Þjóðviljinn - 25.05.1977, Side 16
NOÐVIUINN
Miðvikudagur 25. mai 1977.
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögUm og sunnudögum.
Utan þessa tima erhægtað ná i blaðamenn og aðra starfs-
menn blaðsins i þessum simum. Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348.
@81333
Ginnig skalbent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóðviljans i sima-
skrá.
Áfallalaus heildarrekstur hjá Flugleiöum:
Hagnaðurinn
nálægt hálf-
um miljarði
Hagnaður varð af rekstri
Fiugleiða annað árið i röð
f járhagsárið 1976. Eftir að
tillit hefur verið tekið til
f jármagnskostnaðar og
afskrifta nam hagnaður-
inn 462 miljónum króna.
Afskriftir námu 466
miljónum og fjármagns-
kostnaður 416 miljónum
króna. Aðrar tekjur Flug-
leiöa á árinu/ einkum af
INÚK á lista-
hátíð í Bergen
Leikflokkur Þjóðleikhússins
sýnir leikritið INÚK á Listahátið-
inni i Bergen dagana 1.-6. júni nk.
Fer flokkurinn utan 30. mai og
sýnirleikinn 5sinnum á hátiðinni.
Verða sýningar i Bryggens
Museum i Bergen. Inúk hefur
verið sýndur áður i Noregi. Það
var i Þrándheimi i fyrstu utan-
ferð flokksins fyrir tveimur ár-
um. INÚK hefur alls verið sýndur
i 18 löndum heims og eru sýningar
orðnar nokkuð á þriðja hundrað.
Fleiri islendingar verða á ferð-
inni á Listahátiðinni i Bergen, þvi
að fjöldi islensks tónlistarfólks
tekur þátt i hátiðinni.
sölu eignarhluta í CL-44
flugvélunum þremur og
vegna tjónabóta, námu 244
miljónum króna.
Kristján Guðlaugsson,
stjórnarformaður Flugleiða,
sagði á aðalfundinum, sem hald-
inn var i gær, að það sem mest
gildi hefði fyrir framtiðina væri
sú staðreynd, ,,að áfallalaus
heildarrekstur hefði orðiö á árinu
og sannaði það ótvirætt að sam-
eining Flugfélags tslands og Loft-
leiða hefði verið réttmæt.”
Heildareignir Flugleiða h.f.
námu i árslok 1976 11.776 milj.
króna en skuldir samtals 9.650
milj. kr. Eigið fé félagsins i árs-
lok er þvi 2.126 milj. kr.
Hagnaðurinn af rekstri Flug-
leiða er aðeins 3% af heildartekj-
um félagsins, og benda forráða-
menn á að honum sé náð með svo
hárri hleðslunýtingu vélanna,
75,7%, að vafasamt sé að lengra
verði náð á þvi sviði. Þessvegna
verði að gæta ýtrustu hagsýni og
varfærni til þess að tryggja fjár-
hagsafkomuna á komandi árum,
einkanlega vegna þess að allur
reksturskostnaður fer ört hækk-
andi og sömuleiðis vegna ört
harðnandi samkeppni flugfélaga,
sérstaklega á flugleiðum yfir
Norður-Atlantshaf.
* Framhald á bls. 14.
Þessi mynd vartekin af leikhópnum sem flytur Sabinu fyrirutan félagsheimiliðá Seltjarnarnesi I fyrra.
Margrét óskarsdóttir ieikstjóri situr i þriðju röðlengst til vinstri. (Ljósm.iGlK;
Litla leikklúbbnum á Isafirði:
Boðið á listahátíð í Bergen
með Sabinu eftir Hafliöa Magnússon á Bildudal
Listahátiðin i Bergen verður
haldin I 25. sinn núna um hvita-
sunnuhelgina. I þvi tilefni er á-
hugalistafólki boðið i fyrsta
skipti að taka þát.t i þessari há-
tið og hefur Litla leikklúbbnum
á Isafirði hlotnast sá heiður að
flytja þar alislenskan söngleik
eftir Hafliða Magnússon á
Bildudal. Er það Sabina eða
Eyjan fagra sem Litli leik-
klúbburinn frumsýndi i fyrra og
hefur nú einnig veriö sýnd á
Akureyri. Þessar upplýsingar
fékk Þjóðviljinn hjá Trausta
Hermannssyni á Isafirði, en
hann er formaður leikklúbbsins.
Sabina er ádeiluverk með
léttu ivafi og söngvum og hefur
hlotið mjög góðar undirtektir
viða um land,og Litli leikklúbb-
urinn ferðaðist ma. með leikinn
um höfuðborgarsvæðið i fyrra.
Leikstjóri er Margrét óskars-
dóttir.
Verkið verður flutt i 3 skipti i
Bergen, þar af i eitt skipti á ráð-
stefnu eða námskeiði, sem hald-
ið verður fyrir áhugaleikfólk
sem sækir listahátiðina. — GFr
Magnús Kristinsson formaður Styrktarfélags vangefinna tekur fyrstu
skóflustunguna að grunni hins nýja heimilis við Stjörnugróf.
Ljósm.: —ÞH
Styrktarfélag vangefinna
Reisir nýtt dag-
vistarheimili
í gær var tekin fyrsta skóflu-
stungan að grunni nýs dagvistar-
heimilis sem Styrktarfélag van-
gefinna er að hefja framkvæmdir
við i Stjörnugróf I Reykjavik. Ris
nýja heimilið á sömu lóð og
Bjarkarás sem styrktarfélagið
rekur einnig.
Tildrög að byggingu þessa nýja
heimilis eru þau að i fyrra þegar
stjórn félagsins var að ræða það
kom fuiltrúi Hjálparstofnunar
kirkjunnará fund hennar og segir
að stofnunin hafi ákveðið að helga
árið 1976 málefnum vangefinna.
Var fórnarvika kirkjunnar helguð
kynninguá málefnum vangefinna
og fjársöfnun hafin þeim til
styrktar.
Afrakstur söfnunarinnar varð
15 miljónir króna sem Styrktar-
félag vangefinna fékk til
ráðstöfunar. Akvað félagsstjórn-
in þá að ráðast I byggingu dag-
heimilisins.
Nýja heimilið verður 620 fer-
metrar að stærð auk 130 fermetra
kjallara. Það er ætlað fyrir 24
vistmenn og verða það einkum
unglingar og fullorðið fólk. Smiði
hússins var boðin út og tekið til-
boði Húsgrundar hf. sem bauðst
til að gera húsið fokhelt fyrir 42
miljónir. Framhald á bls. 14.
íhaldið í útvarpsráði
Fdur Svavari Gests
þáttínn Út og suður
Hafnar tilboðiumsjónarmannaþáttarinsfrá í fyrrasumar
A fundi útvarpsráðs sl. föstu-
dag voru umræður um sumar-
dagskrá hljóðvarps á dagskrá.
Kom þar til snarpra deilna vegna
eins dagskrárliðar, þáttarins Út
og suður sem var á dagskrá sið-
degis á laugardögum i fyrrasum-
ar.
Eins og menn muna höfðu þau
umsjónmeð þessum þættiÁsta R.
Jóhannesdóttir og Hjalti Jón
Sveinsson. Var þættinum útvarp-
að beint og stóð i fjórar klukku-
stundir.
Þegar útvarpsráð fjallaði um
þennan þátt á föstudaginn lá fyrir
tilboðþeirra Astu og Hjalta um að
annast þennan þátt með sama
sniði og i fyrra. En það lá einnig
fyrir annað tilboð i sama þátt:
Svavar Gests hljómplötuútgef-
andi kvaðst vera reiðubúinn að
taka þennan þátt að sér og fella
hann að hljómplöturabbi sinu
sem hann hefur haft á sunnudög-
um undanfarin sumur, þættinum
Alltaf á sunnudögum.
Eins ogáðursegir urðu snarpar
deilur um þetta á fundi útvarps-
ráðs og lyktaði þeim með nafna-
kalli. Fjórir greiddu atkvæði með
þvi að fela Svavari þáttinn en
tveir voru á móti. Þeir sem voru
hlynntir Svavari voru ihalds-
mennirnir Friðrik Sófusson, Auð-
ur Auöuns og Ellert Schram og
framsóknarmaðurinn Þórarinn
Þórarinsson. Á móti voru Ólafur
R. Einarsson fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins og Stefán Júliusson
fulltrúi Alþýðuflokksins.
I tilefni af þessari einkennilegu
afgreiðslu haföi Þjóðviljinn tal af
Ólafi R. Einarssyni. Hann kvaðst
hafa látið bóka að hann teldi
óeðlilegt að fela Svavari þennan
þáttþar semhanná ma. að kynna
nýjar islenskar hljómplötur, en
hann er sjálfur umsvifamikill
hljöm plötuútgef andi.
— Þessi ákvörðun er lika van-
traust á ágætt útvarpsfólk. Þau
framkvæmdu þessa hugmynd að
hafa beinan útvarpsþátt i svona
langan tima á mjög snjallan þátt
og brutu þar með isinn að þessu
leyti. Hljóðvarpið heyrði ekki
eina einustu gagnrýnisrödd á
þennan þátt, en fékk hins vegar
mikið hrós fyrir hann.
Það var ætlunin með þessum
þætti að koma á samfelldri léttri
dagskrá á laugardagseftirmið-
dögum, þættisem fólk gæti skrúf-
að frá i bilnum sinum eða i útileg-
unni, þætti sem ekki væri sundur-
klipptur af umferðarþáttum oþh.
Þau gerðu þetta mjög vel, fóru td.
vitt og breitt um landið, Jrátt
fyrir það að yfirvinnubann út-
varpsmanna skapaði þeim ýmsa
erfiðleika.
Og nú eigum viö að fá Svavar
Gests, sem ég leyfi mér að kalla
gamla lummu. Hann gengur inn í
uppbyggingu þáttarins sem þau
Asta og Hjalti komu upp og á að
vera skemmtilegur i hálfa fjórðu
klukkustund. Það er i lagi að fela
þessum manni skemmtiþátt á
einhverjum öðrum tima,en þarna
á hann ekki heima.
Þeim Astu og Hjalta hefur verið
boðinn timinn á sunnudags-
morgnum sem þeir hafa nú Einar
Karl og Ami Gunnarsson, en það
má telja vafasamt að þau þiggi
hann eftir þessa meðferð, sagði
Ólafur.
Þess má geta i lokin að Svavar
Gests er flokksbundinn sjálf-
stæðismaður, en þau Ásta og
Hjalti eru i hvorugum stjórnar-
flokknum.
—ÞH