Þjóðviljinn - 03.07.1977, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 03.07.1977, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 3. júll 1977 „Bilið á milli tekna karla og kvenna eykst stöðugt í Banda- ríkjunum” segir Gloria Steinem Gloria Steinem nefnist kona, sem flestir þekkja vestan hafs og þóft viðar væri leitað. Hún hefur verið ein fremsta baráttu- konan í jaf nréttisbarátt- unni í Bandaríkjunum og er nú ritstjóri kvenna- blaðsins MS-magazine. Þess skal strax getið, til að fyrirbyggja misSkilning, að hér er ekki um að ræða kvennablað af þeirri teg- und sem við eigum að venj- ast, þ.e. blað með prjóna- skap og öðrum kvenlegum dyggðum, heldur blað sem berst fyrir jafnrétti kvenna og erstjórnaðaf konum. Nýlega var viðtal við Gloriu Steinem í sænsku blaði og hér á eftir fer úrdráttur úr því. Gloria skrifaöi um stjórnmál i New York Magazine og byrjaði að taka þátt i jafnréttisbaráttunni i Bandarikjunum, með róttæku vinstra fólki, i lok sjötta áratugs- ins. Hún segir svo frá stöðu kvenna i Bandarikjunum: „Sufragettuhreyfingin var fyrsta jafnréttishreyfingin i Bandarikjunum og hún starfaði i um það bil 100 ár, eða fram yfir aldamótin siðustu. Konur i Bandarikjunum fengu kosninga- rétt 1920, hálfri öld á eftir svarta karlmanninum. A árunum i kringum 1930 voru sett lög sem bönnuðu konum að vinna utan heimilis, en i seinni heimsstyrj- öldinni urðu konurnar nauðsyn- legar i atvinnulifinu, en voru svo sendar heim aftur, þegar karl- mennirnir komu af vigstöðv- unum. Hugarfarsbreytingar? Það er ekki fyrr en eftir 1950 að jafnréttishreyfingin fer að berj- ast að ráöi aftur, og skiptist hún þá i fjöldamörg samtök. Vel- menntaðar konur og miðstéttar- húsmæður stofnuðu samtök eins og NOW (National Organization for Women) og WEAL (Womans Equity Action Legue). Sjálf hef ég aldrei getað barist heilshuar með hreyfingu eins og NOW, sem fyrst og fremst höfðar til ákveðins hóps kvenna, og hef ég tilheyrt mun róttækari hóp, sem vill berjast fyrir allar konur og reyna að skilgreina stöðu þeirra samfélaginu. Ennþá eru viö að berjast fyrir ýmsum grund- vallaratriðum eins og t.d. atvinnu fyrir allar konur, heilsugæslu, barnagæslu og fóstureyðingum. Nokkru af þessu höfum við náð. I launamálum varð gifurleg breyt- ing þegar simafélagið ITT var fundiö sekt um aö hafa mismunað konum I launum og þurfti að borga gifurlegar upphæðir til J afnréttisbaráttan er vinstra megin við sósíalismann segir Gloria Steinem, forvígis- kona í jafréttis- baráttunni í Banda- ríkjunum kvennanna. Jafnréttisbaráttan hefur tekiö ýmsum breytingum, eftir þvi sem fleiri mál eru tekn fyrir. Fólk er nú almennt orðið meðvitað um að konum er viða mismunað og þær eru miklu kúg- aöri en karlmennirnir. Við byrjum venjulega hverja nýja baráttu með upplýsinga- og gagnasöfnum, siðan eru fjölda- fundir, mótmælagöngur, fyrir- lestrar og málið kemst á allra varir. Við getum nefnt dæmi eins og herferðina gegn nauðgunum, en i þvi máli hefur orðið gifurleg hugarfarsbreyting hjá almenn- ingi. Eigi að siöur eykst bilið stöðugt á milli tekna karla og kvenna og það er miklu breiðara nú en fyrir lOárum siðan. Um leið og mennt- un kvenna verður stöðugt betri, eykst atvinnuleysi kvenna. Það er mikið lagt upp úr að sýna konur i ábyrgðastöðum, t.d. i sjónvarpi, sljkar fyrirmyndir þykja nauð- synlegar, en allur þorri kvenna er i láglaunastörfum. Vinstri og hægri. „A Norðurlöndum er klofningur i kvennahreyfingum, sem styðja sósialista og þeim sem ekki gera það. Er siikur'klo’fningur 1 Banda- rikjunum?” „Nei, i Bandarikjunum er engm áhrifarik og öflug sósialistisk jafnréttisbarátta eins og i Evrópu. Þótt maður óskaði þess, þá hefði sósialistiskur frambjóð- andi enga möguleika á að vinna kosningar. Það er neikvæða hliðin viö þetta, en sú jákvæöa er að æ fleiri hafa nú séð að jafn- réttisbaráttan er vinstra megin við sósialismann. Marx var ekki nægilega róttækur I jafnréttis- málum. Við segjum: Það skiptir ekki máli hvort fóstureyðingar eru umdeilanlegar, svo lengi sem konur deyja vegna þess hvernig þær eru framkvæmdar. Svo það er dálitið óljóst hvað er vinstri og hægri i þessu sambandi. Eitt sinn spuröi mjög ihaldssamur maður mig hvort ég teldi að jafnréttis- hreyfingin væri á móti kapital- isma og ég svaraði: „Kapital- isminn er einn þátturinn. Við erum á móti karlaveldi og það er miklu viðtækara. Kapitalisminn er aðeins ein tegund karlaveldis.” Fóstureyðingar. Varðandi fóstureyðingalöggjöf- ina i Bandarikjunum segir Gloria Steinem, að æðsti dómstóll Bandarikjanna hafi komist að þeirri niðurstöðu aö fóstureyð- ingar falli undir sjálfs- ákvörðunarrétt einstaklingsins og þvi sé það konunnar aö ákveða fóstureyðingu innan 3ja mánaða. Ýmislegthefur orðið til að tefja og koma i veg fyrir að þessi lög geti orðið að veruleika, enda vilja yfirvöld hvers lands jafnan fá að hafa mannfjölgunina i sinum höndum og framtið landsins. Þess vegna hefur það sýnt sig, að þjóð- félag þar sem fólksfjölgun er mjög ör, leyfir gjarnan fóstureyð- ingar, en um leiö og draga fer of mikið úr fólksfjölguninni taka valdhafar af konunni þau „for- réttindi” að ráða yfir sinum eigin likama”. Þess vegna er baráttan fyrir sjálfsákvörðunarrétti kvenna á þessu sviði okkar „Viet- nam” ef svo má segja,” segir Gloria. Nauðgunarmál. Annað mál hefur verið mjög á döfinni i Bandarikjunum og viðar á siðasta ári, en það eru nauð- gunarafbrotin. Gloria segir að nú sé loks farið að lita á nauögarann sem glæpamann, en ekki þá sem fyrir nauðguninni veröur, en þannig hefur það stundum virst. „Fram til þessa hefur þurft að sýna þrenns konar sönnunargögn, til þess að nauðgunin sé viður- kennd: Vitni, nýtt sæði og áverka á likamanum. Þar að auki var það þannig i sumum rikjum, að þess var krafist að fórnardýr nauðgarans segði frá fyrri kyn- ferðisreynslu, en þess var hins vegar ekki krafist af nauðgar- anum sjálfum. Enn þann dag i dag þarf mikið hugrekki til að kæra nauðgun og ganga i gegnum yfirheyrslur og fleira. Nauðgunin hefur i rauninni miklu meira með ofbeldi að gera en „sex”. Nauðg- arinn hefur meiri áhuga á að niðurlægja konuna i fiestum til- fellum, en að eiga samfarir við hana enda sýna skýrslur að fæst- um nauðgunum lyktar i raun- verulegum samförum. Nauðganir sýna karlveldistilhneigingar samfélagsins, þar sem menn neyðast til að beita ofbeldi, til að sýna að þeir séu karlmenn. Hvaö gerir Carter? „Hvernig heldur þú að Carter eigi eftir að reynast i jafnréttis- málum?” „Hann er búinn að tala mikið um að hann sé persónulega á móti fóstureyðingum og að hann geti ekki hugsað sér þær — en samt hefur hann sýnt i verki að hann styður þær að minnsta kosti betur en Ford, og ýmis mál hefur hann tekið fyrir sem skipta konur miklu. Loforð hans um heilsu- gæslu eru mjög þýðingarmikil fynr konur, þar sem konur leita læknishjálpar um 30% oftar en karlmenn, vegna þess að þær fæöa börnin. Loforð hans um dag- vistunarstofnanir eru skárri en ekkert, þó þau viröist fyrst og fremst beinast að börnum úti- vinnandi kvenna, en tilheyra ekki rétti barna almennt. Carter hafði margar konur i fremstu linu i kosningabaráttunni, þótt þær væru ekki nógu margar. Flestir hafa bara eina hvita kvikmyndastjörnu og einn svartan iþróttamann, til að sýna frjálslyndið. Það er jú einu sinni þannig hér, að þeir sem hafa valdið og peningana geta látið til sin heyra og það eru þeir sem ná fram viljasinum. Þar sem við konur höfum hvorugt, er þaö eina sem dugar aö standa saman sem skipulagður hópur og þrýsta á til að breyta ástandinu,” segir Gloria. (þs þýddi og endursagði)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.