Þjóðviljinn - 01.10.1976, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. oktdber 1976
Frá Flatey á Breiöafirði
Gömlu húsin vitna um
Það er fátt fréttnæmt
úr Flatey á heims- eða
landsmælikvarða, enda
þótt hér sé miðja al-
heimsins.
Hér er fámennið, eins
og f lestir vita. Aðeins um
20 manns búa hér yfir
veturinn. Þetta fámenni
setur sterkan blæ á
viðmót og viðskipti
manna. Spáðer í sérhvert
fótmál og lesið úr hverj-
um andlitsdrætti.
En stórviðburöir hafa öngvir
gerst i lengri tiö i Flatey. Fifill
hreppsins hefur oft fegurri ver-
iö. Aðeins er ársbúseta i einni
eyju utan Flateyjar, Svefneyj-
um. Hin eylendin fimm eru nýtt
af heima- eöa sumardvalar-
fólki.
An efa verður aö telja búsetu-
og jaröeignamál i hreppnum
höfuðvandamál eyjafólksins.
Ekki eru menn á eitt sáttir um
hvaö veldur búsetutregöu hér.
Hitt er vist, að ófáir hafa flust
héðan suöur i sælunnar reit og
séð eftir þvi, ef marka má þau
orð. óneitanlega hvarflar sú
hugsun aö manni, aö jaröeigna-
málin eigi sinn þátt i þvi, að
búseta er ekki eins æskileg og
eölileg, sem vera skyldi i þessu
mikla gósenlandi. Jaröeigna-
málin standa þannig, aö i fjölda
ára,og áratugi, hafa allir bænd-
ur Flateyjarhrepps veriö ein-
hverskonar leiguliöar. Þeir hafa
leigt einhvern jaröarpart eöa
heilu jaröirnar, sem þeir búa á.
Leigan hefur veriö okurleiga,
oft á tiðum, enda reiknuö i dún.
Jaröeigendur eru hinir og þessir
um hvippinn og hvappinn, stór-
karlar i Reykjavik og minni
karlar annarsstaöar.
Jaröeigendur eru miklu fleiri en
allir ibúar Flateyjarhrepps, en
lögheimiliihreppnum eiga milli
40 og 50 manns.
En i svo alvarlegum ólestri
eru þessi mál, aö yfirvöld vita
ekki nándar nærri um alla eig-
endur jaröa. Viröist þetta vera
einkamál jaröeigenda. Eitt er
vist, aö eigendur einstakra
jaröa Flateyjarhrepps skipta
tugum. Trúað gæti ég, aö alls
væru eigendur þessara sex
jaröa nálægt 100.
Það þarf ekki visan mann til
að átta sig á þvi að búseta á
þessum jörðum hefur oft verið
erfiö þegar illa áraöi, vegna
leigugjaldsins, og hvort sem
fólki þykir þaö ljúft eöa leitt, þá
eru þaö jaröeigendur, margir,
sem hafa mergsogið þennan
hrepp og komiö beint eöa óbeint
i veg fyrir aö hann veröi blóm-
leg byggö aö nýju. Enda þótt hér
hafi veriö vagga lýöveldisbar-
áttunnar þá er eins og sú hug-
sjón hafi fjaraö út með lýöveld-
inu og hafi ekki rist mjög djúpt i
málefnum sveitarinnar. Þvi hér
rikir enn landsdrottna-og leigu-
liðafyrirkomulag.
Á siðustu árum hafa margir
lagt hug og hönd aö þvi, aö
vernda gömul hús I Flatey. Er
það ekki að ástæöulausu, þvi her
er enn mjög sérstæð byggö
gamalla timburhúsa, er sýna
ljóslega glæsileika fyrri tima.
Byggðin i Flatey er tviskipt.
Annarsvegar eru húsin (öll hin
nýrri) út I eyjunni, en hins-
vegar er gamla verslunarþorpiö
á miðri eyjunni noröanveröri,
við svonefndan Grýluvog. Þaö
er, að þvi er ég best veit,
heilsteyptasta byggö gamalla
húsa hér á landi. Þau eru öll
byggö i svipuöum stil og þó eru
engin tvö eins. Ekkert hús með
skúrþaki er i gamla þorpinu, og
veröur þvi vonandi ekki breytt.
En mun betur má ef duga skal
til aö bjarga gömlum menn-
ingarverðmætum aldinna bygg-
inga og framkvæmda I Flatey,
ogmargthefur farið forgörðum.
Atvinnulif hér hefur veriö
meö nokkrum blóma i sumar.
Auk vinnu viö heföbundin
hlunnindi og búskaparstörf hef-
ur verið vinnuflokkur á vegum
Nikulásar Jónssonar, bónda i
Svefneyjum,við þangöflun fyrir
þörungaverksmiöjuna á
Reykhólum.
Ovenju mikil grásleppuútgerö
var hér i Flatey i vor og sumar.
Þau tiðindi geröust og, aö
bryggja i Flatey var endur-
byggð, og má telja þaö meiri
háttar framtak. Einnig hefur
hér verið unniö aö vatnsveitu og
skolpveitu.
Margt er hér um manninn á
sumrin og viss kjarni
sumarfólks dvelst hér á hverju
ári. Er það fjölskrúöugur hópur.
Félagslif er eins ágætt á sumrin
og þaö er fátæklegt á veturna.
Fólk kemur oft saman til þess
aö dansa og gera sér glaðan dag
og þykir þó flestum, aö fram úr
hófi keyri um verslunarmanna-
helgar. Er svo komið, aö sam-
komur okkar um þær helgar,
sem þó eru ekki auglýstar, eru
svo vinsælar, aö enda þótt þær
hafi ætiö fariö einstaklega vel
fram, þá veröum viö llklegast
aö leggja þær niöur.
Óþurrkar sumarsins hafa
ekki farið fram hjá Eyjabænd-
um og er ekki langt siðan þeir
hirtu sinar fyrstu þurrheystugg-
ur, en senn liöur nú aö haust-
verkum. Fjáreigendur sigla til
lands til þess að smala saman
skjátum sinum og flytja þær út I
Eyjar á bátum. Eftir aö sláturfé
hefur veriö valiö úr er bústofn-
inum dreift um úteyjarnar og
eru þaö miklir flutningar. Féö
er svo sótt aftur um eöa eftir
áramót eöa jafnvel látiö vera ai-
veg sjálfala fram aö sauöburöi.
Brátt fer vetur kóngur aö
heilsa og þrýsta skammdeginu i
huga fólksins, en börnin fara i
skóla og hlakka til jóla. A
meöan heldur andi Strindbergs
hátiö i hugum fulloröna fólksins,
án þess aö nokkur fái viö gert.
G.P.ó.
Vorsölum,
Flatey.
Bentshús — Vinaminni — Vertshús — Bókasafn — Skfina — Sólheimar.
Samkomuhús — sláturhús — Vorsalir — Asgaröur — Vogshús — Skóli.