Þjóðviljinn - 07.04.1977, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 7. aprll 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
í reynd eru það fyrst og fremst eldri
samvinnumenn, og þá oftast aðfluttir til
Reykjavíkur, sem eru hinir tryggu félagsmenn
KRON í 40 ár
Þann 6. ágúst n.k. veröur
kaupfélagiö i Reykjavik, KRON
40 ára. Þaö er þess vegna ekki
úr vegi aö skyggnast aftur til
upphafsins og vega og meta,
hvernig tilhefur tekist hjá sam-
vinnumönnum i höfuöborginni,
en þvi er ekki aö leyna, aö
mörgum finnst litil reisn yfir
samvinnustarfinu, þar sem nær
helmingur landsmanna býr.
Afgreiðslubann
sett á kaupfélagið
Þaö þurfti kreppu til þess aö
samvinnumenn og verkamenn i
Reykjavik sameinuöust I
kaupfélagi til aö kljást viö
kaupmannavaldiö, sem þá eins
og nú átti sinn höfuöstyrk i
Reykjavik. Margar tilraunir
höföu þó veriö geröar en ávallt
mistekist. Svo var Kaupfélag
Reykjavikur stofnaö 1931oghöf
rekstur verslunar i Bankastræti
2,þar sem siöustu ár hefur mátt
lita útstillingar frá DÓMUS, og
sem eldurinn frá Bernhöfts-
torfunni haföi næstum gert aö
brunarúst.
Þaö voru einkum samvinnu-
menn, sem flutt höföu á mölina
og flestir i Framsóknar-
flokknum, sem stóöu aö þessu
félagi. 1934 voru svo nokkur
pöntunarfélög sameinuö i eitt
félag, sem nefndist Pöntunar-
félag verkamanna og náöi skjótt
miklum viöskiptum. Fóru
kaupmenn nú aö ókyrrast.
Heildsalarnir sameinuöust i
þvi aö selja ekki vörur til þessa
félags og talaö var um þaö, aö
um lif eöa dauöa kaupmanna-
stéttarinnar væri aö tefla.
Samvinnumenn og verkamenn
snéru hins vegar bökum saman
og sameinuöu félögin i
Kaupfélag Reykjavikur og ná-
grennis, en pöntunarfélög i
Hafnarfiröi, Keflavik og i Sand-
geröi geröust einnig aöilar aö
þessu nýja félagi.
Þetta haföi þau áhrif aö mat-
vörukaupmenn i Reykjavik
lækkuöu verö á sinum vörum
um 10%, en fóru þó hvergi niöur
fyrirkaupfélagsveröiö. Hiö
nýja félag pantaöi kolaskip og
seldi siöan tonniö af kolum á 54
krónur, þegar kaupmenn seldu
á 62. Þeir uröu þvi aö lækka sitt
verö til jafns viö kaupfélagiö.
Nær undantekningarlaust var
kaupfélagiö meö lægsta veröiö i
Reykjavik og nágrenni. Þannig
bauö KRON upp á kjarabætur,
sem oft voru drýgri en þær
krónur, sem fengust I höröum
verkfallsátökum. Alþýöufólki
haföi lærst aö beita úrræöum
samvinnunnar til aö efla eigin
hag, enda fjölgaöi félags-
mönnum jafntogþéttogi árslok
1937 voru þeir orfmir yfir þrjú
þúsund.
KRON andstæðingur
númer eitt
Þrátt fyrir aö KRON væri
meö lægsta veröiö skilaöi rekst-'
urinn góöum hagnaöi og versl-
anir spruttu upp á öðru hverju
götuhorni, svo um áramótin
1937/8 voru þær orðnar 12 á
félagssvæðinu eöa einni fleiri en
KRON á í dag.
Félagslegu hliöinni var heldur
ekki gleymt. Efnt var til kvik-
myndakvölda, þar sem sýndar
voru samvinnumyndir frá
Sviþjóð og viöar, efnt var til sér-
stakra húsmæörakvölda og
komiö á legg leshringastarf-
semiumsamvinnumál, sem var
alger nýjung og þekkist reyndar
varla enn I dag.
Þegar ráðist var i byggingu
skrifstofu- og verslunarhús-
næöis aö Skólavöröustig 12 var .
lánsfé safnaö meöal félags-
manna og þeim greiddir hærri
vextir en I bönkum eöa 6%. Þá
hóf KRON útgáfu mjög
myndarlegs blaðs sem hét,
„Heima”og einnig var staðiö aö
útgáfu smárita um samvinnu-
mál.
Þannig var KRON lifandi
félag, sem alltaf var aö huga aö
nýjungum, bæöi I félagsstarfi
sinu og framkvæmdum. Komiö
var á fót efnagerð, tilraun gerö
með grænmetisræktun austur i
Biskupstungum til aö lækka
verö á grænmeti og haldnir sér-
stakir haustmarkaöir, þar sem
kjöt, slátur, kartöflur og græn-
meti var selt á nokkurs konar
markaösveröi. Þaö var þvi ekki
aö ástæöulausu aö kaupmenn og
alltsem þeim fylgdi i Reykjavik
geröu KRON aö höfuðandstæö-
ingi númer eitt, en sam-
vinnumenn glöddust yfir
miklum og góöum framgangi
samvinnustarfsins i Reykjavik
þótt siöbúin væri. Merki KRON
duldist hvergi.
Markaðshlutdeild
hefur minnkað
um helming
Þetta var fyrir fjörutiu árum
en hvernig er svo ástandiö hjá
kaupfélaginu okkar i dag?
Blasir merki KRON viö á öðru
hverju götuhorni? Hvar eru
vöggur samvinnufélaganna i
Bankastræti og á Skólavöröu-
stig og viöar? Nei, merki KRON
stendur hvergi hátt i Reykjavik
og aðeins i Kópavogi sést þaö
utan höfuöborgarinnar.
Hvað hefur gerst? Menn tala
um að KRON hafi ekki fengið
lóðir og ávallt oröiö aö versla i
leiguhúsnæöi. Aö pólitikin hafi
hlaupið I spiliö og gert
Sambandiö andsnúiö KRON, og
að KRON hafi veriö afskipt i
áhrifum á aöalfundum
samvinnufélaganna. Einnig aö
stööugt sé erfiöara sökum mik-
illar samkeppni aö bjóöa hag-
stæöara verð en keppinautarnir,
og aö veröbólgan hafi kippt
fótunum undan söfnun arös af
viðskiptum til félagsmanna.
Allt á þetta sinar skýringar,
en þær duga þó hvergi til aö
skýra þaö, aö hlutur KRON i
dag er aöeins 8 til 9 prósent af
umsetningu matvöruverslana i
Reykjavik eöa meira en helm-
ingi minni en var á fyrstu árum
KRON a.m.k. varðandi sumar
vörutegundir.
Þrettán á fundum
en þrettán þúsund
félagsmenn
Aö nafninu til teljast rúmlega
þrettán þúsund félagsmenn i
KRON, en aðeins örlitiö brot
þeirra sækir deildafundi. Gott ef
eitt prósent þeirra kemur á
fundina. Félagslegur áhugi er
þvi I lágmarki. Undirritaöur átti
hlut aö fundum, sem reynt var
aö koma á i tveimur félags-
deildum sameiginlega er telja
þúsundir félagsmanna. Haldnir
voru tveir fundir og mættu
þrettán á hvorn og var meira en
helmingur þeirra úr deilda-
stjórnunum. Þessir fundir voru
þó eina félagslega viöleitnin
meöal félagsmanna á s.l. vetri.
Hinn almenni félagsmaöur i
KRON er þvi gersamlega
áhugalaus og þar af leiöandi
áhrifalaus i félaginu. Stjórnin
hefur því litinn styrk og aðhald
frá félagsmönnum, og i reynd er
þaö kaupfélagsstjórinn sem og i
öðrum kaupfélögum og
samvinnufyrirtækjum, sem
ræöur smáu og stóru. Búöir eru
þvi lagðar niöur þótt nær hver
einasti félagsmaöur i
viökomandi deild sé þvi mótfall-
inn I hjarta sínu, enda gera
félagsmennirnir nánast ekkert
til aö koma hugmyndum sinum
á framfæri og vinna þeim fylgi
innan félagsins. Firringin lifir
þvi góöu lífi i KRON.
Hagkaup og Vöru-
markaðurinn hafa
tekið forustuna
Þá er mikil hreyfing á starfs-
fólki og lítið gert til aö veita þvi
sem besta fræöslu og glæöa
félagsáhuga þess. Þó hefur
þarna orðiö nokkur breyting á
hinallra siöustuár.KRON berst
þvi ibökkum i samkeppninni og
hefur glataö þvi frumkvæöi,
sem þaö eitt sinn haföi i lækkun
vöruverös til aöila eins og
Hagkaups og Vörumarkaöarins
svo dæmi séu nefnd.
KRON hefur hvorki tekist að
aölagast þeim verslunar-
háttum, þegarkeypter tillengri
tima i senn s.s. viku og ekið á
bilum til og frá verslun eða
halda i horfinu meö búöir i
gömlu hverfunum, þar sem
einkum býr gamalt fólk sem
þarf þjónustu nærri sér og
ferðast ekki meö bilum langar
leiðir til aö versla. Þaö veröur
að segjast eins og er aö KRON
stendur ekki framar og oft ekki
jafnfætis i verslunarrkestrí,
samanboriö við aöra, hvort sem
litið er á vöruverö, vörugæöi eöa
þjónustu. Þetta er haröur dóm-
ur, en sá sem nokkuð hefur
fylgst meö þessum þætti sam-
vinnustarfsins annars staöar á
Norðurlöndum veröur að
horfast i augun viö þaö, aö
heldur er lágt risiö á þessum
þætti samvinnustarfsins 1 höf-
uöborginni okkar. Og enn lægra
veröur þetta ris, þegar haft I I
huga hversu umfangsmikiö
samvinnustarfiö er á tslandi, og
á stað eins og Akureyri hefur
kaupfélagiö um 80—90 prósent
af sölu i matvörubúöum og er til
fyrirmyndar, hvort sem verðið,
þjónustan eða gæöi vörunnar er
viömiöunin.
Rekstur KRON
er traustur
Hins vegar má ekki gleyma
þvi aö rekstur KRON hefur
þrátt fyrir allt veriö traustur og
aðhalds gætt og ofthefur KRON
viö verökannanir sýnt það, aö
vöruverö er þar neöan viö
almennu mörkin. Lagt hefur
veriö kapp á þaö hin siðari ár,
aö KRON eignaöist allt það hús-
næöi, sem starfsemi félagsins er
rekin i og hefur þar oröiö gjör-
breyting á frá fyrri tiö. Þá
mætti gjarnan minnast þess aö
söluskatti skilar KRON öllum
og reikningar félagsins eru
raunveruleg viömiöun um stööu
verslunarinnar eins og aö henni
er staðiö á heiöarlegan máta.
Hagur kaupmannastéttar-
innar hefur kannski fyrst og
fremst grundvallast hin siöari
ár á húsnæöisbraski og skatt-
svikum eöa hvoru tveggja. En
eins og of mikiö má gera af þvi
að f járfesta til aö græöa á verö-
bólgunni, þá má lika segja, aö of
mikil varkárni feli i sér kyrr-
stöðu og afturför miöaö viö
aöra. Þannig hefur fariö fyrir
KRON aö vissu leyti. Aöeins ein
ný verslun hefur veriö byggö á
vegum félagsins á þeim tima,
sem veröbólgan hefur slegiö öll
sin fyrri met, þótt hafa veröi I
huga i þessu sambandi, að
neitun borgaryfirvalda um
stórmarkaö I Birgðastööinni
'nýju tilhandaKRON settiþarna
stórt strik i reikninginn.
Aumingjaskapur
félagshyggjumanna
Hvaö er þá til ráöa? Forustu-
menn s a m v in n u h r ey f -
ingarinnar telja þaö hennar
stærsta verkefni aö efla
samvinnustarfiö I Reykjavik.
Um þaö er undirritaöur þeim
hjartanlega sammála. Það er
hins vegar ekki nóg aö segja
þaö. Þaö eru verkin sem tala.
Þaö má skrifa langt mál um
aumingjaskap þeirra sem kalla
sig vinstri menn, verkalýös-
sinna, sósialista, jafnaöarmenn,
félagshyggjumenn eöa bara
samvinnumenn þegar sam-
vinnustarf i Reykjavik er
annars vegar. I reynd eru þaö
fyrst og fremst eldri samvinnu-
menn og þá oftast aöfluttir til
Reykjavikur, sem eru hinir
tryggu félagsmenn. Þaö er
mörg sjötug eöa áttræö
kempan, sem ennþá lætur sig
ekki muna um aö fara nokkurn
spöl I næstu KRON-búö, þó ekki
hafi verið hlaöiö undir þennan
hóp á undanförnum árum.
Verkalýöshreyfingin hefur
brugöist eins og hún leggur sig
ogsama veröuraösegjaum þau
öfl, sem nú ráöa i Sambandinu
og dótturfyrirtækjum þess.
Alþýöuflokkurinn hefur ekkert
lært, þótt kaupfélag þeirra
alþýðuflokksmanna færi á haus-
inn á sinum tima,og flokksmenn
i Alþýöubandalaginu hafa
hvergi nærri verið KRON sá
styrkur, sem ætla mætti eftir
samsetningu stjórnar KRON.
Framsóknarmennimir hafa
svo flestir hverjir ekki getaö
unað þvi, aö þessu félagi hefur
ekki veriö stjórnaö af fram-
sóknarmönnum alfariö eins og
flestum öörum kaupfélögum.
Heilindin hafa þvi veriö af
skornum skammtiogkannski er
þar komin ein meginskýringin á
hægagangi KRON.
Forustu félagsins hefur svo
skort frumkvæöi og ferskleika
um fjölda ára, svo nýjar hug-
myndir félaginu til góöa hafa
rykfallið á æöstu stööum. Menn
viröast vera búnir aö sætta sig
viö þaö, aö KRON hjakki i sama
farinu — kannski til aö sumir
geti sagt: — Þarna sjáiö þið —
svona gengur þaö þegar komm-
amir stjórna.
5. aprill977
Reynir Ingibjartsson
RÍKISÚTV ARPIÐ
SKÚLAGÖTU 4 — REYKJAVÍK
Auglýsingasímar:
22274 og 22275
GÓÐA FERÐ!