Þjóðviljinn - 14.12.1976, Page 12

Þjóðviljinn - 14.12.1976, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 14. desember 1976 Staða leikhússtjóra hjá Leikfélagi Akureyrar er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 1977. Nánari upplýsingar veitir formaður fé- lagsins, Jón Kristinsson, simi 96-23639. Starfið veitist frá 1. september 1977. Leikfélag Akureyrar Kynniö ykkur af- sláttarkjör Rafafls á skrifstofu félagsins, Barmahlfð 4 Reykja-, vfk, simi 28022 og I versluninni að Austur- götu 25 Hafnarfirði, simi 53522. TÖkum að okkur nýlagnir I hús, viögerðir á eldri raflögnum og raftækjum. RAFAFL SVF. Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir Borgþór Guðmundsson vélvirki Unufelli 46 verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 15. desember kl. 15. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Karen Irene Guðrún Júnsdóttir Guömundur B. Borgþórsson Kristfn M. Hallsdóttir Birgir Þór Borgþórsson Ragnar Borgþórsson Baldur Borgþórsson ........ Sambýlið að Sogni Ölfusi 6 unglingar og 3 fullorðnir búa hér saman með það að markmiði að þrostkast per- sónulega og félagslega. Okkur langaði að kynnast karlmanni og eða konu eldri en 22. ára sem vill lofa og starfa með okkur frá og með n.k. áramótum. Kauplaust starf en framfærsla og nauðsynleg hlunn- indi i boði. Sambýlið að Sogni ölfusi. I þessu húsi er gert ráö fyrir að skrifstofur ASÍ og húsnæði Alþýðubankans verði I framtlöinni. Húsnæðisskipti án verulegra byrða Nýtt húsnœði ASÍ kostar yfir 30 miljónir tilbúið undir tréverk Eins og kunnugt, er hefur Al- þýðusambandið fest kaup á húsi á hornr Fellsmúla og Grensás- vegar. Þetta hús mun kosta 31 1/2 miljón, (hluti Alþýðusam- bandsins) tilbúið undir tréverk. Þessi fjárfesting verður greidd með sölu þeirrar húseignar, sem Alþýðusambandið á á Laugavegi 18, og hefur efsta hæðin þegar verið seld. Það má búast við þvi, að sala neðri hæðarinnar nái þvi að standa undir kostnaði við innréttingar, þannig að þessi húsnæðisskipti geti orðið án þess að samtökin þurfi að leggja fram mikið fé i þvi sambandi. Austur i ölfus- borgum er núna verið að fjár- festa töluvert mikið i fram- kvæmdum við þau hús, sem austur-þjóðverjar gáfu, og er búist við þvi að kostnaður við austur-þýska húsið verði um 8 miljónir. Eins og kunnugt er, tók rekstrarfélagið að sér að koma öðru a-þýska húsinu upp á sinn kostnað og greiða með þvi húsaleigu næstu 20 ár, en húsið er eign Alþýðusambandsins. Menning vann bug á íhaldinu á ASI-þingi Tryggvi Þór Aðalsteinsson formaður Sveinafélags hús- gagnasmiða fiutti á Alþýðusam- bandsþingi athyglisverða til- lögu um menningarstarf i verkalýðsfélögum og itengslum við þau. Tryggvi er manna kunnugastur þeim málum þar eð hann hefur um skeið starfað sem fræðslufulltrúi hjá MFA. Svo brá við að um tillögu Tryggva urðu nokkuð snarpar umræður þótt þær stæðu ekki lengi. Virtist það fara talsvert i taugarnar á ihaldsmönnum að flutt skyldi tillaga um það að verkalýðshreyfingin veitti aðil- um eins og Alþýðuleikhúsinu brautargengi. Mega menn raunar minnast þess að einmitt þessa sömu daga stóð yfir her- ferð i Morgunblaðinu gegn „pólitisku leikhúsi”. Magnús L. Sveinsson frá Verslunarmannafélagi Reykja- vikur óttaðist mjög fjárúrlát og taldi bersýnilega að „brautar- gengi” gæti ekki þýtt annað en peningagreiðslur. Halldór Blöndal frá Félagi verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri (Halldór er velaðmerkja hættur kennslu og farinn að starfa eitt- hvað á endurskoðunarskrifstofu til að eiga auðveldara með að hlaupa i pólitikina), — Halldór varaði menn mjög við Alþýðu- leikhúsinu og spurði með nokkr- um þjósti hvort menn hefðu les-. ið stefnuskrá þess! Pétur Sigurðsson alþingis- maður hafði vit á þvi að segja að leikhús væri i eðli sinu pólitiskt, en af hverju að taka eitt útúr? Það væri mörg leikfélög áhuga- Tryggvi Þór Aöalsteinsson. manna og atvinnufólks sem hefðu þörf fyrir stuðning! Þeir Stefán ögmundsson for- maður MFA og Tryggvi Helga- son frá Sjómannafélag Akur- eyrar svöruðu þessum æsingi ihaldsmanna, og fór Tryggvi mjög lofsamlegum orðum um starf Alþýðuleikhússins. Það var almannarómur á Al- þýðusambandsþinginu að i þessu efni sem öðrum hefðu vinstri menn borið mjög af ihaldinu, bæði hvað snerti mál- flutning og málstað. Fóru svo leikar að tillaga Tryggva Þórs Aðalsteinssonar var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða gegn fáum mótatkvæð- um. Samþykktiner á þessa leið: ,,33. þing ASI vill beina þeirri áskorun til stjórnar Alþýðusam- bandsinsog verkalýðsfélaganna i landinu að þau veiti brautar- gengi öllu þvi starfi sem unnið er i tengslúm við verkalýðssam- tcSiin að menningarmálum al- þýðu, má þar m .a. nefna Lúðra- sveit verkalýðsins, kór Tré- smiðafélags Reykjavikur og Al- þýðuleikhúsið. Þá lýsirþingið þeirri von sinni að verkalýðsfélögin geri allt sem i þeirra valdi stendur til að koma á fót fjölþættu menningarstarfi hvert á sinu sviði og sameiginlega”. Blikkiðjan Garöahreppi önnumst þakrennusmíði og uppsetningu —ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð. SÍMI 53468

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.