Þjóðviljinn - 07.04.1977, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN, Fimmtudagur 7. aprll 1977
Fimmtudagur 7. april 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Borgir eru skurðarpunktar samgönguieiða.
Sjórinn — sem „alferöafær fliitur” — olli þvi, að þéttbýli myndaðist
fyrst viö ströndina, en m innkaði eftir þvi sem innar dró í landið.
Byggilegustu svæöi iandsins, samkvæmt miölægislögmálinu, eru mikíð
til óbyggileg fyrir venjulega byggð (utan punktalínunnar).
Einfaldur akvegur, þó aöeins yrði opinn að sumarlagi, mun stuöla að
byggðaraukningu I uppsveitum sunnaniands og norðan.
REYKJAVIK
MIÐSTÖÐ SAMGANGNA í LANDINU
Samgöngur — það hvert
er magn flutninga og hver
er staða í flutningakerfi
lands— ræður mjög miklu
um vöxt og viðgang borg-
ar. Einnig ráða samgöng-
urnar eða samgöngutækn-
in miklu um sjálft fyrir-
komulag borga. Við tökum
þó lítið ef tir þessu, þar sem
að nú á tímum eru flestar
borgir ,,akbrautaborgir"
— en með ýmsum tilbrigð-
um þó. Til skýringar á, að
borgir geta byggt á öðru
fyrirkomulagi, má minna
á grundvallaruppbyggingu
Amsterdam og Feneyja
sem sikja- eða skurðaborg-
ir — og á þrönga borga-
kjarna, sem aðeins eru ætl-
aðir fótgangendum.
í eftirfarandi rabbi mun
ég ræða um hver eru tök
skipulagsfræðinnar á fyr-
irbærinu samgöngur og um
leið hver eru einkenni
Reykjavíkur í þessu tilliti.
„Borgin er— likt og landið i
heild — samansafn „stöðva”,
sem eru tengdar saman af neti
samgangna af hinum ýmsu gerð-
um. Nútima kerfisfræði greinir á
milli efnislægra samgangna
(fólks- og vöruflutningar) — og
óefnislægra samgangna (simi,
hljóðvarp, sjónvarp o.s.frv.)
Viðfangsefni skipulagsfræðinn-
ar er að kanna eðli og þróun hinna
ýmsu „stöðva” i borginni: iðn-
aðar, verslunar, ibúðarhúsnæðis,
stofnana — og gera grein fyrir
hver eru lögmál og þarfir fyrir
fólks- og vöruflutninga milli þess-
ara stöðva, en þetta er nefnt
„infrastrúktúrar” á erlendum
málum.
Við athugun á „stöðvunum” —
beita skipulagsmenn ýmsum að-
ferðum Skráðar eru töflur og
teiknuð linurit eftir kennitölum
viðkomandi greina, fyrir undan-
gegnin 10-15 ár. Helstu upplýsing-
ar, sem hægt er að byggja á eru
ferm.fjöldi i húsnæði, mannafli
(mannár) i atvinnugreinum og
aldursskipting ibúa. Otfrá þess-
um og reyndar fleiri upplýsingum
eru dregnar álytkanir um eðli og
þarfir þessara borgarþátta. Hitt
aðalatriðið i skipulagsfræðinni
eru tengslin milli „stöðvanna” og
þá um leið spurningin, hver er
möguleg eða rétt staðsetning á
hinum ýmsu „stöðvum”. Svarið
við þessari spurningu er háð
þeirri samgöngutækni, sem geng-
ið er útfrá. — Sem nútimadæmi
má nefna, að byggð I Breiðholti
án atvinnustaða er ekki hugsan-
INN-
PLUTNÍN6UR
ÚT- .
FLUTNINGUR
Hugmynd að vegakerfi og staðsetningu h-éborgar á miöju landsins, sem
hugsanlega tæki við höfuðborgarhlutverki Reykjavikur I fyllingu tím-
ans.
leg nema að gera ráð fyrir um-
fangsmiklu umferðarkerfi.
Akaflega mikilvægt grundvall-
areinkenni á samgöngukerfum er
að þau geta bæði verið afleiðing
og forsenda byggðaþróunar —
Þannig er t.d. samgöngukerfíð
útfrá Reykjavik frekar afleiðing
af þvi að borgin er staðsett hér i
þessari stærð, heldur en að nátt-
úrugefnar forsendur hafi leift til
byggðarþéttingar. Hinsvegar er
tilkoma Keflavikurvegarins
ástæðan til þess, að byggð hefur
aukist á Reykjanesi.
Allt frá upphafi eða frá sjávar-
götu Vikurbóndans, hafa götur
eða leiðir verið forsenda hvar
byggð hefur risið. Þannig var
með göturnar útfrá gömlu
Reykjavik, Laugaveg, Skóla-
vörðustig, Vesturgötu. Hið sama
gildir um byggðakjarnana um-
hverfis Reykjavik: Skildinganes
(leiðin út að Bessastööum),
Kópavogur, Garðahreppur, Hafn-
arfjörður (leiðin suður á Reykja-
nes) og Mosfellssveit (Vestur-
landsvegur) — Fræg er sagan frá
New York um það, að hlykkur á
einni breiðgötunni þar, sé þannig
tilkominn, að steinn hafi staðið i
götunni og uxakerrurnar hafi
þurft að taka krók fram hjá hon-
um. — Þessi dæmi lýsa þvi hversu
mikil áhrif umferöarkerfi hafa á
gerð og uppbyggingu borga, hvar
miðstöðvar eða kjarnar geta
myndast, svo og hvort styrkleiki
þeirra eykst eða dvinar.
Þessi atriði eiga bæði viö innan
borgarinnar, sem og um stööu
borgarinnar i landinu. Sem dæmi
hér um má nefna að steyptu veg-
irnir útfrá Reykjavik, hafa styrkt
hana og nágrannabyggðirnar en
aftur á móti hefur t.d. hringveg-
artengingin styrkt önnur byggð-
arlög og þannig hlutfallslega
veikt Reykjavik. Miðstöðvar-
gildi Reykjavikur i hinum
ýmsu greinum er þvi stöðugum
breytingum undirorpið og breyt-
ingavaldarnir, bæði er varðar
samgöngur og eöli hinnar ýmsu
starfsemi, eru fjöldamargir.
Almennt má segja, að Reykja-
vik hefur aukist að áhrifum i
flestum greinum á undanförnum
100 árum — og meira en margur
telur að rétt sé. I mörgum grein-
um virðist þróunin vera komin i
hámark og nokkrar greinar hafa
farið hnignandi.
Til þess að fá yfirlit um stöðu
Reykjavikur, sem miðstöðvar i
landinu er nauðsynlegt að taka
grundvallarlögmálin i samgöng-
um til sérstakrar athugunar.
Borgir eru ævinlega skurðar-
punktar samgönguleiða (sjá
mynd 1): Þangað liggja leiðir vitt
Eftir
Trausta
Valsson
arkitekt
aö og þaðan liggja leiðir, sem
dreifast viða.
Lengi framanaf haföi sjórinn
sem „alferðafær flötur” afger-
andi áhrif á myndun byggöa og
borga (mynd 2) — A ströndinni
kviknaði lifið og teygöi sig inn til
landsins. Innri landsvæöin voru
nánast ófær yfirferðar. Viö þetta
bætist hér á Islandi það, aö við
höfum löngum verið bundin
. sjávarsiðunni hvað lifsbjörg
snertir. Eftir að fljótin urðu sam-
gönguæðar til innhéraða landa,
urðu árósarnir tengipunktur
samgangna frá landi og sjó og þar
risu borgir.
A 17. og 18. öld var gengi hafn-
arborga hvað mest, en meö batn-
andi vegum uxu borgir inni i
landinu. Ymsar fleiri frumgerðir
i myndun borga eru til, svo sem
skurðarpunktar samgönguleiða
inni i landi (Egilsstaðir —- Leip-
zig) eða vað eða brú á á eða fljéti
Framhald á bls. 22 .
Frá 1. apríl gilda ný afsláttarfargjöld, sem við
köllum „almenn sérfargjöld”.
þau eru 25 - 40% lægri en venjuleg fargjöld og eru
eingöngu háð því skilyrði að dvalartími erlendis sé
lágmark 8 dagar og hámark 21 dagur (í flestum
tilfellum).
„Almenn sérfargjöld” gilda allt árið á flugleiðum frá
íslandi til 57 staða í Evrópu.
25-40%
LÆGRI FARGJÖLD
SEM GILDA
ALLT ÁRIÐ
fMFÉLAG LOFTLEIDÍfí
/SJLANDS