Þjóðviljinn - 23.04.1977, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 23.04.1977, Blaðsíða 5
Laugardagur 23. april 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Sverrir Hólmarsson skrifar Leikfélag Reykjavikur sýnir BLESSAÐ BARNALAN eftir Kjartan Ragnarsson Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson Leikmynd: Björn Björns- son Eftir Saumastofuna hljóta menn aö mega gera allmiklar kröfur til Kjartans Ragnarsson- ar, þvi aö þar var óvenjulega vel af staö fariö. Kjartan hefur nú kosiö aö semja farsa, og er raun- ar ljóst aö hann hefur margt af þvi sem þarf til þeirrar erfiöu listar, þar á meöal hugkvæmni, skopskyn og gott auga fyrir möguleikum sviösins, einkum innkomum og útgöngum. Þaö fer heldur ekki hjá þvi aö viöa kitlar þessi sýning hláturtaugarnar á hinn ljúfasta hátt, og mörg atriöin eru blátt áfram sprenghlægileg. En þvi miöur — þar kemur aö lokum aö brosiö stirönar, hlátur- inn þagnar og maöur fer aö spyrja sjálfan sig: ætlar blessaö fólkiö nú ekki aö fara aö hætta þessu. Sýningin veröur einfald- lega alltof löng, lopinn er teygöur frammi bláþráö, og eitt af þvi versta sem til er i heiminum er langdreginn farsi.'Hér hefur eig- inlega oröiö slys. Þaö er nóg af góöum efniviöi I leikriti Kjartans i ágætan farsa af mátulegri lengd, þaö þurfti bara snjallan mann meö skæri til aö klippa burt svona þrjú kortér, og eftir heföi staöiö verk sem vel heföi getaö skemmt manni þægilega eina kvöldstund. En vegna lengdarinnar og leiö- ans fer ekki hjá þvi aö maöur fari aö lita innviöi verksins gagn- rýnum augum, sem þaö þolir engan veginn, þvi aö fljótlega veröur þá ljóst hversu veikburöa þeir eru, hversu skop verksins er grunnfæriö, hversu einfaldar og litlausar flestar persónurnar eru. Þaö er eitt af lögmálum farsans aö gefa áhorfandanum aldrei tóm til aö hugsa um verkiö á þennan hátt. Eftir þessa reynslu er tæplega hægt annaö en telja aö þaö hafi veriö meiriháttar mistök af fá höfundi verksins leikstjórn þess i hendur. Hér hefði þurft aö koma til gagnrýninn leikstjóri tilbúinn aö klippa miskunnarlaust. Þetta er hins vegar ekki sagt til aö kasta rýrö á Kjartan sem leik- stjóra, honum ferst þar margt vel úr hendi, en þaö er hreinlega ekki á allra færi aö leikstýra eigin verkum og Kjartani heföi verið hollara aö fá þaö aöhald i leikhús- inu sem ýmsir aörir hafa fengið meö góöum árangri, t.d. Jökull Jakobsson. Annars er margt gott um vinnubrögö þessarar sýningar aö segja. Leikur er yfirleitt meö ágætum. Sigurður Karlsson sýndi yfirburöaleik sem séra Benedikt, óborganlega hófstillt og nákvæm persóulýsing. Soffia Jakobsdóttir lék systurina frá Akureyri af hár- nákvæmri athugun — þarna var akureyskur myndarskapur holdi klæddur og litilssigldu hlutverki lyft i hæöir. Guömundur Pálsson er orðinn svo þrautþjálfaöur farsaleikari að honum nægir aö birtast á sviöinu til aö léttist á manni brúnin. Guörún Asmunds- dóttir gerði margt vel, t.d. var stórkostlegt þegár hún féll i transinn, en henni hætti ansi mik- iö til aö ofleika. Ásdis Skúladóttir Brecht-sýning nemendaleikhiissins. Palestínuefndin á íslandi HEEMSÓKN FRÁPLO Fundur nteð fulltrúa Á morgun, sunnudag, kl. 14 gengst Palestinunefndin á is- landi fyrir baráttufundi i Fé- lagsheimili stúdenta viö Hring- braut. Þar verður gestur fund- arins Daoud Kaloti fuiitrúi Freisissamtaka Palestinu, PLO, á Norðurlöndum en hann er væntanlegur i nokkurra daga heimsókn siðdegis i dag. Kaloti mun á fundinum flytja ræöu og svara fyrirspurnum um starf og stefnu samtaka sinna og gang frelsisbaráttu palestinuaraba. Auk þess veröa skemmtiatriöi, ávarp og etv. veröur sýnd palestlnsk kvik- mynd. Málstaður palestinuaraba hefur ekki hlotiö mikiö rúm i is- PLO á morgun lenskum fjölmiölum. Þar hefur áróöur andstæöinga þeirra ver- iö hærra skrifaður og ekki spör- uö ónefnin á PLO, þaö algeng- asta er aö nefna samtökin hryöjuverkahóp. Yfirleitter þaö ekki boriö viö aö greina frá þvi hver er raunveruleg stefna samtakanna, hvaö þá aö greint sé frá högum palestinuaraba sem flestir mega hirast i flótta- mannabúöum og sæta ofsóknum úr öllum áttum. Heimsókn Kalotis er þvi ánægjulegt tækifæri til aö fræö- ast nánar um palestinuaraba, málstaö þeirra og baráttu. Ekki sist i ljósi þeirra atburöa sem oröiö hafa undanfarin misseri fyrir botni Miöjarðarhafs. -ÞH VIÐ VETRARLOK Blessað barnalán átti i erfiöleikum meö hlutverk sitt, en er það varla láandi þar sem henni er eiginlega gert aö leika tvær persónur. I upphafi verksins birtist hún sem hálf- geröur örviti meö skáldagrillur, en um mitt leikrit fær hún allt i einu vit.ið án sjáanlegrar ástæöu. Gisli Halldórsson var auövitaö alveg dásamlegur sem fulli lækn- irinn, og ætti helst aldrei aö leika edrú menn. Nemendaleikhúsið sýnir ÚRRÆÐIÐ og UNDANTEKNINGUNA OG REGLUNA eftir Bertholt Brecht Leikstjóri: Petr Micka Nemendaleikhúsiö er afskap- lega þarflegt fyrirtæki, bæöi til aö veita leiklistarnemendum þá ómetanlegu reynslu aö koma fram fyrir áhorfendur og einnig til aö flytja okkur áhorfendum skemmtilega leiklist. Sýning þessi á tvemur kennileikritum eftir Brecht frá höröustu komma- árum kallsins kringum 1930, er alveg ótrúlega skemmtileg, þeg- ar þess er gætt aö verk þessi eru háalvarlegar siðferðispólitlskar dæmisögur. Þau eru reyndar bæöi skolli skemmtilega saman- sett. Úrræöiö er eitt umdeildasta verk Brechts, verk sem jafnvel harðir kommar hafa stundum oröiö feimnir gagnvart. Verkiö fjallar um dauöa ungs félaga, sem hefur gert miklar skyssur i hættulegu áróðursstarfi i Kina, og verður aö láta lifiö til þess aö starfið geti haldiö áfram. Brecht réttlætir dráp félagans, sem reyndar deyr sjálfviljugur fyrir málstaöinn. Þetta verk hefur oft verið notaö til þess aö sanna skepnuskap kommúnista, og var aöaluppistaöan i spurningum sem óameriska nefndin lagöi fyrir Brecht á sinum tima i frægum yfirheyslum, Brecht sneri sig úr úr þeim spurningum meb lævfs- legum og heldur ómerkilegum undanbrögöum. Hins vegar er grundvöllur hinnar borgaralegu hneykslunar á verkinu afar hæp- inn. Ungi maðurinn deyr sjálfvilj- ugur fyrir málstaöinn og til aö bjarga félögum sinum. Dauödagi Framhald á bls. 18. LOKAÐ VEGNA FLUTNINGA Birgðastöð, Búsáhalda- og Vefnaðarvörudeildir Inn- flutningsdeildar Sambandsins tilkynna viðskiptavinum sinum hér með, að söluskrifstofur og lagerar verða lokaðir frá og með föstudeginum 29. april til fimmtu- dagsins 12. mai. Viðskiptavinum er bent á að senda pantanir sinar inn sem allra fyrst vegna afgreiðslutafa sem flutningamir hafa i för með sér. Hætt verður að taka á móti pöntunum kl. 17.00 fimmtudaginn 28. april n.k. Opnað verður i nýja húsnæðinu — við Holtaveg (stór- byggingu Sambandsins við Elliðavog) að morgni fimmtudagsins 12. mai og tekið á móti pöntunum i sima 81266. Samband íslenzkra samvinnufélaga Innflutningsdeild Sambandshúsið Rvík sími28200

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.