Þjóðviljinn - 23.04.1977, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 23.04.1977, Blaðsíða 13
Laugardagur 23. april X9J7 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 Oddgeirshólar i Flóa Eignarhald á bújörðum Arið 1975 töldust byggðar jarðir á landinu vera 4.984 talsins. Þær skiptust þannig eftir eigendum: 1 sjálfsábúð voru.....................................4.223 jarðir. 1 eigu rikisins voru,.................................570 jarðir. 1 eigu annarra voru.......................................191 jörð. Eyðibýli töldust á hinn bóginn vera 1.629. Eignarhald á þeim skiptist þannig: 1 einkaeign,...........................................1.281 jörð. 1 eigu rikisins,........................................153jarðir. f eigu annarra (sveitafél. o.fl. .......................195jarðir. (Heimild: Nokkrar staðreynflir um Isl. landbúnað). — mhg Frá Sam- tökum um náttúruvernd á Norðurlandi Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi voru stofnuð að Laugum i Reykjadal 28. júni, 1969. Tildrög aö stofnun félags- ins má rekja til þeirrar al- mennu vakningar i náttúru- verndarmálum, sem varð um þessar mundir viða i Evrópu og m.a. kom fram i Evrópska nátt- úruverndarárinu 1970 og breskri náttúruverndarsýningu, sem sett var upp I Reykjavik og á Akureyri. A Norðurlandi voru virkj- unarmálin i sviðsljósinu, eink- um hið nafntogaða Laxármál, en i skugga þess komust sam- tökin á legg og urðu viöurkennd- ur þáttur i þjóðmálum fjórðungsins. Allt frá þeim tíma hafa samtökin barist einarðlega gegn hverskonar umhverfis- skemmdum af hálfu stórra virkjana og stóriðjuvera, sem byggð hafa verið eða áætluð i fjórðungnum. Annað aöalverkefni samtak- anna hefur verið söfnun upplýs- inga um staði og svæði á Norðurlandi, sem að fegurð og fjölbreytni skara fram úr þvi sem almennt gerist og kallast náttúruminjar. Fyrsta náttúruminjaskráin var gerð veturinn 1971-1972 og samþ. á aðalfundi SUNN á Hól- um þá um vorið. Þar voru rúm- lega 80 staðir skráðir. Siðan hef- ur stöðugt verið unnið að viðbót- um við skrána og skipta þessar skráðu minjar nú nokkrum hundruðum. Jafnframt er unnið að útgáfu skráa rinnar i f jölrituðu formi og hefur 1. heftið sem Umsjón: Magnús H. Gfslasom Könnuð verði umhverfisáhrif olíuleitar I tilefni af fréttum um hugs- anlega oliuleit við Norðaustur- land ályktaði stjórn SIN eftir- farandi: 1. Áður en til greina kemur aö veita leyfi til könnunar á hugs- anlegum oliulindum i islenskri lögsögu verði Rannsóknarráði rikisins eða öðrum tiltækum aðila falið að afla allra tiltækra heimilda um umhverfisáhrif oliuleitar og oliuvinnslu, enda verði niðurstöður þeirra könn- unar lagðar til grundvallar frekari ákvarðana i þessum málum. 2. Stjórnin telur að mjög mikil hætta sé þvi samfara fyrir fiski- mið viðkomandi landshluta og sjávarlif viö landið ef slikar boranir koma til framkvæmda og bera árangur. 3. Stjórn SIN minnir á, að með hinni nýlegu útfærslu fiskveiði- lögsögu okkar berum við einir ábyrgð á þvi ef hinar lifrænu auölindir landgrunnsins við Is- land verða fyrir óbætanlegu tjóni. 4. Minnt er ennfremur á, að oliulindir eru endanlegar auð- lindir.hér sem annarsstaðar, en fiskur og aörar sjónytjar eru auöævi, sem eiga að geta varað um alla framtið, ef skyn- samlega er á málum haldið. —mhg fjallar um Húnavatnsþing og Skagafjörð þegar séð dagsins ljós. Náttúruverndarráð hefur styrkt þessa starfsemi. Almenn kynning og fræðslu- starfsemi hefur verið á dagskrá félagsins frá byrjun. Þegar árið 1969 lét félagið gera vegg- myndasýningu um náttúru- vernd, i samvinnu við náttúru- gripasafnið á Akureyri, og var hún sýnd i öllum helstu kaup- stöðum norðanlands. Aðalfundir SUNN eru jafnframt fræðslu- fundir, þar sem umhverfi fundarstaðarins er gjarnan kynnt sérstaklega, svo og ýmis viðfangsefni félagsins. Félagið hefur frá upphafi gef- ið út fjölritað fréttabréf, sem kemur út einu sinni til tvisvar á ári. I tilefni af náttúruverndar- árinu 1970 gaf félagiö út litinn bækling um náttúruverndar- mál, og flestar ályktanir félags- ins og greinargeröir hafa verið birtar I blöðum, Félagið hefur beitt sér fyrir bættri umgengni og úrbótum i meöferð sorps á Norðurlandi og haft afskipti af' ýmsum öðrum málum. Stjórn félagsins er skipuö fimm mönnum en núverandi formaður er Helgi Hallgrims- son. Helgi Hallgrimsson. (Úr kynninarbæklingi um nátt- úruverndarsýninguna). Sprunguviðgerðir og þéttingar á veggjum og þökum, steypt- um sem báruðum. Notum aðeins álkvoðu. 10 ára ábyrgð á vinnu og efni. Vörunaust sf. Símar 20390 & 24954 milli kl. 12 & 1 og eftir kl. 19:00 Múrarameistari getur bætt við sig nýbyggingum, pússn- ingu, flisalögnum og viðgerðum. Upplýsingar i simum 20390 & 24954 milli kl. 12 og 1 og eftir kl. 19.00. Menningartengsl íslands og ráðstjórnarrikjannna: FYRIRLESTUR Vladimir L. Tolstof sendifulltrúi flytur erindi i Mirsalnum, Laugavegi 178, laugardaginn 23. april kl. 16.30 um efnið: Sovétrlkin — samfélag margra þjóða og þjóðbrota. Erindið verður flutt á rúss- nesku og túlkað. Að þvi loknu verður kvik- myndasýning. Aðgangur öllum heimill. MÍR. Hjúkrunarfélag r Islands Fundur verður haldinn á vegum Reykja- vikurdeildar Hjúkrunarfélags tslands, mánudaginn 25. april kl. 20.30 i kaffi- teriunni Glæsibæ. Fúndarefni: Kynnt framhaldsnám hjúkrunarfræðinga. Nemendur úr námsbraut H.í. kynna hjúkrunarnám á háskólastigi. | Hjúkrunardeildarstjóri Staða hjúkrunardeildarstjóra við Lyf- lækningadeild Borgarspitalans er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 15. júli eða eftir sam- komulagi. Upplýsingar um stöðuna eru veittar á skrifstofu forstöðukonu Borgar- spitalans. Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist til stjórnar sjúkra- stofnana Reykjavikurborgar, Borgarspitalanum, fyrir 10. mai 1977. Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á skurðstofu Borgarspitalans, einnig til af- leysinga á hinar ýmsu legudeildir. Upp- lýsingar á skrifstofu forstöðukonu. Hafnarbúðir Hjúkrunarfræðinga vantar til starfa i sjúkradeild i Hafnarbúðum. Upplýsingar á skrifstofu forstöðukonu. Reykjavik 22. april 1977 Borgarspitalinn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.