Þjóðviljinn - 24.04.1977, Síða 24

Þjóðviljinn - 24.04.1977, Síða 24
DJOÐVIUINN Sunnudagur 24. aprfl 1977 Aöalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum simumk Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla81482 og Blaðaprent81348. @81333 Einnig skal bent á heimasfma starfsmanna undir nafni Þjóðviljans i simaskrá. ;?■$ ■ ■ ,. Nýi og gamli timinn mætast. Gamla frystihúsiö sést ofan við bryggjuna en fremst er hin nýja löndunarbryggja sem gerbreytir allri aðstöðu við fiskmóttöku. Aður þurftiaðkeyra allan fisk á vörubÁum upp fyrir gamla húsið,en nú er kössunum staflað á bakkann þar sem lyftarar taka þá og flytja smáspöl inn i móttöku nýja frystihússins sem er rétt utan við myndina hægramegin. Egill Jónasson frystihússtjóri. í vetur tók Kaupfélag Austur-Skaftfellinga í notkun nýtt frystihús á Höfn í Hornafirði. Að vísu höfðu hlutar þess verið starfræktir um nokkurt skeið—mötuneyti, humar- vinnsla, saltfiskverkun, frostgeymsla og loðnu- frysting, — en i janúarlok hófst móttaka og vinnsla á bolfiski til frystingar. Að sögn Þorsteins Þorsteins- sonar hefur frystihúsið nýja reynst vel að flestu leyti þótt ýmislegt mætti færa til betri veg- ar eins og oftast kemur i ljós þegar ný mannvirki eru dregin fyrir dóm reynslunnar. Nefndi Þorsteinn helst til saltfiskverk unina, þar væri hávaði óhæfilega mikill. Hann kvaðst þó hafa góða von um að það ásamt öðru smá- vægilegu yrði tekið til endurskoð- unar og lagfært að lokinni vetrar- vertið. Vertiðin hefur ekki gengið nógu vel á Höfn. Aflabrögð hafa ekki verið upp á það besta. Þorskveiði i net virðist fara stöðugt minnk- andi ár frá ári og er nærtækasta skýringin minnkandi fiskgengd. Vertiðin fór allvel af stað, einn bátur var á linu og fiskaði vel, en þegar netavertiðin hófst dró úr veiðunum. Sömu sögu er að segja af togara þeirra hornfirðinga, Skinney, hann hefur ekki fiskað nógu vel. Þrátt fyrir þetta sagði Þor- steinn að atvinnulif væri i sæmi- legu horfi á Höfn, nóg væri að gera þótt yfirvinna sé kannski minni en oft áður. Loðnubræðsla gekk vel en sama var ekki að segja um frystinguna, hún var ekki nein svo heitið gat. Af öðrum sviöum framkvæmda Vélakostur nýja frystihússins er ailur hinn fullkomnasti. á Höfn sagði Þorsteinn að nokkur hús væru i byggingu og bjóst hann við að þeim myndi fjölga með sumrinu. Þörfin væri fyrir hendi þvi húsnæðisskortur rikti og yrði sennilega ekki bætt almennilega úr honum nema með átaki á fé- lagslegum grunni, byggingu rað- húsa eða fjölbýlishúsa. Loks nefndi hann að nú væri verið að undirbyggja nokkrar götur i eldri hluta bæjarins og væri stefnt að þvi að leggja á þær varanlegt slit- lag að ári. Hér á siðunni eru nokkrar svip myndir úr nýja frystihúsinu og umhverfi þess sem Eirikur Þor- valdsson tók fyrir nokkru. —ÞH ur nyju frystihúsi Tvær kynslóöir tækjamanna: Sveinn Bjarnason til vinstri og Sigurður Tveir góðir: Einar Karlsson aðgerðarstjóri (tv.) og Benedikt Þorsteinsson verkstjóri i saitfiskinum. Guðnason.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.