Þjóðviljinn - 09.12.1976, Qupperneq 5
Fimmtudagur 9. desember 1976 ÞJÓDVILJINN — SIÐA
ÍSIGUKWS
MOLDINNE
QLITRAR
GÚULIÐ
Hroíntkílnar og opimkáar togui úr lor-
um wvintýrumunntíni og irát«gnartniii-
íngtim t«m tkriiaOi Ldttaróna, lmigr«ni«
og Nú ur trélólur Oaudur.
bækur
Saga frá Skag-
firðingum
Á vegum IBunnar er komiö út
fyrsta bindi ritverksins Saga frá
Skagfiröingum.sem er viöamikiö
heimildarrit i árbókarformi um
tiöindi, menn og aldarhátt i
Skagafiröi 1685-1847, en jafnframt
nær frásögnin i og meö til ann-
arra héraða, einkum á Noröur-
landi. Jón Espólin sýslumaður er
höfundur verksins allt fram til
ársins 1835, en siðan Einar
Bjarnason fræðimaöur á Mæli-
felli og gerist frásögnin þvi fyllri
og fjölbreyttari þvi nær sem
dregur i tima.
Saga frá Skagfirðingum ber öll
sömu höfundareinkenni og Ár-
bækur Espólins, jafnt um efnistök
sem mál og stil. Þaö bindi verks-
ins, sem nii birtist, nær til ársins
1786. Þar segir margt frá fyrir-
mönnum i héraðinu, bæði andleg-
ar og veraldlegrar stéttar t.d.
Hólabiskupum öllum á timabilinu
og sýslumönnum, ekki sizt Skúla
Magnússyni siðar landfógeta.
Jafnhliða er greint frá helztu bú-
endum og ættkvislum. Af sögu-
legum atburðum má nefna bruna
Reynistaðar, likamáið og hvarf
sr. Odds á Miklabæ.
Kristmundur Bjarnason fræði-
maður á Sjávarborg hefur samið
ýtarlegar skýringar og viðauka
við verkið, sem færa söguna nær
nútímanum. Auk Kristmundar
annast útgáfuna Hannes Péturs-
son skáld og ögmundur Helgason
BA.
Vogun vinnur
Vogun vinnur heitir bók sem
Skuggsjá gefur út. Hún hefur að
geyma sjálfsævisögu nýsjálenska
ævintýra- og fjallgöngumannsins
Edmund Hillarys sem ma. vann
það afrek árið 1953 að verða fyrst-
urmanna til að stiga fæti sinum á
hæsta fjall jarðar, Everestind i
Himalajafjöllum.
HersteinnPálsson þýddi bókina
sem 256 bls. prýdd myndum og
kortum af söguslóðum. Bókin er
sett og prentuð hjá Skuggsjá en
bundin i Bókfelli hf.
Um sjósókn á
Breiðafirði
Crterkominá vegum Skuggsjár
bókin „Breiðfirskir sjómenn” og
er höfundur hennar Jens Her-
mannsson kennari. Hefur hann
safnað saman og samið frásögur
af sjósókn á Breiðafiröi og mynda
sögurnar að nokkru leyti heildar-
sögu af sjósókn á svæðinu.
Sagt er frá sókn á opnum bátum
við erfiðar aðstæður og má segja
að nær hvert ár 18. og 19. aldar
,,sé vigt skipstöpum og hrakning-
um þar sem hinar horfnu hetjur
buðu óbliðum örlögum byrginn,
æðru- og óttalaust” eins og segir á
bókarkápu.
/ svölum skugga
t svölum skugga heitir skáld-
saga eftir Steinunni Þ.
Guðmundsdóttur sem höfundur
gefur út á eigin kostnað. Er þetta
önnur bók Steinunnar, sú fyrri
kom út árið 1972 og bar heitið
Dögg i spori.
A bókarkápu segir m.a. eftir-
farandi: Sögusviðið er frjálst og
óþvingað, Mildur tónn náttúrunn-
ar fellur yfir menn og málefni. —
Frá Hœstarétti
að Hrafnistu
Skuggsjá hefur gefiö út endur-
minningabrot úr fórum Sigurðar
Haralz, sem Kormákur Sigurðs-
son hefur skrifað. Nefnist bókin
„1 moldinni glitrar gullið” og er
hún 223 siður að stærð. Sam-
kvæmt upplýsingum á bókarkápu
er þarna að finna hreinskilnar og
opinskáar sögur úr fórum ævin-
týramanns og frásagnarsnillings,
sem skrifaði Lassaróna,
Emigranta og Nú er tréfótur
dauður.
Sigurður Haralz fæddist árið
1901 i húsinu „Hæstiréttur”, sem
stóð við Gr jótagötu og hafði i eina
tið þá virðulegu stofnun innan
sinna veggja. Er Sigurði siðan
fylgt i gegnum lifið allt til dagsins
i dag, en hann dvelst nú á Hrafn-
istu.
Helgi skoðar
heiminn
A yfirlitssýningu Halldórs
Péturssonar listmálara 3 sl.
hausti varð hinum fjölmörgu sýn-
ingargestum starsýnt á. röð lit-
mynda, sem sýndu ungan dreng,
hestinn hans og hundinn við ýms-
ar aðstæður og harla ævintýra-
legar, enda voru myndir þessar
bæöi skemmtilegar og listavel
gerðar.
Nokkrum mánuöum áður en
sýningin var haldin hafði það orð-
ið að ráði milli Halldórs og bóka-
útgáfunnar Iðunnar að leita eftir
þvi við Njörð P. Njarðvik lektor
að hann semdi sögu, er félli að
þessum myndum. Féllst hann á
að takast það verk á hendur, en
Halldór jók við litmyndum á
spjöld bókarinnar og saurblöð,
svo og mörgum svarthvitum
teikningum i samræmi við texta
Njarðar. Myndirnar voru lit-
greindar i Prisma s.f. i Hafnar-
firði, en bókin siðan prentuð og
bundin i Englandi.
Nú er þessi fallega bók komin á
markað og mun eiga eftir að
gleðja augu margra bæði barna
og fullorðinna, enda stendur hún
fyllilega jafnfætis þvi, sem best
' er gert erlendis I útgáfu hlið-
stæðra bóka handa börnum.
Úr fórum Stefáns
Vagnssonar frá
Hjaltastöðum
Bókaútgáfan Iðunn hefur sent á
markað bókina tir fórum Stefáns
Vagnssonar frá Hjaltastöðum.
Þetta er mikið rit, tæpar 400 bls.
að stærð, prentað i prentsmiðj-
unni Odda hf. og bundið i Sveina-
bókbandinu.
Stefán Vagnsson (1889-1963),
sem kenndi sig við Hjaltastaöi i
Blönduhlið, er mörgum kunnur
fyrir visnagerð sina og þjóðlegar
frásögur, þótt hann sendi ekki frá
sér bók i lifanda lifi. Sumar stök-
ur hans urðu landfleygar, og
sýnishorn af sögum, sem hann
skrásetti, birtust m.a. i Grá-
skinnu, safni þeirra Sigurðar
Nordals og Þórbergs Þórðarson-
ar. úrfórum Stefáns Vagnssonar
er stórt safn af lausu máli og
bundnu, og hefur drýgstur hluti
þess hvergi verið prentaður áður.
Stefán Vagnsson var ágætlega
ritfær og manna gamansamast-
ur, þar sem það átti við. Varpar
bókin skýru ljósi á einkenni hans
sem höfundar. 1 inngangi eru
birtar greinar um Stefán eftir Jón
Sigurðsson á Reynistað og Sigurð
Nordal, eh Hannes Pétursson
valdi bókarefnið og bjó til
prentunar.
Sveinbjörn gef-
ur út lausavísur
Sveinbjörn Beinteinsson, Drag-
hálsi, hefur gefiö út safn lausa-
visna, sem ætlað er að vera sýnis-
horn af lausavisnagerð fyrr og
nú. 1 formála segir Sveinbjörn
m.a.: Visan hefur löngum veriö
tryggur förunautur i bliðu og
striðu og svo má enn vera. I þess-
ari sýnisbók ætti hver og einn að
geta fundið nokkuð við sitt hæfi og
þá rifjað upp margar visur sem
hér vantar. Það hefur tekið mig
langan tima aö safna i þessa bók
úr prentuðum ritum, timaritum,
blöðum og fjöldamörgum hand-
ritum. Samt er hér um enga
Sveinbjörn Beinteinsson.
heildarmynd að ræða þvi viða eru
visurnar á ferðinni.”
Bókin er 190 siður i litlu broti.
Letur h.f. fjölritaði.
Til gamans látum við fljóta
með eina visu eftir Pál ólafsson.
Áður heldur en ég dey
ættir þú að lofa
einhverntima Margrét mey
mér hjá þér að sofa.
Afmœlisrit
Ungmenna-
félags Selfoss
Úter komið veglegt afmælisrit
Ungmennafélags Selfoss, sem
stofnað var árið 1936 og er þvi
fjörutiu ára á þessu ári. Páll
Lýðsson skrifaði bókina og er hún
320 blaðsiður að stærð. Útgefandi
er ungmennafélagiö sjálft.
Sagt er frá ferðum afreksfólks
ungmennafélagsins til annarra
landa en margir skemmtilegir
hrakfallabálkar koma lika við
sögu og ógleymanlegum myndum
er brugðið upp af stærstu stund-
um afreksmanna félagsins.
—HÖFUM OPNAÐ^
sportmagasm á tveimur hæðum í húsi Litavers við Grensásveg 22
Allar tegundir af sportvörum, m.a. iþróttaskór, Adidas
og Göla. Dunlop iþróttavörur.
íþróttatöskur allar gerðir og margt, margt fleira.
Allar stærðir af bolum. Allt fyrir vetrarsport.
Skiði, skautar og snjóþotur. Skiptum á notuðum og nýj-
um skautum.
Allt fyrir hestamenn, reiðtygi, allar ólar og gjarðir.
Allar tegundir af skeifum, m.a. skaflajárn.
Allar stærðir af byssum og skotfærum.
Allt fyrir sport- og veiðimenn.
ódýru barnaskiðasettin eru komin. 3.775 kr. settið.
jólagjafa
Allt til
Nýtt glæsilegt sportmagasin hefur verið opnað i húsi Litavers við Grensásveg 22. Næg bilastæði.
Sportmagasínið Goðaborg hf.
Sími 81617 — 82125