Þjóðviljinn - 14.12.1976, Qupperneq 18
18 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Þriöjudagur 14. desember 1976
Rannsókn
Framhald af bls. 6.
þá njóta þess sem geri hagstæö
innkaup i hærri álagningu. Vildi
hann beita þeirri heimild i aukn-
um mæli.
Að lokum sagði Ölafur að sú
könnun sem þingsalyktunartil-
lagan gerði ráð fyrir væri þegar i
gangi hjá verðlagsstjóra og ef
starfslið verðlagsstjóraskrifstof-
unnar verði aukið muni hún verða
mun betur i stakk búin að rann-
saka þessi mál en þingmanna-
nefnd.
Munur á innkaupsverðí
furðu irtill.
Ellert B. Schram benti á að fólk
úr flestum löndum Evrópu
streymdi nú til London til áð gera
hagstæð innkaup. Það stæði ekki
á yfirlýsingum um að heildsalar
væru að stela fé eða svindla. Þó
vildi hann taka fram að ræður
þeirra Eðvarðs og Garðars hefðu
verið málefnalegar.
Ellert taldi þann verðmun sem
fram hefði komið á innkaupsverði
ýmissa vara furðu litinn þegar
þess væri gætt að islendingar
nytu ekki magnafsláttar og
þyrftu að borga aukagjöld vegna
flutnings og umbúða.
Ég fellst ekki á að kerfið hvetji
til óhagkvæmra innkaupa, sagði
þingmaðurinn. Kaupmenn vilja
auðvitað hafa vöruna söluhæfa.
Fyrirkomulegið byði þó upp á
þetta og þess vegna þyrfti að
breyta löggjöfinni.
Umræðurnar hafa sannað að
álagning er ekki ástæða fyrir háu
vöruveröi heldur prósentuálögur
alls konar. Þær hleypi vöruverði
upp. Ef yið drögum eitthvað úr
þessum alögum aukum við kaup-
mátt fólks, sagði Ellert.
Hann hrósaöi verðlagsstjóra og
taldi aö þegar niðurstöður hans
lægju fyrir gæti Alþingi gert laga-
breytingar i samræmi við þær.
Umræðu var frestað og voru þá
þrir á mælendaskrá.
— GFr.
Málshöfðun
Framhald af bls.20
Fyrst morðnóttina og siðar
siöla sumars sama ár, er likams-
leifar Guðmundar voru fluttar úr
staö. Flutningar þessir fóru fram
I bifreið sem Albert hafði til um-
ráða og ók.
Margvísleg brot.
Akæruefni annarra þátta
ákæruákjalsins taka til brennu,
nauðgunar og þjófnaðarbrota
Tryggva Rúnars, skjalafals,
þjófnaðar og fjársvika Sævars
Marinós og Erlu og þjófnaðarbrot
Kristjáns Viðars. Þá er kært
vegna brota þeirra Sævars
Marinós, Ásgeirs Ebenesar,
Alberts Klahns og Guöjóns á lög-
gjöf um ávana- og fikniefni.
— ekh.
Reynslan
Framhald af bls. 14.
inn I ÍS liðinu, hirti flest öll frá-
köst og skoraði mikið. Ingi
Stefánsson Steinn Sveinsson,
Jón Héðinsson og Ingvar Jónsson
áttu og allir góðan leik.
Guttormur ólafsson var eins og
venjulega aðalmaðurinn hjá Blik-
unum, en Ágúst Lindal og Rafn
Thorarensen áttu einnig ágætan
leik.
Dómarar voru Sigurður Valur
Halldórsson og Olgeir Sigmars-
son og skiluðu þeir hlutverkum
sinum illa af hendi.
Stigin hjá IS skoruðu: Bjarni
Gunnar 34, Ingi 23, Ingvar 13, Jón
H. 10, Guöni Kolbeinsson 6, Steinn
5 og Jón Óskarsson 2 stig.
Hjá Breiðablik: Guttormur 18,
Rafn og Agúst 14 hvor, Ómar
Gunnarsson 10, Þórarinn
Gunnarsson 7, Árni Gunnarsson
4, Pétur Eysteinsson og Kristinn
Arnason 2 stig hvor.
G. Jóh.
Gunnar
Framhald af 1
I ágústmánuði i fyrra ferðuöust
sérfræðingar á vegum Alusuisse
og islenskir sérfræðingar einnig
um svæði „Austurlands-
virkjunar”. Fóru sérfræðingarnir
i boði iðnaðarráðuneytisins og
viðræðunefndar um orkufrekan
iðnað. Var þyrla Landhelgis-
gæslunnar notuð að hluta i vett-
vangsskoðun. Skýrslur um niður-
stöður sérfræðinganna hafa verið
unnar en þær hafa ekki verið
birtar opinberlega, „enda sú
„samvinna” sem hér um ræðir
einstæð og að vonum feimnis-
mál”. Hefur þarna verið látið
undan kröfum erlends auðhrings
um að rannsaka virkjunarval-
kosti hér á landi.
Islendsku þátttakendurnir i
þessari rannsókn voru Páll
Flygering, Haukur Tómasson, og
Leifur Benediktsson.
ASÍ
Framhald af bls 8.
komulagi. Alþýðusambandiö
hefur enga framkvæmdastjórn,
þannig að 15 manna miðstjórn
Alþýöusambandsins gegnir um
leið hlutverki framkvæmda-
stjórnar. Miðstjórn kemur sam-
an 20-30 sinnum á ári og tekur til
afgreiðslu gifurlegan fjölda
mála.
A Alþýðusambandsþingum er
einnig kosin svokölluð sam-
bandsstjórn, skipuð um 50
mönnum, og kemur hún saman
ár hvert á milli þinga (Sn. J.).
Daglegu málin
hjá miöstjórn
Hlutverk sambandsstjórnar
er fyrst og fremst að vera
stefnumarkandi milli þinga.
Miðstjórnin fæst meira við hin
daglegu mál og framfylgir
stefnumörkun sambandsstjórn-
ar og þings ASl, þ.e. samræmir
hana við liðandi stund. Skrif-
stofunni er siðanætlað að fram-
kvæma samþykktir miðstjórn-
ar. (Ó.H.).
Skrifstofan er
upplýsingamiðstöö
1 höfuðdráttum má segja að
skrifstofa ASI sé upplýsinga-
miðstöð fyrir félögin og sam-
böndin og aðstoði þau i hvers
konar vandamálum sem upp
koma. Við önnumst auk þess
þau mál, sem hvert félagasam-
band getur ekki tekið að sér eitt
sér. T.d annast Alþýðusam-
bandið næstum öll samskipti viö
rikisvaldiö og atvinnurekendur
sem lúta að verkalýðssamtök-
unum i heild. Til umsagnar Al-
þýðusambandsins er visað
geysilega mörgum málum frá
rikisvaldinu og einstökum
stofnunum þess. Þá er leitað til
Alþýðusambandsins bæði um
túlkun á samningum og til að fá
úrskurði I hvers konar deilu-
málum sem upp kunna aö
koma. (Ó.H.).
Hvað gera þessir 8?
Skrifstofan annast ýmiss kon-
ar sameiginlega þjónustu fyrir
félögin: milligöngu og lögfræði-
lega aöstoð, skýrslugerð og út-
reikninga. En þetta er nú ekki
fjölmenn skrifstofa. Hér vinna 8
manns. Forsetinn og varafor-
setinn fást við félagsmálaþátt-
inn. Þau tvö ár sem hagfræðing-
ur ASI hefur starfað hafa verk-
efni hans fyrst og fremst verið
að annast hvers konar aðstoð i
samningum og undirbúning
þeirra. Þá vinna hér tveir hag-
ræðingar, sem aðstoða félögin
við þá bónussamninga, sem I
gildi eru eða upp kunna að vera
teknir.
Þeir þrir, sem þá eru ótaldir
sinna almennum bréfaskriftum
og öðru sem með þarf i svona
stórum samtökum. Miðstjórn og
skrifstofan annast einnig að
mestu leyti utanrikisviðskipti
samtakanna, samskipti bæði við
verkalýðshreyfingu annarra
landa og við þau alþjóðasamtök
og stofnanir, sem við höfum
samband við. (ó.H.)
Kjarasamníngar eru póli-
tík en ekki hagfræði
Þótt hjá Alþýðusambandinu
starfi hagfræðingur breytir það
ákaflega litlu varðandi sjálfa
samningagerðina. Samningarn-
ir verða alltaf pólitiskt mat
þeirra félagskjörinna fulltrúa
sem þá gera hverju sinni. Hlut-
verk hagfræðingsins er að gefa
þeim grundvöll til þess að haga
ákvarðanatöku þannig að sjá
megi að einhverju leyti fyrir
hvaða áhrif samningarnir muni
hafa á ýmsa aðra hluti. Ég held
að það hljóti að vera mikilvægt
fyrir samningamennina.
En ég tel ennfremur æskilegt,
að hagfræðingur Alþýðusam-
bandsins hafi töluverðu hlut-
verki að gegna varðandi undir-
búnngsvinnu við stefnumótun,
með gagnasöfnun og útreikn-
ingum, ef timi skapast milli
samninga. Það gæti verið góður
bakhjarl fyrir forystumennina
til pólitisks frumkvæðis.
(A.St.).
Sérfræðingar eiga að ein-
falda málin
(Ritstjóri Vinnunnar gerir þá
athugasemd að mönnum ofbjóði
það, hvað samningar séu orðnir
flóknir. Þvi sé haldið fram að
sérfræðinga þurfi til, og samn-
ingarnir færist þvi i hendur
sliku fólki).
Ég held að þetta sé ekki rétt.
Það má að visu alltaf flækja
mál, og þarf ekki sérfræöinga
til, en heildarlinur i samninga-
málum er hægt að leggja fram
það ljóst að hver einasti maður
geti gert sér grein fyrir þvi hvað
hann er að greiða atkvæði um.
Þetta er einmitt hægt að gera
ennþá betur með þvi að láta
hliðholla sérfræðinga setja mál-
in fram. Hlutverk sérfræðings i
þessu tilliti er yfirleitt að reyna
að einfalda hlutina. (A.St.).
Eflum Alþýðusambandiö
sem stofnun
Það þarf að stórefla Alþýðu-
sambandið sem stofnun. Þvi má
hins vegar ekki rugla saman að
við það hvar samningarétturinn
er. Hann er hjá félögunum sjálf-
um. Það gerir það að verkum,
að hér rikja að ýmsu leyti miklu
lýðræðislegri vinnubrögð en
þekkjast annars staðar. Þessar
kenningar um ofurvald Alþýðu-
sambandsins held ég' séu inn-
fluttar frá öðrum löndum, þar
sem iðstýring valdsins er miklu
meiri en hér. Miðstjórn Alþyðu-
sambansins getur ekkert gert i
samningamálum, eins og áður
hefur verið sagt, án þess að fá
umboö frá hverju einasta félagi
sem á aðild aö viðkomandi
samningi. Þetta kostar mikla
lýöræðislega vinnu. Ef við litum
á þann mikla fjölda sem kemur
að ákvörðunartökunni hér, þá er
hann hlutfallslega langt fyrir of-
an það sem við þekkjum i ná-
grannaalöndunum, sem eru þó
talin starfa lýðræðislega.
(Sn.J.).
Gagnrýnin gegnur út á
vald án frumkvæðis
Ég held að gagnrýnin sé
tvenns konar. Annars vegar að
Alþýðusambandið sé ofvaxið
skrifstofubákn og drottni yfir
allri verkalýðshreyfingunni.
Allir verði að bugta sig og
beygja fyrir fyrirskipunum for-
ystunnar. Hins vegar kemur
fram að Alþýðusambandið
skorti frumkvæði i fjölda mála.
Sannleikurinn er einhvers stað-
ar þarna mitt á milli. Það er
frekar skortur á skriffinnsku og
ég skal útskýra það betur.
Formlega séö er ákvörðunar-
valdið i hreyfingunni mjög
dr.eift og yfirleitt ekkert hægt að
gera án þess að minnsta kosti
miðstjórn, sambandsstjórn og i
sumum tilfellum fjölmennar
ráðstefnur og nefndir hafi lagt
blessun sina yfir endanlegar á-
kvarðanir. (ó.H.).
Þeir félagskjörnu
fái betri forsendur
Þegar ég er að tala um að efla
Alþýðusambandið sem stofnun
þá á ég ekki fyrst og fremst viö
að efla miðstjórnarvald þess,
heldur að það fái nægan mann-
afla til að undirbúa mikilsverð
mál þannig, að hinar lýðræðis-
legu stofnanir innan sambands-
ins eigi auöveldara meö að taka
afstöðu til þeirra og móta stefnu
sina. Yfirleitt er hægt að gera
hluti á fleiri en einn hátt. Mál
þarf að undirbúa þannig að
mönnum sé ljóst um hvað er að
velja og hinir kjörnu trúnaðar-
menn komi vel upplýstir til á-
kvörðunartöku. (Ó.H.).
Sveitarstjóri
ölfushreppur óskar að ráða sveitarstjóra
frá lsta mai næst komandi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri
störf og menntun berist oddvita eða
sveitarstjóra á skrifstofu ölfushrepps,
Þorlákshöfn, simi 99-3726.
Umsóknarfrestur er til og með 5. janúar
næst komandi.
Hreppsnefnd ölfushrepps
Ritari
Auglýst er laus til umsóknar staða ritara
við embætti Skattstjóra Vesturlandsum-
dæmis, Akranesi. Laun verða samkv.
launakerfi starfsmanna rikisins. Starfið
veitist frá 15. janúar 1977.
Umsóknir óskast sendar skattstjóranum i
Vesturlandsumdæmi, Akranesi, eigi siðar
en 7. janúar 1977 og veitir hann allar nán-
ari upplýsingar.
Fjármálaráðuneytið,
10. desember 1976
Æskulýðsnefnd Alþýðubandalagsins
Fastir fundartimar — Opnir öllum félögum
Fastur fundartimi Æskulýðsnefndar verður fyrsta og þriöja sunnudag
hvers mánaðar kl. 13 e.h. frá og með 2. janúar 1977. Fundirnir verða
haldnir að Grettisgötu 3, Reykjavik, og eru opnir öllum félögum. —
Æskulýðsnefndin vill minna stjórnir flokksfélaga á að senda nefndinni
tilnefningar sinar varðandi trúnaðarmenn Æskulýðsnefndar, saman-
ber bréf nefndarinnar frá 26. nóvember s.l.