Þjóðviljinn - 16.02.1977, Side 13
Miövikudagur 16. febrúar 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA — 13
landsins, um þaö liggja fyrir óræk
ar tölur hlutlausra aöila. Verö-
ákvöröun á búvörum er viö þaö
miöuö aö þeir sem landbúnaö
stunda, fái greiddan útlagöan
kostnaö viö framleiösluna og hafi
af vinnu sinni sambærilegar tekj-
ur viö ákveönar aörar starfsstétt-
ir i þjóöfélaginu. Sexmanna-
nefndin, sem er skipuö 3 fulltrú-
um frábændum og 3fulltrúum frá
samtökum launamanna, verö-
leggur búvörur til bænda og
ákvaröar vinnslu og dreifing-
arkostnaö og smásöluálagningu
sem næst kostnaöarveröi.
Þetta kerfi hefur reynst okkur
þannig aö þaö hefur aldrei gefiö
þærtekjur sem viömiöunarstétt-
imar hafa haft og flest ár vantaö
20-25% og allt aö 30% til aö þvi
marki væri náö. Samt halda for-
ustumenn bænda dauöahaldi i
þetta fyrirkomulag og er ekki
annaö sjáanlegt en bændur veröi
aö skipta um forystu um leiö og
þeir slá sexmannanefndina af.
Beinir og milliliöalausir
samningar viö rikisvaldiö um bú-
vöruveröiö er þaö sem koma skal
og hlýtur aö gefast betur en nú-
verandi sviviröing, ef bænda-
stéttin ber gæfu til aö standa
saman og hættir aö lita sifellt á
hlutina i gegnum framsóknar eöa
ihaldsgleraugu
Um afuröasöluna og veröhlut-
föll innbyröis t.d. á sauöfjár-
afuröum mætti margt ljótt segja.
Hart er undir því aö búa aö vaxta-
broddur islensks iönaöar, sem
spámenn og talnameistarar
segja aö muni færa þjóöarbúinu
auknar gjaldeyristekjur svo mil-
jörðum nemi á næstu árum, fær
þvi aðeins staöist aö viö bændur
leggjum honum til ull og gærur
svo að segja ókeypis, en erum
siðan skammaðir fyrir aö láta
kjöt fylgja þessum afuröum, kjöt
sem þarf aö borga útflutnings-
uppbætur með. Samkvæmt bú-
reikningum ársins 1974 voru
meöaltekjur islenska fjárbóndans
af dilkum og ull um 1,7 milj.
króna, þar af voru rúmlega 96%
fyrir dilka og tæp 4% fyrir full.
Sambærileg veröhlutföll þaö ár
hjá fjárbændum á Nýja Sjálandi
voru 50% fyrir dilka og 50% fyrir
ull.
Lesendur geta svo velt þvi fyrir
sér hvort þörf yröi aö borga út-
flutningsbætur meö kjöti ef fjár-
bændur hér fengju helming tekna
sinna fyrir ull og gærur. Nú kunna
margir aö spyrja sem svo: Úr þvi
að þiö bændur hafið ekki fengiö
nema 70-80% af þvikaupisem aör-
ar stéttir fá og telja sig þó van-
haldnar af þvi eruö þiö ekki löngu
flosnaöir upp eöa hafið orðiö
hungurmoröa? Von er aö spurt
sé. Til eru rikir bændur og allstór
.hópur, sem ekki þarf að kvarta,
aðstaöa stéttarinnar er svo mis-
munandi eöa réttara sagt ein-
staklinganna. Margir hafa gefist
upp áundanförnum árum,.þó ekki
sé mér kunnugt um aö bændur og
þeirra fólk hafi dáiö úr sulti upp á
siökastiö.
Þar vegur liklega þyngst aö
bændur hafa fram til þessa marg-
ir hverjir, veriö nægjusamari og
haldiö betur á sinu, en hinn al-
menni þéttbýlisbúi sem hefur
veriö æröur af llfsþægindakapp-
hlaupi neysluþjóöfélagsins meö
tilheyrandi gerfiþörfum og fjár-
munasóun.
Þaö er algengt aö bændur láti
dráttarvélina sina endast i 20-25
ár og skrönglist um á jeppagarm-
inum sinum hvaö sem bilaum-
boöin segja. Margar sveitakonur
standa i þvl að baka fyrir heimiliö
i staö þess aö kaupa útlenda kexiö
hjá Geir og co. Ef bóndi á hand-
bæra aura er hann vis til aö
leggja þá I umbætur á jöröinni
frekar en aö skopa á skeiö eftir
litasjónvarpstæki eöa fara i
sólarferö. Þetta siöastnefnda get-
ur nú staöiötil bóta eftir aö fyrir-
tækiö „okkar” S.l.S. stofnsetti
feröaskrifstofu.
Já, bændur erudragbitir á hag-
vöxtinneinsog hann GylfiÞ. upp-
götvaöi fyrir 15. árum. Og ég
vona aö þeir veröi þaö sem lengst.
1 þorrabyrrjun, 1977
Indriöi Aöalsteinsson
Skjaldfönn
Nlna Björk Arnadóttir þýðir og
les útvarpssöguna.
Nýja útvarpssagan:
BABY
eftir
Kirsten Thorup
Sl. mánudag hófst lestur nýrr-
ar útvarpssögu, „Baby” eftir
danska rithöfundinn Kirsten
Thorup. Sagan hefur hlotiö
nafniö „Blúndubörn” i þýðingu
Ninu Bjarkar Arnadóttur, sem
les þýðingu sina i útvarpið. Sag-
Frá Chicago, heimaborg
nóbelsverölaunahafans.
Sjónvarp kl 22,
Saul Bellow
Kl. 10 i kvöld sýnir sjónvarpið
sænska mynd um bandariska
rithöfundinn Saul Beilow, sem
hlaut bókmenntaverðlaun Nó-
bels á siöasta ári, og borgina
Chicago, þar sem Bellow hefur
búiö siöan hann fluttist til
Bandarikjanna. Þýöandi og þul-
ur i myndinni er Dóra Haf-
steinsdóttir.
Saul Bellow er fæddur áriö
1915 i Quibec-fylki i Kanada, en
fluttist meö foreldrum sinum 9
ára gamall til Chicago I Banda-
rikjunum, þar sem hann hefur
búiö siöan. Foreldrar hans voru
rússneskir gyöingar. Hann
stundaöi háskólanám i félags-
fræöi og mannfræöi, en gafst
upp á lokaritgerö sinni i mann-
fræöi viö Wisconsin-háskóla,
vegna þess aö ,,i hvert sinn sem
ég vann aö ritgerö minni, þá
snerist hún upp I sögu” eins og
hann segir sjálfur.
Bellow stundaði siöan ýmis
störf, en hefur veriö prófessor
viö Chicago-háskóla frá 1962.
Meöal þekktustu skáldsagna
hans má nefna Dangling Man
(1944), The Victim (1947), The
Adventures of Augie March
(1953), Henderson and the Rain
King (1959) og Herzog, sem kom
út áriö 1964 og mun vera þekkt-
asta skáldsaga hans og hin
besta, aö margra dómi. Hann
hefur skrifaö skáldsögur, smá-
sögur og leikrit.
Saul Bellow leitast viö i verk-
um sinum aö frelsa eöa endur-
leysa „sjálfiö” og vill ekki sjá
neina heimspeki eöa goösögur,
hefur enga þolinmæöi meö
félagslegum fyrirbærum, en
finnur grundvöll mannlegrar
reynslu I mannverum sem leita
aö sjálfum sér og leita ástar.
Gagnrýnandinn Leslie Fiedler
sagöi: „Viö þekkjum persónu-
leika Bellows, vegna þess aö
hann er opinn þar sem við för-
um i felur.” Bellow skrifar um
fólk i flóknu samfélagi, sem
berst viö fáránleika eöa merk-
Saul Bellow
ingu lifsins og sinar eigin til-
finningar.
„Þegar einangrun manna
eykst”, segir Bellow, „og
menntun og hæfileikar marg-
faldast, þá veröa spurningar og
svör um okkar innri mann afar
ágeng. Þvi miöur eykst stööugt
fjöldi þessa gáfaöa fólks, sem á
fyrst og fremst samræður viö
sig sjálft.” Þannig skrifar Her-
zog i samnefndri sögu bréf, sem
hann póstleggur aldrei, til fólks,
lifs og liöins, og einnig til guös.
Þótt Saul Bellow hafi miklar
mætur á verkum Hemingways,
er hann þó gjöróllkur honum aö
þvi leyti, að hann trúir á mátt
tilfinninganna framar öllu ööru.
Á siöari árum hefur Bellow
einkum orðiö frægur fyrir
skáldsöguna Herzog. Bókina
umskrifaöi höfundurinn 15 sinn-
um og telur hana sjálfur sitt
besta verk. Bellow sagöi eitt
sinn i viötali, aö þegar hann
skrifi, hafi hann i huga einn les-
anda, sem muni skilja hann.
Hinsvegar skrifi hann ekki fyrir
neina ákveöna tegund lesenda.
Þaö er betra aö rithöfundurinn
treysti eigin tilfinningu fyrir lif-
inu. Þá ætlar maöur sér ekki
um of og er liklegri til aö segja
Satt. m Anc
an gerist i rökkurheimi Kaup-
mannahafnar og aö hluta til á
upptökuheimili, þar sem tvær
barnungar stúlkur lenda eftir aö
hafa framiö morð i örvæntingu.
Annar lestur sögunnar er á dag-
skrá i kvöld. kl. 21.30.
1 formála aö fyrsta lestri sög-
unnar sagöi Nina Björk Arna-
dóttir m.a.:
Kirsten Thorup er fædd áriö
1942. Hún er meöal vinsælustu
höfunda i Danmörku. Sibustu
tvö verk hennar eru sjónvarps-
leikritiö „Helte dtfr aldrig” og
kvikmyndin „Den dobbelte
mand”, en hana gerði hún i
samvinnu viö leikstjórann
Frans Ernst. Fyrsta bók hennar
var ljóbabók og kom út árið
1967. Siðan hefur hún gefiö út og
skrifaö mikið og er sögö jafnvig
á allt, ljóö og prósa, útvarp og
kvikmyndir. Einn aöalstyrkur
hennar er, hversu vel henni
tekst að lýsa hvunndegi lág-
stéttarfólksins.
Meö bók sinni, „Baby”, má
segja að hun hafi slegið i gegn.
Sjálf segir Kirsten um bókina:
Baby er saga um kyngreiningu
og kynlif, um ást og peninga,
um þjóöfélagslega eymd, um
Súsy og Nóvu, Ivan og Sonju og
fleira fólk, sem eru glötuö sem
börn en útskúfaö fullorönum,
um malbik og steinsteypu og
þrána eftir grænu grasi og
trjám og tæru lofti og hafi og
bláum himni.
eos
7.00 M o r g u n ú t v a r p .
Veðurfregnir kl. 7.00,8.15 og
10.10. Morgunleikfimi kl.
7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30,
8.15 (og forustugr. dagbl.),
9.00 og 10.00. Morgunbænkl.
7.50. Morgunstund
barnanna kl. 8.00: Guöni
Kolbeinsson heldur áfram
aö lesa söguna „Briggskipiö
Blálilju” eftir Olle Mattson
(7). Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfréttirkl. 9.45. Létt lög
milli atriöa. Guösmyndabók
kl. 10.25: Séra Gunnar
B jörnsson les þýöingu sina á
prédikunum út frá dæmi-
sögum Jesú eftir Helmut
Thielickell: Dæmisagan af
týnda syninum: siöari hluti.
Morguntðnleikar kl. 11.00:
Osian Ellis leikur á hörpu
tvær arabeskur eftir
Debussy, Nedda Casei
syngur meö Sinfóniuhljóm-
sveitinni i Prag „Ljóö um
ástina og hafið” eftir
Chausson: Martin
Turnovský stjórnar,
Vladimir Ashkenazý leikur
á pinó „Gasphard de la
Nuit” eftir Ravel.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veöurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Við vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: Móöir
og sonur” eftir Heinz G.
Konsaiik. Bergur Björnsson
þýddi. Steinunn Bjarman
les (5).
15.00 Miðdegistónleikar,
Hljómsveitin Filharmonia i
Lundúnum leikur Konsert
fyrir tvær strengjasveitir
eftir Michael Tippet:
Walter Goehr stjórnar.
Henrik Szeryng og Sinfóniu-
hljómsveitin i Bamberg
leika Fiölukonsert nr. 2 op.
61 eftir Karol Szyman-
owski: Jan Krenz
stjórnar. Sinfóniuhljóm-
sveit Lundúna leikur Intro-
duction og allegro fyrir
hljómsveit eftir Arthur
Bliss: höfundur stjórnar.
18.00 Hviti höfrungurinn
Franskur teiknimynda-
flokkur. Þýbandi og þulur
Ragna Ragnars.
18.15 Miklar uppfinningar.
Nýr, sæsnkur fræöslu-
myndaflokkur i 13 þáttum
um ýmsar mikilvægustu
uppgötvanir mannkynsins á
sviöi tækni og vísinda. Má
þar nefna hjól, mynt, letur,
prentlist, sjóngler, klukku,
eimvél, rafmagn og rafljós,
si'ma, loftför og útvarp.
Þýöandi og þulur Gylfi
Pálsson.
18.45 Rokkveita rikisins kynn-
ir Deildarbungubræöur.
Hlé.
20.00 Fréttir og vebur.
20.30 Augiýsingar og dagskrá
20.35 Nýjasta tækni og visindi
Fiskeldi. Flugkennsla,
Dauöhreinsaöir kjúklingar
Þjálfun býfiugna o.fl.
Umsjónarmaöur Siguröur
H. Richter.
21.00 Maja á Stormey.Finnsk-
ur framhaldsmyndaflokkur
I sex þáttum, byggöur á
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veburfregir).
16.20 Popphorn
17.30 Útvarpssaga barnanna:
„Borgin viö sundiö” eftir
Jón Sveinssson (Nonna)
Freysteinn Gunnarsson Isl.
Hjalti Rögnvaldsson les
(12).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Um streituþol og
hjartaskem mdir . dr.
Sigmundur Guömundsson
prófessor flytur áttunda er-
indi flokksins um rannsókn-
ir I verkfræbi- og raunvis-
indadeild háskólans.
20.00 Kvöldvaka Einsöngur:
Ölafur Þorsteinn Jónsson
syngur islensk lög Ölafur
Vignir Albertsson leikur á
pianó. b. Prestur Grimsey-
inga Halldór Kristjánsson
frá Kirkiubóli flytur siöari
frásöguþáttinn af séra Sig-
uröi Tómassyni. c. Kvæöi
eftir Arinbjörn Arnason.
Sverrir Kr. Bjarnason les.
d. Ferö yfir jökul Bryndis
Sigurðardóttir les úr endur-
minningum Ásmundar
Helgasonar frá Bjargi. e.
Um islenska þjóöhætti Arni
Björnsson cand. mag. talar.
f. Kórsöngur: Þjóöleikhús-
kórinn syngur lög eftir Jón
Laxdal. Söngstjóri: Dr.
Hallgrimur Helgason.
21.30 Útvarpssagan:
„Blúndubörn” cftir Kirsten
Thorup Nina Björk Arna-
dóttir les þýöingu sina (2).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir Lestur
Passiusálma (9)
22.25 Kvöidsagan: „Siöustu ár
Thorvaldssens” Endur-
minningar einkaþjóns hans,
Carls Frederiks Wilckens.
Björn Th. Björnsson les
þýðingu sina (8).
22.45 Djassþáttur I umsjá
Jóns Múla Arnasonar.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
skáldsögum eftir álensku
skáldkonuna Anni
Blomqvist. 5. þáttur.
Fimbulvetur. Efni fjóröa
þáttar: Jólin 1859 brennur
íbúöarhúsiö á Stormey til
kaldra kola og allir innan-
stokksmunir. Fjölskyldan
veröur aö hafast vib i gripa-
húsinu, þar til hafisinn er
manngengur. Þá er lagt af
staö heim til foreldra Maju.
Þýöandi Vilborg Siguröar-
dóttir. (Nordvision —
Finnska sjónvarpið).
22.00 Saul BellowSænsk mynd
um bandarlska rithöfundinn
Saul Bellow, sem hlaut
bókmenntaverölaun Nóbels
á siðasta ári, og borgina
Chicago, þar sem Bellow
hefur búiö, siöan hann flutt-
ist til Bandarikjanna um
1920 ásamt foreldrum sin-
um, rússneskum gyöingum.
Þýöandi og þulur Dóra
Hafsteinsdóttir (Nordvision
— Sænska sjónvarpið)
22.30 Dagskrárlok.