Þjóðviljinn - 03.07.1977, Síða 3
Sunnudagur 3. júll 1977 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 3
RAFAFL
Barmahlíö 4 Reykjavík
Símar 217 00 2 8022
Leggjum nýtt -
lögum gamalt
Reisugilli!
Áfangi sem allir húsbyggjendur
fagna. Einkum þó ef allt gengur
samkvæmt áætlun. Am.k. leggjum
viö mikiö upp úr því. Bjóöum hús-
byggjendum hagkvæmar
rafteikningar þegar viö önnumst
raflagnir. Eins og allir sem skipta
viö Rafafl njóta þeir einnig 10%
afsláttar af öllu því raflagnaefni
sem unniö er úr. Gerum sérstök
föst tilboö ef óskaö er.
og mikill
skortur
í vœndum
Vatnseftirlit I Japan: þar er reynt
aö nota vatn oftar en einu sinni.
Er sá dagur langt undan
aö dropi af vatni geti orðið
jafn dýr og dropi af olíu?
Einn þeirra sérfræðinga
sem tóku þátt í ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna um
vatnsbúskap heimsins í
Mar del Plata i Argentínu í
byrjun apríl var svo böl-
sýnn að halda þessu fram.
Myndir teknar úr geimförum
sýna, að það eru miklar gnægðir
vatns á jörðunni. Vandinn er sá,
að aðeins litill hluti þess er
aðgengilegur mönnum til
notkunar. 97,3% af 1,4 miljörðum
rúmkilómetra af vatni á jörðunni
er sjór og þvi ekki drykkjarhæft
eöa nothæft til akuryrkju Af þeim
2,7% af fersku vatni, sem þá eru
eftir, eru tveir þriðju bundnir i
jöklum eða heimskautais. Annar
drjúgur skammtur af vatni er i
jarðlögum, einatt þúsundum
metra undir yfirborði jarðar. t
raun er það svo, að aðeins 0,36 af
öllu vatni á jörðunni er sæmilega
aðgengilegt mönnum i ám, stöðu-
vötnum og mýrum. Það er hægt
að beina þessu vatni i annan far-
veg nú, og það er hægt aö bæta
gæði þess til notkunar i þágu
mannfólks. En magnið breytist
ekki fyrir það.
Klósett og
bílaþvottur
Eftirspurnin eftir þessum tak-
mörkuðu vatnsbirgðum hefur
breyst iskyggilega hratt eftir þvi
sem þeim fjölgar sem nota vatn
ekki aðeins til drykkjar eða mats-
eldar, heldur og til að baða sig i,
skola niður úr klósettum, þvo bila
og vökva grasflatir. Meðan fólk á
þurrari svæðum Afriku notar
kannski aðeins þrjá litra af vatni
á dag á nef hvert, þá eru ibúar
þróaðra landa margfalt eyðslu-
samari. Samkvæmt heimildum
sem birtar voru á áðurnefndri
ráðstefnu notar hver ibúi
Lundúnaborgar 263 litara á dag,
Parisar 500litra, Moskvu 600 litra
og New York 1045 litra. Jafnvel
þótt hver einstaklingur drægi úr
vatnsnotkun sinni er liklegt að
eftirspurnin haldi áfram að vaxa,
þvi að gert er ráð fyrir þvi, að
ibúar jarðar verði um sjö milj-
arðar um næstu aldamót — þeir
eru nú fjórir miljarðar.
Áveita og iðnaður
Einkaneysla á vatni er þó ekki
nema litill hluti þess vatns sem
landbúnaðurinn þarf, en hann
tekur til sin 80% af öllu vatni sem
mannkynið notar. Um þaö bil 30-
40% af allri matvælaframleiöslu
heimsins er háð áveitum. Með
aukinni eftirspurn eftir mat-
vælum vegna fólksfjölgunar þarf
að vinna nýtt land undir plóginn
og þá fyrst og fremst fyrir tilstilli
áveitna.
Iðnaðurinn gerist og æ vatns-
frekari. Hann þarf vatn til raf-
orkuframleiðslu, til að kæla
atómofna og til þess að framleiða
málma og margskonar efna-
blöndur. Afleiðingin er sú aö ár og
vötn hafa i svo rikum mæli
mengast af notkun vatns i land-
búnaði og iðnaði — og svo af
úrgangsefnum frá mönnunum
sjálfum — að ekki er lengur hægt
aö nota vatn úr þeim án þess það
sé hreinsað með kostnaðar-
sömum hætti. Þrátt fyrir hreins-
unarviöleitni hefur ill nauðsyn
fyrir drykkjarvatn úr menguðum
vatnsbólum haft i för með sér
meiriháttar sýkingu. Alþjóða
heilbrigðismálastofnunin, WHO,
telur að allt að 80% af sjúkdóms-
tilfellum megi rekja til mengaðs
vatns.
Nýleg vandræði hafa i auknum
mæli beint athygli manna að þvi,
hve takmarkaðar vatnsbirgöir
heimsins eru i raun og veru. Til
dæmis hefur það gerst viða i
vesturhéruðum Bandarikjanna,
að þurrkar hafa leitt til þess að
mjög hefur gengið á birgðir jarð-
vatns. Margir brunnar hafa geng-
ið til þurrðar og bændur hafa orð-
iö að bora dýpra og dýpra eftir
vatni. Og þótt nýir brunnar finn-
ist, þá er það oft svo, að lindirnar
eru ekki þar sem mest þörf væri
fyrir þær.
ísjakar og eining
Sum lönd reyna nýjar leiðir til
að mæta vatnsþörfum sinum.
Saudi Arabia'til dæmis hefur gert
samning við firma eitt franskt um
möguleika á þvi að draga mikla
hafisjaka frá Suöurskautinu til
hafnar við Rauða hafið og bræða
hann þar. Aðrar aðferðir eru ekki
eins nýstárlegar — til dæmis:
I ísrael rignir sama og ekki átta
mánuði ársins og landið er mjög
háö vatni úr ánni Jórdan. En
Israel vinnur einnig allmikið af
vatni úr sjó, eða um þrjár miljón-
ir rúmmetra á ári. Kostnaðurinn
er mikill, eða um 200 kr á rúm-
metra, en israelar eiga fárra
annarra kosta völ. 1 Saudi Arabiu
eru nægir peningar, og þar hefur
stjórnin lagt út i áætlun sem á að
kosta 12 miljarði dollara — sam-
kvæmt henni á að vera hægt að
vinna 2,3 miljónir tonna af vatni á
dag árið 1980. Oliurikið Kuwait
fær nú þegar mest af vatni sinu úr
sjó.
— Djúpir brunnar. Egypskir
jaröfræðingar gera áætlanir um
aö bora eftir vatni djúpt i jörð
(allt að 1.200 metrum) undir eyði-
mörkinni i vesturhluta landsins.
Þeir segja, að með þessu vatni
megi aftur græða upp eyðimörk-
ina. En vandinn er sá, að við
þessar lindir bætist sáralitiö á ári
hverju, og þó að þær geti dugað
lengi, þá mun jafnt og þétt ganga
á þær eftir að vinnsla er hafin.
Hringrás. Sum lönd reyna að
drýgja vatnsbirgðir með þvi að
nota hvern vatnsdropa oftar en
einu sinni.Japanir reyna kerfi er
byggir á þvi, að vatn er fyrst not-
að til persónulegra þarfa, en sið-
an fyrir iðnað. Pappirsiðnaöur
finna reynir einnig kerfi sem ger-
ir mögulegt að nota sama vatnið
oftar en einu sinni, og ýmis lönd
önnur krefjast þess, aö kælivatn
sé notað i lokuöum kerfum, i stað
þess að fyrirtæki geti stööugt
dregið til sin vatn úr ám og vötn-
um.
Thamesá i þurrkum: vlða hefur verið hreinsað til, en hreinsun er dýr.
Breytt er farvegum
fljóta
Astralir hafa til dæmis veitt
hluta af vatni Snowy River, sem
rennur i Tasmaniuhaf, gegnum
Snowy Mountains (Snæfjöll) og
siðan á nýtt ræktarland. Sovét-
menn vinna og að þvi, að veita
hluta af vatni ánna Ob og Jeniséi,
sem renna i Norður-tshafið, suður
á bóginn, inn á hinar þurru lendur
Mið-Asiu.
En sem fyrr segir: það er hægt
að nýta vatn betur en nú er gert,
en flest bendir til þess að sóun,
mengun og svo fólksfjölgun muni
gera vatnsbúskap æ erfiðari eftir
þvi sem lengra liður.
Vatnsbúskapur heims
er rekinn með tapi