Þjóðviljinn - 09.11.1976, Blaðsíða 16
DWÐVIUINN
Þriöjudagur 9. nóvember 1976
Aöalslmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21
mánudaga til föstudaga, kl.9-12 á iaugar-
dögum og sunnudögum.
Utan þessa tíma er hægt aö ná i blaöa-
menn og aöra starfsmenn blaösins I þess-
um simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257
og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent
81348.
Einnig skal bent á heimasima starfs-
manna undir nafni Þjóöviljans i sima-
skrá.
Hitaveita Suðurnesja:
Vígð um
helgina
Bráöabirgöavarmaskiptastööin viö Svartsengi. Til vinstri á myndinni
er „biandarinn”, þar sem gufunni er spýtt í kalt ferskvatn, en til hægri
sést „afloftarinn” þar sem óæskileg efni eru hreinsuö burt úr vatninu,
áður en þaö fer inn á aðveituæðina til neytenda.
m.M M m mm m m á
Dagur frimerkisins
ASÍ-frí-
merki að
koma út
1 dag er Dagur frimerkisins I 16.
sinn. Félag frimerkjasafnara I
Reykjavik, sem beitir sér fyrir
frimerkjadeginum aö venju, hef-
ur látið útbúa sérstök umslög og
efnt verður til frimerkjasýninga I
verslunargluggum og pósthúsum.
Þá veröur eins og alltaf frá ár-
inu 1961 sérstakur dagstimpill i
notkun á póststofunni i Reykja-
vik. í kvöld efnir Félag
frimerkjasafnara til rabbfundar i
Gyllta salnum á Hótel Borg, þar
sem spjallaö veröur um frimerki
yfir kaffibollum.
A vegum Póst- og simamála-
stjórnarinnar er að koma út
frimerki i tilefni 60 ára afmælis
ASI. Utgáfudagurinn er 2. desem-
ber og verðgildiö 100 kr. Merkið
er marglitt og teiknað af Eddu
Siguröardóttur á Auglýsingastofu
Gisla B. Björnssonar.
A laugardaginn var Hitaveita
Suöurnesja formlega tekin i notk-
un, með þvl aö Gunnar Thorodd-
sen iönaðar- og orkumálaráð-
herra sneri hjóli á bráðabirgða-
varmaskiptastöðinni við Svarts
engi, þannig aö heitt vatn tók aö
renna eftir aöveitulögninni til
Grindavikur.
Ráðgert er aö heita vatniö frá
Svartsengi tengist hitakerfum
rúmlega hundrað húsa vestan
Vikurbrautar i Grindavik nú á
næstunni, en áætlaö er að lokið
veröi viö dreifikerfi i Grindavik i
kringum næstu áramót, aö und-
anskildu Þórkötlustaöahverfi og
húsum sem Viölagasjóður reisti i
Grindavik, en þau eru öll raf-
hituö. Þá er reiknaö með að lokið
verði viö 1. áfanga dreifikerfa i
Njarðvik og Keflavik á þessu ári
og hafnar framkvæmdir við 1.
áfanga stofnæöar þar. Alls mun
variö um 890 miljónum króna
þetta ár til framkvæmda, en eins
og fram kom i viðtali við Ingólf
Aöaisteinsson, framkvæmda-
stjóra Hitaveitunnar hér i blaðinu
fyrir skömmu, þá mun verkiö i
heild kosta rúma fimm miljarða,
miðaö viö fullbyggt 90 mw orku-
ver og dreifikerfi i flestar byggðir
á Suöurnesjum auk Keflavikur-
flugvallar.
1 áðurgreindu viðtali var rakinn
langur aödragandi að stofnun
Hitaveitu Suðurnesja og verður
það þvi ekki endurtekið hér, en
eitt af ráðgjafafyrirtækjum hita-
veitunnar, Fjarhitun hf lauk
frumáætlun um Hitaveitu Suður-
nesja i mars 1975 og miðast sú
áætlun viö hitaveitu fyrir öll
sveitarfélög á Suðurnesjum að
Hafnárhreppi undanskildum, en
liklegt er að þar verði ofan á að
rafhita hús á sama taxta og aðrir
greiða fyrir heitt vatn til húsahit-
unar. Aætlun Fjarhitunar var
endurskoðuð i júli si. og náði þá
einnig til Keflavikurflugvallar, en
islenska rikið gerðist eignaraðili
að hitaveitunni að 40 hundraðs-
hlutum á móti sveitarfélögunum
sjö, til að tryggja rétt vallarins til
hitaveitunnar. Heildarstofn-
kostnaður er miðaður við verðlag
i júli 1976 og skiptist þannig:
milj.
Dreifikerfi................. 1896
Aðveituæðar................. 1396
Dreifist. & miðlun........... 310
Virkjun ..................... 1535
Samtals................. 5.137
Eftir opnunarathöfnina við
Svartsengi var boðiö upp á hita-
veitukaffi og meðlæti i Festi,
félagsheimili grindvikinga og
fluttu þar ræður þeir Jóhann Ein-
varðsson bæjarstjóri í Keflavik
og formaður hitaveitustjórnar,
ráðherrarnir Gunnar Thoroddsen
og Matthias Mathiesen og bæjar-
stjórinn i Grindavik, Eirikur
Alexanderson sem einnigá sæti i
hitaveitustjórninni. Þá tók einnig
til máls Ingólfur Aðalsteinsson,
sem bauð gesti velkomna og brá
fyrir sig enskri tungu að auki,
með þvi aðhann bauð sérstaklega
velkominn Jack nokkurn Weir
kaptein af Keflavikurflugvelli,
sem mun vera formaður
„varnarmálaráðs” þar. Meöal
þeirra stórmenna sem saman-
komin voru i Festi voru landeig-
endur að Svartsengi, þingmenn
kjördæmisins og fulltrúar
sveitarfélaganna og ráöherra
kjördæmisins, svo sem áður seg-
ir. Ekki varð séö að neinir þeirra
verkamanna sem að fram-
kvæmdumunnu heföu verið boðn-
ir til hófs þessa.
ráa
Mótmæli gegn námslánastefnu ríkisstjórnarinnar
Útífundur námsfólks
á Austurvelli
kl. 14
I dag kl. 14 gangast ellefu
samtök langskóíanema fyrir
útifundi á Austurvelii, þar sem
námsmenn hyggjast koma á
framfæri kröfum sinum um
breytta stefnu rikisstjórnarinn-
ar í lánamálnm langskólafólks
og mótmæla nýjum úthlutunar.
reglum Lánasjóðs islenskra
námsmanna, þar sem þeir teija
að hlutur barnafólks og fólks af
alþýðuforeidri sé einkum fyrir
borð borinn.
Ræðumenn á fundinum verða
þeir Einar G. Harðarson, sem
fjalla mun um svonefnd K-lán,
sem eru mun óhagstæðari en lán
háskólanema, Ossur Skarphéð-
insson, formaður Stúdentaráðs,
ogGuðmundur Sæmundsson frá
Samtökum islenskra náms-
manna erlendis.
Kjarabaráttunefnd náms-
manna gengst fyrir fundinum,
en að henni standa þrjú
nemendasamtök háskóla-
stúdenta hér heima og erlendis,
skólafélög Tækniskólans,
Vélskólans, Stýrimannaskól-
ans, Fósturskólans, Fisk-
vmnsluskólans, Myndlista- og
handiðaskólans, Iönskólans,
Tónlistarskólans og Leiklistar-
skóia rikisins.
I samtali við össur Skarp-
héðinsson, formann S.H.I., igær
kom það fram, að liklegt væri,
að nemendur menntaskólanna á
Reykjavikursvæöinu myndu
einnig fjöimenna á fund náms-
manna á Austurvelli og að
kjarabaráttunefndinni hefðu
þegar borist stuðningsyfirlýs-
ingar frá samtökum þeirra. Þá
vildi Ossur aö þaö kæmi fram i
þessu sambandi, að samtök
háskólanema hefðu lengi haft
það á stefnuskrá sinni að
nemendur við verkmenntunar-
og listaskóla nytu sömu
lánakjara og háskólanemar og
að hin svonefndu k-lán yrðu
afnumin.
1 siðustu viku fóru nemendur
nokkurra þeirra skóla sem að
framan er getiö i setuverkföll til
að leggja áherslu á kröfur sinar,
en auk þess var boriö út i hús i
Reykjavik dreifirit i 20.000 ein-
tökum, til að skýra þessi mál
fyrir almenningi. Þá var hald-
inn fundur i Félagsstofnun
stúdenta á föstudag, þar sem
samþykkt var verkfallsheimild
til stúdentaráðs og áskorun til
menntamálaráðherra um að
fella úr gildi hinar nýju úthlut-
unarreglur, þá var einnig
samþykkt áskorun til Alþingis
Ellefu samtök
nemenda í
langskólanámi
boða til
fundarins
um að hækka fjárveitingu til
Lánasjóðsins, þannig að fjár-
þörf hans sé fullnægt. Allt var
þetta samhljðða samþykkt.
Ráö er fyrir þvi gert aö
nemendur skólanna gangi
fylktu liði frá skólum sinum á
Austurvöll I dag og veröur lagt
af stað ki. hálftvö. Fundarstjóri
á útifundinum verður Þórður
Yngvi Guðmundsson stúdent.
ráa.
Bjarki Elíasson, yfirlögregluþjónn:
Aðeins hægt að beina
tilmælum til byssusala
Þeim veittist það næsta auð-
velt, byssubófunum sem brutust
inn i Sportval sl. laugardags-
morgun, að ná sér i skotvopn og
skotfæri, sem siðan voru óspart
notuð á árrisula vegfarendur.
Byssurnar voru á sinum stað uppi
á veggjum og skotfæri undir gler-
borðum hér og þar um verslun-
ina. Greint hefur verið i fréttum
frá atburðarásinni, sem varð I
senn hröð og æsandi. Byssumenn-
irnir, sem greinilega hafa fariö
einum of oft i kvikmyndahús und-
anfariö, hörfuðu undan lögreglu-
mönnum skjótandi á hvað sem
fyrir varð, einn braust inn í „rik-
ið” á meðan hinn stóð við hurðina
og hélt óviðkomandi f hæfilegri
fjarlægð með skotvopnum sinum,
og siðan var reynt að kúga bófana
til hlýðni með táragassprengjum
og fleiru.
En ekkertgekk, og það var ekki
fyrr en lögreglumenn brugðu á
þaö ráð að keyra annan mann-
anna niður, að skotbardaga lög-
reglunnar og byssumannanna
lauk. Mikiö vantaði þó upp á að
skotbirgðir bófanna væru á þrot-
um og Þjv. spurði Bjarka Elias-
son yfirlögregluþjón að þvi i gær,
hvernig það mætti gerast, að slik-
ar skotfærabirgðir lægju á glám-
bekk.
— Ennþá eru ekki til nein sér-
stök ákvæði i lögum um meðferð
og geymslu skotvopna i verslun-
um, sagði Bjarki. — Hins vegar
hefur lögreglan beint ákveðnum
tilmælum til verslunareigenda
um geymslu skotvopnanna. Við
gerðum t.d. ákveðnar kröfur um
innréttingar i Sportval og farið
var eftir þéim i hvivetna.
Allar stærri byssur eru t.d.
geymdar þannig, að „pinninn” er
tekinn úr og þvi ekki möguíeiki á
að nota þær. Það er hins vegar
erfiðleikum bundið að gera sllka
aðgerðá haglabyssunum og hefur
þvi verið látið nægja að hafa þær,
eins og allar aðrar byssur, undir
rammgerðri slá og læsingum. I
þessu tilfelli voru innbrotsmenn-
irnir hins vegar vel búnir tækjum
og þeim tókst að rifa allan útbún-
Bjarki Eliasson.
aöinn af veggjunum og ná þannig
þeim byssum sem þeir höföu
augastað á.
Bjarki sagði, að nú lægi fyrir
alþingi frumvarp um meðferð
skotvopna og afhendingu byssu-
leyfa. I þvi yrðu væntanlega skýr
ákvæði um geymslu skotvopna i
verslunum.
— gsp
Varað við
skordýra-
eitri
Um nokkurt skeiö hefur veriö á
markaði hér á landi skordýraeit-
ur I sérstökum umbúðum er ber
vöruheitið „Vapona Casette”. Er
hér um að ræða hylki úr ljósu
plasti meö fjórum strimlum er
hafa að geyma hið virka efni.
Vara þessi hefur verið á boöstól-
um I mörgum bensinafgreiðslu-
stöðvum og nokkrum verslunum
viösvegar á landinu. Hylki þessi
hafa verið seld án samþykkis
heilbrigðisyfirvalda.
Heilbrigðiseftirlit rikisins hefur
nú ákveðið aö krefjast innköllun-
ar vöru þessarar úr verslunum.
Þar eð efni það sem um er aö
ræða gæti verið hættulegt fólki, er
öllum þeim er hafa slik hylki und-
ir höndum ráðlagt aö hætta þegar
notkun þeirra og fjarlægja úr hi-
býlum sinum.