Þjóðviljinn - 09.11.1976, Qupperneq 7
Þriðjudagur 9. nóvember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Starf Samtaka her-
stöðvaandstæðinga
Eitt þeirra mála sem alltaf
verða á dagskrá á landi hér er
herstöðvamálið, alltaf þangað
til fullur sigur er unninn og her-
stöðvarnar niðurlagðar en
Island gengið úr þvi hernaðar-
bandalagi sem hefur þröngvað
okkur til að taka við þeim. Satt
að segja hefur andstæðingum
herstöðvanna gengið mis-
jafnlega aðsjá til þess að málið
séstöðugtá dagskrá — baráttan
hefur dvinað öðru hverju — en
vonir standa til að herstöðva-
andstæðingar hafi nú bundist
svo öflugum samtökum að þau
geti orðið varanlegt afl i
islenskri þjóðmálabaráttu
meðan þeirra verður þörf.
Keflavikurgangan á siðasta
vori var ógleymanlegur
atburður fyrir islenska
herstöðvaandstæðinga og
verður vonandi einnig minnis-
stæð þeim sem mest kapp
leggja á að gera Island að
ævarandi herstöð, ósökkvandi
flugvélamóðurskipi. Hún var
ógleymanleg vegna þess að hún
sýndi sannfæringu og baráttu-
vilja sem er þess eðlis að hann
er ódrepandi, getur lifað af
hinar mestu þrengingar, en
getur lika blossað upp og farið
um heilar þjóðir sem eldur i
sinu. Samtök herstöðva-
andstæðinga eru stofnuð til að
gæta að þessum eldi, blása i
glæður ef á þarf að halda og
breyta honum i bál þegar rétt
stund kemur til þess.
Ef einhver hefur haldið að
Keflavikurgangan 1976 hafi
verið stundarfyrirbæri vakið
upp af sérstökum aðstæðum i
islenskum þjóðmálum hefði sá
hinn sami átt að vera staddur á
landsráðstefnu Samt. herstöð-
vaandstæðinga i siðasta nánuði
þar sem þau voru gerð að
formlegum samtökum. Þangað
komu um 320 manns úr öllum
landshlutum, fólk með
mismunandi skoðanir á
mörgum málum en sammála
um nauðsyn þess að koma
hernum burt og ganga úr Nató.
Það kom lika skýrt i ljós á ráð-
stefnunni að menn voru
sammála um að horfa sem
fastast -á meginmarkmiðið og
ýta ágreiningi til hliðar.
Samtökunum voru sett lög og
stefnuskrá og kosin miðnefnd,
eins og sagt hefur verið frá. Hér
eftir geta allir einstaklingar
sem samþykkir eru markmiðum
Samtaka herstöðvaandstæðinga
gengið i þau og þar með skráð
sig til starfa og annars
stuðnings án tillits til þess
hvaða stjórnmálaskoðanir þeir
aðhyllast að öðru leyti.
Eitt þeirra gagna sem
samþykkt var á lands-
ráðstefnunni er áætlun um þau
verkefni sem framundan eru.
Þessi áætlun má virðast nokkuð
stórhuga en ber þó naumast
neinu óraunsæi vitni, þvi
verkefnin eru þannig afmörkuð
að þau hljóta að verða unnin
smám saman eftir þvi sem
starfskraftar fást til.
Það lætur að iikum að eitt
brýnasta verkefni Samtaka
herstöðvaandstæðinga nú er að
styrkja sig skipulagslega. A
Reykjavikursvæðinu voru
þegar á siðasta ári stofnsettir
allmargir svæðahópar á vegum
samtakanna og allviða út um
land eru skipulagðir hópar á
vegum þeirra. Fram undan er
mikil vinna við að f jölga þessum
hópum og fjölga i þeim. Það
liggur i hlutarins eðli að ekki
geta allir félagar i Samtökum
herstöðvaandstæðinga verið
jafnvirkir, verkefni sam-
félagsins eru mörg og aðstæður
misjafnar. En framtið
samtakanna er undir þvi komin
að annars vegar séu sem viðast
starfandi kjarnaeiningar virkra
félaga en hins vegar séu skráðir
sem allra flestir félagar sem
hægt er að leita til þegar mikið
liggur við — vegna fundahalda
og annarra fjöldaaðgerða, og
siðast en ekki sist um fjárhags-
legan stuðning. Oflugu starfi
verður ekki haldið uppi nema
með talsverðum kostnaði. Hann
þarf þó aldrei að verða meiri en
svo að hann verður léttbær ef
hann dreifist nógu viða, og
reynir þá á skipulagninguna.
Þess vegna er það mjög mikils
virði fyrir Samtök herstöðva-
andstæðinga að sem allra
flestir, sem hlynntir eru mál-
stað þeirra, gefi sig til kynna og
EFTIR
VÉSTEIN
ÓLASON,
LEKTOR
láti skrá sig sem félaga eða
stuðningsmenn þeirra. Einmitt i
þessum mánuði er verið að selja
happdrættismiða um land allt á
vegum Samtaka herstöðva -
andstæðinga.
Fjölmargir ágætir listamenn
hafa sýnt hug sinn til sam-
takanna og málstaðar þeirra
með þvi að gefa vinninga i þessu
happdrætti, svo að til nokkurs er
að vinna. Happdrættið er
meginstofninn i fjáröflun
samtakanna fyrir allt næsta ár
og ég leyfi mér að skora hér á
herstöðvaandstæðinga að
bregðast vel við þegar til þeirra
verður leitað.
Sterkt og virkt skipulag er
ekki markmið i sjálfu sér heldur
sá grundvöllur sem við stöndum
á ibaráttunni, viðspyrna okkar i
átökum við óvin sem getur
brugðið sér i margra kvikinda
liki. Herstöðvaandstæðingar
lita á það sem eitt megin-
verkefni sitt að efla með
þjóðinni þekkingu og.skilning á
herstöðvamáiinu og þáttum
þjóðli'fs og heimsmála sem þvi
tengjast. A þeim vettvangi er
mikið verk að vinna. A sumum
sviðum skortir rannsóknir, á
öðrum sviðum þarf að gera að-
gengilegar og kunnar stað-
reyndir sem fyrir liggja. Við
verðum að geta mætt and-
stæðingum okkar með rökum og
þekkingu á öllum stigum
umræðu, hvort sem er á heimili
eða vinnustað, i skóla eða
fundarsal. En þekkingu verður
ekki breytt i afl nema samstaða
sé sköpuð, og til þess eru hvers
konar f jöldaaðgerðir best
fallnar eins og saga herstöðva-
andstöðunnar hingað til sýnir
glöggt.
Endanlegt markmið
herstöðvaandstæðinga er Island
úr Nató og herinn burt en
sérhver áfangi að þvi marki er
mikils virði. Þess vegna verða
herstöðvaandstæðingar að vaka
yfir tækifærum til að skapa
samstöðu með öflum sem vilja
berjast fyrir einhverjum slikum
áfanga, t.d. þvi að her-
stöðvarnar verði lagðar niður
án þess að brottför úr Nató
tengist þvi beint. En baráttu
herstöðvaandstæðinga lýkur
ekki fyrr en fullum sigri er náð.
Yelsmenn í
móðurmáls-
baráttu
LUNDÚNUM 5/11 Reuter — Vels-
menn nokkrir vörpuðu i dag
dreifimiðum af áheyrendapöllum
yfir neðri málstofu breska þings-
ins, er þar stóð yfir umræða um
mál Vels (Wales). Talsmaður fé-
lags, sem berst fyrir viðhaldi
velskrar tungu, sagði að þetta
hefði verið gert til að mótmæla
ráðstöfunum stjórnvalda i sjón-
varpsmálum Vels, en félagið vill
fá sérstaka sjónvarpsrás fyrir
landið. Fjórir menn i félagi þessu,
sem i siðustu viku voru handtekn-
ir út af mótmælum af sama til-
efni, neituðu fyrir rétti að svara
spurningum á ensku og kröfðust
túlks.
Starfsaðstöðu
þarf að bæta
Skólastjórar á norðvesturlandi
á fundi með fræðsluráði og
fræðslustjóra i Varmahlið
9.10.1976 samþ. eftirfarandi.
Þó að fræðslustjóri og fræðslu-
ráð hafi starfað stuttan tima telja
skólastjórar i umdæminu að
jákvæð reynsla hafi fengist af
starfi þeirra. Ljóst er að til þess
að fræðsluráð og fræðslustjóri
geti starfað samkv. lögum og
reglugerð verður að stórbæta
starfsaðstöðu þeirra. Til
þess aö svo megi verða verður nú
þegar að koma fjármálum
fræðsluskrifstofunnar á öruggan
grundvöll. Þvi skorar fundurinn á
rikisstjórn, Alþingi svo og
sveitastjórnir og samtök þeirra
að leysa þessi mál nú þegar.
Meðan sameiginleg lausn áð-
urnefndra aðila liggur ekki fyrir
telur fundurinn eðlilegt að sveita-
stjórnir brúi bilið, enda eiga þau I
raun mestra hagsmuna að gæta.
Formaður fræðsluráðs er ólaf-
ur H. Kristjánsson skólastjóri
Héraðsskólans Reykjum V-H.
Algert aðstöðuleysi
— segir Páll B. Helgason sérfrœðingur
á endurhœfingardeild Landspítalans
„Það er ekki bara að okkur
vanti sundlaug, eins og þiö sögðuð
irá i fyrradag, segja má að að-
stöðuleysi okkar á endurhæfing-
ardcild Landspitalans sé algert”,
sagði Páll B. Helgason, sérfræð-
ingur endurhæfingardeildarinnar
er við ræddum við hann i gær.
Páll sagði að lang stærsta
vandamálið væri hve húsnæði
deildarinnar væri litið og ófull-
komið. Okkur vantar húsnæði til
að skoða fólk, æfingasalurinn er
alltof litill og aðstaða til vatns-
þjálfunar er einnig afar slæm,
sagði hann.
Aðstaða iðjuþjálfanna er svo
bágborin að segja má að húsnæði
þeirra sé fimm sinnum of litið og
það verður til þess að þeir fást
ekki til að vinna við þessar að-
stæður, enda hafa allir islensku
iðjuþjálfararnir, sem byrjað hafa
á deildinni hætt störfum og farið
ýmist á Borgarspitalann eða
Reykjalund. Nú sem stendur
vinna aðeins tveir iðjuþjálfar á
endurhæfingardeild Landspital-
ans og eru þeir báðir danskir og
munu hverfa af landi brott eftir
fáa mánuði.
Nú vinna 9 sjúkraþjálfarar á
endurhæfingardeild Landspital-
ans, sem hefur 410 rúm, en á
Landakoti og Borgarsjúkrahús-
inu, sem saman eru með færri
rúm en Landspitalinn eru sam-
tals 14 sjúkraþjálfarar.
Þá má geta þess, að sjúkra-
þjálfarar Landspitalans verða að
fara með þá sjúklinga, sem nauð-
synlega verða að komast i sund-
laug, i leigubil i sundlaugina á
Hótel Loftleiðum og þætti það
sennilega saga til næsta bæjar ef
stærstu sjúkrahús á Norðurlönd-
um, til að mynda, yrðu að nota
sundlaugar lúxushótela, til að
sinna nauðsynlegri endurhæfingu
sjúklinga.
—S.dór
Landsbanltinn:
Nýr úti-
bússtjóri
á Akureyri
A fundi sinum 5. nóvember 1976
samþykkti bankaráð Landsbanka
Islands að ráða Magnús Gisla-
son útibússtjóra bankans á Akur-
eyri.
Magnús Gislason er 41 árs að
aldri og hefur starfað i bankanum
frá árinu 1953. Hann hefur verið
bókari útibúsins um langt skeið
oggegnt störfum útibússtjóra frá
miðju ári 1975.
Kjörtímabil
Indlandsþings
framlengt
Nýju-DELHI 5/11 Reuter — Neðri
málstofa indvcrska þingsins
framiengdi i dag kjörtimabil sitt
um eitt ár, eða þangað til i mars
1978. Kosið var siðast til þings
1971 og átti kjörtimabilið að renna
út i mars siðastliðnum, en það
hafði þegar verið framlengt um
eitt ár og var það liður i ráðstöf-
unum stjórnarinnar er hún lýsti
yfir neyðarástandi.
Allir stjórnarandstöðufiokk-
arnir mótmæltu frestuninni harð-
lega, þar á meðal Kommúnista-
flokkur Indlands, sem þykir held-
ur sovétsinnaður og hefur yfirleitt
stutt stjórn Indiru Gandhi. Sagði
leiðtogi flokksins, Inderjit Gupta,
að frestunin gæti orðið til þess að
grafa undan trausti þvi, er al-
menningur bæri til þingsins.