Þjóðviljinn - 18.09.1976, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 18.09.1976, Blaðsíða 3
Laugardagur 18. september 1976. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 3 VERÐHÆKKUN Á KJÖTI FRÁ MÁNUDEGINUM: Bóndinn fær þriðjungínn miUiliðimir og rlldð hitt Þriðjungur þeirrar hækkunar sem nú verður á landbúnaðaraf- urðum rennur til bændanna — hitt, eða 66,15% hirða milliliðir og rikissjóður i hækkúðum sölu- skatti. Þetta kemur fram I fréttatil- kynningu um búvöruverðs- hækkunina, sem blaðinu barst i gærkvöld. Hið nýja verð tekur gildi frá og með mánudeginum. Grundvallarverð á kindakjöti til bænda hækkar um 7,82% að meðaltali. Kjötkilóið hækkar af þeirriástæðu um 33,85kr. Sláturkostnaður hækkar hins vegar um 30 krónur á kilóið aö meðaltali og tilfærsla vegna þess að gæruverð breytist ekki veldur enn hækkun kjötsins um 9.35 kr. kilóið. Heildsöluverö á dilkakjöti i 1. gæðaflokki hækk- ar þvi um 74,00 eöa um 17,5% Hundraðshluti smásölu- álagningar hækkar um 1 stig á sumum vöruflokkum en lækkar á öðrum tilsvarandi segir i fréttatilkynningu framleiðslu- ráðs. T.d. gerir sú hækkun kr. 10.00 á hvert kiló súpukjöts og þar með hækkar hvert kiló af súpukjötinu um 100 krónur. Sundurliöun þessarar hækkunar litur þannig út: Bændur fá ............ 33,85 kr. Milliliðir............ 40.00 kr. Vegna gæruverðsins.. 9,35 kr. Rikissjóður........... 16,80 kr. Sripuð hlutföll eru i verði annarra kjötflokka. Útsöluverð breytist á einstökum tegundum kindakjöts sem hér segir: Tegund heildsöluveröið hækkar tilsvar- andi frá þvi sem var sl. vetur Læri. Grundvallarverö nautgripa- kjöts hækkar nú um 8,1% og heildsöluverð svipað. Krónutala álagningar i smásölu á nauta- kjöti hækkar um 12,6% Grundvallarverð á kartöflum hækkar um 10% að meðaltali og Frá Hækkun Aður 20.09 ■ % 656 19,5 % 679 16,3 % 729 15,9 % 766 18,4 % 783 18,3 % þegar islenskar kartöflur voru á markaði. Smásöluverðið er 12% lægra en verið hefur á erlendum kartöflum- i sumar. Hækkun kostnaðarliða Skv. fréttatilkynningunni hækka einstakir liðir verðlags- grundvallar landbúnaðarafurða sem hér segir: Laun bóndans um 8,83% Kjarnfóöur um 2,3% Viðhald og fyrning útihúsa um 8,8% Viðhald girðinga um 20,8% Kostnaður við vélar um 8,5% Flutningskostnaður um 11,1% Vaxtakostnaður um 19,5% Annar kostnaður um 20,9% ótilgreindur Sviþjóð: Gífurleg spenna í kosningabaráttu STOKKHÓLMI 17/9- Mikil spenna rikir nú I Sviþjóð vegna þe ss hve niðurstöður siðustu skoöanakönnunar sýndu litinn fylgismun á vinstri flokkunum annarsvegar og mið- og hægri- flokkunum hinsvegar. Þær niður- stöður sýndu að vinstriflokkarnir höfðu bætt verulega við sig frá næstu skoöanakönnun á undan. Mið- og hægriflokkunum urðu þessi tiðindi mikil vonbrigði og hefur það valdiö innbyrðis illind- um i herbúöum þeirra. Veitast talsmenn hægriflokksins og Þjóð- arflokksins nú mjög að Falldin, leiðtoga Miðflokksins, sem þeir segja að hafi yfirkeyrt sig á áróðrinum gegn kjarnorkuverun- um. Eftir að niðurstöður skoðana- könnunarinnar urðu kunnar, hafa mið- og hægriflokkarnir beint griðarlegum áróðri aö fylgis- mönnum kristilega flokksins, smáflokks semstofnaður var 1964, hefur venjulega fengið 1.5% til 1.8% atkvæða en aldrei komið manni á þing. Ef liðsmenn þess flokks snerust nú til fylgis við borgarflokkana, gæti það riðið baggamuninn þeim i dag. For- maður kristilegra sagðist i dag engan frið hafa haft fyrir upp- hringingum manna, sem ákærðu flokk hans fyrir að hindra stjórn- arskipti. Forustumenn kristilega flokksins eru margir úr söfnuðum filadelfiumanna. Búist við miljón manns á minningarfundinn um Maó Þögn 800 miljóna í þrj ár mínútur PEKING 17/9 NTB-Reuter — Gert er ráð fyrir að svo aö segja öll kinverska þjóöin, 800 miljónir manna, muni taka þátt I þriggja minútna þögn með morgninum I muiningu hins látna formanns Kommúnistaflokks Kina, Maó Tse-túngs.Um miljón manns mun að likindum safnast saman i mið- borginni I Peking og umhverfis Torg hins hinineska friðar, til þe ss að taka þátt I fjöldafundi, þar sem hinn látni leiðtogi veröur hylltur. Haft cr eftir kinverskri Norskir deila um veiðirétt útlendinga ÞRANDHEIMI 17/9 NTB -I hönd farandi útfærsla uorskrar fiskveiöilögsögu I 200 milur virðist ætla að valda innbyrðis deilum milli norskra fiskimanna, miðað við það sem fram kom á landsfundi Norska fiski- mannasambandsins i Þránd- heimi i dag. Eru þaö hugsanl. veiöiréttindi annarra rikja innan hinnar nýju lögsögu, ' er ósamkomulagi valdá. Fiskimennirnir frá Norð- ur-Noregi vilja sem minnst sjá af útlendingum innan nýju lögsögunnar og telja nauðsynlegt að takmarka veiðar þeirra þar sem mest til verndar fiskistofnunum. Hinsvegar veiöa vesturnorsk- ir fiskimenn yfir helming afla sins innan 200-milna fiskveiðilögsögu annarra rikja, og óttast þeir að veiði- réttindi þeirra þar verði skert i hlutfalli við skerðing- ar á veiðiréttindum útlend- inga út af Norður-Noregi. heimild að þetta veröi einhver mesti fjöidafundur sögunnar. Lik Maós hefur legið á viö- hafnarbörum þangað til i dag i Alþýðuhöllinni iPeking, og hafa á þeim tima um 350.000 manns komið að börunum. Atta sorgar- dögum eftir formanninn lýkur með minningarfundinum mikla á morgun.en hann veröur haldinn i Forboðnu borginni svokölluðu, sem fræg er frá fomu fari. Eng- um útlendingum hefur verið boðiö til minningarfundarins og út- lendingum veröur ekki heldur hlevpt nær Torgi hins himneska Framhald á bls. 14. Svona litur Albert Guömundsson stórkaupmaður, knattspyrnu- inaður og alþingismaður, út i augum Halldórs Péturssonar list- málara. Yfirlitssýning á verkum Halldórs Péturssonar í fyrradag var opnuð að Kjarvalsstöðum, yfirlitssýning á verkum Halldórs Péturssonar listmálara. Sýndar eru 83 myndir af öllum tegundum og geröum, en Halldór er sem alþjóð veit afar fjölhæfur málari. Halldór Pétursson er fæddur i Reykjavik 26. sept. 1916 og stundaði listnám bæði hér heima og i Kaupmannahöfn og New York. Halldór hélt sina fyrstu sýningu hér á landi 1952 og hefur oft haldið sýningar hér heima siðan, en auk þess hefur hann sýnt i Bandarikjunum, Austurriki, Tékkóslóvakiu og á Italiu. Finnska stjórnin fallin Ósamkomulag út af fjárlögum ástœðan HELSINKI 17/9 NTB-Reuter — Martti Miettunen, forsætisráö- herra Finnlands, lýsti þvi yfir I dag að hann myndi biðjast lausn- ar fyrir sig og rlkisstjórn slna. Kveðst Miettunen taka þetta til bragðs vegna þess, að stjórnar- flokkunum hafi mistekist að ná samkoinulagi um ýmsa þætti fjárlaga. Stjórn Miettunens hefur setiö siðan i desember siðastliðn- um og eiga ráöherra i hcnni þrlr stórir stjórnmálaflokkar, sóslat- demókratar, Lýðræðisbandalag- ið, þar sem kommúnistar eru sterkasti aöilinn, og Miðflokkur- inn. Auk þess eiga hlut að stjórn- inni tveir smáflokkar, Frjálslyndi þjóðarflokkurinn og Sænski þjóðarflokkurinn. Það var Urho Kekkonen forseti, sem mestan þátt átti i að koma stjórninni saman. Helstu ágrein- ingsefni stjórnarflokkanna nú eru ráðstafanir til að ráða bót á at- vinnuleysi i byggingariðnaðinum og fjárveitingar til landbúnaðar- mála. Samdráttur hefur verið i byggingariðnaðinum, og krefst Lýðræðisbandalagiö meiri fjár- veitinga til hans en hinir flokk- arnir vilja samþykkja. A hinn bóginn vilja sósialdemókratar aö takmörk séu sett fyrir efnahags- legum stuöningi rikisins við land- búnaðinn, en á það má Miðflokk- urinn, flokkur þeirra Kekkonens og Miettunens beggja, ekki heyra minnst, enda er aðalfylgi hans meðal bænda.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.