Þjóðviljinn - 14.12.1976, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 14.12.1976, Blaðsíða 16
16 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 14. desember 1976 Nýtt frá Álafoss Væröarvoö veiöimannsins Heilsulindin Hverfisgötu 50 auglýsir Dömur athugið Hvað um útlitið og linurnar? Hressið ykkur i jólaönnum með sauna- böðum, likamsnuddi, andlitsböðum hand- og fótsnyrtingu. Heilsulindin, Hverfisgötu 50, simi 18866. Flóabáturinn Baldur auglýsir Áætlunarferðir yfir Breiðafjörð verða sem hér segir yfir jól og áramót: Laugardaginn 18. desember, fimmtudag- inn 23. desember, fimmtudaginn 30. desember, þriðjudaginn4. janúar, laugar- daginn 8. janúar. Alla daga er brottför kl. 9 árdegis frá Stykkishólmi og kl. 13 siðdegis frá Brjáns- læk. Eftir 8. janúar verða áðurnefndár ferðir eingöngu á laugardögum á sama tima. Allar nánari upplýsingar hjá'afgreiðslum Baldurs, i Stykkishólmi simi 93-8120 og Brjánslæk simstöð um Haga. Jólapappír—Jólakort— Frímerki—Servíettur—Kerti Áskjör, Ásgaröi 22, sími 36960. Sendill óskast Þjóðviljinn óskar eftir að ráða ungling til sendiisstarfa árdegis. Þarf að hafa vélhjól. Upplýsingar gefur útbreiðslustjóri. Stjórn Launasjóðs rithöfunda: Tekjur skipta meginmáli Indriði G. Þorsteinsson, rithöf- undur, vakti máls á þvi í blöðum fyrir nokkru að á umsóknareyðu- blöðum frá Launasjóði rithöfunda væri verið að hnýsast i afkomu rithöfunda með kröfu um að þeir gæfu upp skattskyldar tekjur sin- ar. Taldi Indriði að þettaværi með öllu óþarft og ósmekkl., þar sem eina skilyrðið fyrir þvi að menn nytu starfslauna væri að þeir stunduðu ekki aðra vinnu með- fram, en úthlutun á engan hátt bundin afkomu manna. Stjórn Launasjóðs rithöfunda hefur af þessu tilefni sent frá sér eftirfarandi athugasemd: Vegna umræðna, sem orðið hafa um spurningar á umsóknar- eyðublaði frá Launasjóði rithöf- unda, vill stjórn sjóðsins taka þetta fram: Með skipunarbréfi fékk stjórnin i hendur lög og reglugerð um Launásjóð rithöfunda, en ekki önnur gögn. I 2. grein reglugerð- arinnar er þetta sagt um umsókn- ir: ,,í umsókn skal getið verka sem höfundur hefur látið frá sér fara eða vinnur að. Að öðru leyti ákveður sjóðstjórn og tiltekur i auglýsingu hvaða upplýsingar fylgja skuli umsókn um starfs- laun.” Engum stjórnarmanni var um það kunnugt að ágreiningur hefði orðið um það við samningu reglugerðar hvort þar skyldi sér- staklega gerð krafa um upplýs- ingar um tekjur. i samræmi við þá heimild, sem reglugerð veitir stjórninni, er á umsóknareyðublaði spurt um rit- verk og starfsáætlun umsækjenda en einnig um ýmis almenn atriði, sem stjórnin taldi eðlilegt að spyrja um, enda algengt i hlið- stæðum umsóknum. Við úthlutun leggur stjórnin að sjálfsögðu til grundvallar ákvörðunum sinum mat á ritverkum og starfsáætlun- um höfunda, en i ýmsum tilfell- um, er erfitt kann að verða að úr- skurða, telur hún að gagnlegt geti verið að hafa sem fyllstar upplýs- ingar um hagi umsækjenda, þ.á.m. um tekjur þeirra. Þessi spurning — hvort sem henni er svarað eða ekki — hefur vitanlega aidrei verið hugsuð sem meginat- riði við úthlutunina. Að sjálfsögðu mun stjórnin fara með allar upplýsingar um einka- mál af fyllstu háttvisi og væntir þess að rithöfundar sýni henni fullt traust i umsóknum sinum og létti henni störfin með þvi að veita allar upplýsingar sem beðið er um. Stjórn Launasjóðs rithöfunda tók þetta starf að sér fyrir tilmæli Rithöfundasambands Islands og litur svo á að það sé unnið i þágu islenskra rithöfunda og islenskra bókmennta. Væntum við þess að rithöfundar liti sömu augum á starf okkar og séu fúsir til góðr- ar samvinnu. Seint munu allir verða á eitt sáttir um það hvernig fé til rithöfunda skuli úthlutað og biðjumst við ekki undan gagnrýni á ákvarðanir okkar um það efni, en okkur þætti vel við hæfi að þeir rithöfundar sem telja okkur brjóta lög eða reglugerðir ræddu málið við eitthvert okkar per- sónulega áður en þeir snúa sér til KEA opnaði 1. des. sl. nýja stórverslun að Hrisalundi 5 á Akureyri og er henni ætlað að þjóna Lunda og Garðahverfi á Akureyri, sem eru vestast i bænum. Verslunarhúsnæðið er á tveimur hæðum hvor um sig 800 ferm. að gólffleti. Á efri hæð- inni verða seldar dagvörur, svo sem matvörur og aðrar þær vörur sem útibú KEA i bænum selja. Þá verður rekin kaffiter- ia, sem rúmar 30 til 40 manns i sæti og er það nýjung á ekki Indriði G. Þorsteinsson. fjölmiðla, ef um misskilning kynni að vera að ræða. Stjórn Launasjóðs rithöfunda. Akureyri. A neðri hæð verslunarhússins verða seldar vörur frá Vöruhúsi KEA, svo sem leikföng, búsáhöld, heim- ilistæki og gjafavörur. Báðar verslanirnar verða opnar mánudaga til fimmtu- daga frá kl. 9 til 18 og föstudaga 9 til 19 og laugardaga 9 til 12. Bygging húsnæðisins hófst 1974 og er áætlaður kostnaður 115 til 120 milj. króna og er þá allt talið með, svo sem áhöld og tæki. Úr hinni nýju stórverslun KEA Ný stórverslun KEA Leiktæki Undanfarin tvö ár hefur FORM innflutningsdeild, Bankastræti 11 sérhæft sig I inn- flutningi ýmissa leikáhalda og leiktækja fyrir börn á ýmsum aldri. FORM er einkaumboðs- aðili fyrir leiktækja- framleiðanda i Englandi og hefur einnig viðskiptasambönd við önnur fyrirtæki með hlið- stæðar vörur. Þau áhöld sem hér um ræðir eru hönnuð bæöi til notkunar utanhúss og innan. Þetta eruaðallega klifurgrindur i ýmsum stærðum, vagnar á hjólum, hólkar til að skriða i gegnum svo eitthvað sé nefnt, einnig stólar og borð fyrir leik- velli og dagheimili. Áskriftasími Þjóðviljans er 81333

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.