allt i sama farinu.
Útvarpsráð hefur verið litilþægt:
það sér aðeins um dagskrármál-
in, en hefur ekkert fjármálavald.
Og jafnvel þótt vilji væri fyrir
hendi i ráðinu þá gæti útvarpsráö
Þaö var fullt út úr dyr-
um í Góðtemplarahúsinu
i Hafnarfirði i fyrra-
kvöldr um 100 manns/
þegar herstöðvaandstæð-
ingar efndu þar til bar-
áttufundar.
Mikill hugur var í f und-
armönnum og skrifuðu
margir sig á lista fyrir
Landsráðstef nu her-
stöðvaandstæðinga, sem
haldin verður í október,
svo og til þátttöku í
starfshópum í Hafnar-
firði. Bergljót Kristjáns-
dóttir og ölafur Ragnar
Grímsson fluttu ávörp á
fundinum, Einar Bragi
las upp og örn Bjarnason
skemmti. Þá gerði Jón
Hannesson grein fyrir
störfum Samtaka her-
stöðvaandstæðinga.
Fundarstjóri var
Kristján Bersi Ölafsson.
gerð lögfræðingsins I gær og féllst
það á hana samhljóða, og var hún
siðan send sem svar til þeirra
þriggja aðila sem sótt höfðu um
leyfi til útvarpsreksturs hér á
landi.
Þessir þrir aðilar voru Markús
örn Antonsson og Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, Félag óháðra borgara
i Breiðholti og nokkrir starfs-
menn Dagblaðsins i Reykjavik.
litt aðhafst við núverandi aðstæð-
ur. Rikjandi meirihluti ráðsins
gefur sér ekki tima til þess að
fjalla um málin, hannlitur á ráðið
sem afgreiðslu- og eftirlitsstofn-
un, en gerir enga tilraun til
áætlunargerðar eöa almennrar
stefnumótunar um eflingu þessa
rikisfjölmiðils.Ráðleysi meiri-
hlutans — andstætt kraftmiklu
starfi fyrrverandi útvarpsráðs
sem var sett frá meö lögum —
kemur til viðbótar við þá stöðnun
sem rikir af hálfu stjórnarvalda
um stofnunina. Það hvarflar
stundum að manni að núverandi
meirihluti útvarpsráðs kjósi
hnignun stofnunarinnar sem
mesta til þess aö geta hafið há-
værari raust um nauðsyn svo-
kallaðs „frjáls” útvarpsreksturs.
Oánægja starfsfólks ekki
aðeins vegna launakj aranna
Lögfrœðingur skilar álitsgerð:
Oheirnilt að framselja
rétt til útvarps hér