Þjóðviljinn - 25.05.1977, Qupperneq 3
Miðvikudagur 25. mai 1977. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA — 3
Podgorní hættir í
stjórnmálanefnd
Óvíst um ástœður og eftirmann
MOSKVU 24/5 Reuter — Nikolíi
Podgorni, forseti Sovétríkj-
anna, hefur látið af störfum i
stjórnm álanefnd sovéska
kommúnistaflokksins, sem er
æðsta valdastofnun rikisins.
Vestrænir fréttaskýrendur telja
liklegt að Podgorni láti einnig af
störfum sem forseti i júni, er
æöstaráö Sovétrikjanna kemur
saman. Þykja þetta talsverð
tiðindi, þar eð Podgorni hefur til
þessa veriö talinn þriðji mesti
valdamaður Sovétrikjanna,
næstur þeim Bresjnef flokks-
leiðtoga og Kosigin forsætisráð-
herra. í Moskvu hefur engin
skýring verið gefin á þessari
ráðstöfun af opinberri hálfu, en
hugsanlegt er talið að hár aldur
og heilsufar Podgornis sé aðal-
ástæðan. Podgorni er 74 ára og
aðeins eldri en þeir Bresjnef og
Kosigin.
Podgorni er sá fyrsti, sem
hverfur úr æðstu forustu Sovét-
rikjanna frá þvi að Nikita
Krústsjof var vikið þaðan fyrir
nærri 13 árum. Hann er úkra-
inumaður, fæddur árið 1903.
Hann var verksmiðjuverka-
maður er októberbyltingin var
gerð 1917 og hafði ekki náð tvi-
tugsaldri er hann var orðinn
formaður félags ungra
kommúnista i fæðingarþorpi
sinu. 1 annarri heimsstyrjöld
veitti hann forstöðu rannsókna-
stöð um matvælaframleiðslu i
Moskvu og varð aðstoðarmat-
vælamálaráðherra Úkrainu
1944. Hann varð skömmu siðar
Podgorni heilsar Nyerere Tan-
saniuforseta.
fulltrúi úkrainustjórnar i
Moskvu og geröist þá náinn
samstarfsmaður Krústsjofs,
sem þá var leiðtogi Kommún-
istaflokks úkrainu. 1960 varð
hann fullgildur meðlimur
stjórnmálanefndarinnar. 1965,
árið eftir að Krústsjof var vikið
frá völdum, varð Podgorni for-
seti Sovétrikjanna.
Podgorni hefur þótt viðmóts-
góður maður og aðlaðandi og oft
farið i erindum stjórnar sinnar
erlendis, þegar erfiðleikar hafa
risið á einhverjum stað. Þannig
heimsótti hann fjögur riki i
sunnanverðri Afriku fyrir
tveimur mánuðum. Ræddi hann
þá meðal annars við ródesiska
skæruliðaleiðtoga og undirritaði
mikilvægan vináttusamning við
Mósambik. 1967 fór hann til
Rómar og varð fyrstur leiötoga
rikja undir stjórn kommúnista
til þess að ganga á fund páfa
(Páls sjötta). Til Sýrlands og
Iraks fór hann þegar heitast var
i kolunum á þeim slóðum eftir
sexdagastriðið 1967.
Jafnframt hefur Konstantin
Katúsef verið leystur frá störf-
um sem ritari miðnefndar
Kommúnistaflokksins. Eftir-
maður hans verður Konstantin
Rúsakof, fyrrum ambassador
Sovétrikjanna i Mongóliu. Er-
lendir fréttamenn benda á, að
þessi mannaskipti eigi sér stað
á sama tima og sovéska stjórnin
viröist vera að reyna að tryggjí
sér hugmyndafræðilegan stuðn-
ing annarra Austur-Evrópu-
rikja fyrir ráðstefnuna i Beo-
grad i næsta mánuði, en sú
ráðstefna á að halda áfram
störfum Helsinki-ráðstefnunnar
1975. Ennfremur er bent á, að
Rúsakof sé sérfræðingur i kin-
verskum málefnum og geti út-
nefning hans þvi þýtt vaxandi
áherslu Sovétrikjanna á að
móta stefnu sina gagnvart hinni
nýju forustu kinverja.
Ekkert er enn um það vitað
hver fyliir sæti Podgornis sem
einn af þremur valdamestu
mönnum Sovétrikjanna, en trú-
legt þykir að sá, sem verður
fyrir valinu, hafi mikla mögu-
leika á að verða eftirmaður
Bresjnefs, sem nú er sjötugur
að aldri.
Frumskilyrði Hollandsstjórnar gagnvart skæruliðum:
Látið börnin laus
BOV ENSMILDE/ Hollandi
24/5 Reuter — Hollenska
stjórnin tilkynnti í dag
þeim suðurmólúkkönsku
skæruliðum/ sem hafa um
170 manns í gíslingu á
tveimur stöðum í norður-
hluta landsins, að þeir yrðu
að láta laus öll börnin, sem
eru meirihluti gíslanna,
áður en kröfur þeirra yrðu
teknar til athugunar.
Skæruliðarnir halda 105
börnum og sex kennurum
þeirra föngnum i þorp-
skólanum í Bovensmilde
og hafa þrengt þeim
saman inn i tvö herbergi.
Foreldrar barnanna hafa safn-
ast saman úti fyrir skólanum og
biða átekta um örlög þeirra. Um
60 aðrir gislar eru i haldi skæru-
liða i járnbrautarlest um 20 kiló-
metra frá Bovensmilde. Skæru-
liðar þeir, sem hafa lestina á
valdi sinu, skutu i dag á lögreglu-
þyrlu, sem flaug yfir, en hittu
ekki. Joop den Uyl, forsætisráð-
herra Hollands, hefur sagt að
ekki komi til greina að skæru-
liðarnir l'ái að fara úr landi með
nokkurn gislanna.
Suðurmólúkkarnir krefjast
þess að i skiptum fyrir gislana
verði látnir lausir 21 landi þeirra,
sem sitja i hollenskum fangelsum
fyrir skæruaðgerðir. Þar á meðal
eru árásir á farþegalest og indó-
nesiska konsúlatið i Amsterdam i
desember 1975. Stjórnin hefur
verið i simasambandi við skæru-
liðana og hefur geðlæknir einkum
annast viðræðurnar af stjórnar-
innar hálfu. Dómsmálaráðherr-
ann hefur upplýst að háttsettur
maður i samfélagi suðurmólúkka
i Hollandi myndi reyna að ná tali
af skæruliðunum i kvöld.
200 flokkar bjóða fram á Spáni
Miðflokkabandalagið
sakað um misnotkun
ríkisfjölmiðla
MADRID 24/5— Kosningabarátt-
an fyrir spænsku þingkosningarn-
ar, þær fyrstu I fjóra áratugi,
hefst formlega i dag, en
kosningarnar hafa verið ákveðn-
ar 15. júnl. Kjósendur eru um það
• bil 23 miljónir og keppa yfir 200
leyföir flokkar um hylli þeirra.
Ýmsir flokkar, þar á meðal
nokkrir róttækir vinstri flokkar,
eru þó enn bannaðir, en þeir
reyna að fara i kringum bannið
með þvi að bjóða fram sem óháð-
ir.
Sigurstranglegustu flokkarnir
eru taldir vera Miðflokkabanda
lagiö, en á þess vegum býður Su-
arez forsætisráöherra sig fram,
svokallað Bandalag alþýðu, sem
er helsti ihaldsfiokkurinn og lýtur
forustu fyrrverandi ráðherra
Francos, kristilegir demókratar,
sósialistar og kommúnistar.
Marga flokkanna skortir basði
fjármagn og mannafla til að
kynna viðhorf sin kjósendum,
sem margir eru heldur illa aö sér
um stjórnmál éftir fjögurra ára-
tuga fasistaeinræði, og leggja
þeir þvi mikla áherslu á að sjón-
varp og útvarp verði ekki notaö i
kosningabaráttunni einum flokki
tilstuðnings fremur enöörum. En
margir flokkar, bæöi til vinstri og
hægri, saka Miöflokkabandalagið
Framhald á bls. 14.
r
Israel:
Ovissa í stjórnmálum
vegna veikinda Begins
TEL AVIV 24/5 Reuter — Israelsk stjórnmál eru I nokkurri óvissu
vegna veikinda Menakems Begin, leiðtoga hins hægrisinnaða
Likúd-flokksernáði mestu fylgi allra flokka i þingkosningunum ný-
verið, en hann ernú á sjúkrahúsi. Hugsanlegt er talið að Begin veröi
að sleppa flokksforustunni við einhvern annan, en flokksmenn hans
munu ekkiá eittsáttirum hver það eigi aö vera.
Forustumenn Likúd hófu í dag samningaumleitanir viö nýstofn-
aðan flokk, Lýðræöislegu breytingahreyfinguna, með stjórnar-
myndun fyrir augum. Ovist er um árangur af þeim viðræðum, þar
eð flokkarnir eru mjög ósammála um hvaö gera skuli við vestur-
bakkahéruðin svokölluöu. Likúd vill að Israel haldi héruðum þess-
um áfram og haldiáframaö byggja þau gyðingum, en Lýðræðislega
breytingahreyfingin styöur i meginatriðum svokallaöa Allon-áætl-
un, sem gengur út á það að Israel hafi keðju varðstöðva meðfram
Jórdan og afhendi aröbum vesturbakkahéruðin að ööru leyti i
skiptum fyrir samninga um fullan frið.
Vaxandi gyðingahatur
í Austurríki
TEL AVIV 23/5 Reuter — Fulltrúar Heimssamtaka gyöinga hafa
borið fram við ambassador Austurrikis I tsrael umkvörtun af þvi
tilefni, að gyðingahatur fer nú mjög vaxandi I Austurriki, að sögn
samtakanna. Er i þvi sambandi nefnd svokölluð Ný hægrihreyfing,
sem stundar það meðal annars að dreifa nýnasiskum bæklingum
meðal stúdenta i austurrískum háskólum. Fulltrúar Heimssamtak-
anna segjast hafa beiðið ambassadorinn að fara þess á leit við
austurrisk stjórnarvöld, að þau gerðu allar þær ráðstafanir, sem
mögulegar væru lögum samkvæmt, til þess að hindra athafnir ný-
nasista og kynþáttahatara.
Hálf sjötta milljón
atvinnurekenda í EBE
BRUSSEL 24/5 — Talið er að heldur hafi dregið úr atvinnuleysi i
rikjum Efnahagsbandalags Evrópu i siðastliðnum mánuði, eða um
lOO.OOOmanns.Samkvæmtskýrslustjórnarnefndar EBE dró i mán-
uðinum úr atvinnuleysinu i öllum löndum bandalagsins nema Bret-
landi; þar færðist það heldur I aukanaSamkvæmt skráningu eru at-
vinnuleysingjar I EBE-rikjum nú rúmlega 5.4 miljónir talsins.
Samkvæmt ýmsum öðrum heimildum, meðal annars frá verkalýðs-
samtökum, er atvinnuleysið i sumum löndum, til dæmis ítaliu, þó
miklu meira en skýrslur frá stjórnarvöldum sýna.
Einn árangur yfirvinnubannsins:
Isfirðingar
hreinsa bæinn
Snyrtimennsku i bæjum hér-
lendis er viða mjög ábótavant.
Þannig hefur td. verið á Isafirði i
vor að aðkomumenn hefur rekið i
rogastans að sjá umgengnina.
Allar göitur hafa verið þaktar for,
drasli og sandi. Inni I görðum er
allt vaðandi i bréfum, bilflökum
og rusli. Hefur þetta stungið
mjög i augu, ekki sist sómakærra
isfirðinga. Bæjaryfirvöld hafa
þótt m jög lin og áhugalaus um að
bæta ástandiö og hafa forgöngu
um þrifnað. Nú þegar yfirvinnu-
bannið hefur létt þrældómsokinu
af þæjarbúum hafa þeir sjálfir
tekið til hendi.og nú fara flokkar
manna um bæinn, sjálfboðaliðar,
og hreinsa hann skipulega hverfi
fyrir hverfi. Tekur hann nú óðum
stakkaskiptum. Ýmist eru það
klúbbarnir i bænum sem skipu-
leggja hreinsunina eða ibú.ar ein-
stakra gatna taka sig saman.
—GFr.
Starfshópur verkafólks um opið hús:
Staðan í kjaradeilunm
rædd á Hallveigarst.
t kvöld kl. 20.30 efnir
Starfshópur verkafólks um opið
hús til fundar að Hallveigar-
stöðum. Fulltrúar úr aðalsamn-
inganefnd ASt mæta á fundinum
og skýra frá gangi mála og
stöðunni i kjaradeilunni og
svara fy rirspurnum. Siðan
verða almennar umræður um
hvað gera skuli og um önnur
málefni verkafóiks. Trió Borlus
leikur i opnu húsi i kvöld.
Fundarstjóri verður Sigriður
Skarphéðinsdóttir. Aður hefur
starfshópurinn haft opið hús 1.
mai, 4. mai, 11. maí og 18. mai.