Þjóðviljinn - 16.02.1977, Blaðsíða 1
DluOVIUINN
Miðvikudagur 16. febrúar 1977 —42. árg. —38. tbl.
Dönsku kosningarnar:
Kratar vinna á
—V enstre hrynur
Þegar klukkan var farin
að ganga 11 að íslenskum
tima í gærkvöldi hljóðuðu
danskar kosningaspár upp
á mikla fylgisaukningu
sósíaldemókrata sem
samkvæmt spánum juku
þingmannatölu sína úr 53 í
68. Einnig báru þær með
sér að svonefndir
„Ágústf lokkar" ynnu
verulega á.
En að þvi er virtist voru helstu
sigurvegarar kosningaspánna
miödemókratar Erhards Jakob-
sens sem þrefölduöu þingmanna-
tölu sina, úr 4 i 12. Sá flokkur sem
verst fer út úr spánum var
Venstre sem Poul Hartling stýrir,
þingmannatala hans helmingaö-
ist.
Samkvæmt spá sem gerö var
kl. 22.10 aö islenskum tima var
þingmannatala flokkanna þannig
(tölur I svigum frá siöustu kosn-
ingum): Sósialdemókratar 68
(53), Radikale venstre 6 (13),
íhaldsflokkurinn 15 (10), Réttar-
sambandiö 6 (0), SF 7 (9),
Kommúnistaflokkurinn 6 (7),
Miödemókratar 12 (4), ellilif-
eyrisþegar 0 (0), Kristilegir 6 (9),
Venstre 21 (42), Vinstrisósialistar
5 (4) og Framfaraflokkurinn 26
(24).
Af öörum niöurstööum spánna
vekur þaö helst athygli aö flokk-
arnir til vinstri viö krata tapa
samanlagt en þeim haföi veriö
spáö uppgangi.
öllum aö óvörum fjölmenntu
danir á kjörstaöi I dag og varö
þátttaka meiri en I tvennum
undangengnum kosningum eöa
89.1%.
Framsóknarheimilið:
Borgarfulltrúi varö
opinber skransali
Þingmenn krefjast lista yfir 34 umsœkjendur, en ráðherra neitar á AlþingiU
Sá atburður gerðist á Al-
þingi í gær, að utanrikis-
ráðherra neitaði að verða
við kröfu fjölmargra al-
þingismanna um að upp-
lýsa hverjir hefðu sótt um
starf forstjóra „Sölu
varnarliðseigna", en sam-
kvæmt upplýsingum, sem
fram hafa komið frá ráðu-
neytinu áður voru umsækj-
endur 34.
Svo sem skýrt var frá í
blöðum í gær veitti Einar
Ágústsson starfið Alfreð
Þorsteinssyni, borgarfull-
trúa Framsóknarflokksins
i Reykjavík og aðstoðar-
Ráöherra Framsóknarflokksins.
manni Þórarins Þórarins-
sonar við ritstjórn Tímans.
Einar Agústsson stað-
festi á Alþingi í gær, að Al-
Skransali Framsóknarflokksins.
freð Þorsteinsson hafi
reyndar ekki verið í hópi
þeirra 34 skráðu en ónafn-
greindu umsækjenda, sem
ráðuneytið hafði áður
skýrt frá, en hins vegar
hafi Alfreð komið umsókn
til sin persónulega i tæka
tíð (tók ráðherra við fleiri
slíkum umsóknum?) og
beðið þess sérstaklega eins
og fleiri umsækjendur, að
nafns sins yrði þó hvergi
getið, nema hann hreppti
hnossið!!
Þessu kvaðst ráðherra
hafa lofað nokkrum um-
sækjenda, og þá vildi hann
ekki svikja, — þess vegna
fengju hvorki alþingis-
menn né aðrir að sjá nöfn
Framhald á 14. siöu
Trésmiðafélag Reykjavikur og Samband byggingamanna:
Undírbúningur kjara-
baráttu í fullum gangi
Undirbúningur fyrir væntan-
lega kjarasamninga er nú i full-
um krafti hjá trésmiöum og öör-
um byggingamönnum, sagöi Jón
Snorri Þorleifsson formaöur Tré-
smiöafélags Reykjavikur I sam-
tali viö Þjóöviljann i gær. Starfs-
hópar koma nú vikulega saman
til aö ræöa málin.
Trúnaöarmannaráö Trésmiöa-
félagsins kom saman I janúar og
var þá ákveöiö aö halda félags-
fund 26. janúar og var hann ræki-
lega auglýstur, bæöi meö þvi aö
hengja uppplakötá vinnustaöi og
senda félagsmönnum skriflega
boöun.en i þvi eru 830 manns.
1 framhaldi af félagsfundinum
hafa siöan veriö hópumræöur um
kjaramál á hverju miövikudags-
kvöldi og hefur mannskapnum
veriö skipt i þrjá hópa semræöa
sama verkefniö þe. kjaramála-
ályktun siöasta Alþýöusam-
bandsþings, undirbúning undir
kjaramálaráöstefnu /VSl og
kröfugerö i væntanlegum
samningum, en samningstima-
biliö rennur út 1. mai nk. A fund-
inum I kvöld veröa td. skattamál-
in tekin sérstaklega fyrir.
Jón Snorri sagöi aö beinar
samningaumleitanir væru ekki
hafnar, en æskilegt væri aö þær
færu sem fyrst i gang. A sam-
starfsnefndarfundum ASI og at-
vinnurekenda eru könnuö sjónar-
miö deiluaöila.
Þá sagöi Jón Snorri aö Sam-
band byggingamanna heföi hvatt
öll félögin til fundarhalda um
kjaramál,en um næstu helgi verö-
ur sambandsstjórnarfundur.
Sagöist hann td. vita til þess aö
Sveinafélag húsgagnasmiöa heföi
Jón Snorri Þorleifsson
boöaö til ráöstefnu I ölfusborgum
um helgina fyrir rúmri viku siöan
og þar heföu komiö fulltrúar
vinnustaöa til undirbúnings
kjaramálaráöstefnu ASI.
—GFr.
Einn
stál-
heppinn
Þaö leikur lániö viö alla
menneinhvern tima ævinnar
þótt þaö komi fram i mörg-
um og margvislegum mynd-
um. Einnsemer tregur tilaö
láta nafns sins getiö var
„stálheppinn” I siöustu viku,
þvi á fimmtudeginum fékk
hann hæsta vinninginn i
Happdrætti Háskóla Islands
og tryggöi sér svo hæsta
vinninginn i Getraunum
ensku knattspyrnunnar sl.
laugardag, er hann fékk 10
leikirétta af tiu mögulegum.
350 þúsund krónur fékk hann
fyrir þaö afrek og svo
Happdrættisvinninginn þar
til viöbótar, og ætti ekki aö
væsa um kappann næstu
mánuöina!
___________—gsp-
Saltverksm iðja:
Undirbún-
ingsfélag
stofnað
I gær var stofnað undirbún-
ingsfélag til að reka tilrauna-
verksmiöju i saltvinnslu á
Reykjanesi. A stofnfundinum
voru 25! manns og stofnhluta-
fé eru 85 miljónir, þar af hefur
rikið tryggt 40 miljónir en ein-
staklingar og félög 45 miljónir.
Samþykkt var á fundinum aö
auka mætti hlutafé i sömu
hlutföllum ef rikið féllist á aö
hækka sitt framlag. Guö-
mundur Einarsson var kosinn
formaöur stjórnar hins nýja
félags. —GFr.
A skíðum í
Hliðari jalli
— Sjja opnu