Þjóðviljinn - 27.03.1977, Page 5
Sunnudagur 27. mars 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
r
Mesta böl Islands er
brennmniö og
kommúnistarnir.
Og þó er eitt sem er verra.
Það er ríkisstjórnin.
Heyrt í sundlaug
Haustið 1973 varð breyt-
ing á dönsku flokkakerfi,
sem var miklu stærri og
snögglegri en menn eiga að
venjast á Norðurlöndum,
þar sem meiriháttar til-
færslur á kjósendum eru
fremur sjaldgæfar. Mog-
ens Glistrup, frægur fyrir
gróft gaman um skatta-
mál, hafði þá stofnað sinn
Framfaraflokk og fékk
byr undir báða vængi. (
kosningunum til þings varð
hann þriðji stærsti flokkur
landsins. I kosningunum í
janúar 1975 tókst Glistrup
að halda utan um megin-
hluta fylgis síns, þrátt
fyrir margar hrakspár. Og
þótt flokkur Glistrups sé
enn ,,stikkfrír" í stjórn-
málum að því leyti, að eng-
inn mun áræða að innlima
hann í einhverskonar þing-
meirihluta, þá bætti hann
nokkuð stöðu sína í nýaf-
stöðnum kosningum.
Framfaraflokkurinn fékk tæp
15% atkvæöa og er næststærsti
flokkur landsins. Samsetning
kjörfylgis er næsta einkennileg.
Um 30% af öllum sem „vinna hjá
sjálfum sér” i borgum kjósa
Glistrup og um fimmtungur elli-
lifeyrisþega. Þetta eru að sjálf-
sögðu hópar sem oftast eru dr júg-
ir hægriflokkum. Hinsvegar hafa
margir góðir vinstrisinnar átt
erfitt með að átta sig á þvi, að um
15% ófaglærðra verkamanna og
19% faglærðra ljær þessum „hálf-
fasiska lýöskrumara” atkvæði
sitt. Til samanburöar má taka, að
flokkarnir þrir sem teljast til
vinstri við danska sósialdemó-
krata, SF, Vinstri sósialistar og
kommúnistar, hafa samtals
10,3% atkvæða — en þeir fá sam-
tals aðeins 6,0% af atkvæðum
faglærðra verkamanna og 8,7% af
atkvæðum ófaglærðra.
Pólitískur leidi
Eins og að likum lætur, hefur
Glistrupfyrirbærið vakið athygli
langt út fyrir landamæri Dan-
merkur, og félagsfræðingar hafa
sameinast mögulegum pólitisk-
um lukkuriddurum i þvi aö velta
þvi fyrir sér, hvort hliðstæðar
hreyfingar gætu náð skyndilegum
árangri til dæmis á öðrum Norö-
urlöndum. Og það eru bornar
fram útskýringar á velgengni
Glistrups i blaðagreinum og á
ráðstefnum — hér á eftir skulu
raktar nokkrar þær helstu.
Fyrsta skýringin er á þá leið, að
á vesturlöndum sé útbreiddur
orðinn „þingleiði”, vantrú á
stjórnmálamönnum og félags-
GLISTRUP
HVERNIG VERÐUR HANN TIL?
málavitum margskonar, og hafi
þessi leiði orðið sérlega sterkur i
Danmörku. 1 framhaldi af þessu
er visað til skoðanakannanna sem
benda til þess, aö kjósendur
Glistrups séu i raun og veru ekki
að styðja neitt — heldur fyrst og
fremst að greiða atkvæði á móti
hefðbundinni pólitik.
Þessi skýring hefur sitthvað sér
til ágætis, en hún sýnist lika ófull-
nægjandi. óánægja með stjórn-
málamenn er útbreidd, en hún
verður ekki til i tómarúmi. Menn
eiga m.ö.o. eftir að gera sér grein
fyrir þvi, af hverju einmitt dansk-
ir atvinnupólitikusar og stjórn-
málaflokkar ættu að vera svo
miklu lakari en hliðstæð fyrirbæri
i öðrum löndum, að einmitt þeir
fái refsivönd Glistrupismans yfir
sig.
Smáborgarar
á hrakhólum?
önnur skýring reynir að
tryggja sér fótfestu i samfélags-
gerðinni frekar en einstaklings-
bundinni gremju. I hinu róttæka
timariti Zenit (þriðja hefti 1975)
er Framfaraflokki Glistrups lýst
sem afturhaldssömum óánægju-
flokki danskra smáborgara. Með
lýsingu á efnahagslegri og póli-
V erkamannaf élagið
Dagsbrún
Reikningar
félagsins liggja frammi á skrifstofu
Dagsbrúnar frá og með mánudeginum 28.
þ.m.
Aðalfundur
Dagsbrúnar verður i Iðnó sunnudaginn 3.
april kl. 14.
STJÓRNIN.
tiskri þróun i landinu er reynt aö
sýna fram á að einmitt smáborg-
arar i þvisa landi hafi orðið fyrir
miklum efnahagslegum skakka-
föllum á sjöunda áratugnum og
hafi þvi freistast til að flykkja sér
um Glistrup. Samkvæmt þessu er
efnahagskreppa, harðnandi sam-
keppni og samsöfnun auðmagns á
færri hendur ein helsta ástæðan
fyrir velgengni Framfaraflokks-
ins; þeir sem verða undir flykkja
sér um hann.
Þessu hafa menn svo andmælt
með þvi að visa til heimilda um,
að á undanförnum árum hafi ekki
átt sér stað verulegar breytingar
á eignaskiptingu i Danmörku.
Uppbygging iðnaðar er t.d. svip-
uð og hún hefur verið, og litil og
meöalstór fyrirtæki hafa haldiö
sinum sessi fyllilega. Nánari
skoðun á efnahag ýmissa hópa at-
vinnurekenda bendir heldur ekki
til þess að staða smáborgarans
hafi versnað.
Það er þvi ýmislegt sem bendir
til þess að skilgreining á stööu á-
kveðinnar stéttar sé ekki nóg til
að skýra velgengni Glistrups. Til
dæmis hafa sænskir smáborgar
orðið fyrir miklu stærri búsifjum i
samkeppni við „þá stóru” en
danskir — án þess að þeir hafi
komið sér upp hreinræktuðum
óánægjuflokki. Liklegt er, að til
að skilja Glistrupfyrirbæriö þurfi
menn að tengja félagslega og
efnahagslega þætti málsins við
sjálft inntak þeirrar stefnu sem i
reynd hefur verið fylgt i danskri
stjórnsýslu.
r
Oánægja með
hægristjórn
A árunum 1966-68 þegar sósial-
demókratar stjórnuðu með stuðn-
ingi SF (Sósialiska alþýðuflokks-
ins), fóru umsvif rikisins ört vax-
andi. Til þess að standa straum af
þessum umsvifum — t.d. i margs-
konar félagslegri þjónustu — var
ekki aðeins nýttur allgóður hag-
vöxtur, heldur var hluti skatt-
heimtu af þjóðartekjum aukinn
allverulega. Þessi þróun mætti
af
erlendum
vettvangi
sterku andófi hinna borgaralegu
flokka, sem höfðu hátt um að þeir
væru dauðhræddir við „þróun til
sósialisma” i Danmörku.
1 kosningunum 1968 tókst borg-
araflokkunum að ná betri stööu,
m.a. með þvi að veifa óspart hin-
um rauðu grýlum. Venstre, i-
haldsmenn og radikalir bættu all-
ir við sig fylgi og börðu saman
samsteypustjórn upp úr kosning-
unum. En hafi hinir borgaralegu
kjósendur búist við meiriháttar
stefnubreytingu i stjórnsýslu, þá
urðu þeir fyrir vonbrigðum. Hin
opinberi geiri hélt áfram að vaxa
með auknum hraða.
A árunum 1968-1971 jókst hlutur
skattheimtu af þjóöarframleiðslu
úr 33% f 44% og var það allmikiu
meira en á öðrum Norðurlöndum.
Persónuskattar hækkuðu einn-
ig. A árunum 1961-1962 var hlutur
persónuskatta af tekjum ríkisins
38%, árin 1967-68 44% og 1973
námu þeir 56%. Viröisauka-
skattabreytingarnar urðu og til
þess, aö almenningur hafði mjög
skýra og áþreifanlega mynd af
þvi, hvernig skattabyrðin velti
sér yfir þá. Og þessi stóraukna
skattheimta átti sér sem sagt stað
meöan borgaraleg stjórn sat aö
völdum — fjármálaráðherrann
var meira að segja ihaldsmaöur.
Af þessum ástæðum er þaö ekki
undarlegt, þótt hinir borgaralegu
stjórnarflokkar þrir hafi i kosn-
ingunum 1971 tapað samtals sjö
prósentum atkvæöa. En sú
óánægja með stjórnarstefnuna,
sem var mest hjá bæði stórborg-
urum og smáborgurum, haföi enn
ekki fundið sér pólitiskan farveg.
En þegar Glistrup skaut upp
kollinum og hafði hátt um að það
mætti afnema tekjuskatt, skera
opinber útgjöld stórlega niður og
aö þeir flokkar, sem fyrir voru,
væru til einskis nýtir, þá gat hin
langstaðna óánægja rutt sér fram
af fullum krafti. Með öðrum orð-
um: það er samtenging ákveðinn-
ar þróunar i dönskum skattamál-
um viö pólitiska og efnahagslega
kreppu, sem er forsenda fyrir-
bærisins Glistrup.
Og viö hér heima
Þegar menn svo velta þvi fyrir
sér, af hverju t.d. Sviþjóð fær ekki
yfir sig Glistruphreyfingu, þá
benda menn t.d. á það, aö um 40
ára skeið hafi ekki setið stjórn
borgaraflokka i Sviþjóð — og
þessvegna hafi borgaralegir kjós-
endur ekki haft tilefnitil að verða
fyrir vonbrigðun með „sina eigin
stjórn” — fyrr en þá núna þegar
Falldin er tekinn við af Olof
Palme. 1 annan staö hafi skatta-
byrði aldrei orðið eins há i Sviþjóð
og Danmörku, verkalýöshreyf-
ingin hafi verið samstæðari
o.s.frv.
A tslandi er flokkaskipan allt
önnur eins og allir vita. Hægri-
sinnaður borgaraflokkur hefur
lengst af farið með stjórnar-
tauma, og hann hefur náö þaö
langt i að sveigja umsvif rikis-
valdsins undir þarfir borgara-
stéttarinnar, og þá smáborgara
einnig, að óánægja hægri sinnaðs
fólks með borgaralega forystu
hefur ekki náð verulegum
sprengjukrafti. Einmitt sam-
tvinnun Sjálfstæðisflokks og
rikisvalds hefur og gert það
mögulegt til þess aö kæfa slika
óánægju i fæðingunni. Hitt er svo
annað mál, aö þeir straumar sem
hafa verið á hreyfingu i kringum
Dagblaðið eru það sterkir, að það
hlýtur að vera nokkur freisting aö
reyna aö virkja þá i kosningum
undir þeim fána, aö ihaldiö sé
ekki nógu hreinræktað ihald.
AB tók saman.
HÚSBYGGEJNDUR-Einangrunarplast
Afgreiöum einangrunarplast á
Stdr-Reykjavíkursvæöið frá
mánudegi-föstudags.
Afhendum vöruna á byggingar-
staö, viðskiptamönnum
að kostnaðariausu.
Hagkvæmt verð
og greiðsluskilmálar
við flestra hæfi
kvKM H belfarsiad f3>7355