Þjóðviljinn - 01.10.1976, Page 1
Föstudagur 1. október 41. árg. 219. tbl.
Jafnréttisráð hefur starfsemi sína:
r
Atta konur og karl
hafa leitað ráða
— Ef lögin um jafnrétti karla og
kvenna eiga aö ná tilgangi sfnum,
veröur aö vinna aö upplýsingaöfl-
um um ástand mála f þeim efnum
á sem fiestum sviöum þjóölifsins
og aö kynna jafnréttismál og reka
áróöur fyrir þeim. Okkur er því
mikil þörf á náinni og góöri sam-
vinnu viö alla fjölmiöla landsins,
sagöi Guörún Erlendsdóttir for-
maöur nýskipaös jafnréttisráös á
blaöamannafundi i gær.
Eáöiö hélt fyrsta fund sinn I júll,
og þó aö starfstimi þess sé ekki
lengfi en þetta, hafa því þegar
borist átta mál. Allt fram til
dagsins i gær voru þaö eingöngu
konur, sem höföu snúiö sér til
ráösins, en þá barst ráöinu fyrsta
bréfiö frá karlmanni, en hann
kvartar yfir ákveönu atriöi i
kjarasamningi þar sem talaö er
um aöstoöarkonur, en þaö sam-
rýmist ekki jafnréttislögunum.
Mörg og stór verkefni
Samkvæmt lögunum er ráöinu
ætlað allmikiö starf, fyrst og
fremst aö sjá svo um, aö ákvæöi
þeirra séu ekki brotin, svo og aö
hafa frumkvæbi, þegar grunur
leikur á, aö kynjum sé mismunaö
á vinnustaö eöa annars staðar.
Einnig skal ráöið „fylgjast meö
þjóðfélagsþróuninni, sem m.a.
varðar þetta lagaefni, og gera til-
lögur til breytinga til samræmis
við talgang þessara laga.”
Bergþóra Sigmundsdóttir,
þjóöfélagsfræöingur, sem ráöin
hefur veriö framkvæmdastjóri
jafnréttisráös i hálft starf, mun
þvi hafa i mörg horn aö lita.
Launamálin nr. 1
Guörún sagöi, að höfuöáherslan
yröi amk. til að byrja meö lögð á
launamál, en launamisréttiö er
enn víða himinhrópandi. í lögun-
um er ákvæði um þaö, aö starf,
sem auglýst er laust til umsókn-
ar, skuli standa opið báðum kynj-
um jafnt.
Námskeið fyrir kennara
t 7. grein laganna segir: ,,I
Baráttu
fundur í
Kópavogi
Starfshópur herstöðvaandstæö-
inga í Kópavogi boöar til baráttu-
fundar I Þinghól sunnudaginn 3.
okt. n.k. kl. 2. e.h.
F u n d a r s t j ór i : Andrés
Kristjánsson fræðslustjóri.
Stutt ávörp flytja: Ingólfur
Gislason háskólanemi, Ólafur R.
Einarsson menntaskólakennari,
Asmundur Ásmundsson verk-
fræöingur er einnig skýrir frá
störfum miðnefndar.
Kristján Guölaugsson kennari
syngur og leikur baráttusöngva,
Siguröur Pálsson les upp.
Herstöövaandstæöingar i
Kópavogi eru eindregiö hvattir til
aö fjölmenna á baráttufundinn kl.
2 á sunnudag i Þinghól.
skólum og öörum menntastofnun-
um skal veita fræöslu um jafn-
réttismál kvenna og karla.
Kennslubækur og kennslutæki
sem þar eru notuö, skulu vera
þannig úr garöi gerö og hönnuö,
aö kynjum sé ekki mismunaö.”
Framhald á bls. 14.
Kröflusvœðið:
Kippum
fækkar
Skjálftum á Kröflusvæöonu
hefur fækkaö undanfarna sólar-
hringa. Frá kl. 15 I fyrradag til
jafnlengdar i gær mældust 16
jarðskjálftar á mæli Orkustofn-
unar nyrðra. Eru þaö miklum
mun færri kippir en fyrri sólar-
hringa; kippirnir voru þannig 50
daginn áöur, 78 þar áöur og 118
þar áöur. Meðalfjöldi jarð-
skjálftakippa á sólarhring siöustu
fimm sólarhringa er 79.
Noröurendi stöövarhússins viö
Kröflu haföi lyfst nokkuð, en
siöan sigiö aftur.
Ekki eru visindamenn vissir
um hvað þessar breytingar á
Kröflusvæöinu boöa, en haft er
eftir Axel Björnssyni aö sist sé
ástæöa til aö varpa öndinni léttar,
þvi aö breytingarnar geta bent til
þess aö gos sé ekki langt undan.
Siglufjörður:
Lokið við
að salta
í kvöld
Og nú eru þeir lika farnir að
salta sildina á Siglufiröi, — eöa
þær væri kannski réttara aö
segja, — þvi ætli það sé ekki eink-
um kvenþjóöin, sem annast það
þjóðnytjastarf, eins og fyrri dag-
inn.
Blaöiö náöi eitt augnablik tali
af Guðfinni Aöalsteinssyni hjá
Siglósild og hann sagöi söltunina
hafa byrjað um hádegi á mánu-
dag. Siðan heföi látlaust verið
saltaö, nema rétt yfir blá-nóttina.
Vinna hæfist kl. 7 á morgnana og
siöan væri veriö aö til kl. 12 á
kvöldin.
Guðfinnur bjóst við að söltun-
inni lyki i kvöld og áleit hann að
þá yröi búið aö salta i eitthvaö
milli 500 og 600 tunnur. Þetta er
mestan part millisild.
Þaö er aöeins eitt skip sem
komiö hefur meö sild til Siglu-
fjarðar aö þessu, Reykjaborgin,
og vonandi á hún ennþá eftir aö
krækja i nokkrar bröndur.
Annars er yfirdrifin atvinna
hér, sagði Guðfinnur. Stálvikin
var aö koma meö 180 tonn af fiski
og siglir meö hann út.
—mhg
Sjá baksíðu
Álkróna
í nmferð
I dag kemur nýr einnar krónu
peningur i umferð. Peningurinn
er úr áli, 17 mm i þvermál og 0.61
gr. aö þyngd. Útlit er að ööru leyti
óbreytt frá þvi sem veriö hefur.
Gamla krónan sem nú er i umferö
veröur áfram i gildi þar til annað
veröur ákveöiö. Innköllunarfrest-
ur er samkvæmt gjaldmibilslög-
unum tvö ár frá þvi hann er aug-
lýstur.
Héldu upp á afmælið
Sjdnvarpið var tiu ára i gær. Á þessum tima-
mótum eru margskonar blikur á lofti i stofnun-
inni. Tækjabúnaður er úreltur, dreifingarkerfiö
vanburöa, starfsmenn óánægðir með kjör sin og
stööu stofnunarinnar innan rikiskerfisins, fjár-
vöntunin er mikil og innlend dagskrárgerð fer
þverrandi. Þá telja sjónvarpsmenn aö stjórnvöld
sýni skilningsleysi varöandi nauðsyn þess að
hafna eöa velja litasjónvarp. Ljósir punktar eru
þó i sjónvarpsmálum aö mati starfsmanna og má
þar nefna aö stjórnvöld virðast nú vera komin á
þá skoöun aö reisa beri hér jarðstöö, sem meðal
annars mun auövelda sjónvarpinu efnistöku frá
útlöndum.
En þrátt fyrir allt geröu sjónvarpsmenn sér
dagamun og gott I munni i gærkvöldi. Hanastéls-
boö var haldið i Fóstbræöraheimilinu siðdegis og
um kvöldib var haldin árshátiö. Þar voru saman-
komnir fyrrverandi og núverandi starfsmenn
sjónvarpsins og fleiri gestir.
1500
í Frímúrarareglunni
segir nýkjörinn foringi hennar, Víglundur Möller
Eins og flestir eflaust vita, fllk-
arFrimúrarareglan á islandi ekki
geröum sinum, og menn utan
regiunnar vita litiö aö hverju hún
starfar eöa meö hvaöa hætti
félagsstörf hennar fara fram. En I
einu dagblaöanna I gær er sagt
frá þvi, aö Viglundur Möller for-
stjóri Sjúkrasamlags Reykjavlk-
ur hafinýveriö veriö kjörinn yfir-
maöur Frimúrarareglunnar á
islandi.
En þar sem reglan sendir engar
fréttír né fréttatilkynningar frá
sér, höföum viö samband viö
Viglund og spuröum hann hvort
þarna væri rétt skýrt frá.
—Finnist ykkur þaö merkileg
frétt?
— Nei, ég var aðeins aö spyrja
hvort þetta væri rétt.
— Það er rétt, já.
— Er þaö ekki mikiö starf aö
vera foringi svona samtaka?
— Þaö læt ég allt vera.
—-Þannig.aö þaö er ekkert erf-
itt fyrir opinberan embættismann
eins og þig aö taka svona starf aö
sér?
— Nei, og sérstaklega af þvi að
ég er nú aö hætta sem slikur.
— Þetta er kannski algert tóm-
stundastarf aö vera formaður
reglunnar?
— Að mestu leyti.
— Fyrir nokkrum árum tók nýr
maður viö sem yfirmaður
reglunnar i Danmörku, og hann
sagði frá ýmsu i sambandi viö
regluna, sem áöur haföi ekki ver-
iðsagtfrá. Má búast viö sliku frá
ykkur nú?
— Ekki geri ég ráö fyrir þvl. Viö
höfum haldið þessu utan viö öll
blaðaskrif og ekkert viljaö um
það ræöa opinberlega, annaö en
þaö sem hægt er aö lesa um I al-
fræöioröabókum og opinberlega,
að svo miklu leyti sem þaö er þá
satt.
— Er þaö algild regla hjá fri-
múrururum um allan heim aö
segja elcki frá starfinu?
— Já, það hefur verið þaö.
— Það er þá ekki i sjálfsvaldi
frimúrara i hverju landi fyrir sig
hvort þeir segja frá störfum regl-
unnar?
— Gæti veriö aö einhverju leyti,
en ekki þá nema i samráöi viö
aðrar deildir.
— Þú mátt þá kannski ekki
segja frá hvaö meðlimir reglunn-
ar hér eru margir?
—Þaö getiö þiö séö einhvers-
staðar. Ég held að þaö séu ein-
hversstaöar i kringum 1500
manns.
— Er ekki erfitt aö vera i for-
svari fyrir svona reglu, sem ekk-
ert má segja frá um?
— Ekkifinnst mér þaö. Þetta er
félagsskapur sem biöur engan
mann um aö koma og hvetur eng-
an til aö sækja um. Þar af leið-
andi er þaö mál mannanna
sjálfra ef þeir vilja sækja um
uppá þessi skilyrði.
— Getur hver sem er sótt um aö
ganga i regluna?
— Þaö er hægt meö þvi aö hafa
til tvo meðmælendur. Þaö er nóg
sem byrjun.
— En þaö er ekki vissa fyrir þvi
að vera tekinn inn?
— Nei.
— Er ekki til eitthvað sem heitir
stjórn fyrir þessa reglu?
— Það er nú i öllum félögum.
— Er leynd yfir þvi hverjir eru i
stjórn meö þér?
— Viö gefum út félagatal, vasa-
bækur og þess háttar, þær berast
sjálfsagt viða.
— Eru þær opinberar, er hægt
aö fá þær?
—Ekki hjá okkur a.m.k. Égvil
ekki aö svo stöddu láta hafa neitt
eftir mér um þaö hverjir eru i
stjórn, en ég gæti rætt um þaö siö-
arvið samstarfsmenn mina hvort
þeim þætti ástæöa til aö gera þaö.
— Ég má þá kannski hringja og
spyrja um það siöar?
— Það má athuga máliö.
—S.dór