Þjóðviljinn - 18.09.1976, Qupperneq 4
4 SÍÐA —ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 18. september 1976.
DJÚÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson
úmsjón meö sunnudagsblaöi:
Arni Bergmann
Útbreiöslustjóri: Finnur Torfi Hjör-
leifsson
Ritstjórn, afgreiösla, augiýsingar:
Skólavöröust. 19. Sfmi 17500 (5 linur)
Prentun: Blaöaprent h.f.
FULLUR SIGUR í SJÓNMÁLI
í gær lauk i New York þeim fundi haf-
réttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem
staðið hefur yfir undanfarnar vikur.
Þótt ekki tækist að ljúka ráðstefnunni á
þessum fundi og ganga frá alþjóðlegum
sáttmála um hafréttarmál, þá er það engu
að siður mjög mikilvægur sigur fyrir okk-
ur islendinga, að óhögguð standa, að þess-
um þriðja fundi loknum, þau ákvæði i
drögum að hafréttarsáttmála, sem okkur
eru hagstæðust.
Rétt er að rifja upp enn einu sinni nú,
hver þessi ákvæði eru i þeim drögum að
hafréttarsáttmála, sem fyrir liggja:
í fyrsta lagi er kveðið á um það, að inn-
an 200 milna auðlindalögsögu strandrikja
skuli visindamenn og stjórnvöld viðkom-
andi strandrikis ein fara með allan rétt til
að ákveða, hversu mikið óhætt er talið að
veiða árlega af þessari eða hinni fiskteg-
und, en enginn gerðardómur koma þar
nærri.
í öðru lagi skal sérhvert strandriki hafa
óskoraðan rétt til að sitja eitt að veiðum
innan sinnar 200 milna auðlindalögsögu,
svo fremi strandrikið hafi á að skipa veiði-
flota til að fullnýta þá fiskistofna sem fyrir
hendi eru, en veiðar annarra rikja þvi að-
eins að koma til, ef strandrikið hefur ekki
möguleika til að fullnýta stofnana vegna
skorts á veiðiskipum.
Ekki getur farið milli mála, að þessi á -
kvæði eru okkur svo hagstæð sem frekast
var hægt að vænta.
óliklegt verður að telja, að við þessum
hagstæðu ákvæðum fyrir okkur islendinga
verði hróflað á ráðstefnunni héðan af,
þráttfyrir tilraunir hóps landluktra rikja i
þá átt.
Og hér er einnig á það að lita, að jafnvel
þó svo færi að réttur strandrikja yrði al-
mennt eitthvað skertur áður en ráðstefn-
unni lýkur endanlega, þá má heita vist að
sú skerðing nái ekki til okkar íslendinga,
þar sem við erum svo háðir sjávarafla,
sem kunnugt er.
Til marks um þetta má m.a. vitna i
tvenn ummæli Hans G. Andersen, aðal-
fulltrúa Islands á Hafréttarráðstefnunni,
ummæli, sem birst hafa i Morgunblaðinu
nú i þessum mánuði. Þann 4. september
segir Hans G. Andersen: „Hingað til hafa
allar samkomulagstilraunir strandað
fyrst og fremst á þvi, að strandrikin hafa
haldið fast við það, að það lengsta sem
unnt væri að ganga væri, að landluktu rik-
in fengju forgang að umframmagni,en þau
telja það ekki nægilegt og vilja fá veiði-
réttindi, þótt ekkert umframmagn sé. En
hver sem niðurstaðan af þessum deilum
kann að verða þá er enn um það sam-
komulag, að ákvæðin i 58. og 59. grein,
sem um þessi efni fjalla, munu ekki ná til
okkar, þótt eitthvað yrði látið undan kröf-
um landluktu rikjanna. Við munum fá sér-
ákvæði, sem okkur nægði.”
Og Hans G. Andersen segir i Morgun-
blaðinu þann 9. sept.: ,,... Aðalatriðið er
að við höfum ekki yfir neinu að kvarta.
Það hefur ekki verið breytt neinu af þvi,
sem við höfum verið að berjast fyrir og
sem náðist fram á siðasta fundi.”
Það sem veldur fyrst og fremst töfum á
Hafréttarráðstefnunni nú er engan veginn
deilur um auðlindalögsögu og fiskveiði-
mál. í þeim efnum liggja meginniðurstöð-
ur nú þegar fyrir. Óútkljáðar eru hins veg-
ar alvarlegar deilur um nýtingu auðæfa
hafsins og hafsbotnsins utan 200 milna
auðlindalögsögu strandrikja. Vegna
þeirra deilna kann enn að verða á þvi
nokkur bið, að Hafréttarráðstefnan ljúki
störfum, en næsti fundur hennar verður
haldinn eftir 6-8 mánuði.
Engu að siður liggur nú fyrir, að nær all-
ar helstu fiskveiðiþjóðir I okkar heims-
hluta munu á grundvelli þeirra draga að
hafréttarsáttmála, sem fyrir iiggja, fylgja
fordæmi okkar islendinga á næstu mánuð-
um, og færa auðlindalögsögu sina út i 200
milur. 1 þessum hópi má nefna Bandarik-
in, Efnahiagsbandalag Evrópu, Kanada og
Noreg.
Hér fer þvi ekkert milli mála, að 200
milna auðlindalögsaga með óskoruðum
yfirráðum strandrikis verður innan fárra
mánaða orðin ótviræð alþjóðleg regla á
Norður-Atlantshafi, hvort sem störf Haf-
réttarráðstefnunnar dragast lengur eða
skemur.
Þetta vissu bretar, þegar þeir sömdu við
islendinga i vor um veiðar hér við land, og
þeir vissu jafnframt að undir slikum
kringumstæðum yrði með öllu gjörsam-
lega útilokað fyrir þá að beita hér her-
skipavaldi, — þó ekki væri nema vegna al-
menningsálits heima fyrir i Bretlandi,
enda hálmstrá úrskurðar Haagdómstóls-
ins að engu orðið.
Erlendar þjóðir taka nú samkvæmt
samningum 150.000 tonn á ári, eða 33-40%
af öllum þorskfiskafla, sem fiskifræðingar
telja nokkurt vit i að veiða hér við land. Af
þessum ástæðum er nú búið að veiða eða
ráðstafa til útlendinga frá áramótum yfir
500.000 tonnum af þorski og öðrum þorsk-
fiskum, þótt fiskifræðingar telji að há-
marksaflinn yfir allt árið i heild mætti
ekki fara nema litið eitt fram úr 400 þús.
tonnum.
Þann 1. des. n.k. renna samningarnir
við breta út. Framlengingu þeirra i einni
eða annarri mynd verður að hindra með
öllum tiltækum ráðum.
Réttur okkar er ótviræður, og verður
ekki lengur vefengdur.
— k.
þingmaður
,,Ég slft mér ekki lengur lit f
þingmennsku fyrir aust-
firöinga”, á Sverrir Hermanns-
son aö hafa sagt samkvæmt
Timanum á kjördæmisráös-
fundi Sjálfstæöismanna I
Austurlandskjördæmi á Egils-
stööum á laugardaginn. Sér-
staklega viröast austfirskir
Sjálfstæðismenn vanþakka það
hvernig Sverrir hefur slitiö sér
út I orkumálum fjórðungsins.
Þá telja margir aö þingmaöur-
inn hafi slitiö sér meira út i út-
gerö og störfum fyrir Fram-
kvæmdastofiiun heldur en i
þingmennskunni, nema þá i
zetu-málum, sem eru ekki sér-
stakt áhugasviö Sjálfstæöis-
manna á Austurlandi.
Mao, Pravda
og Mogginn
Morgunblaðiö hefur haft af
þvi miklar áhyggjur aö undan-
förnu, að Þjóðviljinn hafi ekki
sýnt Maó formanni nægan sóma
þegar hann lést, og þá helst aö
ekki hafi birst um hann leiðari
samdægurs. Telur Morgunblaö-
ið eins og vonlegt er, að hér sé
Þjóðviljinn aö likja eftir meö-
ferö Prövdu og annarra so-
úeHTpa/ibHOMy
KoMMTeiy
KOMMyHMCTHMeCKOM
napTMM KMTan
B CBH3H c kohhhhoB Ilpefl-
ceaaTeflfl IIK KoMMyuHCTHie-
ckoB napTHH' KHTafl Mao 1133-
flyHa npHMHTe nauiH r.iyðoKHe
C060fle3H0BaHHfl.
BupaflcaeM TaKflce Hame co-
uyBCTBHe ceMbe noKoiíHoro h
ero 6flH3KHM.
IIEHTPAJIbHblH KOMHTET
ICOMMyHHCTHHECKOH
nAPTHH COBETCKOTO
COI03A
K O H H M H a
Mao U33-flyHa
nEKHH, 9. (TACC). 3flecb
o6T>BBfleHO, HTO 9 ceHTn6p» B
0 nacoB 10 MHHyT Ha 83-m rofly
HOI3HH b neKHHe cKOHHaflcfl npefl-
CeflaTeflb UK KOMMyHHCTHHeCKOÍÍ
napTHH KiiTaa Mao U33-ayH.
Eindálkurinn á annarri siöu
meö samúöarkveöjunni og
fréttinni um andlát Maós.
véskra málgagna á andláts-
fregn þessari.
í framhaldi af þessum hefö-
bundnu vangaveltum Morgun-
blaðs er rétt aö fræöa lesendur á
þvi, hvernig málgagn sovéska
kommúnistaflokksins, Pravda,
fjallaöi um þau tiöindi sem urðu
i Peking fyrir viku. Ekki mátti
sjá þaö á forsiöu blaösins föstu-
daginn 10. september aö öldung-
ur sem Maó væri allur. Enda
var það ekki nema von: fjórir
dálkar af átta á forsiöu fóru i aö
gera grein fyrir miöstjórnar-
fundi hjá sovéskum um ráöstaf-
anir til aö efla landbúnaöarvis-
indi. Mestannað pláss fór i
myndir og frásagnir af bað-
mullaruppskerunni I Uzbekistan
og i þakkarskeyti langt frá
Ceaucescu rúmeniuforseta fyrir
kveðjur sem sovéskir höfðu sent
honum á þjóðhátiðardegi rúm-
ena.
Hinsvegar mátti sjá efst á
annarri siöu blaösins tvær ör-
litlar klausur i einum dálki af
átta dálkum siöunnar. Fylgir
hér mynd af klausum þessum.
Þær hljóða svo:
Til miðstjórnar Komm-
únistaflokks Kína.
Takiö viö djúpum samúöar-
kveðjum okkar i tilefni andláts
formanns miöstjórnar KFK,
Mao Tse-tungs. Viö látum einn-
ig i ljós samúö okkar meö fjöl-
skyldu hins látna og hans nán-
ustu. Miðstjórn Kommúnista-
flokks Sovétrikjanna.
Fréttin sjálf er þar fyrir neö-
an og er á þessa leiö:
Andlát Maó Tse-tungs.
Peking 9. TASS. Hér hefur
veriö tilkynnt að 9. september
kl. 0.10 hafi látist i Peking á 83ja
aldursári forseti miöstjórnar
Kommúnistaflokks Kina, Maó
Tse-tung.
Lengra nær sá fróðleikur ekki
i Prövdu.
Þess skal getið mönnum til
skemmtunar, aö á þessariiann-
arri) siöu Prövdu er greint frá
þvi, að nýr forsætisráðherra
Frakklands hafi sent Kosigin
þakkarskeyti fyrir árnaðaróskir
sem Kosigin hafði sent til Paris-
ar. Tekur sú frétt 21 linu i
Prövdu. Aftur á móti tekur
fréttin um Maó með samúöar-
kveöju 14 linur — og fer þaö
pláss mestallt i aö prenta nafn
hans og stööu.
«BEJIAH CTFAHA»
HA TAJIA Cb
CnaCTH )H M 3 M b
nQTDMOTOo!
B
H
npflBAfl
OpraH UeHTpanbHoro KoMMTeTa KflCC
Þetta er forsföan af Prövdu: Til vinstri er aðalfyrirsögn ,,t miö-
stjórn KFS og rikisstjórn SSSR”, til hægri eru uppskerutiöindi, þar
fyrir neöan skeyti frá Ceaucescu til Brezjnefs, Kosigins og Pod-
gornis, og svo frásögn af nokkrum samþykktum um Chile; neöst eru
fjórar smáfréttir utan úr heimi.