Þjóðviljinn - 07.01.1977, Síða 3
Föstudagur 7. janúar 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA — 3
Teng á uppleið
Krafist dauðadóms yfir Sjang Sjún-sjíaó
PEKING 6/1 Reuter — A vegg-
spjaldi, sem limt var upp i Peking
miöri i dag, er krafist dauöadóms
yfir Sjang Sjún-sjiaó, einum
Sjanghai-fjórmenninganna.
Raunar er Sjang ekki nefndur
meö nafni á spjaldinu, en út úr
hljóöan oröanna: „Drepiö hunds-
haus bófafereykisins”, þykjast
vestrænir fréttaskýrendur geta
iesiö aö átt sé viö hann.
Nálægt þessu veggblaði var
limt upp annað, þar sem stendur
að Teng Hsiaó-ping, áður talinn
liklegur eftirmaöur Sjú En-lais
sem forsætisráðherra Kina, hafi
orðið fórnarlamb fjór-
menninganna. Eru þau Sjiang
Sjing, Sjang Sjún-sjiaó, Vang
Húng-ven og Jaó Ven-júan sökuð
um að hafa espaö til óeirðanna,
sem urðu á Torgi hins himneska
friðar I aprll s.l., en til þessa
hefur Teng verið sakaöur um að
hafa valdiö þeim óeirðum og
leiddi það ásamt með öðru til þess
að honum var vikið úr öllum em-
bættum. Teng var þá einnig
sakaður um stefnu i anda kapital-
ista. Siðan fjórmenningarnir voru
handteknir hafa opinberir fjöl-
miðlar hætt að gagnrýna Teng,
sem fyrir ári var meðal fremstu
áhrifamanna. Er nú búist við að
hann hefjist til áhrifa á ný, óvist
þó hvenær og hvernig.
Teng Hsiaó-ping — kemst hann til
áhrifa á ný?
Argentína:
Verkalýðsleiðtog
hóta stéttabaráttu
BUENOS AIRES — 6/1 — Yfir
hundraö argentiskir verkalýös-
leiötogar hvöttu i dag rikis-
stjórnina til aö breyta stefnu sinni
I efnahagsmálum, og mætti
stjórnin eiga von á stéttabaráttu
ella. 1 yfirlýsingu sinni, sem er sú
haröoröasta er þeir hafa sent nú-
verandi herforingjastjórn, segja
verkalýösleiötogarnir aö stjórnin
hafi dregiö taum atvinnurekenda
á þann hátt, sem alltaf hafi haft i
för meö sér sultarlaun og fjölda-
atvinnuleysi.
I yfirlýsingunni, sem einnig er
beint til þjóðarinnar, segir að nú
sé svó komið að algengt sé að hjón
með tvö börn á skólaaldri geti
ekki lifað af launum sinum, 1976
varð verðbólgan I Argentinu
347.5% eða meiri en nokkru sinni
fyrr I sögu landsins, en laun iön-
verkamanna hækkuðu aðeins um
153.9% ,~Nokkuð hefur verið um
verkföll og aðrar mótmæla-
aðgerðir af hálfu argentiskra
verkamanna siðan herfor-
ingjarnir rændu þar völdum,
enda þótt stjórnin banni harðlega
allt slikt.
Stöðugt eiga sér stað blóðugir
bardagar milli argentinskrar lög-
reglu og vinstrisinnaðra borgar-
skæruliða. Lögreglan tilkynnir
stöðugt mikið mannfall i liði
Vesturlönd eru sökuð
um ábyrgð á apartheid
DARESSALAAM 6/1 Reyter —
Sambandsráð suður-afriskra
verkalýössamtaka (SACTU),
sem allir kynþættir landsins eiga
aðild aö, hefur sakaö Bretland,
Frakkland, Bandarikin, Vestur-
Þýskaland, ttallu og Japan um aö
bera I meginatriðum ábyrgö á
kynþáttakúgun Suöur-Afrlku-
stjórnar. Þessi stuöningur um-
ræddra rikja við apartheid-kerfiö
væri fyrst og fremst fólginn i
verslunarviöskiptum viö Suöur-
Afriku.
Ráðstefna sambandsráðsins,
sem haldin var i höfuðborg
Tansaniu, fagnaði jafnframt
þeirri ákvörðun Alþjóða-
sambands frjálsra verkalýðs-
félaga að hvetja til mótmæla-
aðgerða i viku, sem fælust i þvi að
suðurafriskar neysluvörur yrðu
ekki keyptar. Ennfremur sam-
þykkti ráðið aö gera allt, sem á
þess valdi stæði, til þess aö skipu-
leggja verkamenn Suður-Afriku
til varnar réttindum þeirra og að
styðja vopnaða baráttu Afriska
þjóöþingsflokksins (ANC) og
allra annarra þjóðfrelsissamtaka
i sunnanverðri Afriku.
Suðurafrisku verkalýössam-
böndin samþykktu einnig að
hvetja til einangrunar Suður-
Afriku á alþjóðavettvangi og
vinna að þvi að bannað yrði að
selja Suður-Afriku vopn. Sam-
böndin hvetja auk þess til efna-
hagslegra refsiaögerða gegn
suðurafriskum stjórnarvöldum.
Meðalhœkkun fiskverðs er 9,7%
Þjóðviljanum barst i gær eftir-
farandi greinargerö frá verölags-
ráöi sjávarútvegsins vegna um-
mæla sem höfö voru eftir for-
manni Sjómannasambandsins i
blaðinu i gærdag:
„Hr. ritstjóri,
A forsiöu blaðs yðar i dag er
birt viðtal við Óskar Vigfússon,
forseta Sjómannasambands ís-
lands, þar sem fjallaö er um
siöustu fiskverðsákvörðun og
ákvörðun loðnuverðs. 1 viðtalinu
er þvi m.a. haldið fram i fyrsta
lagi, að ,,sú 9% meðalfiskverðs-
hækkun... sem samið var um á
dögunum” sé blekking,og þau rök
tilfærð að: „Aðalhækkunini nýja
verðinu er á þeim fiski, sem ekki
veiðist, eins og stórþorski og meö
slikri verðlagningu er hægt að fá
út 9% meðalhækkun, sem segir
ekkert I sjálfu sér”. I öðru lagi
segir i viðtalinu ,,Og alveg eins er
meö loðnuverðiö... I loðnuverðinu
virðist alls ekkert tillit tekið til
þeirrar gifurlegu hækkunar, sem
oröið hefur á loðnumjöli siðan i
fyrra.”
Af þessu tilefni vill Verölags-
ráöið koma eftirfarandi á fram-
færi:
1. Meöalfiskverðshækkun við
siðustu verðákvörðun er áætluð
9,7% hvort sem miðað er við
aflasamsetninguna 1975 eða
1976, og er þá ekki tekið tillit til
sérstakrar hækkunar á veröi 2.
fl. stórufsa, sem var verulega
umfram þetta mark. Verð
helztu fisktegunda breyttist
sem hér segir:
1. Þorskur 9%
2. Ýsa 24%
3. Ufsi 5% (að aukisérstök hækk-
un á 2. fl. stórufsa)
4. Karfi 5%
5. Steinbitur 9%
Aðrar tegundir hækka yfirleitt
um 9,7% nema langa 35% og keila
45, en 61% ef veitt er á linu. Að
öðru leyti en fram kemur um
ufsaverð var ekki um að ræða
breytingar á verðhlutföllum eftir
stærðar- eða gæðaflokkum.
Þannig hækkar allur þorskur um
9% i verði, sem eins og að framan
greinir er minna en áætluð
meðalhækkun fiskverös.
2.Viö verðákvörðun á loðnu til
bræðslu á vetrarvertið 1976 var
miðað við verðlag afurða, sem
þá var um 4,55 dollarar fyrir
hverja eggjahvitueiningu mjöls
og um 325 dollarar fyrir hvert
tonn af lýsi. Við verðlagningu
nú var miðað við 6,95 dollara
fyrir hverja eggjahvitueiningu
mjöls og 420 dollara lýsisverð.
Meðalverð á komandi vertið
má áætla um 6 krónur hvert
kiló og aö auki verða greiddir
18 aurar i flutningasjóð. Sam-
bærilegt verð á vetrarvertið
1976 hefði verið um 3,75 krónur
og að auki 7 aurar i flutningasjóð
fyrir hvert kiló.Ennfremur má
benda á, að áiðustu vertið voru
greiddir um 36 aurar fyrir
hvert hráefniskiló úr Verðjöfn-
unarsjóði fiskiðnaöarins. en nú
er gert ráð fyrir að um 80 aurar
verði greiddir i sjóðinn á þess-
ari vertiö.”
Jorge Videla, forsprakki
argentinsku herforingjastjórnar-
innar — óstjórnin og óöldin hafa
aukist fremur en hitt siðan hann
steypti frú Peron af stóli.
skæruliða en litið sem ekkert i
eigin, en þær fregnir þykja tor-
tryggilegar sökum þess, að
ekkert viröist draga úr baráttu
skæruliðanna. Einnig eru i
landinu tiö hryðjuverk hægri-
sinnaðra öfgamanna, sem grunur
leikur á aö sumpart séu framin
með þegjandi samþykki eða
stuðningi núverandi valdhafa.
Polisario ákœrir
marokkómenn:
F angelsa
karlmenn
ogdrekkja
koniim
ALSIRSBORG 5/1 Reuter — I til-
kynningu frá Polisario, sjálf-
stæðissamtökum Vestur-Sahara,
segir frá miklum hryðjuverkum
marokkómanna og máritana þar,
en Marokkó og Máritania skiptu
landinu sem kunnugt er á milli
sin, eftir að spánverjar létu þar af
nýlenduvöldum. Segir i tilkynn-
ingunni að marokkanskir her-
menn safni karlmönnum I ein-
angrunarfangabúðir, sem komið
sé upp I skyndi, og aö konur hafi
verið fjötraðar og þeim siðan
varpað i sjóinn. Ennfremur segir
að hernámsliðið hafi haft á brott
með sér fjölda drengja á þeim
forsendum að þeir ættu að fara i
skóla, en siðan hefði ekkert til
þeirra spurst.
Polisario sakar marokkómenn
ennfremur um að halda uppi út-
rýmingarherferö gegn hirð-
ingjum i Vestur-Sahara.
Filippiskir
múhaðmeðingar
fá sjálfstjórn
MANILA 6/1 Reuter — Stjórn
Filippseyja hefur samþykkt að
koma á fót sjálfstjórnarsvæði
syðst á eyjunum, þar sem
múhameðstrúarmenn eru
fjölmennastir. Er þetta gert
samkvæmt samkomulagi viö bar-
áttuhreyfingu múhameðstrúar-
manna, sem i mörg ár hefur háð
skæruhernað gegn stjórninni.
Nýársgleði
fjölskyldunnar í
Kópavogi
Alþýðubandalagið I Kópavogi heldur skemmtisamkomu fyrir
unga og gamla i Þinghóli frá kl. 15-18 á laugardaginn kemur. Til
skemmtunar verður:
1. Kvikmyndasýning.
2. Upplestur. Sigurður Grétar Guömundsson.
3. Almennur söngur undir stjórn Fanneyjar M. Karlsdóttur.
4. Tlmavilltir jólasveinar.
5. Dans.
Allir velkomnir á skemmtunina, en þó sérstaklega blaðberar
blaðsins „Kópavogs”.
Stjórn Alþýðubandalagsins Kópavogi.
BLAÐBERAR
sækið rukkunarheftin. — Munið að biósýn-
ingin verður á laugardaginn.
þjóðvhjinn
m
HEF OPNAÐ
HARGREIÐSLUSTOFU
aö Laugateig 28,
Hef opið Mánud.-Fimmtud. 9-5
Föstud. 9-7 Laugard. 8-2
1 VI111 \
Hárgreiöslustofa Laugateig 28, simi 37640
m