Þjóðviljinn - 25.05.1977, Qupperneq 9
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 25. mal 1977.
Miövikudagur 25. mai 1977. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
Heimsókn í
Landsmið j una
un, rennismiði, rafvirkiadeild,
trésmiði og söludeild. Fyrirtæk-
inu hafa verið falin mörg flókin
verkefni, smá og stór, og er nú
fyrirtækið rekið með talsverð-
um hagnaði eftir að ,,við-
reisnarstjórnin” sálaða hafði
nær gengið að þvi dauðu fyrir
nokkrum árum. Meðal þess sem
nýlega hefur verið eflt er þjón-
usta fyrir skilvindur og loft-
verkfæri.
Eftir að hafa rætt um vanda-
mál og verkefni Landsmiðjunn-
ar yfir kaffibollanum var
gengið um vinnustaðinn en þess
má geta að mikill hluti starfs-
manna vinnur úti i bæ. Nú er til
dæmis verið að reisa mikla
tanka úti i örfirisey og þar er
fjöldi starfsmanna frá Land-
smiðiunni.
Greinilegt var að starfsfólkið,
sem er að yfirgnæfandi meiri-
hluta járnsmiðir, er hreykið af
fyrirtæki sinu og viil veg þess
sem mestan. Þess var getið að
það sem helst stæði járniðnaði
fyrir þrifum i höfuðborginni
væri ónóg slippaðstaða. Hér
vantar áþreifanlega góða þurr-
kvi. Lág laun standa iðnaðinum
islensk atvinnustefna
er andsvar Alþýðubanda-
lagsins við stefnu þeirra
manna sem vilja njörfa
landið sem fastast við
erlent fjármagn með því
aðgefa alþjóðlegum stór-
iðjuauðhringum lausan
taum á islenskri grund.
Til þess að móta ákveðna
framtíðarstefnu í
islenskum atvinnumálum
hefur flokkurinn unnið
sem farin var í hið stóra
ríkisf y rirtæki Land-
smiöjuna við Sölvhóls-
götu fyrir skemmstu.
Nokkrir forráðamenn fýrir-
tækisins ásamt samstarfsnefnd-
inni, sem sagt var frá hér i
Þjóðviljanum laugardaginn 14.
mai, tóku á móti gestunum i
kaffistofu fyrirtækisins þar sem
skýrt var frá rekstrinum og
jafnframt boðið upp á kaffisopa.
Landsmiðjan var stofnuð árið
1930 og starfa þar nú eftirtaldar
deildir: plötu- og ketilsmiði,
eldsmiði, járnsteypa, vélvirkj-
mikið starf að undan-
förnu með ráðstefnuhaldi
og margvíslegri útgáfu-
starfsemi. Nú að undan-
förnu hafa forystumenn
Alþýðubandalagsins
ásamt framámönnum i
verkalýðshreyfingunni
heimsótt iðnfyrirtæki til
að kynnast þeim og
starfsfólki þeirra af eigin
raun og verður hér sagt
frá einni slíkri heimsókn
Alþýðu-
bandalagið
og íslensk
atvinnu-
stefna:
ISLENSK
ÍWa-AWINNU
Loftur Amundason eldsmiður sýnir Sigurjóni Péturssyni, Baldri óskars
syni og Guðjóni Jónssyni formanni Fél. járniðnaðarmanna verkstæði sitt.
(Ljós.: GEL)
Fyrirtækið kynnt í kaffistofunni. Frá vinstri eru Garðar Sigurðsson alþingismaður, Guðmundur Bjarnleifs-
son járnsmiður i samstarfsnefnd, Sigurður Daníelsson yf irverkstjóri, Lúðvík Jósepsson alþingismaður, Þórð-
ur Guðlaugsson yfirverkstjóri, Sigurjón Péturssonborgarfulltrúi, Svava Jakobsdóttir alþm. og Baldur
óskarsson starfsmaður verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins (Ljósm.: GEL)
Hermann Jónsson járnsmiður er
kominn hátt á áttræðisaldur og er
elsti starfsmaður Landsmiðjunn-
ar, búinn að vinna þar síðan á
kreppuárunum. Hann er fullur af
f jöri og ber þess sannarlega ekki
merki að hann sé orðinn gamall.
A hverju einasta ári fer hann á
skauta og hleypur um aIII eins og
unglamb.
Spjallað við einn af elstu járnsmiðum Landsmiðjunnar. Fv. Bjarnleifur
Arni Bjarnleifsson járnsmiður, Lúðvík Jósepsson, Svava Jakobsdóttir, Arni
Kristbjörnsson trúnaðarmaöur járnsmiða (bak við), Stefán Einarsson járnsmiður
og Guðjón Jónsson (Ljósm.: GEL)
'::í ->'í
Aðalfundur
Kaupfélags
Suðurnesja
Þann 8. mai hélt Kaupfélag
Suðurnesja aðalfund. 1 skýrslu
stjórnar sem formaður félags-
stjórnar, Sigfús Kristjánsson,
flutti kom fram að félagsmenn
voru i árslok sl. 2.850 og hafði
þeim fjölgað nokkuð á árinu.
Heildarvelta félagsins var á
árinu 1976 liðlega 1,3
miljarðar, afskriftir voru 4,5
miljónir og tekjuafgangur 556
þúsund. Var honum að mestu
ráðstafað til menningarstarf-
semi á félagssvæðinu og til
starfsmannafélagsins. Þá var
flutt skýrsla um rekstur hrað-
frystihúss félagsins. Það velti
liðlega 518 miljónum á árinu
sem leið, afskrifaði 45,8
miljónir og sýndi 14,8 miljóna
króna tap. Loks lýsti fundur-
inn yfir stuðningi við ályktun
stjórnar StS i tilefni
kjarasamninganna.
Ættfræðafélagið
Myndbrengl
Leiðinlegt mynda-
brengl varð i blaðinu i gær i
þættinum Vinna og verkafóik
Með viðtalinu við Freyju
Eiriksdöttur var ekki birt rétt
mynd. Myndin var af Ernu
Haraldsson, en hér er rétta
myndin af Freyju, og biðjum
við alla aðila velvirðingar á
þessum mistökum.
hélt aðalfund sinn fyrir
skömmu. Þar kom ma. fram
að hafinn er undirbúningur að
útgáfu allsherjarmanntalsins
frá 1801, en það nær til allra
sókna landsins og hefur allt
varðveist. 1 stjórn félagsins
eru nú Ólafur Þ. Kristjánsson
formaður, Bjarni Vilhjálms-
son, Jóhann Gunnar Ólafsson,
Pétur Haraldsson og Jakobina
Pétursdóttir.
Átelja
aðstöðuleysi
þroskaheftra
Á aðalfundi Vinafélags
Skálatúnsheimilisins sem
haldinn var fyrir skömmu var
samþykkt að átelja harðlega
„rikjandi óstand um árabil i
daggjalda málum heim-
ilisins... Fundurinn lýsir furðu
sinni á þvi að yfirvöld skuli
ekki skilja rekstrarörðugleika
þessara heimila, þvi það er
staðreynd að daggjöldin
nægja aldrei fyrir eðlilegum
og daglegum rekstri þeirra...
Futidurinn átelur harðlega
þann mikla seinagang yfir-
valda til að skapa aðstöðu
fyrir þroskahefta á heimilum i
landinu til eðlilegrat; og sjálf-
stæðrar þjálfunar og kennslu,
sem er þó, samkvæmt lands-
lögum, sjálfsagður réttur
þeirra.”
Ársþing UMSE
Ársþing Ungmenna-
sambands Eyjafjarðar var
haldið að Dalvik um siðustu
mánaðamót. I skýrslu
stjórnar kom fram að megin-
hluti starfsemi sambandsins
er á sviði iþróttamála, en alls
eru iþróttaiðkendur á
sambandssvæðinu nær 1.700
talsins. Iþróttamaður UMSE
1976 var kjörinn Aðalsteinn
Bernharðsson úr Umf.
Framtið. t UMSE eru nú 15
félög með 1.054 félagsmenn
innan sinna vébanda.
Formaður UMSE var endur-
kjörinn Haukur Steindórsson,
Þrihyrningi.
UMSE á 70 ára afmæli á
þessu ári, og i tilefni af þvi
skoraöi ársþingið á UMFt og
ungmennafélögin almennt að
gera þetta ár að sérstöku
baráttuári gegn áfengisbölinu
og hvatti til bindindisfræðslu i
skólum. Þá skoraði þingiö á
sambandsfélögin að vinna
sem ötulast að gróðurvernd og
landgræðslu.
Mjólkursamlag
KEA
Aðalfundur Mjólkursamlags
KEA var haldinn á Akureyri 2.
mai sl. t skýrslu samlags-
stjóra, Vernharðs Sveins-
sonar, kom fram að innlagt
mjólkurmagn var liðlega 22
miljónir litra á árinu sem leið
og hafði aukist um 1.92% milli
ára. Framleiðendur voru 320
og hafði fækkað um 28 frá
fyrra ári. Af mjólkinni var
21,7% selt sem neyslumjólk,en
78,3% fór til framleiðslu á
ýmsum mjólkurvörum. Voru
framleidd 1.592 tonn af slikum
vörum. Heildarverð til fram-
leiðenda fyrir innlagða mjólk
varð kr. 64.03 fyrir hvern litra
á árinu sem leið.
Á árinu 1976 fjárfesti
samlagið 144 miljónir króna i
byggingu og vélum og 40
miljónir i tankflutningabif-
reiðum fyrir mjólkur-
flutninga. Er tankvæðingu
samlagssvæðisins nú að fullu
lokið.
Sállækningar
med tónlist
Þann 8.-15. júni n.k. verður
bandariski tónlistarlæknirinn
HELEN BONNY stödd hér á
landi á vegum Rannsókna-
stofnunar vitundarinnar. Mun
hún ásamt Geir V. Vilhjálms-
syni, sálfræðingi, halda einnar
viku námskeið i SALLÆKN-
INGUM MEÐ TONLIST.
Námskeið þetta er eingöngu
ætlað þeim sem starfa á sviði
heilbrigðisþjónustu eða sál-
gæslu, einkum læknum, sál-
fræðingum, félagsráðgjöfum.
hjúkrunarfólki, sérkennurum
og stjórnendum heilbrigðis-
stofnana. Fjöldi þátttakenda
er takmarkaður.
Skóglendi
á íslandi
Út er komið rit á vegum
Skógræktar rikisins og Skóg-
ræktarfél. lslands,rit er nefn-
ist „Skóglendi á Islandi”, at-
huganir á stærö þess og á-
standi.
Er i ritinu fjallað um allan
þann skóg sem finnst hér á
landi og gerð greinargóð út-
tekt á stærð hans og ástandi,
m.a. eru margar töflur i ritinu
til nánari útskýringa.