Þjóðviljinn - 07.01.1977, Qupperneq 1
UOÐVIUINN
Föstudagur 7. janúar 1977 — 42. árg. — 4. tbl.
Soðningin
hœkkar
Soðningin hækkar nú i verði i
framhaldi fiskverðshækkunar-
innar sem ákveðin var á dögun-
um. Hækka ýsuflök úr 308 i 372
kr. kilóið eða um 21% og slægð
ysa með haus hækkar um rúm-
lega 21%. Þorskflök og slægður
þorskur með haus hækka um
7%.
„Herraþjóðin” sýnir húsbóndavaldið
Hermanm sleppt úr haldi
þótt rannsókn sé ólokið
Með þessu plakati reyna
krabbameinssamtök i Banda-
rikjunum að fá fóik að hætta að
reykja. 1 textanum er skopast
að sæluriki sigarettuauglýsing-
anna og sagt: Það er verulega
flott að reykja.
Niðurstaða
20 ára
rannsókna á
34 þúsund
breskum
lœknum
SMOKING
IS VERY
GLAMOROUS
SlGARETTAN
DREPUR ANNAN
HVERN MANN
Reykingar eru lifshættulegar.
Næstum annar hver sigarettu-
neytandi deyr af afleiðingum
reykinga. Þetta er staðfest I ein-
stæðri enskri rannsókn sem er
ein hin umfangsmesta, sem
gerð hefur verið. Helstu orsakir
dauðsfalla meðal reykingafólks
eru hjartasjúkdómar, lungna-
krabbi, króniskir öndunarfæra-
kviliar, krabbamein i vélinda,
lungnaberklar og slagæðahnút-
ar.
Rannsóknina gerðu tóbaks-
visindamennirnir Richard Peto
og Richard Doll. Niðurstöðurn-
ar eru dregnar af athugun á
reykingavenjum, sjúkdómum
og orsökum dauðsfalla meðal 34
þúsund breskra lækna á tima-
bilinu 1951 til 1971. Nýlega birti
timarit Breska læknasam-
bandsins, British Medical
SJÁ OPNU
Journal árangurinn af 20 ára
starfi Dolls og Petos.
Venja er að leggja áherslu á
sambandið milli reykinga og
lungnakrabba: — Rannsókn
okkar sýnir að hættan á öðrum
alvarlegum lungnasjúkdómum
meðal reykingamanna er meiri
en hættan á lungnakrabba,
segja bresku visindamennirnir.
Margir ensku læknanna hættu
að reykja á rannsóknartimabil-
inu og minnkaði þá tiðni
lungnakrabba i takt við það.
Aðrar tegundir krabbameins
minnkuðu ekki. Þetta sannar
enn frekar sambandið milli
lungnakrabba og reykinga, að
mati visindamannanna.
Skýrsla þeirra gefur þó reyk-
ingafólki einnig von. Sé hætt i
tima getur dregið verulega úr
þeim skaðvænlegu áhrifum sem
reykingarnar hafa haft á iiffær-
• Var tengdur langstœrsta
fikniefnasmygli á íslandi
• Ákvœði herstöðvasamn-
ingsins um íslenska
lögsögu litisvirt
Frá því hefur verið greint, að samkvæmt sérstakrii
beiðni bandarískra heryfirvalda á Islandi, þá hafi nú
verið sleppt úr gæsluvarðhaldi bandarískum hermanni,
sem hér hefur setið inni um nokkurra mánaða skeið í
tengslum við rannsókn á fíkniefnasmygli.
Þetta fikniefnamál er það lang-
umfangsmesta, sem upp hefur
komið hér á landi, en bandariski
hermaðurinn, sem nú hefur verið
sleppt, er taiinn hafa verið tengi-
iiður I þessu máli milli banda-
riskra hermanna og Islenskra
dreifingaraðiia, samkvæmt þvi,
sem haft er eftir Asgeiri Frið
jónssyni, fikniefnadómara, i
Morgunblaðinu i gær.
Hermanninum hefur nú verið
sleppt úr haldi, þótt rannsókn
þessa umfangsmikla og alvarlega
eiturlyfjamáls sé engan veginn
lokið, og er nú látið svo heita, að
bandarisk yfirvöld muni sjá um
rannsókn á þætti hans.
Það er rikissaksóknari, sem
tekið hefur þá furðulegu á-
kvörðun að fallast á þessa beiðni
bandariskra hernaðaryfirvalda
og sleppa manninum!
Her er um að ræða mjög alvar-
lega yfirtroðslu á þeim rétt-
indum sem islendingar haf þó i
eigin landi, samkvæmt hinum
svokallaða „varnarsamningi”
frá 1951, en i fylgiskjali með
honum segir á þessa leið orðrétt:
„Hafa islensk stjórnvöld lög-
sögu yfir mönnum I liði Banda-
rikjanna, að þvi er varðar brot,
sem framin eru á Islandi og refsi-
verð eru að isienskum lögum.”
Þar segir einnig:wA. Hervöld
Bandarikjanna skulu hafa forrétt
til lögsögu yfir mönnum i liði
Bandarikjanna að þvi er varðar:
1. brot er einungis beinast gegn
eignum Bandarikjanna eða gegn
manni i liði Bandarikjanna,
skylduliði hans eða eignum
þeirra; 2. brot, sem drýgð eru i
sambandi við framkvæmd starfs-
skyldu.
B. tslensk stjórnvöld hafa for-
rétt til lögsögu i öllum málum
vegna annarra brota.”
Svona eru sem sagt ákvæðin i
herstöðvasamningnum frá 1951.
En þégar um er að ræða stærsta
eiturlyfjamál, sem upp hefur
komið hér á landi, og það mál
Framhald á 14. siðu
Tr4tti von
á öðru
svari”
sagði Hrafn
Bragason
umboðsdómari
i ávisanamálinu
Sem kunnugt er af fréttum,
sendi Hrafn Bragason umboðs-
dómari i ávisanamáiinu rikissak-
sóknara bréf skömmu fyrir ára-
Framhald á 14. siðu
Sjá svar
rikissaksóknara
á baksiðu
Leyndarmál?
Hverjir sóttu um hina eftirsóttu
stöðu forstjóra Söluhefndar
setuliðseigna
Elstu menn innan ríkis-
kerfisins muna ekki annan
eins fjölda umsókna um
stöðu hjá ríkinu og nú á
dögum, þegar staða
forstjóra Sölunefndar
setuliðseigna var auglýst
laust til umsóknar. Skrif-
lega sóttu 34 um stöðuna og
Landsvirkjun - Hrauneyjafoss:
Undirbúningsframkvæmdir
hefjast á þessu ári
Þjóðviljanum barst f gær
fréttatilkynning frá Landsvirkjun
vegna virkjunar Tungnaár við
Hrauneyjafoss. Þar kemur ma.
fram að talið er að það taki 9-10
mánuði að bjóöa verkið út, þe. frá
útboði og þar til verksamningar
yröu gerðir. „A þessu ári er þvi
fyrst og fremst ætlunin að undir-
búa verksamninga i þágu
virkjunarframkvæmdanna og
ljúka ýmsum tæknilegum og fjár-
hagslegum undirbúningi. Engar
framkvæmdir eru ráðgeröar við
virkjunina á þessu ári. Hinsvegar
verður stefnt að þvi að búa
nokkuð I haginn á virkjunarstað,
ef unnt verður að nýta að veru-
legu leyti þá margvislegu aðstöðu
sem þegar er fyrir hendi við Sig-
öldu. Otgjöld vegna þessa undir-
búnings eru innifalin i fram-
kvæmdaáætlun Landsvirkjunar
fyrir 1977, sem byggt hefur verið
á við undirbúning iánsfjár-
áætlunar rikisstjórnarinnar.”.
Þá segir i fréttatilkynningunni
að tilhögun framkvæmda við
virkjunina verði þannig að þeim
verði jafnað á lengri tima en áður
hefur tiðkast til að forðast meiri-
háttar sveiflur i vinnuaflsþörf og
kostnaði framkvæmda. 1 fréttinni
er bent á að orkuöflunarkerfi
Landsvirkjunar verði fullnýtt
1981 og þvi þurfi að fullnægja
aukinni afl- og orkuþörf með sér-
stökum ráðstöfunum.
einn munnlega gegn því að
nafn sins yrði hvergi getið.
En sumir hinna, sem sóttu
skriflega, virtust einnig
viðkvæmir, þvi þeir hafa
óskað þess að ekki verði
skýrt frá því að þeir hafi
sótt um stöðuna.
„Og þvi munum við ekki að svo
komnu máli skýra frá nöfnum
umsækjenda, hvað sem siðar
verður, en vani hefur verið að
skýra frá þvi hverjir sækja um
embætti hjá rikinu”, sagði Páll
Asgeir Tryggvason i gær, er við
báðum um nöfn þeirra sem sótt
hafa um þessa eftirsóttu stöðu.
Páll gat þess að þarna væri um
ágæta stöðu að ræða, árslaunin
um 2 miljónir kr. og auk þess
bilastyrkur og kannski fleiri
hlunnindi. — S.dór.
Verðlagsráð svarar
formanni Sjó-
mannasambands
Islands
— Sjá 3. síðu