Þjóðviljinn - 09.11.1976, Qupperneq 13
Þriðjudagur 9. nóvember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Ekki get ég sagt að siðustu
fréttir frá ólympiuskákmótinu I
Haifa hafi orðiö til þess að auka
bjartsýni mina um bærilegan ár-
angur Islensku sveitarinnar. Tap
fyrir Walesbúum og sveitin kom-
in niöur I 18.-23. sæti. Annars er
engin skömm að tapa fyrir
Walesbúum. Þeir eiga mörgum
góöum skákmönnum á að skipa
og komust f A-úrslit á ólympfu-
mótinu i Nizza 1974.
UL YMPWSKÁKMÖ mh
Slæmt tap
í 2. umferð
41. leik. Þess skal að lokum getið,
að Toth er alþjóðlegur meistari.
Hann er ekki itali heldur ung-
verji, sem fluttist til ttaliu fyrir
skömmu).
Umsjón: Jón Þ. Þór
En þaö var 2. umferöin, sem
hér er til umræöu. 1 henni tefldu
landar við itali og fengu slæman
og óvæntan skell: töpuðu 1-3.
Guömundur og Margeir gerðu
jafntefli á 1. og 4. borði, en Helgi
og Magnús töpuöu á 2. og 3. Guð-
mundur tefldi viö alþjóðlega
meistarann Tatai og var samið
jafntefli eftir aðeins tólf leiki.
Margeir tefldi sama afbrigði
gegn kóngsindverskri vörn sfns
andstæðings og hann beitti gegn
Friðrik ólafssyni I Reykjavíkur-
mótinu á dögunum. Margeir hafði
allan timann öllu rýmri stöðu, en
eftir að hafa leikiö ónákvæmum
biðleik átti hann ekkert betra en
að semja jafntefli. Töp þeirra
Helga og Magnúsar áttu rót aö
rekja til slakrar byrjunartafl-
mennsku. Við skulum lfta á byrj-
unina I skákunum tveim:
Hvitt: Helgi ólafsson
Svart: B. Toth (italiu)
Enskur leikur
1. c4 — e5, 2. Rc3 — Rf6, 3. g3 —
d5, 4. cxd5 — Rxd5, 5. Rf3 — Rc6
6. d4?
(Tapleikurinn! Ekki veitég hvaö
hefur komið Helga til þess að
leika þessum leik. Hann er of
reyndur og lærður skákmaöur til
þess aö svona mistök eigi aö geta
hent hann).
6. — Bb4!
(Einmitt! Nú verður hvitur að
taka eitt vald af reitnum d4). .
7. Bd2
(Eða 7. Dd3 — exd4, 8. Rxd4 —
Rxc3,9. bxc3 — Dxd4, 10. Dxd4 —
Rxd4 og öll járn standa á hvit-
um).
7. —exd4, 8. Rb5 — Bc5, 9. Da4 —
0-0, 10. Dc4 —Be7, 11. Rbxd4 —
Rxd4, 12. Rxd4
(Hvftur hefur komist hjá peðs-
tapi, en hann hefur tapað of
mörgum leikjum).
12. — Bf6, 13. Bc3 — He8, 14. Hdl
(Ekki 14. Bg2 vegna 14. —Rb6! og
vinnur mann (15. Dd3 — c5!)).
14. — Rxc3, 15. bxc3 — De7, 16.
Hd3
(Enn gathviturekki leikiðBg2, nú
vegna 16. — c5 og siðan Bxc3+).
16. — Da3!, 17. Bg2 — Be6, 18.
Dxc7 — IIac8, 19. Df4 — Bxd4, 20.
Dxd4 — Bc4, 21. 0-0
(Helgi tekur þann kost að reyna
að bliðka goðin með skiptamuns-
fórn, en það bar engan árangur.
Svartur nýtti yfirburði sina til
hins itrasta og vann örugglega i
Og þá er það skák
Magnúsar
Hvitt: A. Grinza
Svart: Magnús Sólmundarson
Móttekið drottningarbragð.
1. d4 — d5, 2. c4 — dxc4, 3. Rf3 —
Rf6, 4. e3 — e6, 5. Bxc4 — a6, 6. a4
— c5, 7. 0-0 — Rc6, 8. De2 — Cxd4,
9. Hdl — Be7.
(Nákvæmara var 9. — d3!).
10. exd4 — Dc7. 11. Rc3 — 0-0, 12.
Bg5 — Hd8 (?).
(Enn leikur svartur ónákvæmt.
Betra var 12. — Rb4).
13. d5!
(Opnar linurnar sér i hag).
13. — exd5, 14. Rxd5 — Rxd5, 15.
Bxd5
2 q n Q B
i 30 i i i
s §§ 4 Q Q
Q g ■ 3
Ai n Q Q A Q
Q §§ Q
Q Q H §j
#■§ §§ s Q §g
15. — Bg4?
(Slæmur afleikur. Eftir 15. — h6,
16. Bxe7 — Rxe7, 17. Ba2! væri
svarta staðan erfið, en þó tefl-
andi).
16. Bxe7 — Rxe7, 17. Bxf7+!
(Þar lá hundurinn grafinn! Eft-
ir 17. — Kxf7 kæmi nú 18. Re5+ og
biskupinn á g_4 fellur. Magnús lék
hér 17. — Kh8, en hvitur vann
endataflið i 53. leik eftir harð-
vituga mótspyrnu svarts).
Vestur-þýski stórmeistarinn
Wolfgang Unzicker hefur lengi
verið í fremstu röð skákmanna i
heiminum. Henn hefur ekki teflt
mikið aö undanförnu en teflir nú á
1. borði fyrir land sitt i Haifa. Hér
sjáum við hvernig hann sigraði
kunningja okkar Heikki
Westerinen i 2. umferö:
Hvitt: W. Unzicker
Svart: H. Westerinen
Spænskur leikur
1. e4 —e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bb5 —
a6, 4. Ba4 —d6, 5. 0-0 — Bd7, 6. c3
— Rf6, 7. d4 — Be7, 8. Rbd2 — 0-0,
9. Hel —He8, 10. Rfl —h6, 11. Rg3
— Bf8, 12. h3 — g6, 13. Bc2 — Bg7,
14. Be3 — a5, 15. Dd2 — Kh7, 16. d5
— Re7, 17. c4 — Hf8, 18. Habl —
Rfg8, 19. Rh2 — f5, 20. f4 — fxe4,
21. fxe5 — Bxe5, 22. Rxe4 — Rf5,
23. Bf2 — Rf6, 24. Rf3 — Rxe4, 25.
Hxe4 — Bf6, 26. Hbel — Hf7, 27.
Dd3 — Hg7, 28. Hf4 — Bg5, 29.
Rxg5H----Dxg5, 30. Df3 — Hf8, 31.
Hf 1 — Haf8, 32. h4 — Df6, 33. h5 —
He5, 34. hxg6H--Dxg6, 35. Bd4 —
Hf7Í 36. Bxe5 — dxe5, 37. Hxf5gef-
ið.
Og sem ég er að nudda stirurn-
ar úr augunum á köldum mánu-
dagsmorgni segir þulurinn i
morgunútvarpinu, að israelsku
konurnar hafi tryggt sér sigur i
kvennaflokki, þótt enn sé ein um-
ferö eftir. Þær hafa hlotið 14.5 v.,
ennæstu sveitir 11. í kvennaflokki
er teflt á þremur borðum og fyrir
Israel tefla þær Alla Kushnir, L.
Kristol og Olga Podrajanskaja.
Engin deili kann ég á tveim þeim
siðasttöldu, en Kushnir hefur
þrisvar teflt við Gaprindaschvili
um heimsmeistaratitil kvenna,
1965, 1969 og 1972. Siðast tapaði
hún aðeins 8,5-7,5. Kushnir er
rússnesk,fædd i Lettlandi, og hin-
ar tvær munu einnig vera rúss-
neskir gyðingar. En meðal ann-
arra orða, hvernig stóö á þvi að
islensk kvennasveit fór ekki til
Haifa?
lT
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnirkl. 7.00, 8.15og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Kristin Sveinbjörns-
dóttir les framhald sögunn-
ar „Aróru og pabba” eftir
Anne-Cath. Vestly (8). Til-
kynningar kl. 9.30. Þing-
fréttirkl. 9.45. Létt lög milli
atriða. Hin gömlu kynni kl.
10.25: Valborg Bentsdóttir
sér um þáttinn. Morguntón-
leikarkl. 11.00: Hljómsveit-
in Harmonien i Björgvin
leikur Tvær norskar rapsó-
diur nr. 1. op. 17 og nr. 2 op.
19 eftir Johan Svendsen,
Karsten Andersen stjórnar/
Sinfóniuhljómsveit útvarps-
ins i Moskvu leikur Sinfóniu
nr. 1 i Es-dúr eftir Alexand-
er Borodin, Gennadi
Rozdestvenski stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Við vinnuna:
Tónleikar.
14.25 Spjall frá Noregi.Ingólf-
ur Margeirsson kynnir
norskan djass, þriðji þáttur.
15.00 Miðdegistónleikar.Janet
Baker syngur „Kinder-
totenlieder” eftir Gustav
Mahler við ljóð eftir Fried-
rich Ruckert. Hallé hljóm-
sveitin leikur með, Sir John
Barbirolli stjórnar. FII-
harmoniusveitin I Los
Angeles leikur „Dýrðar-
nótt”, sinfóniskt ljóð op. 4
eftir Arnold Schönberg, Zu-
bin Metha stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.30 Litli barnatiminn.Finn-
borg Scheving stjórnar
, timanum.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Vinnumái, — þáttur um
lög og rétt á vinnumarkaöi
Arnmundur Backman og
Gunnar Eydal sjá um þátt-
inn.
20.00 Lög unga fólksins. Asta
R. Jóhannesdóttir kynnir.
20.40 Frá ýmsum hliöum
Hjálmar Arnason og Guð-
mundur Árni Stefánsson sjá
um þáttinn.
21.15 „Sú gata er einn þú geng-
ur...” Dagskrárþáttur um
Magnús Asgeirsson skáld.
Hjörtur Pálsson talar um
Magnús og ævistarf hans.
Kristin Anna Þórarinsdóttir
og Andrés Björnsson lesa úr
ljóðum Magnúsar og ljóða-
þýðingum og sungin verða
lög við þær. Kynnir: Gunnar
Stefánsson.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Minningabók Þorvalds
Thoroddsens”Sveinn Skorri
Höskuldsson les (7).
22.40 Harmonikulög.Henri Co-
ene og félagar hans leika'.
23.00 A hljóöbergiDanska teik-
konan Clara Pontoppidan
rif jar upp gamlar minning-
ar, leikur og les nokkur
eftirlætiskvæði sin.
23.40 Fréttir. Dagskrárlok.
sjónvarp
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Munir og minjar. Minja-
safnið i Skógum.Mynd um
byggðasafn Rangæinga og
Vestur-Skaftfellinga i Skóg-
um undir Eyjafjöllum.
Þórður Tómasson safnvörð-
ur gengur um safnið og sýn-
ir ýmsa forvitnilega muni.
Stjórn upptöku Rúnar
Gunnarsson.
21.35 Columbo. Bandariskur
sakamálamyndaflokkur.
Crslitakostir Þýðandi Jón
Thor Haraldsson.
22.45 Utan úr heimiÞáttur um
erlend málefni ofarlega á
baugi. Umsjónarmaður Jón
Hákon Magnússon.
23.15 Dagskrárlok.
Nýr sími Þjóöviljans frá
og meö 1. nóvember er
81333
Minning
Hrafn Guðlaug sson
Fœddur 13.7.1945 - Dáiun 31.10.1976
Hrafn verður jarösunginn i dag
kl. 3, frá Hallgrimskirkju. Hann
lést af slysförum við vinnu sina i
Þorlákshöfn, aðfaranótt sunnu-
dagsins 31. okt. s.l„ aðeins 31 árs
að aldri og lætur eftir sig konu og
tvö börn, tveggja og þriggja ára.
Hrafn fæddist i Reykjavik 13.
júli 1945. Hér ólst hann einnig upp
hjá foreldrum sinum, Astu
Guðjónsdóttur og Guðlaugi E.
Jónssyni, lengst af i Heiðargerði
116. Að loknu gagnfræðaprófi
vann Hrafn almenna verka-
mannavinnu. Um skeið var hann
til sjós. Fyrst á togurum, siðan á
flutningaskipum, lengst hjá
Rikisskip. Eftir það fór hann að
vinna á ýmiskonar vinnuvélum i
landi. Árið 1969 lærði Hrafn
sprengingar og vann við þær upp
frá þvi. Hjá Steindóri Sighvats-
syni til 1973 en siðan hjá Istaki h/f
til dauðadags. Hjá Istaki vann
Hrafn að mörgum stórum og oft
erfiðum verkefnum svo sem við
sprengingar á heitu hrauni við
hreinsun Vestmannaeyjabæjar,
við hafnargerð i Grindavik og
Þorlákshöfn og við stækkun
Mjólkárvirkjunar nú i sumar.
Hrafn var mjög áhugasamur við
störf sin og við aö afla sér fróö-
leiks, sem að þeim laut. Ég held
lika aö óhætt sé að fullurða, að
hann hafi náð frábærum árangri
á sinu sviði.
Hrafn var nýlega kominn vest-
an úr Mjólkárvirkjun, aftur til
Þorlákshafnar, til að ljúka við
verkefnið þar. Við uppgröft og
mælingar i höfninni haföi komið i
ljós einhver klapparhryggur, sem
nauösyn þótti að sprengja þennan
sunnudag, á meðan dýpkunar-
skipiö var ekki aö störfum. Verk
þetta átti að hefjast á sunnudags-
morgun. Áður þurfti að flytja
beltabor, sem notaður er til að
bora sprengiholur, út i vélbátinn
Stakk, sem lá þarna við bryggju.
Það var gert á háflæðinu, uppúr
miðnætti. Borinn var kominn út i
bátinn en valt þá, einhverra hluta
vegna, ofan af lestarlúgu, sem
hann stóð á. Bor þessi mun vera
yfir 4 tonn á þyngd og viö veltuna
varð Hrafn á milli hans og vatns-
geymis, sem stóð á þilfarinu og
lét þar lifið.
Eins og við vinnu sina var
Hrafn áhugasamur um önnur
mál, sem honum fannst sig varða.
Hann var t.d. virkur félagi i
stéttarfélagi sinu, Dagsbrún,
alveg frá unga aldri. Hrafn giftist
eftirlifandi konu sinni, Steinunni
Sigurðardóttir, árið 1973. Hún er
nú ekkja, aðeins 28 ára gömul.
Dóttir þeirra Sigriöur Guðbjörg
er fædd árið 1973 en sonurinn,
Guðlaugur er fæddur árið 1974.
Þau Steinunn bjuggu i eign ibúð
að Möðrufelli 9 i Reykjavik.
Það er sárt að þurfa að kveðja
þig svona fljótt, sonur sæll. Fyrir
konuna þina og blessuð börnin,
sem reyndar hafa enn ekki skilið
það sem skeð hefir og hvers
vegna pabbi þeirra kemur ekki
heim. Fyrir okkur foreldra þina
og systkini, sem höfum þó lerigur
notið samvista við þig. Einnig
fyrir annað skyldulið og góða
vini. Okkar huggun verður að
vera minningin um góðan eigin-
mann og fööur, um heilstevptan
oggóðan dreng. En sú minning er
mikils virði. Við þökkum hjartan-
lega fyrir samverustundirnar,
sem við þó fengum að njóta og
sendum þér öll okkar hinstu og
bestu kveðjur.
Vinum og vandamönnum, for-
ráðamönnum tstaks h.f. og séra
Jakobi Jónssyni þökkum við sam-
úð og hjálp.
Guðlaugur E. Jónsson.