Þjóðviljinn - 15.02.1977, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 15.02.1977, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 15. febrúar 1977 Skrifiö — eða hringið í síma 81333 Umsjón: Guðjón Friðriksson Helsinkisáttmálinn r virtur hér á Islandi? Telur þú, IndriBi, að Helsinki sáttmálinn sé haldinn og i heiðri haföur: 1. Af núverandi stjórnvöldum á Islandi, samanber aö á Alþingi fyrir jól var fjárlaga- frumvarp fyrir áriö 1977 afgreitt sem lög, þar sem allar tillögur minnihlutans á Alþingi við frumvarpiö voru felldar. Er þetta aö halda mannréttinda- skrá Helsinki-sáttmálans? 2. Er þaö rétt skilið hjá mér, að stjórn félags ungra sjálf- stæöismanna, Heimdallar, fái að gera samþykktir á félags- fundum, sbr. kröfuna um brott- viking ráöherra úr rikisstjórn, Ólafs Jóhannessonar, dóms- málaráðherra og Einars Agústssonar, utanrikis- ráðherra, en ráðherrar Sjálf- stæðisflokksins láta sem þeir heyri ekki og litilsvirða þar með gerðir þessara ungu, — og maður skyldi halda, — efnilegu manna, i flokknum? Telur þú þetta samkvæmt þessum sátt- mála? Spurt í tilefni af sjónvarpsþætti meö Indriöa G. Þorsteinssyni 3. Hvernig má það vera, að félag ungra framsóknarmanna á i flestum tilfellum i sama striði og félag ungra sjálfstæðis- manna, ef þeir gera ályktanir I sinum félögum og gagnrýna athafnir rikisstjórarinnar. Þær viröast ekki virtar né á þær hlustað. Er þetta samkvæmt þessum sáttmála? 4. Hvernig stendur á þvi að eftirtalda landsfræga spyrjendur úr sjónvarpi og út- varpi er. búið að útiloka frá þessum fjölmiðlum þó að þeir séu bæði vinsælir og efnilegir: Ólaf Ragnar Grimsson, Baldur Óskarsson og Vilmund Gylfa- son? Samræmist þetta Helsinki sáttmálanum? Nokkur hvitkálshöfuta. bern verið liafa í óskilum á afgreiðslustoi'u póstgufuslcip- anna í lieykjavík, verða seld eptir næstu helgi hjá póstireistara O. Finsen. ísafold 14. desember, 1895. 5. Hvernig má þaö vera, Indriði G. Þorsteinsson að Markús B. Þorgeirsson berst fyrir hinu stærsta réttlætismáli sjófarenda i sambandi við að stjórn Eimskipafélags Islands virði alþjóðaiög um borð i skipum sinum, er þaö gerir út? 6. Ég hefi fariö með málefni min til ritstjóra hins óháða Dagblaðs, Jónasar Kristjáns- sonar, Þorsteins Pálssonar á Visi, Þórarins Þórarinssonar á Timanum. Þeir hafa allir stungið bréfunum minum, — þeim sömu og birtst hafa i Þjóð- viljanum og Alþýðubl. — undir stól. Er þetta samkvæmt viðkomandi sáttmála? 7. Er ég kom með siðasta bréf mitt til Dagblaðsins sagði einn af blaðamönnunum I votta viðurvist, að ég gæti ekki fengið þar inni vegna þess að grein min átti að birtast i fleiri blöðum en ef þú ert með upplýsingar um dauðaslýs eða önnur slys þá heitir þaö frétt og þá birtum við það. M.ö.o. af þvi að ég gat ekki fært þeim Dagblaðsmönnum dauðafréttir frá Mánafossi 8. jan. 1975 eða aörar slysafréttir frá skipinu, þá heitir það ekki frétt og þá fæ ég þar ekki inni. Telurðu slíkan hugsunarhátt samrýmast viökomandi sátt- mála? Það er engu likara en Dagblaðsmenn séu undir sterk- um áhrifum frá Eimskip. Að lokum, IGÞ, óska ég þér allra heilla i starfi I anda mannúðar og réttlætis, en littu þér nær, því land og þjóð er að brenna á báli, þar sem viröing fyrir lögum er ekki lengur i hávegum höfð. Markús B. Þorgeirsson VERÐLAUNAGETRAUN Hvað heitir skipið? Nú hefst ný lota I verðlauna- getrauninni. Hvað heitir skipið? og fyrir að vita hvað skipin heita sem mynd birtist af I þessari viku (nr. 6-10) verða veitt bóka- verðlaun. Skipin eru öll Islensk eöa hafa komiö við sögu á Is- landi. Verðlaunin að þessu sinni er bókin Þrautgóöir á raunastund 8. bindi eftir Steinar J. Lúöviks- sonsem örn og örlygur gáfu út núna fyrir jólin. Sendiö nöfn skipa nr. 6-10 til Póstsins, Þjóð- viljanum Siöumúla 6. Dregið veröur úr réttum lausnum. Hér er eitt af fvrstu skinum EimskÍDafélaes tslands en áður en bað var keypt hingað hafði það verið I strandsigiingum í Kina.Orö lék á þvl að reimt værí um borð.en skipið þótti samt happaskip og sigldi öll heimsstyrjaldarárin slðari áfallalaust. Það var selt til nlðurrifs árið 1948. Póstinum hefurborist bréf frá ungum manni i Tékkóslóvakiu þar sem hann óskar eftir penna- vini. Bréfið er svohljóðandi 30.janúar 1977 Kæru vinir, Etv. verðið þiö undrandi að fá mitt stutta bréf sem ég ákvað að skrifa til að fá það birt i hinu fræðandi dagblaði ykkar. Þið búið i einu af fáum lönd- um Evrópu sem ég hef aldrei komið til, iandi með aðra menn- ingu og aðrar forsendur heldur en mitt en það gerir bréfasam- band áhugavert við þjóð ykkar. Ég vonast til að við getum fund- ið marga hluti til að ræða um. Aður en lengra er haldið ætla ég að kynna mig. Já, ég er 28 ára gamall, 180 cm á hæð og i kringum 68 kg að þyngd. Ég læt Tékki óskar eftir pennavini mynd af mér fylgja bréfinu svo að þið getið séð þann sem þið skrifið til. Ég er á siðasta ári i Tækniháskólanum i vélaverk- frasði. Ahugamál min eru tón- list, ljósmyndun, bilaakstur og ferðalög. Ég vildi gjarnan skipt- ast á póstkortum, timaritum, plötum, skyggnum (slides) og 8 mm kvikmyndum. Ég mun svara hverju þvi bréfi sem mér berst á ensku, þýsku, rúss- nesku, póslku og að sjálfsögðu á tékknesku og slóvakisku. Þá ætla ég ekki að eyða meira af tima ykkar núna en bið i spenningi eftir bréfum. Dagblaði ykkar óska ég gæfu i framtiðinni. Ykkar tékkneski vinur Zdenek Brlica Nerudova 1032 697 01 Kyjov Czechoslovakia. Innkaupastjórí í Naustinu Einu sinni var mér reikað upp á barinn á Naustinu en þar eru jafnan gagnmerkir sauð- drukknir menn. Er óþarft að telja upp allt það lið enda flest- um kunnugt. Þarna sat það allt i hrókasamræðum, ræðandi landsins gagn og nauðsynjar en auðvitað af misjafnlega spak- legu viti eins og gengur og ger- ist. Ég settist hljóður einn við borð enda óverðugur og ekki samboöinn kompaniinu enda eru þarna jafnvel menn af val- inkunnu vesturbæjarkyni en þeir eru háaðall Reykjavikur- borgar eins og allir vita. Þarna voru ennfremur nokkrir menn af þingeysku kyni. Fljótt dró aö sér athygli mina riðvaxinn maður á besta aldri sem sló nokkuö um sig og ég þóttist ekki hafa séð áður. Eins og óvart' tók ég að nema mál af vörum hans enda mæltist hon- um svo vel aö menn sátu gap- andi allt i kringum hann. Aöur en varði hafði ég tekið fram ritfæri og gat skrásett kafla úr ræðu hans. Hann var svona: „Ég hlusta á fuglasöng og slappa af. Ég er elskaöur á vinnustað af öllum. Ég er persóna. Ég hef 1265 krónur á timann. Ég hef meira kaup en þið. Ég bý i gamla bænum. þar sem trén eru gróin upp fyrir hús, þarsem afar minirog lang- afar voru, formæður og for- feður. Ég elska að vera sjálfsæöur maður. Ofboðsleg formfesta. Ég hef ofsalega fastar skoðanir. Ég er ekki kommúnisti. Ég slæ ekki vixla eöa neitt svoleiðis. Ég bara vinn. Þetta er lifiö. Ekki satt? Mér var boðið aö taka þátt i fyrirtæki upp á það að stela 100 þúsund krónum á undan skatti á mánuði. Ég vel frekar vinna.” Þegar hér var komið sögu vogaði einn fastagestanna sér a ð s pyrja : „Ertu kannski laumukommi?” Svar: „Ég hata þá. Ég er frjáls.” Nú var maðurinn orðinn svo hrifinn af sjálfum sér að hann langaði til að fara á Hótel Sögu og ná sér i konu. Hann hóaði svo að allir heyrðu I gengilbeinu og bauð henni 500 krónur ef hún vildi hringja fyrir sig og athuga hvort ball væri á hótel Sögu. Hún vildi þaö og hann horfði með sigurbros á vör i kringum sig og smellti fingrum. NU kom I ljós að maðurinn var innkaupastjóri stórs fyrirtækis i borginni og þetta var fyrsti dagurinn i vetrarfriinu. Einhver minntist á konuna hans og þá fussaöi hann og sveiaði og hló hátt að manni sem sat þarna meö konunni sinni. En svo dó hann brennivins- dauöa og var borinn út. Svona hefnist mönnum fyrir bráöræöið. Fastagestirnir héldu áfram að rorra eitthvaö fullir þangað til lokað var. Svo fóru þeir heim til sin nema einn reyndi aö komast I parti austur I bæ og annan langaði til þess. —GFr

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.