Þjóðviljinn - 27.03.1977, Page 3

Þjóðviljinn - 27.03.1977, Page 3
Sunnudagur 27. mars 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Lífi pólitískar skrýtlur Þjófarnir eru allir hér Kúgun, eymd/ skortur, skrif f innska, eru allt vandamál sem obbinn af mannkyni finnur á sér brenna daglega. Og menn grípa til ýmissa ráða til baráttu eða andófs — eitt tæki er það, sem menn veita kannski ekki nægi- lega athygli, en það er skrýtlan. Þú hefur ef til vill ekki möguleika á að fella valdhafana i næstu atrennu — en þú getur að minnsta kosti gert þá hlægilega. Hugleiöíngar af þessu tagi skjóta upp kolli þegar lesin er skýrsla bandarisks blaöamanns um skrýtlusmiö egypta. Hann segir aö egyptar séu þekktir fyrir gamansemi, og þeim hafi meira aö segja tekist aö hlæja aö þeim herfilegum vandamálum sem leiddu til mikilla óeiröa I Kalró og viöar I jánúar — en þá hafi stjórn Sadats fundiö upp á þvi snjallræöi aö stórhækka verð á brýnustu nauösynjum. Biðraðir og húsnæði Til dæmis að taka er það dagleg raun egypta, aö þeir þurfa aö biöa klukkustundum saman I biöröö- um fyrir utan kjötverslanir þá sjaldan aö kjúklingar eru þar til sölu. Nýleg skrýtla segir frá flokki þjófa, sem brjótast inn i villu auökýfings og finna þar frysti- kistu, sem er full af kjúklingum Þrem stundum siöar kemur eigandi villunnar heim og stendur þjófana að verki: þeir standa þol- inmóöir i biðröö viö frystikistuna, og biöa hver eftir sinum kjúklingi! Húsnæöisvandræöin i Kalró eru annaö tilefni til skrýtlusmiöa. Maöur nokkur gengur yfir brú þar I borg, og tekur eftir náunga einum sem buslar i ánni og kallar á hjálp. — Hvaö heitir þú? kallar maöurinn á brúnni. — Hvaöa máli skiptir það, svarar sá sem er aö drukkna. Hjálpaöu mér i guösbænum! En maöurinn á brúnni heldur fast viö sinn keip, þar til maöur- inn i ánni hrópar I örvæntingu sinni: Ég heiti Abdul Rahman. Og vertu nú svo vænn að hjálpa mér. — Hvar áttu heima? spyr gaur- inn á brúnni, og þótt sá, sem hefur þegar sopiö helst til mikiö af vatni Nilar vilji ekki fara út i þá sálma neyðist hann aö lokum til aö láta undan: Ég bý á Sjaria Mahmúd Pasja númer 15. Og viltu nú gjöra svo vel aö draga mig upp. I staö þess aö koma til hjálpar hleypur maðurinn á brúnni allt hvaö fætur toga til Sjaria Mahmúd Pasja 15 ber þar að dyr- um og spyr eftir húsráöanda. — Ég er búinn aö leigja her- bergið, segir húsráöandi, Ég leigöi þaö manninum, sem henti honum i ána. Kjöt og hóruhús önnur saga segir frá þvi, aö eft- ir aö Sadat forseti gaf út tilskipun um ævilangt fangelsi þeim til handa sem efna til kröfuganga, verkfalla og pólitiskrar mold- vörpustarfsemi, eins og það var orðaö, hafi hann I staöinn bætt viö nýrri tegund frelsis i mannréttindaskrá Egyptalands: „Allir fátækir egyptar hafa óafturkræfan rétt til aö heimsækja slátrarabúö aö eigin vali og standa þar allt aö fimmtán T ækif æris v erð velur eina af finlegustu stúlkum sinum handa honum, en eftir aö þau skötuhjúin hafa skroppiö afsiöis kemur stúlkan bálreið til baka og hrópar: Nei, ég fellst aldrei á þaö! Maddaman heldur nú, aö ungi maöurinn sé ekki eins saklaus og hún hélt, og sendir til hans harð- sviruöstu gaddavírskerlinguna i hóruhúsinu. En ekki liður á löngu þar til einnig hún kemur aftur, fussandi og sveiandi: Nei takk. Ég er ekki með i svona löguöu! — Herra minn trúr, segir maddaman, hvaö var þaö eigin- lega sem hann vildi? — Hann spuröi hvort hann gæti borgað mér i egypskum pundum! Ónotaður heili Sadat forseti kemur stundum viö sögu I pólitiskum skrýtlum, en einkum þó félagar hans I rikis- stjórninni. Meöan á stóö óeiröum i janúar var oftast kvartaö yfir mikilli spillingu meöal áhrifamanna i stjórninni. Um það leyti var Sadat á hressingarstaönum Assúan og ein sagan segir, aö þá hafi hann fengiö hraösamtal frá einum aöstoöarmanna sinna I Kairó. — Herra forseti, þú veröur aö gera eitthvaö, sagöi aöstoöar- maöurinn. Þjófar hafa brotist inn I bústaö þinn og þeir eru aö stela öllu steini léttara. Sadat leit þá yfir ráöherra sina, sem voru einmitt á fundi með honum og sagði: Nei, þaö getur ekki veriö. Þjóf- arnir eru allir hérna hjá mér. Hiö pólitiska ástand blandast stundum saman viö heföbundnar sögur um mannlega heimsku. Ein slik segir frá miklum lækni, sem er sérfræöingur i heilaflutningi. Læknirinn er aö sýna manni, sem þarf á nýjum heila aö halda, þá valkosti sem um er aö ræða. — Þú getur fengiö þennan rússneska heila frekar ódýrt, eöa fyrir 50 egypsk pund, segir lækn- irinn. Hérna er lika bandarískur sérfræðingsheili, sem ég get látið þig fá fyrir 500 pund. En ef aö þú hefur efni á þvi, þá mæli ég eindregið meö þessum fullvaxna egypska heila hérna. Hann kostar 5000 pund. — Hvernig I ósköpunum getur þú farið fram á annaö eins verö fyrir egypskan heila? spyr sjúkiingurinn. — Vegna þess, segir læknirinn, aö hann hefur aldrei veriö notað- ur. (byggtálHT) Aýhjúpuð stytta af Önnu Frank A dögurium var afhjúpuö I Amsterdam stytta af önnu Frank. Nafn hennar hefur oröiö frægt um allan heim vegna dag- bókar, sem þessi gyöingastúlka skrifaði i felustaö^ sem fjölskylda hennar og nokkrir gyöingar aörir leyndust i tvö ár á striösárunum. Þjóöverjar fundu felustaöinn að lokum, og Anna lést I útrým- ingarbúöunum I Belsen árið 1945. Faöir önnu, Otto, var sá eini af fjölskyldunni sem liföi af fanga- búöadvölina. Hann stóö viö hliö borgarstjóra Amsterdams á dög- unum, þegar styttan var afhjúp- uð, en hún stendur skammt frá þvi húsi þar sem fjölskyldan leyndist. Þar er nú safn til minningar um önnu Frank og hollenska gyðinga sem nasistar myrtu. Anna Frank minútur á degi hverjum til að horfa á kjötiö”. Þá hefur óstööuleiki egypska pundsins veriö mjög til meöferö- ar hjá skrýtlusmiðum alþýöu. Sakleysislegur ungur egypti heimsækir hóruhús i Paris I fyrsta sinn. Skilningsrlk mellumóöir — Hefuröu heyrt hann þennan? Kr. 2.980.- Kr. 2.400,- Póstsendum Kr. 3.570.- Kr. 2.950.-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.