Þjóðviljinn - 19.10.1976, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 19.10.1976, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 19. október 1976 Valtingojer sýnir í Stúdentakjallara Sýning Rikharðar Jóhannsson- ar Valtingojer á teikningum og grafik i Stúdentakjallaranum við Hringbraut, sem var lokuð i nokkra daga vegna umsvifa um- bótasinna i húsnæðinu, hefur nú verið opnuð aftur. Fyrir utan hina andlegu hress- ingu sem af myndunum hlýst er önnur hressing jafnframt á boð- stólunum,-kaffi, brauð o.s.f.v. Sýning Rikharðar hefur fengið góða dóma og er örfandi sprauta i lifæð allra hugsandi manna eins og segir i fréttatilkynningu. Sýningin er opin: Mánud.-Finntud. 10.30—22.30 Föstudaga 10.30—20.00 Laugard.-Sunnud. 14.00—23.30 Sinfóniuhljómsveit íslands Tónleikar i Háskólabiói fimmtudaginn 21. október kl. 20.30. Stjórnandi PAUL DOUGLAS FREEMAN Einleikari BARBARA NISSMAN Efnisskrá: Ulysses Kay — Ouverture to Theatre Set. Ilachmaninoff — Pianókonsert nr. 3. Tsjaikovsky — Finfónia nr. 4. Aðgöngumiðar i Bókabúð Lárusar Blöndal, Skólavörðu- stig 2 og Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar, Austur- stræti 18. Kornvörur í urvali Hýðishrísgrjón: .............................140kr./kg. Bankabygg: ..................................100------- Hveitikorn:..................................100— — Sagógrjón: ..................................150— — Sigtimjöl: .................................. 90— — Heilhveiti:...................................105— — Lffræntræktaðar sojabaunir og aðrar baunir íUrvali. Afar lágt verð. Fjölbreyttasta hunangsúrval I bænum. Yfir 20 teg. Verö frá 395 kr. Ennfremur molasses:..........................205 kr. og hunang og malt:...........................325 — Griskar kúrenur..........................380 kr./kg. Hnetusmjör framleitt úr jarðhnetum möluðum f stein kvörnum. Verð: 915 kr. Okkar fræga morgunverðarblanda (blönduð úr lfrænt ræktuðum kornflögum, hnetum.rúsinum o.fl.) fæst nú aft- ur KORNMARKAÐURINN Skólavörðustfg 21 A. 30. þing BSRB Launakjörum verði lyjt af láglaunastíginu Á 30. þingi Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, sem haldið var í Reykjavík í siðustu viku, voru gerðar allmargar ályktanir um nokkra málaflokka. Veiga- mesti hluti samþykktanna lýtur að kjara- og efna- hagsmálum. Þjóðviljinn birtir hér á síðunni helstu kjaramálaályktanir þings- ins. Tillögur starfskjaranefnd- ar um kjaramál. 1. Brýnustu verkefni 30. þing BSRB samþykkir að aðalkjarasamningi bandalagsins og bæjarstarfsmannafélaga inn- an þess veröi sagt upp fyrir 1. april 1977. Stefnt verði að nýjum samningi 1. júli 1977 eins og lög og reglugerð heimila. Forgangsverkefni við gerð nýs samnings telur þingið vera þessi: '1. Bætt verði að fullu kjaraskerð- ing undanfarinna ára og tryggöur kaupmáttur, sem sé hvergi lakari en skv. kjarasamningi BSRB i desember 1973 i endanlegri mynd hans. 2. Samið verði um verulegar kjara- og launabætur, sem lyfti launakjörum upp af núverandi láglaunastigi. 3. Full verðtrygging verði tekin upp á laun samkvæmt óskertri framfærsluvisitölu. 4. Leiðrétt verði launamisræmi, sem orsakast af þvi að opinberir aðilar neita starfshópum innan BSRB um sambærileg kjör og rikið semur um við hliðstæða starfshópa utan samtaka opin- berra starfsmanna. II. Þróun kjaramála Launakjör islenskrar alþýðu eru nú orðin ein hin allra lægstu i Vestur-Evrópu. Jafnframt hefur launamismunur og margháttað misræmi i launamálum stórlega aukist. Hér á landi hefur geisað óða- verðbólga og frá þvi að umsamin visitöluhækkun á laun var siðast greidd (1. mars ’74) og til 1. ágúst 1976 hefur framfærsluvisitalan hækkað um 150% og kaupgjalds- visitalan, sem um var samið, hefði liklega hækkað um 130%. Launastigi opinberra starfs- manna hefur á sama tima ein- ungis hækkað um 40-70%. Þróun kjaramála hefur þannig verið opinberum starfsmönnum sérstaklega óhagstæð undanfarin ár. Réttindaleysi samtakanna og félaganna veldurþar mestu, enda hefur verulegur hluti baráttunnar beinst að þvi að knýja fram breytingar á samningsrétti. t þvi efni vegur þyngst afnám gerðar- dóms aðalkjarasamnings og tak- markaður verkfallsréttur. Þingið telur það brýnasta verk- efni samtakanna á næstunni að hefja markvissa baráttu gegn þessari óheillaþróun. t þvl sam- bandi felur þingið forystu sam- takanna aö leita samstarfs við Al- þýðusamband tslands og önnur heildarsamtök launafólks um samræmdar aðgerðir i kjaramál- um. Til áréttingar framansögðu skulu rifjuð upp nokkur meginat- riði i þróun kjaramála BSRB sfð- ustu árin. 1. t kjarasamningum i des. 1970 tókst i veigamiklum atriöum að samræma laun opinberra starfs- manna launum annarra starfs- stétta. 2. Á árunum 1972-73 synjaði rikið opinberum starfsmönnum um 14% launahækkun til samræmis við launahækkanir á aimennum vinnumarkaði. Kjaradómur dæmdi siðar opinberum starfs- mönnum tilboð sitt, þ.e. 7% á- fangahækkunin frá 1. mars 1973. 3. t aðalkjarasamningi BSRB i des. 1973 var fylgt þeirri megin- stefnu siöasta bandalagsþings að semja um mesta hækkun launa- stigans fyrir lægstu launaflokk- ana. Þetta leiddi til þess, að litil launahækkun kom á hæstu launin og var það i fullu samræmi við yf- irlýsta láglaunastefnu verkalýðs- félaganna svo og válegar horfur i efnahagsmálum. 4. Þegar lokið var sérsamningum verkalýðsfélaga á almennum vinnumarkaði i ársbyrjun 1974, kom i ljós að heildarlaunahækkun þeirra var yfirleitt 7-20% meiri en I fyrrgreindum kjarasamningum BSRB og einstaka starfshópa mun hærri. Til aö reyna að mæta þessu sömdu félög opinberra starfsmanna i sérsamningum sinum, i mai og júni 1974, um hækkun flestra starfsheita um 2-3 launaflokka (7-10%). Brýn þörf leiðréttinga f röðum ýmissa starfsheita varð þannig að sitja á hakanum og þvi óx misræmi launakjara fjölmargra opinberra starfsmanna á við sambærilega starfshópa. 5. Eftir afnám visitölubóta, frá 1. júni 1974, fengu launþegar fyrst lögbundnar launajöfnunarbætur og siðan tvær áfangalagfæringar á árinu 1975. Hlutur opinberra starfsmanna mun á þessum tima hafa versnað heldur meir en flestra annarra. 6. í aðalkjarasamningi BSRB og fjármálaráðherra frá 1. april s.l. fékkst ekki nein sú grundvallar- breyting á launastiganum, sem rétt gæti skertan hlut opinberra starfsmanna, heldur einungis sama prósentuhækkun og flest verkalýðsfélög sömdu um i lok febrúarverkfallanna. Hins vegar var samið um, að gildistimi nýja aðikjarasamningsins yrði aðeins eitt ár, og við gerð næsta samn- ings gilti verkfallsréttur. 7. Sérsamningar allra rikis- starfsmannafélaga að einu und- anskildu komu til kasta gerða- dóms, sem kvað upp úrskurð i júli s.l. Meðallaunahækkanir banda- lagsfélaganna i sérkjarasamn- ingunum, sem gilda til 1. júli ’77, munu hafa orðið um 1,8-4%. Meðferð og afgreiðsla samn- inganefndar rikisins og Kjara- nefndar á málinu var mjög ábóta- vant og sáralitið tillit tekið til fyr- irliggjandi upplýsinga um launa- kjör sambærilegra starfshópa á almennum vinnumarkaði. III Um kjarasamninga BSRB á næsta ári Við kröfugerð verði tekið mið af meginkröfum BSRB i ágúst 1975. Þingið minnir sérstaklega á eftir- talin atriði: 1. Sett verði tryggileg ákvæði i heildarkjarasamninginn um rétt BSRB til uppsagnar og verkfalls- heimildar á samningstimabilinu, ef veigamiklum forsendum hans yrði breytt og kaupmætti umsam- inna launa raskað. 2. Byrjunarlaun verði hækkuð. Aldurshækkanir ásamt bili milli launaflokka alls staðar sett jafnt að krónutölu. 3. Staðfest verði 5 daga vinnu- vika og dagvinna á timabilinu kl. 08-17 frá mánudegi til föstudags. 4. Vikulegur vinnutimi vakta- vinnufólks verði skemmri en dag- vinnumanna og núverandi reglur samræmdar. Vinnuskylda geti styttst i áföngum eftir 55 ára ald- ur, sé þess óskað af hálfu starfs- manns. 5. Starfsmanni skal heimilt að halda störfum að hluta eftir til- skilin aldursmörk. 6. Greiða skal álag á áhættu- sama, óþriflega og óholla vinnu. 7. Bætt verði kjara- og félagsleg aðstaða þeirra, er verða að vinna fjarri heimilum sinum. 8. Laugardagar teljist ekki til or- lofsdaga og orlofslenging fáist fyrr en nú er. Lágmarkstrygging orlofsframlags hækki verulega og fylgi almennum launahækkunum. Orlof lengist oftar miðaö við starfsaldur. 9. Yfirvinnutimakaup hækki i 100% miöað viö dagvinnu og vaktaálag hækki frá þvi sem nú er. 10. Mötuneyti verði tekin upp á vinnustöðum, en þar sem því verður ekki við komið greiðist fæðispeningar. 11. Opinberum starfsmönnum verði tryggð endurhæfing og starfsmenntun og skal námstimi teljast til vinnutima. 12. 1 heildarkjarasamning verði tekin upp kjaraatriði úr sérsamn- Framhald á bls. 14.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.