Þjóðviljinn - 14.12.1976, Blaðsíða 1
UOWIUINN
Þriðjudagur 14. desember 1976—41. árg.—281. tbl.
Hefur ekki
neitunarvald
ELKEM
Jóhannes Nordal
varðandi
rafmagnsverð
segir Jóhannes
Nordal
t frétt I dbl. Vfsi I siðustu viku
var sagt, aö norska járnblendi-
fyrirtækið Elkem hefði
neitunarvald varðandi raf-
magnsverðið til verk-
smiðjunnar á Grundartanga.
„Það er alger misskilningur
að svo sé”, sagði Jóhannes
Nordal formaður Stóriðju-
nefndar, er þetta var borið
undir hann i gær.
Sagði Jóhannes að i orkusölu-
samningum væru ákvæði um
breytingar á rafmagnsverði og
að norðmennirnir hefðu ekkert
neitunarvald varðandi raf-
magnsverðið. —S.dór
Rœtt hefur verið um •
300-600 þúsund tonna
súrálverksmiðju
Virkjunarkostir
Austurlands
rannsakaðir
Allar götur greiðar
Það er að visu bleyta og blástur i fangið en samt
er fært um allar götur á hjóli þótt komið sé fram
i miðjan desember og maður tekin að reskjast.
— Ljósm. tók EIK i gær.
Gunnar hefur átt í makki
við álhringinn á annað ár
Uppljóstrun Magnúsar
Kjartanssonar á leyni-
makki Gunnars Thor-
oddsens við fulltrúa Swiss-
aluminium hefur vakið
mikla athygli sem vonlegt
er. Mun Gunnar Thor-
oddsen halda viðræðum við
þennan aðila áfram á
næsta ári, eins og fram
kom í Þjóðviljanum í gær.
Það er hins vegar ekki ný bóla
að þetta stórfyrirtæki sæki á
isienskar auðlindir eftir að hægri-
stjórnin tók við. t riti orkunefndar
Alþýðubandalagsins „tslensk
orkustefna” er ásókn auðhrings-
ins rakin nokkuð. Þar kemur
meðal annars fram cftirfarandi:
Súrálsvinnsla
á Reykjanesi
f maibyrjun i fyrra birtust i
blöðum (Timanum ma.) fréttir
um að viðræður stæðu yfir um
300-600 þúsund tonna súrálsverk-
smiðju á Reykjanesi. Væri
ætlunin að nýta jarðvarma frá
Trölladyngjusvæðinu og hafnar-
aðstöðu og land i Straumsvik.
Tveir menn, Jón Jónsson, jarð-
fræðingur, og Snæbjörn
Jónasson, verkfræðingur, fóru
utan til að hlýða á umsögn Alusu-
isse um umhverfisáhrif slikrar
verksmiðju. Þá mun náttúru-
verndarráð hafa fengið málið til
umsagnar, og mun ráðið hafa
lagst eindregið gegn slikum
iðnaði hérlendis.
Súrál er hráefni álbræðslna
eins og verksmiðjunnar i
Straumsvik, en 120 þús. tonna
álbræðsla þarf um 300 þúsund tn.
af súráli, þannig að 600 þús. tonn
súrdls nægja i tvær stórar ál-
bræðslur. Súrálerunnið úr báxit-
leir og rekur auðhringurinn eina
slika verksmiðju við námur, sem
auðhringurinn á i Gove i Norður-
Astraliu og framleiöir hún um 1.
milj. tonn á ári.
Friðarverðlaunahafi til
r
Islands
Iiingað til lands kemur i dag
irinn Seán MeBride, fyrrum utan-
rikisráðherra i erindagjöröum
fyrir Sameinuðu þjóðirnar öðru
fremur, en hann hefur um ára-
tuga skeið starfað i fjölmörgum
alþjóðlegum hreyfingum sem
berjast fyrir friði og réttlæti I
heiminum. McBride hlaut friöar-
verðlaun Nóbels árið 1974.
McBride kemur hingaö að
McBride
þessu sinni sem aðstoöaraðal-
ritari Sameinuðu þjóðanna en
hann er auk þess umboðsmaður
S.Þ. fyrirNamibiu og mun kynna
þárlensk viðhorf hér á íslandi.
Islenska utanrikisráðuneytiö og
fslandsdeild Amnesty Internati-
onal hreyfingarinnar munu taka
á móti McBride og þykir Amnesty
mönnum mikill fengur að komu
hans... ekki sist þar sem ákveðið
hefur verið að helga „samvisku-
fanganum” næsta starfsár. Er nú
að hefjast undirskriftasöfnun
meðal islendinga þar sem skorað
• er á allar þjóðir, að halda
mönnum föngnum vegna skoðana
sinna, að láta þá lausa.
McBride mun hitta islenska
ráðamenn að máli áður en hann
heldur ferö sinni áfram á föstu-
dagsmorgunn. Auk þess mun
hann flytja fyrirlestur i húsa-
kynnum lagadeildar Háskólans,
ræða við blaðamenn, sitja fyrir
svörum á almennum fundi
íslandsdeildar Amnesty internati-
onal og koma viða annars staðar
við i þessari stuttu heimsókn.
—gsp
Allt að 8% hækkun á kjöti og kartöflum
Ekki var liðin nema vika frá
þvitilkynnt var um verðhækkun
á mjólk og mjólkurvörum, þar
til ný hækkunartilkynning kom
og þá um kjöt og kartöflur.
Tilky nningin um þær
hækkanir kom um siðustu helgi
og hækkar kjöt frá 5,7 og uppi
8%. Kindakjöt hækkar frá 5,7
uppi 6.1% og má nefna sem
dæmi, aö 1 kg af súpukjöti
hækkar úr 679 kr. uppi 720 kr.
Hækkunin er misjöfn eftir
flokkum og bitum.
Nautakjöt hækkar um 8% og
sem dæmimá nefna, að kilóið af
ungnautakjöti og alikálfakjöti 1
fl. í heilum og hálfum skrokkum
hækkar úr 523 kr. kg. uppi 567
kr. kg.
Kartöflur hækka um 7%. 5 kg
poki hækkar úr 99,80 kr. I 109,80
kr.
—S.dór
ÁVARP FRÁ STJÓRN ÚTGÁFUFÉLAGS ÞJÓÐVILJANS_
Sóknínni haldið áfram
A siðastliðnum tveimur árum
liafa velunnarar Þjóöviljans
lagt fram 35 miljónir króna i
gjöfum og hlutafé til þess að
byggja veglegt hús fyrir starf-
semiblaðsins. Það átak, sem nú
er á lokastigi, er þaö myndar-
legasta I langri baráttusögu
blaðsins.
Með bættri starfsaðstöðu
verður hægt að koma við
ýmsum endurbótum á rekstri
blaðsins og treysta grundvöllinn
undir útgáfunni til frambúðar.
Þrátt fyrir það er enn og
verður fyrst um sinn verulegur
halli á rekstri blaðsins, enda
hafa helgarblöðin verið stækkuð
og nýir starfskraftar ráðnir til
þess að vinna að útbreiðslu
blaðsins og bættri dreifingu tii
áskrifenda.
A undanförnum árum hefur
rekstrarhallinn verið borinn
uppi með Happdrætti Þjóðvilj-
ans og öðrum fjársöfnunum á
hans vegum.
Stjórn útgáfufélagsins vill með
þessum orðum leggja áherslu á
nauðsyn þess að happdrættinu
verði vel tekið, nú eins og jafnan
áður, og þeirri stórfelldu sókn,
sem Þjóðviljinn nú er i á öllum
sviðum, haldið áfram af fullum
krafti.
F.h. stjórnar
(Jtgáfufélags Þjóðviljans
Ólafur Jónsson
Framhald á bls. 18