Þjóðviljinn - 25.05.1977, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 25.05.1977, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 25. maí 1977 — 42. árg. —114. tbl. ALLT SITUR FAST I KJARASAMNINGUNUM V öruskiptajöfnuður á sléttu í frétt frá Hagstofu íslands segir, að vöruskipta- jöfnuður okkar íslendinga hafi á fyrstu 4 mánuðum þessa árs orðið óhagstæður um 17,5 miljónir króna sem má heita nákvæmlega slétt. Sömu mánuði í fyrra var vöruskiptajöf nuðurinn hins vegar óhagstæður um rúmlega 4000 miljónir króna. Nú í ár var f lutt út fyrir tæplega 30 miljarða þessa fjóra mánuði og flutt var inn fyrir að kalla sömu upphæð. Röð styttri verkfalla á næsta leiti I gær boðaði Alþýðusambandið til fundar með for- mönnum allra verkalýðsfélaganna i Reykjavík. Á fundinum var einróma samþykkt að leggja til við stjórn- ir og trúnaðarráð nær allra verkalýðsfélaganna i Reykjavík, aðefnt verði til eins dags allsherjarverkfalls i Reykjavik og nágrenni föstudaginn 3. júni n.k. Stjórnir og trúnaðarráö verka- lýðsfélaganna hafa yfirleitt á hendinni heimildir félagsfunda til verkfallsboðana og munu stjórnir og trúnaðarráð flestra félaganna i Reykjavik halda fundi i dag, og taka þar ákvörðun um hvort vinna verði stöðvuð i einn sólar- hring frá klukkan 12 á miðnætti fimmtudaginn 2. júni til klukkan 12 á miðnætti föstudaginn 3. júni. Verkfall þarf að boða með viku fyrirvara, svo tilkynna verður hugsanlegt verkfall 3. júni strax á morgun. Þá er Þjóðviljanum kunnugt að áform eru uppi um áframhald- andi röö slikra eins dags verk- falla, er byrji sem áður segir með allsherjarstöðvun I Reykjavik og Hafnarfirði 3. júni, en siðan taki aðrir landshlutar við og standi þessar aðgerðir til 9. júni. Með þessum aðgerðum vill verkalýðshreyfingin knýja enn fastar á um árangur i kjara- samningunum en forðast þó að gripa til varanlegrar allsherjar- stöðvunar, nema allar aðrar leiðir reynist lokaöar. Engir fundir voru haldnir hjá aðalsamninganefndumdeiluaðila i gærdag, en i gærkvöldi klukkan hálf niu var boðaður fundur. Eng- in tiðindi höfðu borist frá honum, þegar siðast fréttist. Frá formannafundi verkalýðsfélaganna i Reykjavik og nágrenni i gær. YFIR VINNUBANNIÐ: V eldur töfum víðast hvar Yfirvinnubann ASl hefur verið i giidi siðan 1. mai si. um allt land og má segja að það hafi verið haldið aigerlega. A þvi eru þó ör- fáar undantekningar. En hver hafa þá áhrif þessa aukavinnu- banns verið þessa 24 daga sem það hefur staðið? Við gerðum i gær könnun á þessu máli og virðist ljóst að áhrif þess eru mjög mikil, nær allsstaðar, en eins og alltaf eru til undan- tekningar. Viglundur Þorsteinsson fram- kvæmdastjóri steypustöðvar BM Hægt aö skipuleggja dagvinnuna þannig aö aukavinna veröi óþörf og greiöa hærra kaup fyrir dagvinnu, segir Víglundurhjá BM Vallá Vallá, sagði að þetta aukavinnu- bann hefði ekki haft nein áhrif á starfsemi stöðvarinnar og hefðu afköst hennar ekki minnkað. „Það hefur bara komið i ljós að með skipulagningu er hægt að ná fram meiri afköstum en áður. Ekki bara hér hjá okkur, heldur einnig i byggingariðnaðinum yfirleitt”, sagði Viglundur. Sagði hann að stundvisi manna hefði verið betri, bæði á morgn- Baldur til rannsókna á djúpmiðum: Verulegar breytingar þarf aö gera á skipinu Þótt „varðskipið” Baldur hafi nú verið málað i lit h afrannsóknaskip- anna,mun það ekki verða notað til rannsóknarstarfa fyrr en eftir tals- verðar breytingar. í gær skilaði Landhelgisgæslan skuttogaranum Baldri i hendur sjávarútvegsráðuneytisins á ný. Baldur var keyptur frá Akranesi til nota fyrir Hafrannsóknastofn- un, en var tekin til landhelgis- gæslu.og þótti skipið reynast vel undir öruggri stjórn Höskuldar Skarphéðinssonar, skipherra, og Ataks að vænta í Flugöryggi útí á landi Yfirmenn flugmála kynna sér flugöryggi flugvalla í Noregi „Sannleikurinn er sá, að flug- öryggismál úti á landi eru i afar slæmu ásigkomulagi vfða,og við höfum um árabil reynt að kria út fé til að bæta ástandið, en það hefur gengið misjafnlega aö fá fjárveitingu. Nú i ár er fjárhag- ur okkar heldur rýmri en vant er og þess vegna var ákveðið að gera nokkurt átak I að bæta flugöryggið, til að mynda með þvi að lýsa upp flugvelli úti á landi og fleira. Og vegna þessa eru æðstu menn flugmála hér á landi nú úti Noregi að skoða hvernig norðmenn hafa farið að i þessu efni, en aðstæður eru ekki ósvipaðar hér og i Noregi hvað innanlandsflugmál snertir”, sagði Gústaf Sigvaldason, skrif- stofustjóri hjá flugmálastjóra, er við ræddum við hann i gær. Þeir Agnar Kofoed - Hansen flugmálastjóri og Leifur Magnússon varaflugmálastjóri, ásamt fleiri mönnum héðan.eru nú staddir i Noregi, þar sem þeir eru að kynna sér hvernig norðmenri hafa farið að i flug- öryggismálum á flugvöllum út- um landið. Gústaf sagðist eiga von á þvi að framkvæmdir við lýsingu flugvalla og ef til till einhverjar fleiri lagfæringar hæfust i sum- ar. —S.dór samhentrar áhafnar hans. Eink- um var það skuturinn sem var styrkleiki Baldurs sem varðskips bæði i sókn og vörn. 1 vetur hefur verið gert við skemmdir á Baldri i Skipasmiða- síöðinni Stálvik og nemur við- gerðakostnaður um 40 miljónum króna. Aður en Hafrannsóknastofnun tekur viö skipinu þarf að gera á þvi verulegar breytingar sem stofnunin hefur þegar gert út- boðslýsingu á. Lagfæra þarf og færa til spil, koma fyrir rann- sóknarstofu á millidekki og bæta þar aðstöðu til fiskmóttöku, setja upp sjórannsóknarkompu á brú- arvæng og búa skipið fullkomnum fiskileitartæk jum. Enn hefur ekki verið ákveðið hvort fé fæst til þessara breyt- inga, en fyrr en þær hafa verið gerðar er skipið ekki reiðubúið til hafrannsókna. Baldur mun sinna flestum venjulegum verkefnum i hafrannsóknum, en vegna stærð- ar sinnar verður honum liklega beitt til rannsókna á djúphafs- fiskum sérstaklega, svo sem gull- laxi og langhala. Hafrannsóknastofnunin gerir nú út þrjú skip, og þar af er eitt þeirra, Hafþór, i lamasessi. Brýn þörf er þvi á að Baldur bætist i hópinn. Hinsvegar er óráðiö enn hvort skipiö heldur nafninu4 ana og eftir mat og kaffi. Það get- ur tafið steypustöðvarnar mikið ef þeir sem eiga að taka á móti steypunni eru ekki komnir að verki fyrren kl.9 eða að ganga tiu á morgnana. „Það liggur alveg ljóst fyrir aö hægt er að afnema aukavinnu al- gerlega i byggingariðnaðinum og ef hægt er að ná fram sömu af- köstum á 8 timum og á 10 áður gefur auga leið, að hægt er aö greiða sama kaup fyrir 8 tima vinnu og 10 tima áður”, sagði Viglundur Þorsteinsson. Sömu sögu er ekki að segja frá öðrum vinnustöðum, sem við höfðum samband við i gær. Jón Aspar, skrifstofustjóri Út- gerðarfél. Akureyrar, sagði, að yfirvinnubannið hefði komið mjög illa við ÚFA. Afgreiðsla öll við togarana i landi væri hægari og útilokað væri að vinna úr afla Framhald á bls. 14. A Iþýðubandalagið i Reykjavík: Aðalfundur í Domus Medica á föstudag Aöalfundur Alþýðubanda- lagsins I Reykjavik verður haldinn næstkomandi föstu- dagskvöld, 27. maí, i DOMUS MEDICA kl. 20.30. A fundinum fer fram kosning nýrrar stjórnar fyrir félagið, auk almennra aðal- fundarstarfa. Tillögur upp- stillingarnefndar um stjórn félagsins liggja frammi á skrifstofunni að Grettisgötu 3. Þá verður á aöaifundinum sagt frá nýjustu tíöindum kjarabaráttunnar. Félagar! Fjölmennið! Alþýðubanidalagið i Reykjavik

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.