Þjóðviljinn - 09.12.1976, Síða 9
Fimmtudagur 9. desember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Velheppnað fræðslustarf
ungtemplara
Rætt um eiturlyf og
aöra vímugjafa viö
gagnfræöanema
íslenskir ungtemplarar hafa i
vetur fengið með sér valda nem-
endur úr gagnfræðaskólum
höfuðborgarsvæðisins á þriggja
daga námskeið um vimugjafa.
Voru námskeiöin haldin i ölfus-
borgum og i Kópaseli i Lækjar-
botnum og voru 20 til 30 nemend-
ur á hverju námskeiði. Leiðbein-
endur voru allirfengnir úr röðum
ungtemplarahreyfingarinnar.
A þessum námskeiðum var
einkum lögð áhersla á aö gefa
hlutlausar upplýsingar um inni-
hald ýmisskonar vimugjafa og
fikniefna. Minna var lagt upp úr
umræðum um afleiðingar neyslu
þeirra og var nemendunum gef-
inn kostur á að ráða námsleiðun-
um að verulegu leyti. Fengu þeir .
sjálfir að taka þátt i undirbúningi
námskeiðisins og skipulagningu
þess og var reynt að hafa dvölina
i ölfusborgum og Kópaseli sem
frjálslegasta.
Þjv. ræddi fyrir skömmu við
þrjá þátttakendur á námskeiði i
Kópaseli. Voru það þau Bjarni
Eiriksson, Kristin Þorsteinsdóttir
og Ingibjörg Gunnlaugsdóttir.
Þau sögðust öll hafa farið þangað
fyrst og fremst fyrir forvitnis
sakir og voru sammála um að þau
hefðu komiö miklum mun fróðari
heim.
— Þetta var alveg stór-
skemmtilegt og fróðlegt, sögöu
krakkarnir. — Við fengum ao
ráða ferðinni sjálf að miklu leyti
og þegar námið var búið á hverj-
um degi voru haldnar kvöldvök-
ur, sem við sáum sjálf um. Við
getum örugglega sagt félögum
okkar i skólunum sitt af hverju
um eiginleika þessara algengustu
vimugjafa eftir að hafa fariö á
námskeiðið.
Ályktanir
Nemendur i ölfusborgum
dagana 12.-15. nóvember voru af-
ar áhugasamir og sendu m.a. frá
sér eftirfarandi ályktanir
Ályktun um fikniefna-
mál
1. Fjölga ber verulega
mannafla i Finiefnadeild lögregl-
unnar.
2. Bæta skal tækjakost Fikni-
efnadeildarinnar eftir þörfum.
Ljóst er að deildin er mjög van-
búin tækjakosti.
3. Allir þeir peningar sem tekn-
ireru við sölu eða kaup á fikniefn-
um eiga að renna til rannsókna á
fikniefnamálum.
4. Herða ber eftirlit með útgáfu
lyfseðla á róandi lyfjum.
5. Þyngja skal refsingar fyrir
smygl og sölu fikniefna.
6. Gefa skal lögreglunni frjáls-
ari hendur við rannsóknir á f&ni-
efnamálum.
Morgunveröur i ðlfusborgum.
Þessu til stuðnings bendum við
á eftirfarandi:
a) Ofneysla eiturlyfja hér á landi
er staðreynd I stað bindindis-
fræðslu ætti að koma fræðsla
um eðli og verkanir vfmugjafa
almennt.
Kristin, Bjarni og Ingibjörg voru ánægö með ferð sina upp i
Lækjarbotna.
7. Auka ber fræðslu um eðli og
verkanir vimugjafa.
8. F jölmiðlar mættu f jalla meir
um fíkniefni.
Um bindindisfræðslu
Reglugerð um bindindisfræðslu
sem gefin var út árið 1956 er löngu
úrelt.
b) Okkar reynsla er sú, að þvi
sem næst engin fræðsla eigi sér
stað i skólakerfinu um vimu-
gjafa.
c) Til þess að slik fræðsla nái sem
bestum árangri, er nauðsyn-
legt að draga fram raunveru-
leikann t.d. i formi kvik-
mynda. Fræðsla um vimu-
gjafa skal fyrst og fremst vera
hlutlæg. Leggja skal rika
áherslu á hópvinnustörf svo
virkja megi sem flesta nem-
endur.
Að ofangreindu er ljóst að
reglugerð þessi þarf þegar i stað
gagngerðar endurskoðunnar.
Silja Aðalsteinsdóttir skrifar um barnabækun
Er eitthvað að breytast?
Kout Odcgárd
Fugl og draumur
Alveg er ég orðin yfir mig
hlessa hvað bækurnar sem mér
berast þessa dagana eru firna
vandaðar. Er mér ef til vill farið
að förlast i ellinni eða er ástandið
að breytast til batnaðar? Hver
bókin af annarri er prentvillulaus
— hér áður fyrr var alltaf viss
prentviliuskammtur á bók.
Myndskreytingar hafa stórskán-
að. Og efnið: Allar bækurnar sem
ég hef fengið i hendur þessa
vertið eru um eitthvað sem máli
skiptir.
Þessar bækur eru lika lausar
við stimpilinn drengjabók,
stúlknabók. Þær eru allar
skrifaðar fyrir bæði kynin jafnt,
enda búa drengir og stúlkur við
lik kjör i nútimasamfélagi og
eðlilegt að gefa út bækur sem ná
til allra.
Nú veit ég að þau Frank, Jói og
Nansi eru ennþá virk i baráttunni
við lögbrjóta ásamt félögum sin-
um f sögum Enidar Blyton og
fylgismanna hennar, þótt mér séu
ekki sendar þær bækur. En von-
andi stefnir þróunin i átt frá þeim
og öðrum f jöldaframleiddum for-
múlubókum, og þvi ber að fagna.
Efni pistilsins i dag eru tvær
sögur sem sæta nokkrum tiðind-
um, hvor á sinn hátt.
Helgi skoðar
heiminn
myndir: Halldór Pétursson
saga: Njörður P. Njarðvik
Iðunn, 1976, verð kr. 1380
Ætli hérsé ekki komin jólagjöf-
in handa vinum yöar erlendis, ef
þeireruyngri en 10 ára? Sigild is-
lensk sveitalifssaga um litinn
dreng, sem býr i torfbæ og fer i
ferðalag með hesti og hundi,
myndskreytt af þekktasta og af-
kastamesta teiknara landsins.
Þetta hljómar ef til vill ekki sér-
staklega uppörvandi, en þegar
nánar er að gætt er margt óvenju-
legt við þessa bók. Myndirnar eru
mun betur unnar en annað sem ég
hef séð af myndskreytingum i
barnabókum eftir Halldór
Pétursson. Margar myndirnar
eru skemmtilegar og lifandi t.d.
þar sem hryssan Fluga fælist
(ekkert blaðsiðutal i bókinni).
Yfirlitsmyndin af ferðalagi Helga
á fyrstu opnunni er bráðsniðug og
gagnleg, einkum þegar sagan er
lesin fyrir mjög litil börn, þau
átta sig vel á gangi mála þegar
búið er að útskýra þá mynd fyrir
þeim.Loks ersvo myndinaf tröll-
unum i hrauninu undir lok bókar
bæði frumleg og frábærlega vel
gerð.
Að visu hafa myndirnar lika
nokkur af leiðinlegri einkennum
mynda Halldórs. Strákurinn
Helgi er ófriðari á sumum mynd-
unum en dæmi eru til meö islensk
börn. Svo er eitthvertósamræmi i
myndunum sem mér gengur illa
að sætta mig við. Ég get ekki bet-
ur séð §n strákurinn sé á galla-
buxum og gúmmiskóm, en hins
vegar er mamma hans (þar sem
hún stendur i dyrum torfbæjar-
ins) i vaðmálspilsi með svuntu og
sjal.
En þetta eru smáatriði miðað
við hvað börn geta unað sér við að
lesa úr myndunum. Þvi ber aö
leggja höfuðáherslu á það sem
gott er um þær að segja.
Myndirnar urðu til áður en sag-
an var skrifuð og hlýtur Niröi P.
Njarövik að hafa verið vandi á
höndum að skrifa sjálfstæöa sögu
kringum þær. Það hefur honum
hins vegar tekist afbragðsvel.
Sagan getur alveg staðið án
myndanna og bætir miklu við
þær, auk þess sem hún er hýr og
hlýleg, verulega lipur i upplestri
og kemur efni sinu vel til skila.
Njörður leggur út af þvi megin-
þema að maðurinn búi ekki einn
að náttúrunni. Hvar sem Helgi
kemur á skoðunarferð sinni um
heiminn er lif fyrir: mófugl i mó,
sjófugl við sjó, álft á heiði, örn i
kletti. Og Helga skilst að þetta lif
þarf að virða ef lifa á I friði i
heiminum hans. Þessi saga flytur
þvi mjög svo raunhæfan boðskap
börnum nútimans þótt myndbún-
ingur hennar sé gamaldags.
Fugl og draumur
Knut ödegard
Frits Solvang myndskreytti
Einar Bragi islenskaði
Letur, 1976, verð kr. 840
Tvö ljóðskáld leggja saman
hugvit og málsnilld í þessari
barnabók, enda ér hún engri ann-
arri bók lik sem ég hef lesiö. 1
rauninni er hún eins og ljóð i ó-
bundnu máli, undurfallegt ljóð
handa börnum:
„Fyrst er nótt í herbergi Möggu
og Helgu.
Inn um rifu á gluggatjaldinu
gægist máninn, stór og búldúleit-
ur og likist gulu auga á himnin-
um. Þær sofa undir tungli og
stjörnum, þangað til sólin vaknar
og bústin býfluga flýgur drynj-
andiinn um hálfopinn gluggann.”
(bls. 8)
En þetta ljóö er ekki bara um
býflugur, sól og mána, það er um
veruleika i verkamannaflokk þar
sem starfsmenn Álverksmiðju
búa ásamtfjölskyldum slnum. Og
Frii* &ilvanj
myntliíkreitt:
sá veruleiki er ekki alltaf falleg-
ur, hvað sem sagt er frá honum á
ljóðrænan hátt.
Magga er vitundarmiðja sög-
unnar, sagan er upprifjun hennar
á örlagariku sumri i lifi hennar og
fólksins hennar. Frásögnin verð-
ur nokkuð flókin fyrir börn vegna
þess hvað timinn er ruglingsleg-
ur, einkum framan af, en ekki
held ég það komi að sök.
Snemma þetta sumar fundu
Magga og Sifa vinkona hennar
dauðan fugl á götunni, sem þær
jarða, syngja og gráta yfir. Fugl-
inn verður eins konar tákn um
fallvaltleika lifsins og forspá þess
sem koma skal. Að kvöldi sama
dags heyrir Magga i fyrsta sinn
foreldra sina tala um veikindi
föðurins gegnum þilið þegar hún
er að sofna.
Það er mikil mannvonska í
þessari sögu. Þar er sagt frá
strákum sem pissa á hjól meðan
stoltur og sár eigandi horfir á.
Þar er sagt frá húsverði og öðru
fólki i blokk, sem er sifellt með
reglur á vörum, reglur sem fyrst
og fremst koma börnum illa:
bannað að leika sér á grasflötinni,
bannaö aö hafa barnavagna i
ganginum, bannað að hafa dýr i
ibúöunum......
Og svo er hún barmafull af
sorg, sagan hennar Möggu, og
skilureftir sárindiihuga lesanda,
samviskubit. Þó held ég að hún
geri börnum gott og skilji miklu
meira eftir en sannleikann. Það
er mikil sorg og mikil mann-
vonska I heiminum. Það eru ekki
öllbörnsólskinsbörn.þóttþau séu
algengust i islenskum barnabók-
um.
Myndirnar eru margar afskap-
lega fallegar, en þó er það fyrst
og fremst málið á sögunni sem er
fengur að fá i barnabók. Stundum
koma sérkennilegar myndhverf-
ingar á barnamáli: „Pabbi var
hvit bréf sem pósturinn kom með
frá Osló.” (bls. 48) Lýsingin á
haustinu er mjög myndræn:
„Sumarblöðin grænu uröu að
gulu og rauðu laufi sem féll söln-
að til jarðar, svo að hægt væri að
ösla i þvi i uppháum gúmmistig-
vélum. Rotnaði. Og frostið kom,
lagði þunnt isskæni yfir pollana.
Veikt klingjandi brothljóö þegar
einhver tritlaöi yfir þá á leður-
stigvélum með ullarleistum og
litlum telpufótum i.” (bls. 52).
Fugl og draum þarf aö lesa með
börnum, hún er það tormelt. En
hún getur gefið mikiö í aðra hönd.