Þjóðviljinn - 27.03.1977, Síða 17
Sunnudagur 27. mars 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17
Reykjavík
28. mars tiL 5. apríl
vika í
Á morgun, mánudag,
hefst í Reykjavik þriðja
kvikmynda vikan sem
franska sendiráðið gengst
fyrir hér á landi. Að þessu
sinni verða sýndar 7 nýjar
myndir, framleiddar á ár-
unum 1974-1976. Sýningar
verða í Háskólabíói, og
„Kona við gluggann sinn” er byggö á handriti eftir Jorge Semprun.
verður hver myndanna
sýnd þrisvar sinnum.
Að þvi er franski sendiherrann,
M. de Latour Dejean, tjáði blaða-
mönnum á fundi nú fyrir helgina
hafa þessar vikur fengið tals-
verða aðsókn og hefur hún farið
vaxandi. Sendiherrann taldi jafn-
vel ástæðu til að ætla að islenskir
áhorfendur væru nú opnari fyrir
fleiri myndum en bandariskum
en verið hefði, þegar'hann kom
hingað fyrst fyrir tæpum fjórum
árum. Ef rétt er athugað má ef-
laust rekja þessa þróun til menn-
ingarviðburða á borö við þessar
frönsku kvikmyndavikur.
Sendiherrann lagði áherslu á að
reynt væri að velja kvikmyndir
sem höfðuðu til allra — ekki ein-
göngu menntamanna. Enskir
skýringartextar eru á myndun-
um, sem eru allar meö frönsku
tali.
Hér verður reynt að gera
nokkra grein fyrir þessum sjö
kvikmyndum og þvi fólki sem að
baki þeim stendur.
Kvikmyndavikan veröur opnuð
kl. 7 á morgun i Háskólabió með
sýningu á Adele Hw annarri af
tveimur myndum sem sá frægi
maður Francois Truffaut stjórn-
aði á árinu 1976. Truffaut var einn
af höfuöpaurum i nýju bylgjunni
frönsku og sló i gegn árið 1959
með myndinni 400 högg.sem er
löngu sigild. Siðan hefur hann
stjórnað ótal myndum og hafa
margar þeirra verið i sjálfsævi-
sögustil. En myndin sem við fá-
um að sjá á morgun er byggð á
sögulegum heimildum: Adele H.
var yngri dóttir Viktors Hugo.
Fjölskyldulif Viktors gamla virö-
ist hafa verið með eindæmum
viðburðarikt, hann átti fimm börn
sem öll enduðu ævi sina á ömur-
legan eða voveiflegan hátt. Adele
lagði vonlausa ofurást á enskan
liðsforingja og f jallar myndin um
þá ást. Viðfangsefnið er róman-
tiskt i betra lagi og myndinni var
yfirleitt hrósað af gagnrýnend-
um, þótt sumir vildu meina að
eitthvað vantaði i hana, og var þá
gjarna látið að þvi liggja, aö
Truffaut væri búinn að segja það
sem honum hefði legið á hjarta
fyrir 20 árum, nú væri hann far-
inn að gera myndir sem væru
fullkomnar á yfirborðinu, en inn-
antómar. Væntanlega getum við
myndað okkur skoðun um þetta
sjálf á morgun. Auk þess sem
gestum verður boðið á sýninguna
kl. 7 verða einnig seldir miðar á
hana, og þar að auki verður Adele
H. sýnd þriðjudaginn 29. mars kl.
21 og miðvikudaginn 30. mars kl.
17. Aðalhlutverkið i myndinni
leikur Isabelle Adjani, sem var
orðin leikkona við Comedie
Francaise 16 ára aö aldri og hefur
öðlast frægð fyrir túlkun sina á
Adele og fyrir leik sinn i nýjustu
mynd Polanskis, Leigjandanum.
Pierre Granier-Deferre hóf fer-
il sinn um svipað leyti og Truffaut
og hefur stjórnað 13 myndum; af
þeim eru tvær á dagskrá nú:
Kona við gluggann sinn (Une
femme a sa fenetre) og Adieu
Poulet, sem kölluð er Farvcl
lögga i islenskri þýðingu þeirra
sendiráðsmanna. Fyrri myndin
er gerð eftir handriti Jorge
Semprun sem frægur er fyrir
handrit að mörgum pólitiskum
myndum, þ.á m. Z, Ben Barka
málið, Játningin, Striðinu er lok-
ið. Konan við gluggann er sögö
vera „melódrama með sögulegu
og pólitisku ivafi”. Þar leikur
Romy Schneider rika og fallega
konu sem kemst i kynni við bylt-
ingarsinna. Myndin gerist i
Grikklandi nokkru áður en seinni
heimsstyrjöldin hófst
Farvel lögga er spennandi lög-
reglumynd með gamansömu ivafi
og frægum leikurum i aöalhlut-
verkum: Lino Ventura og Patrick
Dewaere. Sýningar á þessum
tveimur verða sem hér segir:
Kona við gluggann sinn, 29. mars
kl. 19, 1. april kl. 21 og 2. april kl.
17. Farvel lögga: 31. mars kl. 17,
l.april kl. 19 og 2. aprilkl.21.
Dauði leiðsögumanns (La
mort d’un guide) er frumraun
ungs kvikmyndastjora, Jacques
Ertaud. Hér er um að ræða mynd
af þeirri tegund sem kölluð hefur
verið „leiknar heimildarmyndir”
— en það form á nú viða miklum
vinsældum að fagna. Leikin
mynd, sem byggist á fyrirfram
sömdu handriti.er tekin i einskon-
ar frétta- eða heimildarmyndar-
stil og verður þannig trúverðugri
en ella. Myndin gerist i frönsku
Olpunum þar sem landslag ku
vera meðafbrigðum stórfenglegt,
Miklir atburðir gerast og sýnt er
hvernig blaðamenn fara stundum
að þvi að afla sér efnis i forsiðu-
fréttir. Dauði leiðsögumanns er
sýnd 1. 3., og 4. april.
Besta lciðin (La meilleure
facon de marcher) er einnig
fyrsta mynd sins höfundar,
Claude Miller. Hún gerist i sum-
arbúðum barna árið 1960 og fjall-
ar að mestu leyti um sálfræðileg
átök milli tveggja starfsmanna
búðanna. Þessi mynd hefur veriö
kölluð „sálfræðileg gamanmynd”
og einnig hefur henni verið likt
við meistaraverk Truffauts, ,,400
högg”. Hún er á dagskrá dagana
3., 4. og 5. april.
Þá eru ótaldar tvær myndir,
sem ætla mætti að höfðuðu sterk-
lega til okkar hérna á vinstri
kantinum: On s'est trompe
d’histoire d’amour eða Ekki rétta
ástarsagan eftir Jean Louis
Bertuccelli, og Lily aime moi —
Lily elskaðu mig eftir nýliðann
Dugowson. Sú fyrri er sögð vera
raunsæ og gagnrýnin mynd um
það hvernig þjóöfélagið þröngvar
ákveðnu lifsmunstri upp á ein-
staklinginn og gerir hann að vél-
menni. „Gamanleikur i raunsæj-
um dúr”, segja menn. Gaman og
alvara blandast saman á svipað-
an hátt og i raunveruleikanum.
„Ekki rétta ástarsagan” verður
sýnd 2., 3. og 5. april „Lily elsk-
aðu mig” gerist fyrir strið, og i
henni er einnig að finna bæði
gaman og alvöru. Einn stærsti
kostur þessarar myndar er að
aðalpersónan er verkamaður, en
einsog við vitum er það hreint
ekki svo algengt að vandamál
venjulegs fólks séu tekin fyrir i
kvikmynd. Þessi mynd verður
sýnd 28., 29. og 30. mars.
Þar með er þessari upptalningu
lokið. Verður ekki annað séð en að
hérsé um fjölbreytta og girnilega
dagskrá að ræða, og ættu flestþ-
að geta fundið mynd við sitt hæfi.
Þá er ekki annaö eftir en að
þakka frökkum þetta lofsverða
framtak og óska okkur öllum
góðrarskemmtunar iHáskólabiói
vikuna sem nú fer i hönd.
Brúðkaupsatriði úr myndinni „Ekki rétta ástarsagan”.
Isabelle Adjani og Bruce Robinson I mynd Truffauts,
„AdeieH.”
„Lily elskaðu mig”, ástarsaga verkamanns.