Þjóðviljinn - 07.04.1977, Síða 9
Fimmtudagur 7. aprll 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA — 9
SYRPA
Myndlistar-
sýningar
um alla
borgina
Sjaldan hafa myndlistarmenn
á tslandi tekið annan eins fjör-
kipp i sýningahaldi og um þess-
ar mundir... og hafa þeir þó oft
staðið sig af mikilli prýði I þeim
efnum. Reykvikingar og ná-
grannar þeirra fara ekki á mis
við myndlistina um páskahelg-
ina, þvl meira en tiu sýningar
eru I gangi. Verður hér getið
þcirra helstu.
Kjarva Isstaðir:
Þrjár sýningar verða þar um
páskana. 1 Vestursal opna þau
Haukur Dór og Þorbjörg
Höskuldsdóttir sýningu á laug-
ardaginn, en I Austursal er um
þessar mundir sýning á verkum
Jóhannesar S. Kjarval.
Norræna húsið:
Gunnlaugur Stefán Gislason
sýnir 38 vatnslitamyndir og hef-
ur opið frá kl. 15-22 til 11. april.
i húsi Málarans:
t sýningarsal Arkitektafélags
Islands stendur yfir sýning
Steinþórs Marinó Gunnarsson-
ar.
Galleri SÚM:
Þar sýnir Guðrún Svava
Svavarsdóttir málverk, graflk-
myndir og teikningar, en þetta
er fyrsta sýning hennar. Er opið
til 12. april frá klukkan 16-22.
Guðrún hefur myndskreytt
nokkrar bækur og unnið viö gerð
leiktjalda, leikbrúða og búninga
fyrir Þjóðleikhúsið og Leikfélag
Reykjavikur, en hérna sýnir
hún i fyrsta sinn málverk sin.
Bogasalur:
Svavar Guðnason sýnir vatns-
lita-og kritarmyndir til 17. aprll
frá klukkan 14-22 daglega. Sam-
tals eru um þrjátiu verk á sýn-
ingunni og er verð þeirra frá kr.
45 þúsund — 250 þúsund.
Galleri Sólon islandus
Orn Þorsteinsson sýnir 30
oliumálverk til 17. april frá
klukkan 14-18 á virkum dögum,
en annars frá 14-20.
Skátaheimilið
Hafnarfirði
Þórður Halldórsson frá Dag-
verðará sýnir yfir páskana um
40 oliumálverk.
Eden i Hveragerði:
Steingrimur Sigurðsson held-
ur sina árlegu vorsýningu yfir
páskana i Eden i Hveragerði.
Er þetta 33. einkasýning Stein-
grims og eru.þar um 50 nýjar
myndir, unnar úr oliulitum,
vatnslitum og acryl. Eru marg-
ar myndanna málaðar fyrir
austan fjall, en Steingrimur er
búsettur I Hveragerði.
Félagsheimili
Ölfusinga:
Sigurður M. Sólmundarson
með sýningu, sem getið er ann-
ars staðar á siðunni.
Sýnir í Hvera-
geröi um páska
Sigurður M. Sólmundarson heldur sina fyrstu sýningu i Félags-
heimili ölfusinga Hvcragerði (við hliðina á Eden), dagana 7.-11.
april. Verkin sem sýnd verða eru öll unnin á árunum 1968-1977 og
kennir þar margra grasa. A sýningunni eru 40 myndir sem Sigurður
hefur unnið úr efnum úr riki náttúrunnar, þ.e. úr sandi, leir og tré.
Ennfremur eru þar steinsteyptar styttur og margskonar munir
smáir og stórir sem einnig eru unnirúrhinum ótrúlegustu efnum.—
Sýningin verður opin frá kl. 14-22 alla dagana. Veitingar seldar á
staðnum.
Steinþór Marinó
sýnir verk sín
Hljómplata
Olgu kynnt á
laugardaginn
tJtgáfufélagið Gagn og Gam-
an hefur nú starfað I tvo mán-
uði. A þeim tima hefur söfnun
félaga staðið I fullum gangi, en
samþykkt var á stofnfundi 24.
janúar að þeir sem gengu I fé-
lagið fyrir 1. júnl skyldu njóta
áskriftar á útgáfu félagsins til
tveggja ára gegn 5000 kr. fé-
lagsgjaldi. Eftir páska er
væntanleg á markað fyrsta
plata félagsins, Kvöldfréttir,
með Olgu Guðrúnu Arnadóttur,
en efnið er allt eftir ólaf Hauk
Simonarson, ljóð og lög. Næst
komandi laugardag hyggst fé-
lagið gangast fyrir kynningu á
skipulagi sinu og markmiöum.
Verður kynningin I Norrræna
húsinu og hefst klukkan 16.
Einnig verður plata Olgu kynnt
þar I heild.
Fyrsta verkefni Gagns og
gamans var plata Olgu, Kvöld-
fréttir. Var vinnslu hennar lokið
um miðjan febrúar og verður
hún komin á markað eftir
páska. Karl Sighvatsson sá um
útsetningar á lögum ólafs
Hauks, og leikur auk þess á
hljómborð. Tómas Tómasson
sér um bassann, en Þórður
Arnason um gitara, Ragnar
Sigurjónsson og Askell Másson
annast slagverk. A plötunni eru
12 lög. Næsta verkefni félagsins
verður barnaplatan Gagn og
Gaman. Textar verða eftir Pét-
ur Gunnarsson, en lög eftir Val-
geir Guðjónsson (Spilverkiö),
og Leif Hauksson (Þokkabót).
Vinnsla hefst á henni um mán-
aðamótin mai-júni. Báðar þess-
ar plötur verða einnig gefnar út
á kasettum.
Félagar Gagns og Gamans
eru ákveðnir i að vinna félaginu
fastan og öruggan sess I is-
lenskri útgáfu. Auk tónlistar-
verkefna er þegar mikill áhugi
innan félagsins um útgáfu Is-
lenskra ritverka.
Helgi Skúlason og Gunnar Eyjólfsson i hlutverkum sfnum I
Endatafli.
Endatafl á
2. í páskum
Hið fræga leikrit
Nóbelsverðlaunahafans
Samuel Becketts ENDA-
TAFL hef ur nú verið sýnt
í nokkur skipti á Litla
sviði Þjóðleikhússins en
þetta er í fyrsta skipti
sem verkið er f lutt á sviði
hérlendis. Endatafl var
samið fyrir 20 árum og
þykir eitt af tímamóta-
verkum nútímaleikritun-
ar' Ásamt öðru verki
Becketts, Beðið eftir
Godot og fyrstu verkum
lonescos er það talið eitt
af grundvallarleikritum
absúrdismans eða fárán-
leikastefnunnar í leikrit-
un.
Sýning Þjóðleikhússins hefur
hlotið góðar viðtökur þeirra,
sem séð hafa en aðsókn að verk-
inu hefur verið minni en ætla
mátti og þvi einungis unnt að
hafa fáar sýningar i viðbót.
Astæða er til að hvetja fólk að
sjá þetta sérstæöa leikrit meðan
tækifæri gefst. Leikstjóri
sýningarinnar er Hrafn Gunn-
laugsson og er þetta frumraun
hans sem leikstjóra I Þjóðleik-
húsinu. Leikmynd gerir Björn
G. Björnsson en með hlutverkin
fjögur fara nokkrir helstu leik-
arar Þjóðleikhússins, þau Helgi
Skúlason, Gunnar Eyjólfsson,
Arni Tryggvason og Guðbjörg
Þorbjarnardóttir, en tvö þau
siðastnefndu hafast við I ösku-
tunnum alla sýninguna.
Næsta sýning á Endatafli er á
miðvikudagskvöld og leikritið
verður svo næst sýnt að kvöldi
annars dags páska.
Steinþór Marinó Gunnarsson
hefur opnað málverkasýningu I
sýningarsal B.A.l. i húsi Málar-
ans að Grensásvegi 11. Er þetta
13. einkasýning listamannsins,
sem sýnir þarna tuttugu oliu-
málverk og fjörutíu verk sem
unnin eru með túsk, litkrlt og
vatnslitum.
Sýning Steinþórs er opin til 11.
april frá klukkan 14-22 alla
daga. Um hana segir Steinþór
m.a.:
A ferðum minum um öræfi og
óbyggðir Islands, um strandir
dali og fjöll, hef ég kynnst hvað
náttúra landsins er sibreytileg
og rik af fegurð og hve þar er
mörg ótæmandi verkefni til
myndgerðar.
Eg hef ávallt leitast við að
teikna og mála samband mitt
við náttúruna og reynt að ná
einskonar ljóðrænni stemmn-
ingu i myndir minar.
Þessar myndir eru sýnishorn
af þessum árangri, upplifun og
endalausrar leitar að myndsýni
og ægifegurð. Myndirnar eru
allar málaðar á seinustu 2 árum
’75 og ’76.
Verð myndanna er mjög i hóf
stillt og kosta frá kr: 25
þús,—180 þús.